Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 8

Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fríverslunarsamn-ingur við Kínamyndi gefa Ís- landi markaðsforskot á aðrar Evrópuþjóðir en allar líkur eru á að form- legar viðræður hefjist í haust. Hugmyndin að frí- verslunarsamningi milli fjölmennasta ríkis heims, sem er með meira en 1,3 milljarða íbúa, og lítillar eyju í Atlantshafi, byggða 300 þúsund manneskjum, kom fyrst til tals árið 2004 þegar Valgerður Sverrisdóttir, þá iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, hitti Bo Xilai, viðskiptaráðherra Kína. Samkomulag um formlegan undirbúning var svo undirritað af Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra, og Xilai rúmu ári síðar og nú hafa hagkvæmn- isathuganir farið fram. Hagkvæmnisathuganir ganga út á að komast að því hvort það borgi sig fyrir bæði löndin að gera fríverslunarsamning og í þessu tilviki skiluðu þær já- kvæðri niðurstöðu. Guðjón Hauksson og Inga Dóra A. Gunnarsdóttir gerðu athugun hér á landi fyrir utanríkisráðu- neytið undir handleiðslu Aðal- steins Leifssonar, lektors við Háskólann í Reykjavík. Rætt var við forsvarsmenn 20 helstu fyr- irtækjanna sem þekkja til mark- aðarins í Kína. Guðjón segir að því meiri reynslu og þekkingu sem fyrir- tæki hafi af kínverska markaðn- um, því jákvæðari séu þau gagn- vart fríverslunarviðræðum. „Íslensk fyrirtæki hafa sum ver- ið með viðskipti þarna í mörg ár og menn eru auðvitað mislangt komnir. Það er alveg bersýnilegt að jafnvel litlar tilslakanir í toll- um myndu hafa gríðarlegan ávinning í för með sér fyrir fyr- irtæki, bæði í inn- og útflutn- ingi,“ segir Guðjón. Kína er ekki með fríverslunar- samning við neitt vestrænt ríki en ríkin sem ásamt Íslandi eru í EFTA, þ.e. Noregur, Liechten- stein og Sviss, hafa sýnt áhuga. Kínverjar vilja þó aðeins eiga viðræður við íslensk stjórnvöld en hafa ekki útilokað að EFTA geti komið inn í ferlið á síðari stigum. Líklegt þykir að með þessu hyggist kínversk stjórn- völd prófa sig áfram á litlum markaði fyrst um sinn. Grétar Már Sigurðsson, skrif- stofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir að millistéttin í Kína sé ört vaxandi og gæti talið 300–400 milljónir manna þegar fram líða stundir. „Sóknartækifærin okkar liggja í útflutningi á sjávarafurðum og í Kína er mjög sterk neysluhefð á þeim,“ segir Grétar og bætir við að sjávarafurðir séu þó langt frá því að vera eina útflutningsvaran til Kína. „Við erum að tala um nokkuð umfangsmikinn samning enda myndi hann líka ná yfir þjónustuviðskipti og hugverka- réttindi.“ Grétar segir Íslendinga vera í viðskiptum með alls konar vörur og þjónustu í Kína. „Við kaupum t.d. skó, föt, prentunarþjónustu og fleira. Svo hef ég jafnvel heyrt um listamenn sem láta framleiða verk sín í Kína. Áður voru vörur oft fluttar frá Kína til Íslands í gegnum þriðja land og þá þurfti að greiða tvöfalda tolla,“ segir Grétar og bætir við að ávinningurinn af samningnum yrði bæði í inn- og útflutningi. Grétar segir að Kína sé aðeins með fríverslunarsamninga við Asíuríki og við Chile en sé einnig í viðræðum við Ástralíu og Nýja- Sjáland. „Það er erfiðara, t.d. fyrir Bandaríkin, að gera samn- ing við Kína vegna vefnaðarvöru og skóframleiðslu. Þær iðngrein- ar hafa minna vægi á Íslandi. Hönnun getur t.d. verið mikil- vægari þáttur fyrir okkur heldur en framleiðsla,“ segir Grétar. Mikill áhugi á Kína Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Íslensk – kín- verska viðskiptaráðsins, segir áhugann á viðskiptum við Kína hafa stóraukist en nú eiga um 90 fyrirtæki aðild að ráðinu. Andrés segir að fríverslunarsamningur myndi auðvelda Íslendingum enn frekar að flytja vörur beint frá Kína. „Ég hef ekki heyrt neinn leggjast gegn þessu þótt vafalaust séu fyrirtæki í Evrópu sem eru birgjar fyrir fyrirtæki hér heima sem sjá þetta sem ógnun. En ég held að flest fyr- irtæki í Evrópu átti sig á því að til þess að vera samkeppnishæf þurfi þau að koma sér fyrir á þessum markaði,“ segir Andrés og bætir við að sífellt algengara sé að fyrirtæki flytji framleiðslu sína til Kína og þá sérstaklega ef hún krefst mikils mannafla. Jón Svavarsson, framkvæmda- stjóri Útflutningsráðs, segir að útflutningur til Kína sé enn til- tölulega lítill miðað við innflutn- ing. Íslensk fyrirtæki hafi keypt vörur og þjónustu frá Kína fyrir 16 milljarða króna á síðasta ári en aðeins flutt út fyrir 1,7 millj- arða króna. „Það er býsna stórt gat sem þarf að fylla til að nálg- ast eitthvert jafnvægi í þessum viðskiptum. En þetta myndi gera okkur kleift að sækja fastar inn á kínverska markaðinn sem er óskaplega stór og áhugaverður um leið og þetta væri mikið skref í þá átt að við gætum haslað okk- ur völl í Kína.“ Fréttaskýring | Fríverslunarviðræður við Kína Markaðsfor- skot í Evrópu Vilja aðeins viðræður við Ísland en úti- loka ekki aðkomu EFTA á seinni stigum Kínverska millistéttinn stækkar ört. Innflutningur frá Kína nam 16 milljörðum árið 2005  Íslensk fyrirtæki keyptu vörur og þjónustu frá Kína fyrir 16 milljarða á árinu 2005 en útflutn- ingur nam tæplega 1,7 millj- örðum. Fríverslunarsamningur milli landanna ætti því að skila sér í lægra vöruverði til neyt- enda. Ekki eru til upplýsingar um hversu miklir peningar hafa farið í ríkissjóð vegna toll- innheimtu af vörum frá Kína. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.