Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 16

Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 16
Reykjavík | Þeir voru bara býsna brattir þessir ungu piltar sem höfðu komið saman á Klambrat- úni með fótbolta. Þar léku þeir knattspyrnu drjúga stund, höfðu gaman af þó oft hlypi mönn- um kapp í kinn í hita leiksins. Fótbolti á hug og hjörtu ungu strákanna þessa daga, nú þegar dreg- ið hefur til úrslita í heimsmeistarakeppninni. Og allir vilja auðvitað vera langbestir. Morgunblaðið/Sverrir Glaðbeittir guttar í fótbolta Kappar Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Merk tré | Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær efna til fræðslugöngu um Miðbæ og Norðurbrekku í kvöld, fimmtu- dagskvöld, þar sem skoðuð verða og kynnt merk tré. Skógræktarfélag Eyfirðinga hef- ur, í samvinnu við Akureyrarbæ, gefið út upplýsingabækling um 32 merk tré á Ak- ureyri og er fræðslugangan farin í tilefni af því. Bæklingurinn, sem inniheldur myndir af trjánum, staðsetningu þeirra, uppruna og hæðarmælingar, verður kynntur í göng- unni undir leiðsögn sérfróðra. Lagt verður upp frá Ráðhústorgi kl. 20 og endað á sama stað með ketilkaffi. Nálgast má bæklinginn m.a. í þjón- ustuanddyri Ráðhússins á Geislagötu 9, í Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Hafn- arstræti 82, hjá starfsfólki í Lystigarðinum og einnig á öllum bensínstöðvum í bænum. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Svo virðistsem heiða-gæsavarp hafi verið óvenju seint á ferðinni í ár eins og reyndar á við um varp hjá fleiri fuglum, eins og til dæmis hjá kríunni. Nú um liðna helgi mátti sjá mjög mikið um litla unga, ný- skriðna úr eggjum sínum á Kringils- árrana. Það er óneit- anlega tilkomu- mikil sjón að sjá þessar litlu verur reyna að skríða út úr eggjum sínum og virða lífið og tilveruna fyr- ir sér í fyrsta sinn. Þessi mynd var tekin þar á sunnudag og eins og sjá má er gat komið á ann- að eggið. Unginn sem stungið hefur gogginum út um gat á skurninu var tekinn til við að tísta. Raunar byrja ungarnir að tísta um leið og þeir verða fullvaxnir inni í egg- inu, þótt ekkert sé komið gatið. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Heiðagæsavarp seint á ferðinni í ár Árgangur Laug-arvatnsstúdenta’56 júbíleraði með ferð um Sviss frá Fried- richshafen til Genfar í byrjun júní. Áð var í fjallaskarði og ostabú skoðað. Að lokinni skoð- unarferð voru gestum færðar áfir við þorst- anum sem eðlilega sótti að mannskapnum í yfir 30° hita. Ólafi Hannibals- syni varð að orði: Eitthvað drakk ég úti í Sviss, sem ekki getur þorstann kæft. Ist das Wasser oder Piss? Ekki er þetta drykkjarhæft? Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd segir oftast meira hugsað hér í veröld um efnið en andann: Fáir lífs í heimi hér hugsa um sálarbjargir. En forða af því sem ekkert er eignast vilja margir! …og ekki er annað hægt en taka undir hin fleygu orð skáldsins. Áfir við þorsta pebl@mbl.is Strandabyggð | Sveitarstjórn Stranda- byggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum aðgerðum stjórnvalda um að fresta öllum vegaframkvæmdum á Vestfjörðum vegna þenslu í efnahagslífi landsins. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi nú í vik- unni. „Er hér vegið að búsetu á svæðinu því góðar samgöngur eru forsendur fyrir byggð,“ segir í ályktuninni og einnig að vegurinn suður Strandir sé ónýtur og hættulegur allri umferð. Nýlega ultu tvær flutningabifreiðar í Bitrufirði þar sem veg- kantar gáfu sig undan þunga þeirra. „Þá er vegið að samkeppnishæfi fyrirtækja á Vestfjörðum þar sem flutningskostnaður er hér hæstur á landinu m.a. vegna fjölda fjallvega og hálsa.“ Bent er á að þó margt hafi áunnist síðastliðin ár í vegafram- kvæmdum á svæðinu, sem beri að þakka fyrir, sé mikið verk eftir og það sé með öllu óviðunandi „að fórna fyrirhuguðum fram- kvæmdum á altari þenslu á svæði þar sem ríkt hefur samdráttur til fjölda ára“. Er það von sveitarstjórnar Stranda- byggðar að ríkisstjórninni beri gæfa til að viðurkenna sérstöðu Vestfjarða í sam- göngumálum og hætta við fyrirhuguð áform, segir í ályktuninni. Mótmæla frestun vega- framkvæmda STARFSMENN Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, fá oft til sín í gjaldskýlið erlenda ferðamenn í leit að Gullfossi og Geysi. Það sem verra er, þetta eru ferða- menn á leið frá Reykjavík og eru því ekki á réttri leið. Ástæðan er sú að þegar ferðalangarnir aka frá Reykjavík beygja þeir ekki inn á Suðurlandsveg þar sem sárlega vantar að merkja greinilega við gatnamót Vesturlandsvegar og Suður- landsvegar hvaða leið liggur að þessum fjölsóttu ferðamannastöðum á Suðurlandi. Ferðamálafrömuðir og starfsmenn Spalar hafa margoft bent Vegagerðinni á þetta vandamál en við þeim ábendingum hefur ekki verið brugðist, segir á vef Skessuhorns. Það verður oft hlutskipti starfsmanna fyrirtækisins að snúa við villuráfandi ferðamönnum sem finnst ólík- legt að Gullfoss sé að finna undir Hval- firði. Leita Gullfoss og Geysis ♦♦♦ Mývatnssveit | Tuttug- asta starfsár Sumartón- leika við Mývatn hófst á laugardagskvöldið með fjölbreyttri dagskrá ís- lenskra sönglaga. Flytjendur voru Svava Kristín Ingólfs- dóttir mezzósópran, Jó- hanna Ósk Valsdóttir alt, Magnús Ragnars- son, tenór og Bjartur Logi Guðnason bassi. Þau sungu hvert í sínu lagi og líka saman. Einnig léku Magnús og Bjartur á kirkjuorgelið og píanó en Jóhanna Ósk á fiðlu í nokkrum verkanna. Flutt voru bæði fornir íslenskir söngvar svo og seinni tíma verk og nútíma- verk sem ekki hafa fyrr heyrst í Reykjahlíðar- kirkju. Listafólkinu var vel fagnað af fjölmörgum þakklátum áheyrend- um. Sumartónleikarnir hafa fyrir löngu fest sig í sessi með Mývetn- ingum og eru ómissandi hluti af ánægjulegu sumri og fram undan er fjölbreytt dagskrá um hverja helgi út sólmánuðinn. Tilhlökkunarefni fyrir heimamenn og gesti sveitar- innar. Það er í sjálfu sér þrekvirki og einstakt afrek út af fyrir sig, að halda úti jafn fjölbreyttri og vand- aðri sumardagskrá í 20 ár í ekki stærra samfélagi. Okkur Mývetningum hefur boðist í gegn um tíðina, að hlýða á frábæra listamenn einstaklinga og hópa sem engin von er til að hefðu heiðrað okkur með list sinni ef ekki væri fyrir tilvist sumartónleikanna. Fyrir það á Margrét Bóasdóttir, listrænn framkvæmdastjóri tónleikanna, frá upphafi, miklar þakkir skildar. Morgunblaðið/BFH Tilhlökkunarefni fyrir heimamenn og gesti    Góð gönguleið | Eftir að bílaumferð lagðist að mestu niður um veginn í Almannaskarði hefur þessi leið verið vinsæl gönguleið sem reynir vel á þol og þrek. Þegar kemur upp á brún skarðsins er tilvalið að halda áfram niður Skarðsdalinn að Almannaskarðs- göngunum að norðan og ganga svo sömu leið til baka því umferð gangandi fólks um göngin er bönnuð, segir á vef Hornafjarðar. Algengt er að gangan upp á brún Almanna- skarðs, sem er í 170 metra hæð, taki frá 12 til 20 mínútur. Fagna ferjuhöfn | Byggðaráð Rangárþings eystra hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra um ferjuhöfn í Bakka- fjöru. Hún var kynnt á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku og felur í sér að ferjuhöfnin verði framtíðartenging milli lands og Eyja. „Þessi ákvörðun felur í sér möguleika á samvinnu milli íbúa Rangárþings eystra og Vestmannaeyja og má búast við stækkun þjónustu- og atvinnusvæðis þessara byggð- arlaga eftir að ferjuhöfnin verður tekin í notkun,“ segir í ályktun Byggðaráðs. Tillögur samgönguráðherra gera ráð fyr- ir að lokið verði við nauðsynlegar rann- sóknir og undirbúning svo framkvæmdir geti hafist svo fljótt sem auðið er. Gera má ráð fyrir að heildar framkvæmdatími við ferjuhöfn og tengd mannvirki verði tvö til tvö og hálft ár frá því að lokahönnun og um- hverfismat liggur fyrir. Áætlaður smíðatími nýrrar ferju er 15–18 mánuðir. Miðað við þessar tímaáætlanir verður hægt að taka höfnina í notkun árið 2010.   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.