Morgunblaðið - 06.07.2006, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LEIÐTOGAR ríkja heims hafa fordæmt stjórnvöld
í Norður-Kóreu fyrir að hafa skotið sjö eldflaugum í
tilraunaskyni í fyrrakvöld og gærmorgun. Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna, SÞ, kom saman á neyð-
arfundi í gær vegna málsins, að beiðni Japana.
Stjórnmálaskýrendur segja að yfirvöld í Norður-
Kóreu hafi með tilraunaskotunum viljað fá athygli
heimsins að nýju, en sex ríkja viðræður um kjarn-
orkuáætlun landsins hafa verið í hnút síðan í fyrra
þar sem ráðamenn í Washington og stjórnvöld í
Norður-Kóreu hafa ekki getað komist að samkomu-
lagi. Er talið að skotin geti stefnt viðræðunum í
hættu. Bent er á að Norður-Kóreumenn skjóti
flaugunum á þjóðhátíðardegi Bandaríkjamanna, 4.
júlí, og sama kvöld og þeir skjóta geimferjunni
Discovery á loft.
Hafna tveggja ríkja viðræðum
Bandarísk stjórnvöld höfnuðu því alfarið í gær að
þau myndu samþykkja beinar viðræður við Norður-
Kóreumenn í kjölfarið á tilraunaskotunum en þau
hafa áður hafnað tillögu þeirra um tveggja ríkja við-
ræður. „[Kjarnorkuáætlunin] er ekki mál á milli
Bandaríkjanna og Norður-Kóreu og við ætlum ekki
að leyfa leiðtoga Norður-Kóreu að breyta því á
þann veg, sagði Tony Snow, talsmaður Hvíta húss-
ins á blaðamannafundi í gær.
Á meðal flauganna sem Norður-Kóreumenn
skutu var langdræg flaug, Taepodong-2, sem talið
er að hægt sé að skjóta allt að 6.000 km. Myndi hún
ná til Alaska í Bandaríkjunum. Bandarískir emb-
ættismenn segja að skotið hafi mistekist, hún hafi
fallið niður skömmu eftir að henni var skotið á loft
en flaugarnar eru allar sagðar hafa fallið í Japans-
haf.
Atlantshafsbandalagið, NATO, sagði í yfirlýs-
ingu að tilraunirnar væru „alvarleg ógn við þjóðir á
svæðinu og alþjóðasamfélagið í heild“ og hvatti til
harðra viðbragða alþjóðasamfélagsins. Þýska rík-
isstjórnin talaði um „ábyrgðarlausa ögrun“ og Jap-
anir hótuðu frekari viðskiptaþvingunum.
Ekki minnst á tilraunirnar
Í Norður-Kóreska ríkisútvarpinu var ekki
minnst á tilraunaskotin í gær en rætt var um að
„harðar fyrirbyggjandi stríðsaðgerðir“ ríkisins
hefðu tryggt frið í landinu og að þjóðin væri tilbúin
til að takst á við ögranir Bandaríkjamanna. Í rík-
isreknum fjölmiðlum landsins kemur oft fram að
Bandaríkjamenn séu að undirbúa árás á Norður-
Kóreu.
Öryggisráðið fundaði um
tilraunaskot Norður-Kóreu
Mótmælendur í Seoul, höfuðborg S-Kóreu,
brenna mynd af Kim Jong-il, leiðtoga N-Kóreu.
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is Bagdad. AFP. | Írösk stjórnvöld gáfu í
skyn í gær að þau gætu verið tilbúin
til að leggja fram málamiðlunartil-
lögur í samningaviðræðum sínum við
uppreisnarmenn. Að sögn ráðherra í
írösku stjórninni hefur hún átt í sam-
skiptum við á annan tug hópa upp-
reisnarmanna sem hafi, að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum, lýst yfir
áhuga á viðræðum.
„Við höfum átt í samskiptum við
15 til 20 hópa,“ sagði Akram al-Ha-
kim, ráðherra í stjórn Nouri al-Mal-
iki forsætisráðherra, í gær. „Það eru
sjö hópar sem hafa krafist þess að
andstaða þeirra gegn hernámsliðinu
verði viðurkennd og við höfum sagt
að þeir ættu að gera grein fyrir sér
og staðfesta að þeir geri aðeins árás-
ir á liðsmenn Bandaríkjahers.“
Al-Hakim sagði ennfremur að
uppreisnarmenn úr röðum súnníta
hefðu farið fram á þá eftirgjöf að
lögð yrði fram áætlun um brottflutn-
ing bandarískra hermanna.
Áframhald á blóðugum árásum
Ofbeldisaðgerðir uppreisnar-
manna í Írak héldu áfram í gær þeg-
ar að minnsta kosti 18 féllu í árásum
víðsvegar um landið. Þar af féllu sex
og 17 slösuðust í bílasprengju í vest-
urhluta höfuðborgarinnar Bagdad.
Þá lést einn og sjö slösuðust þegar
að sprengja sprakk fyrir utan veit-
ingastað við Tayaran-torgið í mið-
borg Bagdad.
Segja
viðræður
ganga vel
Á annan tug féll
í Írak í gær
59 ÁRA gömul bandarísk kona hefur
eignast tvíbura og er hún talin elsta
tvíburamamma í heimi. Börnin,
stúlka og drengur, voru tekin með
keisaraskurði á sjúkrahúsi í New
York en konan, Lauren Cohen, varð
þunguð eftir að hafa fengið gjafaegg,
að því er fram kemur á fréttavef
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Cohen, sem verður sextug í ágúst,
á fyrir tvær dætur, sem eru 18 mán-
aða og 27 ára gamlar.
Elsta kona í heimi sem vitað er
um að hafi eignast barn er talin vera
Adriana Iliescu, frá Rúmeníu, sem í
fyrra eignaðist dóttur þegar hún var
á 67. aldursári. Þá er búist við því að
Patricia Rashbrook, sem er breskur
ríkisborgari, muni senn eignast barn
en hún er 63 ára gömul.
Elsta konan
til að eignast
tvíbura
VÆNDISKONUM í Indlandi
hefur fjölgað um helming á síð-
ustu sex til sjö árum, sam-
kvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar. Tvær milljónir
manna stunduðu vændi árið
1997 en voru orðnar þrjár árið
2003 að því er rannsóknin, sem
yfirvöld létu gera, leiðir í ljós.
Fram kemur að vændiskonur
byrja margar að stunda vændi
á aldrinum 12-15 ára, að því er
fram kemur á fréttavef BBC.
Rætt var við 9.500 vændis-
konur í 31 ríki landsins á 2 ára
tímabili. Þá var einnig rætt við
lögreglu, blaðamenn og fé-
lagsráðgjafa. Fátækt virðist
vera helsta ástæðan fyrir því að
fólk fer út í vændi og 90%
vændiskvenna eru á aldrinum
15-35 ára.
„Mikil eftirspurn er eftir
ungum stúlkum og meira en
35% vændiskvenna eru yngri
en 18 ára þegar þær byrja,“
segir dr. KK Mukherjee, sem
stjórnaði rannsókninni. Hann
bendir á að hægt sé að stjórna
aukningu á vændi með því að
leggja áherslu á efnahagsum-
bætur á svæðum þar sem
vændi er mikið stundað.
Vændis-
konum
fjölgar
SAMGÖNGUR hafa víða raskast á Ítalíu síðustu daga
vegna verkfalls leigubílstjóra, sem hafa mótmælt harð-
lega lögum sem samþykkt voru af ríkisstjórn Romano
Prodi forsætisráðherra síðasta föstudag. Hafa lögin
það að markmiði að auka samkeppni í leigubílaþjón-
ustu í landinu, en mótmælin hafa haft víðtæk áhrif og
ollið töfum í flugsamgöngum víðsvegar um Ítalíu.
Leigubílstjórarnir á myndinni hér að ofan voru á leið
til skrifstofu borgarstjórans í Róm þegar þeir mættu
lögregluþjónum gráum fyrir járnum. Hefur Prodi boð-
að frekari umbætur í almenningssamgöngum og á sviði
lyfjaframleiðslu, en hann lagði sem kunnugt er afar
mikla áherslu á efnahagsmál í kosningunum í vor eftir
lítinn hagvöxt á síðustu árum Silvio Berlusconi í emb-
ætti forsætisráðherra. Reikna stjórnvöld með að mót-
mælin muni halda áfram næstu daga og vikur.
AP
Leigubílstjórar mótmæla á Ítalíu
♦♦♦
Sydney. AFP. | Áströlsk stjórnvöld til-
kynntu í gær að þau myndu endur-
skoða lög um rekstur fjölmiðla eftir
ósæmilega hegðun ungs manns í
raunveruleika-
sjónvarpsþættin-
um „Stóra bróð-
ur“, sem notið
hefur mikilla vin-
sælda syðra.
Þátturinn er afar
umdeildur og
telja margir Ástr-
alar að efni hans
sé komið langt út
fyrir almenn velsæmismörk.
Þannig sagði Helen Coonan, ráð-
herra samskiptamála í áströlsku
stjórninni, að stjórnvöld myndu
leggja fram frumvarp sem fæli í sér
útvíkkun á núgildandi lögum um
sjónvarpsútsendingar svo að þau
næðu einnig til útsendinga á netinu.
„Þetta atvik hefur greinilega sýnt
að það er mikil reiði í samfélaginu,“
sagði Coonan í gær. „Það er ákveð-
inn óróleiki í garð slíkra þátta.“
Beraði kynfæri sín
Atvikið í þættinum „Stóra bróður“
var með þeim hætti að ungur maður
nuddaði kynfærum sínum í andlit
stúlku sem var haldið niðri í rúmi af
öðrum manni í beinni útsendingu á
netinu. Meðan á þessu stóð var þátt-
urinn ekki sýndur í sjónvarpinu. Er
frumvarpinu ætlað að koma í veg
fyrir að slíkt efni sé sent út á netinu,
án þess að það lúti sömu kröfum og
efni til sjónvarpsútsendinga.
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur einnig blandað sér í
málið og sagt að taka ætti „Stóra
bróður“ af dagskrá.
Ástralar vilja endurskoða fjölmiðlalög
Andfætlingar fá nóg
af „Stóra bróður“
John Howard
Jerúsalem, Genf. AP. | Ísraelski her-
inn bjó sig í gær undir enn víðtækari
hernaðaraðgerðir á Gaza en áður,
eftir að heimagerð eldflaug frá her-
skáum Palestínumönnum lenti ísr-
aelsku borginni Ashkelon í fyrra-
kvöld. Enginn fórst í árásinni og
litlar skemmdir urðu. Annarri flaug
var skotið á Ashkelon í gærkvöldi.
Ísraelsstjórn veitti hernum heim-
ild til að fara inn á íbúðasvæði á Gaza
og fylgja eftir áætlun um að stækka
svæði sem óheimilt er að fara inn á
en ísraelski herinn vaktar svæðið.
Ísraelska ríkisstjórnin skipaði
hernum að hefja langvinnar aðgerðir
og einbeita sér að „stofnunum og
innviðum sem auðveldi hryðjuverk,“
að því er fram kemur í yfirlýsingu
sem stjórnin sendi frá sér eftir fund í
gær. Þar segir að „breyta verði leik-
reglunum í samskiptunum við pal-
estínsku heimastjórnina og Hamas.“
Þá voru átök á milli hersins og Ha-
mas-liða á norðurhluta Gaza í gær.
Gagnrýnd fyrir afskiptaleysi
Sérfræðingur Sameinuðu þjóð-
anna, SÞ, í mannréttindamálum,
John Dugard, gagnrýndi í gær,
Bandaríkin, Evrópusambandið,
Rússland og SÞ, fyrir að hunsa
mannréttindabrot sem hann segir
Ísraela fremja á Palestínumönnum.
Dugard, sem er lögfræðingur frá
Suður-Afríku og hefur rannsakað
meint mannréttindabrot Ísraela á
Palestínumönnum fyrir SÞ, segir að
Bandaríkjamenn og önnur stórveldi
geri ekkert til að hafa hemil á Ísr-
aelum. „Hegðun Ísraela er siðferð-
islega óverjandi,“ segir hann. Hann
sagðist hafa „mikla samúð“ með ísr-
aelska hermanninum Gilad Shalit,
sem herskáir Palestínumenn hafa
haft í haldi í eina og hálfa viku, en að
viðbrögð Ísraela væru brot á al-
þjóðalögum um meðferð á fólki á
hernumdum svæðum.
Dugard talaði á fundi mannrétt-
indaráðs SÞ, sem haldinn var um
stöðuna í Ísrael, í Genf í gær. Sendi-
herra Ísraels hjá SÞ fordæmdi fund-
inn og sagði hann „skipulagða árás“
á land sitt. Ráðið tæki einhliða af-
stöðu með Palestínumönnum sem
hefðu hafið deiluna með ráninu á
hermanninum.
Ísraelsher boðar hertar
aðgerðir á Gaza
Hefur fengið heimild til að fara inn í íbúðabyggðir