Morgunblaðið - 06.07.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
*Forsendur miðast við 60 m2 af Borgarhellum án hellulagnar og jafnar mánaðarlegar greiðslur á VISA eða
Mastercard í 36 mánuði. MEST áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Bretta og pokatrygging
endurgreiðist við skil. 8% umsýslugjald þegar skilað er opnuðum hellubrettum.
Þegar fjárfesta á í garðinum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar
séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskiptavinum okkar
alla leið og veitum þeim alhliða þjónustu.
Hjá MEST getur þú fengið aðstoð landslagshönnuða við að
skipuleggja garðinn þinn. Hafðu samband og fáðu nánari
upplýsingar í síma 4 400 550 eða á www.mest.is.
Hellur & steinar
fyrir fegurra umhverfi
Vertu á hellu í sumar fyrir
4.092 krónur á mánuði*
Malarhöf›a 10, Reykjavík Bæjarflöt 4, Reykjavík Hringhellu 2, Hafnarfir›i Hrísm‡ri 8, Selfossi Leiruvogi 8, Rey›arfir›i
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag
Hlíðarhjalli 40
Glæsilegt útsýni
Frábærlega staðsett og björt 57,4 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í fallegu fjölb.
neðst í suðurhlíðum Kópav. Íbúðin er falleg með parketi á gólfum, fallegu
baðherb. með flísum í hólf og gólf, innréttingu, baðkari og þvottahúsi inn af.
Björt stofa með útgangi á stórar, opnar, ca 12 fm svalir í suður og eldhús
opið við stofu. Húsið var viðgert og málað árið 2005. Verð 15,9 millj.
Erling og Inga taka vel á móti gestum í dag milli kl. 17 og 19.
Bjalla merkt 0301. Teikningar á staðnum.
Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag
Snorrabraut 85
Falleg íbúð
Mikið uppgerð og falleg 2ja herb. ca 60 fm íbúð í kj. í góðu steinhúsi. Stór
og björt stofa. Gott svefnherb. Baðherb. endurnýjað á fallegan máta m.
glugga. Eldhús endurnýjað fyrir ca 7-8 árum m. hvítri innréttingu og hvít-
um tækjum. Gólfefni eru parket og náttúruflísar. Aðgengi er að eigninni frá
Auðarstræti. Stutt í Landspítalann og HÍ. Verð 14,9 millj. (273)
Hilmar tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 17 og 19.
Teikningar á staðnum.HÁTT heimsmarkaðsverð á olíu að
undanförnu hefur haft afar örvandi
áhrif á efnahag margra olíufram-
leiðsluríkja og gert þeim kleift að
greiða niður erlendar skuldir mun
hraðar en ráð var fyrir gert. Þá hef-
ur olíuverðið haft umtalsverð áhrif
á utanríkisstefnu Kínverja og
Rússa á síðustu misserum og litað
samskipti þeirra við erlend ríki.
Olíuverðið hefur einnig komið við
sögu í utanríkisstefnu George W.
Bush Bandaríkjaforseta á síðustu
mánuðum, en hann lýsti því yfir í
vor að draga þyrfti úr þörf lands
síns fyrir innflutta olíu. Þessi yf-
irlýsing mætti í síðustu viku gagn-
rýni frá forstjórum margra stærstu
olíuframleiðslufyrirtækja heims,
sem sögðu slík skilaboð geta leitt til
óstöðugleika í framboði á olíu í
framtíðinni.
Fyrir utan áhrif Íransdeilunnar á
olíuverðið hefur Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna, gagnrýnt
Rússa fyrir að nota gas- og olíu-
lindir sínar sem eins konar tæki til
kúgunar í samskiptum sínum við
Úkraínumenn. Þessi ummæli féllu í
afar grýttan jarðveg í Moskvu, en
Rússar njóta nú mjög góðs af háu
olíuverði.
Úkraínumenn lögðu hins vegar
vel við hlustir þegar Cheney lét
þessi orð falla í frægri ræðu í Vil-
nius, höfuðborg Litháens, í maíbyrj-
un, en mótmæli gegn verðhækk-
unum Rússa á olíu og gasi til
Úkraínu í síðustu viku voru sögð
jafnvel fjölmennari en kröfugöngur
„appelsínugulu byltingarinnar“ svo-
kölluðu.
Greiða niður skuldir
Á efnahagssviðinu hefur elds-
neytisverðið eins og fyrr segir haft
víðtæk áhrif á efnahag olíufram-
leiðsluríkja. Þannig tilkynntu
stjórnvöld í Alsír í síðustu viku að
þau hefðu samið við Svía um að
greiða niður skuld að jafnvirði 6,9
milljarða ísl. króna mun fyrr en ráð
var fyrir gert.
Stjórnvöld í Alsír höfðu þá gert
átta slíka samninga í röð frá
miðjum maí, en olíuverðið er talið
gegna lykilhlutverki í bættri fjár-
hagsstöðu landsins. Lán Svía var
hluti af lántökum Alsírbúa hjá Par-
ísarklúbbnum svokallaða, hóp lán-
veitenda frá 19 af ríkustu þjóðum
heims, en þeir hafa næst á eftir
Rússum verið helstu lántakendur
klúbbsins.
Rússar tilkynntu í júnílok að þeir
hygðust greiða niður allar sínar
skuldir hjá klúbbnum fyrir 21.
ágúst og er búist við að stjórnvöld í
Alsír muni fylgja í kjölfar þeirra.
Því er spáð að hagvöxtur í Rúss-
landi í ár verði um 6,5 prósent og
vöruðu talsmenn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins (IMF) stjórnvöld í Moskvu
nýlega við því að verja hagnaðinum
af olíusölu til að lækka skatta og
hækka laun opinberra starfsmanna,
í því skyni að halda verðbólgunni
niðri.
Bætir skuldastöðu Nígeríu
Olíuverðið hefur einnig komið við
sögu í Afríku því að mikil eftirspurn
eftir „svarta gullinu“ hefur leitt til
mikillar aukningar í gjaldeyrisforða
Nígeríu og jafnframt gert stjórn-
inni í Lagos kleift að greiða niður
eftirstandandi skuldir sínar við Par-
ísarklúbbinn, sem í fyrra afskrifaði
um 60 prósent af um 2.250 milljarða
króna láni Nígeríumanna.
Nígería er fjölmennasta ríki Afr-
íku og jafnframt helsti olíuframleið-
andi álfunnar. Kínverjar gera sér
grein fyrir þessu og í síðustu viku
sneri Wen Jiabao, forsætisráðherra
Kína, heim til Peking eftir opinbera
heimsókn til sjö Afríkuríkja.
Viðskipti Kínverja í Afríku jukust
um 35 prósent í fyrra frá árinu áður
og námu alls um 3.000 milljörðum
króna. Verulegur hluti þessara við-
skipta er með olíu og hafa ýmis
mannréttindasamtök sakað Kín-
verja um að sniðganga mannrétt-
indi í því ferli að tryggja öruggan
aðgang að jarðefnaeldsneyti í þess-
ari fátækustu álfu heims.
Olíuverðið grynnkar
á erlendum skuldum
„Svarta gullið“
kemur víða við
Reuters
Starfsmenn olíuleitarfyrirtækis athuga flæði úr olíulind í vesturhluta Úganda. Olíuleit í Afríku hefur að und-
anförnu borið meiri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir og er búist við frekari olíuvinnslu í álfunni í framtíðinni.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Berlín. AFP. | Fátt er jafn sárt fyrir knattspyrnuáhugamenn og að sjá lands-
lið sitt tapa með mörkum á lokaandartökum síðari hluta framlengingar í
undanúrslitum Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Þetta fengu Þjóð-
verjar að reyna í fyrrakvöld en ekki áttu allir jafn auðvelt með að sætta sig
við 2-0 tapið gegn Ítölum.
Þannig réðust 25 aðdáendur þýska liðsins inn á ítalskan veitingastað í
bænum Quedlinburg og brutu þar allt og brömluðu í gremju sinni yfir úr-
slitum leiksins. Í bænum Stendal var svipað uppi á teningnum en þar réðust
40 fótboltabullur á ítalska ísbúð og ollu þar skemmdum.
Þá eyðilagði hópur Þjóðverja blómaskreytingar í anddyri ítalsks veit-
ingastaðar í Magdeburg, en að sögn lögregluyfirvalda í Þýskalandi þurfti
víða að stilla til friðar í fyrrakvöld.
Réðust á ítalska veitingastaði