Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 4

Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR X E IN N A N 06 07 00 1 ALLT Á ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI á sumarútsölunni sem hefst í dag Láttu drauminn rætast og sparaðu í leiðinn LUNDAVEIÐAR að hætti íbúa skosku eyjunnar St. Kildu voru sviðsettar í Mánáreyjum nú í byrj- un lundaveiðitímans. Páll Stein- grímsson kvikmyndagerðarmaður í Kvik vinnur að gerð heim- ildamyndar um ginklofann, eða stífkrampa, sem geisaði í Vest- mannaeyjum og olli því að flest börn sem þar fæddust dóu í frum- bernsku á öldum áður. Sama plága herjaði á íbúa eyjunnar St. Kildu og átti veikin stóran þátt í að byggð lagðist þar af árið 1930. Páll, Svavar bróðir hans og tveir dóttursynir Svavars, fóru út í Mánáreyjar á dögunum ásamt Friðþjófi Helgasyni kvikmynda- tökumanni og ljósmyndara. Þar settu þeir á svið snöruveiðar á lunda, eins og St. Kildubúar stunduðu forðum. Meirihluti myndarinnar er tekinn upp í Vest- mannaeyjum. Atriði sem eiga að gerast á St. Kildu eru öll sviðsett hér á landi, því St. Kilda er nú al- friðuð. „Þeir þekktu ekki lundaháfinn en notuðu hrosshárssnörur og settu þær á spírur. Við fengum Þórunni Maríu Jónsdóttur bún- ingahönnuð, sem sér um búninga í myndinni, til að útvega á okkur St. Kildagalla og þarna lékum við snöruveiði á lunda,“ sagði Páll. Snöruveiði áþekk þessari þekktist í Vestmannaeyjum fyrir löngu, en var ekki beitt nema á svartfugl, það er langvíur, hringvíur, stuttn- efjur og álkur. Páll segir að snöruveiðar hljóti að hafa verið erfiðar því þær krefjast þess að menn komist mjög nálægt fugl- unum. Þeir Eyjamenn ákváðu því að taka með sér lundaháf til að tryggt væri að ferðin yrði ekki fýluferð. Heimildamyndin fjallar um gin- klofann sem var mikill örlagavald- ur Vestmannaeyinga á fyrri tíð. Allt fram á miðja 19. öld létust 60–80% ungbarna í Vestmanna- eyjum af völdum ginklofans, en annars staðar á landinu dóu um 30% barna úr þessum sjúkdómi. Ginklofinn var ekki að fullu upp- rættur í Vestmannaeyjum fyrr en á 20. öldinni. Það skipti sköpum fyrir Vest- mannaeyjar að þangað var sendur ungur danskur læknir, Peter Ant- on Schleisner, árið 1847. Var hon- um m.a. falið að rannsaka ginklof- ann, en hann hafði ritað grein um barnafarsótt árinu áður. Schleis- ner opnaði fæðingarheimili í hús- inu Landlyst og var það fyrsta fæðingarheimilið hér á landi. Schleisner lagði einnig til breyt- ingar á hreinlæti við fæðingar, notaði sótthreinsandi smyrsl á naflastrenginn og benti fólki á að hengja þvott til þerris í stað þess að leggja hann á jörðina. Dró þá mjög úr ungbarnadauðanum. Síð- ar kom í ljós að sýkillinn, clostrid- um tetani, sem olli faraldrinum, lifir í jarðvegi og smitaði þvottinn og þaðan börnin um naflastreng- inn. Léku snöruveið- ar að hætti St. Kilda-manna Þeir félagar klæddust búningum St. Kilda-búa við sviðsetninguna. F.v.: Sindri Ólafsson, Svavar Steingrímsson og Páll Steingrímsson. Ljósmynd/Friðþjófur Vestmannaeyingarnir tóku með sér lundaháf í Mánáreyjar. St. Kilda-búar þekktu ekki lundaháfinn og notuðu því snörur til lundaveiða. KONA á níræðisaldri var rænd á ellefta tímanum í gærmorgun þar sem hún var á gangi við Njálsgötu í Reykjavík. Vatt þjófurinn sér upp að konunni, hrifsaði til sín veski sem hún bar og hljóp á brott. Í kjölfarið fór konan á lög- reglustöðina við Hverfisgötu. Þar lýsti hún þjófinum svo vel að hann náðist skömmu síðar í höfuðborg- inni. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík féll strax grunur á ákveðinn karlmann eftir lýsingu konunnar og var hann færður til yfirheyrslu – þar sem hann játaði brot sitt. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, telst til góð- kunningja lögreglunnar og á að baki sakarferil, m.a. vegna fíkni- efnalagabrota. Eldri kona rænd um hábjartan dag HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum vegna skot- árásarinnar á Burknavöllum í júnímánuði. Þeir hafa báðir kært þennan úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar, sem að öllum lík- indum tekur málið fyrir á næstu dögum. Staðfesti Hæstiréttur nið- urstöðu héraðsdóms munu menn- irnir tveir sitja í varðhaldi til 29. ágúst nk. Ekki þótti tilefni til að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir þriðja manninum sem hand- tekinn var í tengslum við málið og er hann af þeim sökum frjáls ferða sinna. Talið er að rekja megi tildrög árásarinnar til ósættis milli ann- ars þeirra sem sitja í varðhaldi og tveggja manna sem voru inn- andyra í íbúðinni á Burknavöllum þegar skotárásin var gerð. Lögregla hefur lagt hald á kylfur, hnúajárn og skotfæri við rannsókn málsins sem miðað hef- ur vel. Vopnið sem notað var í árásinni hefur hins vegar ekki fundist ennþá, en rannsókn stend- ur yfir. Gæsluvarðhald framlengt vegna skotárásar FORSETI Grikklands, Karolos Pa- poulias, og frú May Papoulia, eigin- kona hans, komu til Íslands í gær, en þau verða hér til laugardags í op- inberri heimsókn í boði forseta Ís- lands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Heimsóknin hefst í dag með mót- tökuathöfn á Bessastöðum. Þaðan halda þau á Þjóðminjasafnið þar sem Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja- vörður tekur á móti þeim. Forseta- hjónin munu því næst snæða hádeg- isverð í Höfða í boði Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra. Þaðan liggur leiðin til Grindavíkur þar sem þau heimsækja fiskvinnslufyrirtæk- ið Vísi og Saltfisksetur Íslands. Loks liggur leiðin í heimsókn til Hitaveitu Suðurnesja og svo í Bláa lónið. Í kvöld sitja grísku forsetahjónin kvöldverðarboð íslensku forseta- hjónanna á Bessastöðum. Dagskrá morgundagsins hefst með fundi Grikklandsforseta og Geirs H. Haarde forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. Stofnun Árna Magnússonar verður heimsótt og því næst liggur leið forsetahjónanna til Þingvalla þar sem þau munu snæða hádegisverð í boði forsætisráðherra. Annað kvöld heldur sendiherra Grikklands á Íslandi boð á Nordica hóteli forsetahjónunum til heiðurs. Opinber heimsókn Grikk- landsforseta hefst í dag „ÓLÍKT dæmigerðum vestrænum femínistum, vilja rússneskar konur að kvenleiki þeirra og geta til að gleðja makann séu vel metin.“ Þetta kemur fram á rússneskri stefnumóta- síðu þar sem karlmönnum er ráðlagt að eiga í samböndu-m við rússneskar konur en einnig upplýst að rúss- neskar konur séu orðnar leiðar á hin- um drykkfellda rússneska karlmanni og vilji fremur hinn ljúfa bandaríska. Eftir nokkra leit gætu fundvísir karlmenn talið að þeir hefðu dottið í lukkupottinn en ef marka má myndir af hinni 18 ára gömlu „Olenu91“ þá mætti halda að ungfrú heimur, Unn- ur Birna Vilhjálmsdóttir, hefði skráð sig á síðuna. Myndirnar sem „Olena91“ hefur á stefnumótasíðunni af sér eru sem sagt allar af Unni Birnu. Í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins í gær vildi Unnur Birna ekki kannast við að vera hin 18 ára gamla Olena frá Kiev í Úkraínu né að nauðsynlegt væri að túlka ensku fyrir hana. Hún hefði ekki skráð sig á um- rædda stefnumótasíðu. „Þetta er lík- lega bara einhver stelpa sem er of feimin til að setja mynd af sjálfri sér.“ Aðspurð hvort hún persónulega eða Miss World keppnin gerði eitt- hvað í tilvikum sem þessum segir Unnur Birna að meðan ekki sé um verri hluti en þetta að ræða sé lítil ástæða til að bregðast sérstaklega við. „Þetta er bara nokkuð sem fylgir því að vinna fegurðasamkeppni eins og þessa. Það er ýmislegt eins og þetta á netinu og maður venst þessu,“ segir Unnur Birna. Ljósmynd/Golli Hver vill ekki líkjast Unni Birnu? „Of feimin til að setja mynd af sjálfri sér“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.