Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reynsluakstur á
BMW í bílablaðinu
á morgun
á morgun
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
BLÓÐBANKINN mun flytja í nýtt
húsnæði á Snorrabraut 60 í haust,
en með því er ætlunin að bæta úr
langvarandi húsnæðisvanda bank-
ans. Sveinn Guðmundsson, yfir-
læknir Blóðbankans, segir þó ekki
víst að þetta nýja húsnæði leysi
vandann, enda virðist sem bankinn
fái 900 fermetra, en hann þurfi
1.600.
Landspítali – háskólasjúkrahús
(LSH) skrifaði undir leigusamning á
húsnæðinu til 10 ára á þriðjudag, að
fenginni heimild frá heilbrigðis- og
fjármálaráðuneytum. Engin starf-
semi er í húsinu, en þar var Skáta-
búðin áður til húsa, sem og líftækni-
fyrirtækið Urður Verðandi Skuld.
Húsið er þrjár hæðir, samtals um
1.650 fermetrar, og er ráðgert að
Blóðbankinn verði á neðstu tveimur
hæðunum en framkvæmdanefnd um
nýjan spítala á efstu hæðinni.
Blóðbankinn hefur verið í núver-
andi húsnæði við Barónsstíg frá
árinu 1953, en það er um 650 fer-
metrar, segir Sveinn. „Spítalinn
[LSH] hefur á liðnum árum unnið
þarfagreiningu með okkur í Blóð-
bankanum um það hvað Blóðbank-
inn þyrfti. Á grunni þess voru lagðar
fram tillögur um viðbyggingu, sem
hefði uppfyllt þær þarfir, upp á um
1.600 fermetra,“ segir Sveinn. Horf-
ið var frá hugmyndum um viðbygg-
ingu og þess í stað ákveðið að fara
þá leið sem nú hefur verið ákveðin.
„Við fögnum því að nú er komin
ákvörðun um að LSH leigi þetta
húsnæði til 10 ára,“ segir Sveinn.
„Við leggjum mikla áherslu á það að
nú þegar Landspítalinn þarf að for-
gangsraða inn í þetta nýja hús þá
verði fagleg sjónarmið höfð að leið-
arljósi, það er augljóst að Blóðbank-
inn er aðeins ein af mörgum deildum
spítalans sem þjóna sjúkum sem búa
við bága aðstöðu.“
Blóðbankinn vildi 1.200
fermetra málamiðlun
Blóðbankinn þarf samkvæmt
þarfagreiningu um 1.600 fermetra,
en Sveinn segir að þegar rætt hafi
verið um hvernig hægt væri að
koma starfseminni fyrir í nýja hús-
inu hafi verið ljóst að það hafi ekki
staðið til boða. Forsvarsmenn bank-
ans hafi reynt að ná þeirri mála-
miðlun að fá um 1.200 fermetra fyrir
sína starfsemi, sem myndi leysa
bráðasta vandann. Það rými á
neðstu tveimur hæðunum sem Blóð-
bankanum eru ætlaðar er um 900
fermetrar, en til viðbótar er á hæð-
unum pláss sem fer undir stiga,
tæknirými og annað sem ekki nýtist
bankanum. Þessir 900 fermetrar eru
um 38% stærra húsnæði en Blóð-
bankinn hefur til umráða í dag.
„Vandamál okkar í dag er að okk-
ur virðast ekki standa til boða nema
tvær hæðir hússins, þar sem þriðja
hæðin á að fara undir framkvæmda-
nefnd nýs Landspítala. Þetta setur
okkur í talsverðan vanda, þetta gæti
því verið lausn sem ekki myndi leysa
okkar vanda til fullnustu. Með því er
ég ekki að segja að þessi lausn gangi
ekki upp, heldur miklu fremur að við
verðum að sjá til hvort við náum
ekki að leysa þetta á næstu dögum,“
segir Sveinn.
Yfirlæknir segir ekki víst að nýtt hús-
næði leysi húsnæðisvanda Blóðbankans
Þyrfti nánast
allt plássið
„ÞAÐ hefur verið yndislegt að vera hér á eynni Mön.
Heimsóknin hefur verið bæði ánægjuleg og fróðleg,“
segir Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, sem viðstödd
var þingsetningu á eynni Mön í gær. Með í för eru Krist-
inn Björnsson, eiginmaður Sólveigar og Belinda Theri-
ault, forstöðumaður alþjóðasviðs Alþingis.
Að sögn Sólveigar fer þinghaldið á Mön ávallt fram
undir berum himni þegar þingið er sett ár hvert á
þjóðhátíðardegi Manar, þann 5. júlí, og segir hún þessa
hefð eiga rætur sínar að rekja aftur til víkingaaldar. Aðr-
ir þingfundir fara síðan fram inni í þinghúsinu.
„Þingið nefnist Tynwald og dregur nafn sitt af Þing-
völlum,“ segir Sólveig og tekur fram að merkilegt sé
hvernig Manarbúar hafi varðveitt þennan sameiginlega
menningararf. Þess ber að geta að þingið á Mön er elsta
þingið sem starfað hefur óslitið frá stofnun, en þingið var
stofnað árið 979 að frumkvæði norska víkinga sem ríktu
á eynni frá 979 til 1266.
„Það er líka ánægjulegt að sjá hér íslensk áhrif víða,
t.d. eru mörg íslensk orð í málinu. Þannig er hér t.d. þorp
sem heitir Laxey og fjall sem heitir Snæfell, ásamt
Langanesi,“ segir Sólveig, en meðal þess sem hún skoð-
aði á Mön var stærsta vatnshjól í heimi sem einmitt er í
Laxey, þar sem það var notað á árum áður til að ná vatni
upp úr námum, en að sögn Sólveigar var námuvinnsla
mikil þarna á árum áður og unnu námuverkamenn oft við
mjög erfið skilyrði.
Færði Manarbúum hraungrýti frá Þingvöllum
Íslensku erindrekarnir eru ekki einu fulltrúar gömlu
víkingaþjóðanna, því að sögn Sólveigar voru meðal gesta
við þingsetninguna forsetar skoska og norska þingsins,
ásamt þingmönnum frá Bretlandi og Wales. Á Man-
arþingi sitja 24 þingmenn í neðri deild og 10 í efri deild.
Að sögn Sólveigar er hefð fyrir því að gestir við þing-
setninguna komi færandi hendi með stein frá heimalandi
sínu sem bætt er í vörðu sem reist hefur verið skammt
frá þingstaðnum gamla. Segist Sólveig að sjálfsögðu hafa
fært Manarbúum hraungrýti frá Þingvöllum. Að kvöldi
þingsetningar hélt ríkisstjóri Manar, sem er fulltrúi
Bretadrotningar, móttökuveislu og í gærkvöldi sátu
gestir kvöldverðarboð hjá forseta Tynwald.
Viðstödd setningu Tynwald á Mön
Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, ásamt Tony
Brown, forseta neðri deildar þinsins á Mön. Hefð er
fyrir því að gestir klæðist þjóðbúningi heimalands síns
við þingsetninguna.
SYSTURFÉLAG Icelandair, Ice-
landair Technical Services (ITS),
hefur nýlega gengið frá samningi við
bandaríska flugfélagið Delta um við-
haldsþjónustu vegna Boeing 767
flugvéla Icelandair. Samningurinn
tekur til viðhalds á því sem næst öll-
um íhlutum Boeing 767 flugvélanna
og mun Delta jafnframt ábyrgjast að
leggja til nýja íhluti fyrir þá sem fara
í viðgerð á hverjum tíma. ITS mun
einnig fá aðgang að varahlutalager
Delta, þar með töldum stórum
birgðastöðvum í Bandaríkjunum og
Evrópu. Samningurinn tók gildi 1.
júlí.
„Við erum í markvissri vinnu við
að lækka allan kostnað, og þar með
talinn viðhaldskostnað. Eitt af því er
endurskoðun á samningum sem við
höfum við ýmsa aðila vegna kaupa á
varahlutum og viðgerða,“ segir Jens
Bjarnason, framkvæmdastjóri ITS.
„Þessi nýi samningur er fyrsti af-
raksturinn af þeirri vinnu. Þetta
miðar að því að fækka þeim aðilum
sem við eigum mikil viðskipti við og
efla að sama skapi tengslin við þá,“
segir Jens.
Mikill sparnaður
Jens fullyrðir að mikill sparnaður
hljótist af samningnum. „Við áætlum
að samningurinn spari okkur um 700
þúsund dollara [um 53 milljónir ís-
lenskra króna] á ári. Samningur sem
þessi er byggður á aðferðafræði sem
er ekki síst til komin vegna lág-
gjaldaflugfélaganna. Það er mjög
ánægjulegt að þetta sé farið að skila
árangri og þetta er vonandi fyrsta
skrefið af mörgum í að ná hagstæð-
ari samningum við þá aðila sem við
höfum verið að skipta við.“
Icelandair rekur að jafnaði þrjár
til fjórar Boeing 767 vélar og áætlar
Jens að 20% allrar viðhaldsþjónustu
ITS fari í þær. Talið er að samning-
urinn við Delta muni auka mjög
rekstraröryggi Boeing 767 vélanna.
Greiðar fraktflutningar eru á milli
Keflavíkur og JFK flugvallar í New
York þar sem einn helsta vara-
hlutalager Delta er að finna. Þar að
auki hefur ITS nú fengið aðgang að
víðtæku leiðarkerfi Delta vegna
flugvéla Icelandair sem staðsettar
eru fjarri Íslandi.
Samningur um viðhald
á þotum Icelandair
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Flugvirkjar framkvæma skoðun á Boeing 767-300-vél Icelandair.
AÐILDARBREYTING á úthlutun
byggingaréttar á lóð fyrir verslana-
miðstöð við Stekkjabrekkur við
Vesturlandsveg hefur engin áhrif á
kvaðir deiluskipulags um heimild
Mata ehf. til að reka matvöruverslun
á lóðinni, að sögn Guðmundar Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Smára-
garðs ehf. Hann segir að bygging
verslanamiðstöðvarinnar sé ein
framkvæmd og því hafi aðilum þótt
rétt að stofna sérstakt félag,
Stekkjarbrekkur ehf., um fram-
kvæmdina. Þessi breyting hafi engin
áhrif á skilmála deiliskipulags lóðar-
innar.
Byggingarréttinum var upphaf-
lega úthlutað til Smáragarðs ehf.,
Smáratorgs ehf. og Mötu ehf. og var
markmið borgaryfirvalda með út-
hlutuninni til Mötu ehf. að stuðla að
samkeppni á matvörumarkaði.
Ákvæði um það eru í deiliskipulag-
inu.
Jarðvegsframkvæmdir eru hafnar
á lóðinni. Guðmundur vildi ekki á
þessu stigi tjá sig um áætluð verklok.
Upphaflegir skilmálar um
Stekkjarbrekkur gilda