Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Rimini 12. júlí frá kr. 29.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.29.990 Netverð á mann, m.v. að 2 - 4 manns saman í stúdíó/íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rimini í júlí. Njóttu lífsins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini er ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru ótrúlega spennandi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast mörgum andlitum Ítalíu í einni ferð. Bókaðu flugsæti og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. „ÁKVÖRÐUN ríkisstjórnarinnar er ekki um að skera vegaframkvæmdir niður, gagnstætt því sem menn hafa haldið fram. Þetta er ákvörðun um að fresta framkvæmdum tímabundið m.a. meðan rætt er við fulltrúa sveit- arfélaga, þar sem kastljósinu er að- allega beint að stærri sveitarfélög- um.“ Þetta sagði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sem er jafnframt þingmaður Norð- vesturkjördæmis og fyrrverandi 1. þingmaður Vestfjarðakjördæmis, að loknum fundi þingmanna Norðvest- urkjördæmisins með stjórnendum Vegagerðarinnar. „Það sem stendur upp úr eftir fundinn er sú staðreynd að þær framkvæmdir sem mest hef- ur verið rætt um og talað hefur verið um að yrðu fyrir barðinu á ákvörðun okkar í ríkisstjórninni um að fresta útboðum, eru ekki komnar á útboðs- stig. Það kom einnig fram á þessum fundi að vegna mikillar þenslu í þjóð- félaginu hefur ekki verið hægt að undirbúa framkvæmdir á þeim hraða sem ætlunin var. Allar verkfræðistofur eru einfaldlega yfirfullar. Enn- fremur kom fram að útboð hafa skilað misjöfnum árangri og ýmis dæmi um að út úr útboðum hafi komið hærri tölur en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, svo talsverðu munar. Þetta sýnir að aðstæður til útboða eru ekki góðar um þessar mundir.“ Einar sagði að viðræður stæðu yf- ir við sveitarfélögin. Framkvæmda- magn þeirra væri álíka mikið og rík- isins og ef takast ætti að kveða niður verðbólguhættu yrði að koma til sameiginlegt átak þessara aðila. Hann sagði að erindi ríkisstjórnar- innar hefði verið vel tekið hjá sveit- arfélögunum og því væri ekki ástæða til að ætla annað en að út úr þessari vinnu kæmi jákvæð niðurstaða. Samstaða um framkvæmdir „Eitt af því sem hefur komið já- kvætt út úr þessari umræðu fyrir landsbyggðarfólk er að ekki verður önnur ályktun dregin af umræðunni en að nú virðist samstaða um að verkefni þar sem staða vegamála er slökust eigi að hafa forgang. Þetta er mikil breyting frá umræðu undan- farin ár þar sem við þingmenn kjör- dæma eins og Norðvesturkjördæm- is, hafa setið undir stöðugum skömmum fyrir að draga of mikla peninga inn í kjördæmið á kostnað höfuðborgarsvæðisins.“ Einar sagði ekki hvenær farið yrði í vegaframkvæmdir í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi sem lögð hef- ur verið áhersla á. Viðræðum væri ekki lokið. „Undirbúningur útboð- anna heldur áfram. Strax og menn telja skynsamlegt og rétt að hefja út- boðið þá er hægt að fara af stað fyr- irvaralaust.“ Segir undirbúning vegaframkvæmda halda áfram Eingöngu um frestun að ræða Einar K. Guðfinnsson Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Á BOTNI Skaftárkatla eru hverir sem hita vatnið í lóninu sem síðan bræðir ofanáliggjandi íshelluna. Þegar lónið fyllist af vatni verður jökulhlaup sem kemur fram í Skaftá. Slík hlaup eru með sér- stæðari fyrirbærum í náttúru Ís- lands að mati Tómasar Jóhann- essonar, jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Tómas segir að þótt hitinn sé nokkuð jafn, eða um 4°C í lóninu, séu vísbendingar um að öflug hræring og hringrás sé á vatninu undir jöklinum. Meðfram botninum liggi köld tunga og líklegast sé að jarðhiti sem kemur upp úr botn- inum sé staðbundinn á einum eða fleiri stöðum. „Þarna virðist vera öflugt hita- streymi sem heldur hreyfingu á öllu vatninu og blandar hitanum um það allt eins og í vel hrærðum potti,“ segir Tómas. „Menn hafa ekki mælt hitann í lóninu áður og erfitt er að gera sér grein fyrir hvað á sér stað þarna undir 300 metra þykkum jöklinum. Þannig að okkur þykir mjög merkilegt að fá að gægjast inn í þennan heim með þessum hætti.“ Sambærilegt lón og finna má í Skaftárkötlum er í Grímsvötnum sem og víðar í íslenskum jöklum, en Grímsvatnalónið er raunar mun stærra. Hitinn þar var mældur fyr- ir nokkrum árum af vísindamönn- um við Háskóla Íslands og reyndist þá nærri 0°C. „Það skiptir miklu máli fyrir skilning okkar á jökulhlaupum, sem eiga sér stað úr þessum lón- um, hvað vatnið er heitt,“ útskýrir Tómas. „Menn hafa hingað til ekki verið vissir um við hverju var að búast en höfðu samt sem áður gert ráð fyrir því að jarðhitavatnið undir hellunni væri yfir fjórum gráðum.“ Hefur það með varmaburð vatnsins í lóninu að gera, sem á sér tæpast stað nema hitinn fari yfir fjórar gráður, en við fjórar gráður verður vatn eðlisþyngst, en léttist hitni það frekar. „Hiti vatnsins skiptir máli um hvernig jökulhlaup vaxa,“ segir Tómas og bendir á að eftir því sem vatnið sé heitara í lóninu bræði jökulhlaupið meira úr ísgöngunum sem það ryðst eftir. Hitinn hefur því áhrif á kraft hlaupsins, sem og hversu hratt það vex, en síðasta Skaftárhlaup, sem varð fyrir ári síðan, óx t.d. mjög hratt. „Eins og í vel hrærðum potti“ UNDIR íshellunni í vestari Skaft- árkatli í Vatnajökli er um þessar mundir 100 m djúpt lón, um einn kílómetri að þvermáli. Hitastig í mestum hluta lónsins er rúmar 4°C og áhrifa jarðhitakerfis undir jökl- inum gætir í efnasamsetningu vatns- ins. Sýni úr lóninu eru nú í greiningu á örverufræðilegum rannsóknastof- um á Íslandi og í Bandaríkjunum og mun fljótlega koma í ljós hvers kon- ar örverur þrífast í þessu umhverfi. Þetta eru fyrstu niðurstöður rann- sóknarverkefnis sem miðar að ít- arlegri könnun á Skaftárkötlum og umhverfi þeirra. Niðurstöðurnar munu að sögn vísindamanna auka skilning okkar á jökulhlaupum en hvergi annars staðar í heiminum eru betri aðstæður til að rannsaka þessi einstöku náttúrufyrirbrigði. Tólf vísinda- og tæknimenn frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og bandarískum vísindastofnunum dvöldu dagana 7.– 15. júní í búðum við suðurjaðar vest- ari Skaftárketils. Stjórnendur ein- stakra verkþátta í rannsóknunum eru Þorsteinn Þorsteinsson, jökla- fræðingur á Orkustofnun, Tómas Jó- hannesson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, Andri Stef- ánsson, jarðefnafræðingur við Há- skóla Íslands, og Viggó Marteins- son, örverufræðingur á Umhverfisstofnun. Áhugi vísindamanna á stöðuvötn- unum undir Vatnajökli fer sívaxandi og tengist m.a. áætlunum um sýna- töku úr Vostok-vatninu undir Suð- urskautsjöklinum á komandi árum og hugmyndum um að frumstætt líf gæti þrifist í lónum undir ísþekju á Mars. Lónið smám saman að fyllast Stöðuvatnið undir vestari Skaft- árkatli hljóp síðast í júlílok árið 2005 og er nú smám saman að fyllast á ný vegna stöðugrar bráðnunar íss af völdum jarðhitasvæðisins undir jökl- inum. Í rannsóknarferðinni tókst að bora gegnum 300 m þykka íshelluna með nýjum bræðslubor Vatnamæl- inga. Eitt 400 ml sýni náðist frá botni lónsins með sýnataka sem hin- ir bandarísku þátttakendur létu smíða sérstaklega fyrir verkefnið. Þegar sýnið var tæmt úr hólknum fannst talsverður brennisteins- fnykur. Jarðefnafræðileg greining sýnisins er þegar hafin og að sögn Þorsteins Þorsteinssonar verkefn- isstjóra er gert ráð fyrir að nið- urstöðurnar muni auka þekkingu á eðli jarðhitakerfanna undir Skaft- árkötlum. Þá er með eftirvæntingu beðið eftir niðurstöðu örveru- fræðilegu rannsóknarinnar, hvernig örverur þrífast í vatninu undir 300 m þykkum jökli, þar sem einskis sólar- ljóss nýtur. Þegar búið var að bora í gegnum íshelluna og taka sýni var settur nið- ur í lónið skynjari, sem nú skráir hita og þrýsting á klukkustund- arfresti og sendir gögn um kapal til skráningartækis á yfirborði. Einnig var komið fyrir síritandi GPS-tæki sem skráir hækkun íshellunnar fram að næsta hlaupi í katlinum. Gögnin verða auk upplýsinga um jökul- afkomu og ísskrið, sem aflað er með mælingum á safnsvæði ketilsins og innan hans, notuð til að setja upp lík- an af vatnssöfnun í katlinum og jök- ulhlaupum úr honum, segir í frétt á vef Orkustofnunar. Ýmsar tafir urðu á borun vegna holrýma og gjóskulaga í íshellunni, auk þess sem bilanir ollu nokkrum vandræðum. En í fjórðu tilraun tókst að bora í gegnum helluna á 17 klukkustundum og mæla dýpt lóns- ins undir jöklinum. Þorsteinn segir að mæling lóðrétts hitasniðs niður í gegnum lónið hafi tekist mjög vel. „Það var mikilvægur áfangi í verkefninu, því hiti vatnsins við upp- haf jökulhlaupa úr Skaftárkötlum hefur fram til þessa verið óþekktur.“ Síðar í sumar verða gögnin sótt og þá mun taka við bið eftir næsta jök- ulhlaupi úr katlinum. „Síðasta hlaup var í fyrrasumar og að öllu eðlilegu búumst við ekki við næsta hlaupi fyrr en næsta sumar, en þangað til getum við vonandi rýnt í niðurstöður mælinganna,“ segir Þorsteinn. Hitastigið í stöðuvatninu í Skaftárkötlum yfir 4°C samkvæmt fyrstu rannsóknarniðurstöðum 100 m djúpt lón undir 300 m þykkri íshellu Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Uppsetning masturs. Mastur með skráningartækjum sett upp að borun lok- inni. Jökulhamrar í sprungum á jaðri ketilsins í baksýn. Bræðsluborun í gangi. Snjór er bræddur í karinu, sem sést t.v. og leiddur inn í hitara og háþrýstidælu, sem sprautar vatninu um slöngu og síðan út um málmspjót, sem bræðir sig gegnum jökulísinn. VÍSINDAMENN eru sannfærðir um að í stöðuvatninu í Skaft- árkötlum sé líf að finna, spurn- ingin er hins vegar hvers konar örverur þrífast við þær óvenju- legu aðstæður sem þar eru. Viggó Marteinsson, örveru- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að líklega búi í vatninu bæði kuldakærar og hitakærar örver- ur. „Við vitum hitastig vatnsins og út frá því má áætla að kuldakær- ar örverur séu þar en einnig vit- um við að úr botninum streymir heitt vatn þannig að það má líka reikna með hitakærum örverum,“ segir Viggó. Rannsóknin á lóninu í Skaft- árkötlum er að sögn Viggós ein- stök. „Þarna undir þykkri íshellunni myndast afar óvenjulegar að- stæður sem eru mjög sérstakar í náttúrunni. Það er svo líka enn sjaldgæfara að opna glugga að þessum heimi eins og gert var með bornum.“ Viggó segir að nú séu sýni úr vatninu í rannsókn með örveru- fræðilegum aðferðum og að nið- urstaðna sé að vænta í haust. Óvenjulegar aðstæður fyrir lífverur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.