Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 12

Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Marine Harvest óskar eftir starfsmanni í viðhalds- og tæknideild fyrir verksmiðjuna í Hjelmeland. Viðhalds- og tæknideild samanstendur af 7 faglærðum starfsmönnum sem starfa við rekstur og viðhald á vinnslubúnaði og húsnæði sem tilheyra verksmiðjunni í Hjelme- land. Staðan gefur góða framtíðarmöguleika og mörg spennandi verkefni í vaxandi og framsæknu umhverfi. Unnið er á tveimur vöktum. Helstu verkefni eru:  Rekstur, fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir og endurbætur á vinnslubúnaði.  Rekstur og fyrirbyggjandi viðhald á verksmiðjuhúsnæði.  Finna betri tæknilegar lausnir og koma í framkvæmd umbótum. Við leitum eftir umsækjendum:  Með menntun innan tæknigreina, helst menntun í: • vélstjórn, vélvirkjun, rafvirkjun, kælitækni eða sjálfvirkni.  Sem hafa langa reynslu innan fiskiðnaðar og getur það að hluta vegið upp tak- markaða menntun.  Sem eru ungir og áhugasamir með menntun við hæfi og sjá framtíð í starfi inn- an sjávarútvegs.  Sem hafa skilning og geta tjáð sig á einu af tungumálunum; ensku, norsku, sænsku eða dönsku. Leggjum áherslu á:  Getu til að vinna sjálfstætt og skipulega.  Góða samvinnu og samskipti við samstarfsmenn. Við bjóðum:  Samkeppnishæf laun með almennu trygginga- og eftirlaunakerfi.  Spennandi starfsumhverfi með alþjóðlegum samskiptum.  Áhugaverð verkefni með möguleikum á persónulegri og faglegri þróun.  Aðstoð með atvinnuleit fyrir maka ef óskað er. Frekari upplýsingar gefur undirritaður: Gunnar Örn Kristjánsson, verksmiðjustjóri. Sími: +47 5175 4118 eða +47 908 36 643 Netfang: gunnar.oern.kristjansson@marineharvest.com Umsókn með starfsferli og meðmælum er best að senda á ofangreint netfang eða í pósti til: Marine Harvest Norway AS, 4130 Hjelmeland, Norway. www.marineharvest.com Marine Harvest AS er stærsta fyrirtækið innan eldis á laxi með 4.000 starfsmenn og ársfram- leiðslu upp á 300.000 tonn í fimm löndum. Marine Harvest í Noregi hefur 700 starfsmenn sem vinna við framleiðslu og sölu á 90.000 tonnum af laxi og urriða. Marine Harvest í Rogalandi er önnur af tveimur einingum í Noregi með starfsemi allt frá seiðaeldi til dreifingar á afurðum til Evrópu og er framleitt magn 35.000 tonn, starfsmenn eru 250 og velta um 15 milljarðar ísk. GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Lið-a-mót FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR A ll ta f ó d ýr ir SELD voru 61.788 tonn af fiski á inn- lendum fiskmörkuðum fyrstu sex mánuði ársins. Ef ekki er tekin með sala á loðnu er þetta mesta magn sem selt hefur verið á því tímabili frá upp- hafi markaðanna. Meðalverð á fisk- mörkuðum í júní sl. er hæsta með- alverð í þeim mánuði sem sést hefur eða 148,42 kr. Tengist genginu Eyjólfur Þór Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsmarkaðar, seg- ir að júnímánuður hafi verið óvenju- legur til að byrja með. Fyrri helming hans hafi framboð verið afar lítið og meðalverð yfir 150 krónur. Þetta hafi síðan jafnað sig með auknu framboði. Annars sé það alveg ljóst að verð á fiskmörkuðum tengist gengi krón- unnar beint. Lækkandi gengi þýði hærra fiskverð, sem þýðir að fleiri krónur fást fyrir afurðirnar. Síðan hafi kvótastaðan sín áhrif, en margir séu langt komnir með kvóta sinn eða búnir og framboð á leigumarkaðnum sé lítið. Hann segir að salan sé nokkuð jöfn á síðustu árum, sé loðna tekin út úr myndinni, en nokkuð var um sölu á loðnu á fiskmörkuðunum á síðasta áratug. Það séu um 100.000 tonn að seljast á ári og breytist magnið í sam- ræmi við kvótaúthlutun. Reyndar virðist sem aukning á kvóta skili sér ekki hlutfallslega inn á fiskmarkaðina og að yfirfallið fari utan óunnið í gám- um. Það sé því stefna fiskmarkað- anna að ná þeim fiski, sem fer utan í gámunum, inn á fiskmarkaðina. Stærstu kaupendur á fiskmörkuð- unum eru þeir sem vinna ferskan fisk til útflutnings, en fleiri og fleiri fyr- irtæki eru farin á snúa sér að þeirri vinnslu. Stærstu kaupendurnir á fyrri helminga þessa árs eru Topp- fiskur, Frostfiskur, Nesfiskur, Ný- fiskur, Hafgæði og Vísir. Aukning í magni, verðmætum og meðalverði Í júní voru seld 8.164 tonn sem er í meðallagi ef tekin er sala í mánuðin- um undanfarin 10 ár, en 6,8% meira en í júní 2005. Vegna hins háa með- alverðs var verðmæti aflans það næstmesta sem sést hefur í júnímán- uði eða 1.212 milljónir. Mesta verð- mæti í júnímánuði var árið 2001, 1.332 milljónir, meðalverðið þá var 137,03. Til samanburðar voru seld 7.641 tonn í júní 2005 fyrir 857 millj- ónir, meðalverð var 112,12. Þetta er eins og áður sagði 6,8% aukning á magni, 41,4% hækkun í verðmætum og 32,4% hækkun á meðalverði milli ára. Eins og áður sagði voru seld 61.788 tonn fyrstu 6 mánuði þessa árs fyrir 7.972 milljónir, meðalverð 129,01. Sex fyrstu mánuðina 2005 voru seld 59.693 tonn fyrir 6.537 milljónir, með- alverð 109,51. Þetta er 3,5% aukning í magni, 21,9% aukning í verðmætum og 17,8% hækkun á meðalverði. Mesta sala á fyrri hluta árs frá upphafi fiskmarkaða                                                    !   !"#$                  " # $Meðalverðið tæpar 150 krónur á kíló í júní Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is NÚ eru veidd tæplega 280.000 tonn af kolmunna samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Það er tæplega 80% leyfilegs heildarafla, sem er 352.600 tonn. Flest bendir því til að kol- munnakvótinn náist í ár. Erlend skip hafa landað hér tæplega 40.000 tonnum af kol- munna í ár og hafa íslenzku skipin landað öllum sínum afla hérlendis. Verksmiðjurnar hafa því tekið á móti ríflega 300.000 tonnum. Mestu hefur verið landað hjá Síldarvinnsl- unni í Neskaupstað, ríflega 71.000 tonnum. Eskja á Eski- firði kemur næst með um 61.500 tonn. Síldarvinnslan á Seyðifirði hefur tekið á móti 44.300 tonnum, HB Grandi á Vopnafirði er með 33.200 tonn. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði með 32.800 tonn og Vinnslu- stöðin í Vestmannaeyjum er með 29.000 tonn. Aðrar verk- smiðjur eru með minna. Sigurður VE með mest af síldinni Veiðar á norsk-íslenzku síld- inni ganga hægar, en um síð- ustu helgi fékk fyrsta íslenzka skipið síld á Svalbarðasvæðinu. Aflinn er nú orðinn um 25.000 tonn, sem er aðeins 16% af leyfilegum heildarafla íslenzku skipanna, en hann er 154.000 tonn. Mestu af síldinni hefur verið landað hjá Ísfélaginu á Krossanesi, um 7.400 tonn, en 6.300 tonnum hefur verið land- að í Neskaupstað. Sigurður VE er afkastamesta skipið sem komið er með um 5.600 tonn samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu. Um 80% kolmunna- kvótans veidd VEIÐUM á grásleppu er nú lokið eða að ljúka í öllum löndunum, sem veiðarnar stunda. Allt útlit er fyrir að heildarframboð af hrognum verði minna en í fyrra. Engu að síður hafa grásleppukarlar fengið lægra verð fyrir tunnuna núna en í fyrra. Veiðin hér við land virðist ætla að skila um 7.800 tunnum. Veiðunum er að langmestu leyti lokið, en enn er þó veitt við Breiðafjörð. Þetta verð- ur þá heldur minna en á síðasta ári. Nýfundnalendingar eru þessa dagana að ljúka við grásleppuvertíð- ina. Hinn 29. júní var veiðin komin í 7.650 tunnur. Gert er ráð fyrir að heildarafrakstur vertíðarinnar verði 8.000–8.500 tunnur. Verði það nið- urstaðan, er veiðin minni en í fyrra sem nemur 2.000 tunnum. Norðmenn hafa lokið veiðum en þær skiluðu um 3.000 tunnum. Veið- ar við Grænland standa enn yfir en gert er ráð fyrir því að þær skili um 10.000 tunnum, sem er litlu minna en í fyrra. Morgunblaðið/RAX Minni veiði á grásleppu Innihaldið skiptir máli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.