Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SKATTLAGNING MINNKI Hátt eldsneytisverð ætti að vera stjórnvöldum tilefni til að draga úr ofurskattlagningu á eldsneyti við nú- verandi aðstæður. Þetta er mat Runólfs Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Félags íslenskra bifreiðaeig- enda. Ekki tilefni til aðgerða Heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra telur dóm Hæsta- réttar frá 8. júní sl. í máli LSH gegn Tómasi Zoëga ekki gefa tilefni til að- gerða gagnvart þeim stjórnendum LSH sem að málinu hafa komið. Greiðslubyrðin þyngist Sífellt fleiri leita sér aðstoðar hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heim- ilanna. Er ljóst að greiðslubyrði fólks er að þyngjast eftir því sem verðbólgan eykst. Tilraunaskot fordæmd Leiðtogar ríkja heims fordæmdu í gær stjórnvöld í Norður-Kóreu fyrir að skjóta sjö eldflaugum í tilrauna- skyni. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna kom saman til að ræða málið. Hertar aðgerðir á Gaza Stjórn Ísraels veitti í gær hernum heimild til víðtækari aðgerða á Gaza eftir að herskáir Palestínumenn skutu flugskeyti á ísraelsku borgina Ashkelon. Y f i r l i t Kynningar - Með Morgunblaðinu í dag fylgir bæklingurinn Horfðu fram á veginn frá Umferðarstofu. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %             &         '() * +,,,                        Í dag Sigmund 8 Forystugrein 24 Fréttaskýring 8 Viðhorf 26 Úr verinu 12 Minningar 27/33 Erlent 14/15 Hestar 35 Minn staður 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39 Akureyri 17 Staður og stund 38 Suðurnes 18 Leikhús 40 Austurland 18 Bíó 42/45 Menning 19, 40 Ljósvakamiðlar 46 Daglegt líf 20/21 Veður 47 Umræðan 22/26 Staksteinar 47 * * * MS drykkjarvörur í útileguna MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í handhægum umbúðum í næstu verslun. HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráðherra telur dóm Hæstaréttar í máli Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) gegn Tómasi Zoëga ekki gefa til- efni til aðgerða gegn stjórnendum sem að málinu komu. Þetta kemur fram í bréfi sem ráðherra sendi Karli Axelssyni, lögmanni Tómasar, og að ráðu- neytið hafi tekið það til efnislegrar skoðunar hvort dómurinn gefi tilefni til að beita úrræðum sem veitt eru í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins, gagnvart viðkomandi stjórnendum spítalans. „Aðalkröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar- innar var hafnað þar sem hún hafi verið tekin af bæru stjórnvaldi. Í þessu felst að ákvörðunin stend- ur óhögguð nema stjórnendur spítalans taki ákvörðun um annað, en það er mat ráðuneytisins að mál skjólstæðings yðar [Tómasar] sé á forræði spít- alans,“ segir í bréfinu. Forstjóri LSH og framkvæmdastjóri lækninga hafa sent læknum á LSH bréf til að upplýsa þá um afstöðu sína til dóms Hæstaréttar. Þar kemur fram að í niðurstöðu Hæstaréttar felist að ákvörðun LSH um tilfærslu Tómasar í starfi standi óhögguð. Nið- urstaðan feli þó í sér að spítalinn byggði ákvörðun sína á röngum lagaheimildum en ekki að Tómas eigi sjálfkrafa tilkall til yfirlæknisstarfsins. Í kjölfar dómsins hafi verið óskað eftir viðræðum við Tómas og leitað samkomulags en fljótlega komið í ljós að hann hefði ekki hug á að starfa sem yfirlæknir á geðsviði í fullu starfi og hætta rekstri læknastofu. Í samræmi við stöður annarra yfirlækna Kemur fram að það hafi, að mati bréfritara, eink- um verið 2. liður samkomulagsins sem Tómas var ekki reiðubúinn að ganga að. Sá liður felur í sér að „létt sé af TZ tilteknum stjórnunarskyldum og starf hans skipulagt í samráði við sviðsstjóra lækninga geðsviðs spítalans og framkvæmdastjóra lækn- inga“ og er í samræmi við stöðu nokkurra annarra yfirlækna en samkvæmt ákvörðun spítalans hafi þeir yfirlæknar einir óskerta stjórnunarábyrgð sem eru í fullu starfi og starfa einungis við spítalann. „Var að okkar mati eðlilegt, í ljósi meginstefnu spítalans, að Tómas bæri ekki fullar stjórnunar- skyldur væri hann ekki í fullu starfi. Við teljum að sú stefna spítalans að yfirlæknar séu í fullu starfi og sinni ekki rekstri einkastofu meðfram starfi hjá LSH sé réttmæt í ljósi þeirrar miklu ábyrgðar sem hvílir á yfirlæknum.“ Í ályktun fundar stjórnarnefndar LSH frá í gær er vísað til máls Tómasar og héraðsdóms í máli Stefáns Matthíassonar yfirlæknis gegn LSH. Í ályktuninni segir að í dómunum sé ekki gengið gegn stefnu spítalans í ráðningarmálum en þeir sýni hins vegar að meðferð starfsmannamála hjá hinu opinbera geti verið erfið úrlausnar. Lög um opinbera starfsmenn séu flókin og því vandmeð- farin. Þar kemur einnig fram að stjórnarnefndin harmi hvernig mál þessi hafi þróast og ítreki stuðn- ing við stefnu spítalans um starfsskyldur yfirmanna LSH sem framfylgt hafi verið undanfarin ár. | 11 Dómur Hæstaréttar í máli Tómasar Zoëga ekki tilefni til aðgerða að mati ráðherra Telja dóma ekki ganga gegn stefnu LSH í ráðningarmálum Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is GRÉTAR Már Sigurðsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og tekur hann við stöðunni frá og með 21. júlí nk. Grétar hefur verið skrifstofu- stjóri á viðskiptaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins. Til stóð að hann tæki við embætti sendi- herra Íslands í Kína en þau áform breytast nú, að sögn Grét- ars. Gunnar Snorri Gunnarsson hefur gegnt embætti ráðuneyt- isstjóra í utanríkisráðuneytinu undanfarin fjögur ár og flyst hann til starfa erlendis fyrir ut- anríkisþjónustuna í haust. Ekki liggur þó fyrir hvert hann fer. Tilkynnt var um fleiri mannabreyting- ar í gær en þeir Þorsteinn Ing- ólfsson og Jör- undur Valtýs- son koma til starfa á skrif- stofu utanríkis- ráðherra. Þorsteinn hefur undanfarin ár setið í stjórn Alþjóðabankans fyrir hönd Norð- urlandanna og Eystrasaltsríkj- anna en Jörundur hefur starfað sem deildarstjóri í forsætisráðu- neytinu undanfarin tvö ár og hef- ur hann nú þegar hafið störf. Grétar Már Sig- urðsson skipaður ráðuneytisstjóri Grétar Már Sigurðsson ÞEIR létu rigninguna ekki á sig fá þessir snyrtilega klæddu herramenn sem spásseruðu um Bankastrætið í rigningarsuddanum sem ríkti í Reykjavík í gær. Ef til vill fannst þeim félögum skondið að sjá sólarvörn auglýsta í verslunarglugganum sem þeir gengu framhjá, en telja má sólardaga sumarsins á annarri hendi. Morgunblaðið/Ómar Íslandsvinir rýna í búðarglugga LÖGREGLAN í Keflavík lagði hald á 170 grömm af ætluðu hassi aðfaranótt þriðjudagsins síðasta. Tildrög málsins eru þau að lögregl- unni barst tilkynning um grunsam- legar mannaferðir í móa fyrir ofan Bolafót í Njarðvík um miðnætti sl. mánudagskvöld. Við nánari athugun kom í ljós að undir steini í móanum voru falin 170 grömm af ætluðu hassi. Aðgerðir lögreglu í kjölfar fíkni- efnafundarins til að finna eiganda efn- isins hafa enn ekki skilað árangri, en rannsókn málsins heldur áfram. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni er talið ljóst að efni í þessu magni sé ætlað til sölu, en þess má geta að grammið af hassi selst á götunni á um 2.500 kr. Vill lögreglan í Keflavík í tilefni þessa fíkniefnafundar hvetja almenn- ing til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir. Lögðu hald á 170 grömm af ætluðu hassi úti í móa Fíkniefnin falin undir steini

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.