Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 20
Daglegtlíf
júlí
1. Farðu með skýr
markmið á útsöluvellina
Ekki kaupa bara til þess að
kaupa. Hafðu skýr markmið áður en
þú ferð á útsöluvellina. Farðu vand-
lega yfir leikmannalistann þinn og
leikkerfi, þ.e. það sem þig, þína og
þitt heimili vantar. Þeim peningum
er illa varið sem eytt er í flíkur eða
muni sem þú kemur aldrei til með
að nota eða njóta en freistast ef til
vill til þess að kaupa á útsölum, að-
eins vegna þess að þú ert illa und-
irbúin/n eða lætur freistast í því
andrúmslofti og múgæsingi sem oft
myndast á útsöluvöllunum. Það er
eins og sumir telji að þar sé sjálfur
HM-bikarinn í knattspyrnu í húfi.
2. Komdu þér í gott
færi og skoraðu
Fótboltaleikur tekur 90 mínútur
og það er sennilega ástæða fyrir því.
Það tekur tíma að koma sér í góð
færi og skora mörk. Það sama á við
um verslunarleiðangur. Það þýðir
ekkert að ætla sér að gera góð kaup
í flýti. En um leið og marktækifæri
gefst, þ.e. þú hefur fengið augastað
á vöru, máttu ekki bíða of lengi því
þá getur varan runnið þér úr greip-
um. Og það er alltaf svekkjandi að
skjóta fram hjá. Þess vegna skiptir
undirbúningurinn, sem áður er get-
ið, mjög miklu máli því hann greinir
á milli hvort raunveruleg þörf sé
fyrir vöruna eða um sé að ræða bráð
einkenni kaupæðis, sérstaklega þeg-
ar verð hefur snarlækkað.
3. Raðaðu upp
mörkunum í fataskápnum
Á útsöluleiktímabilum má
skora mörg mörk á fataútsölum.
Leiktímabilið byrjar nú miklu fyrr
á sumrin á Íslandi en það gerði fyrir
nokkrum árum. Það ruglar suma
leikendur svolítið í ríminu svo það er
rétt að árétta að það eru enn tæpir
tveir mánuðir eftir af íslenska sumr-
inu, vonandi þeir sólríku! Svo endi-
lega, fjárfestið í litríkum, léttum og
blómlegum sumarfötum og sand-
ölum á 30–70% afslætti.
Snilldin og skynsemin á útsölu-
völlunum felst þó ekki síst í því að
kaupa heilsársflíkur úr vönduðum
efnum og velja þá sígild snið, efni og
liti. Þá er snjallt að kaupa spari-
klæðnað, kjóla og skó með góðum
afslætti sem og íþróttafatnað því
þetta eru iðulega dýr klæði en nauð-
synleg. Hafið líka alltaf í huga að
flíkurnar passi við þær sem þið eigið
í fataskápnum og bæti við mögu-
leikum í samsetningum.
4. Tími til þess að
fagna með tækifærisgjöfum
Við erum sífellt að fagna sigrum
leikmanna sem tengjast okkur í
þessu lífi, stórum sem smáum.
Tækifærisgjafir eru orðnar þokka-
lega stór útgjaldaliður hjá flestum.
Hagsýnustu leikmennirnir dreifa
gjafakaupunum yfir allt árið og nota
útsöluvellina grimmt til þess að
spara á þessu sviði í rekstrinum og
birgja sig upp fyrir gjafavertíðir.
Það má oft fá flottar og mjög
frambærilegar gjafir á útsöluleik-
tímabilinu, því jafnvel þótt verslanir
séu oft að rýma fyrir nýjum vörum
þá eru tískubylgjurnar í þessum
geira hvorki eins miklar né eins
áberandi og í fatnaði. Skálar, vasar
og styttur eru alltaf híbýlaprýði en
oft koma nytjahlutir eins og hand-
klæði og matardiskar og glös sér
ekki síður vel. Úrvalið er fjölbreytt
og því alltaf hægt að finna eitthvað
þótt leikkerfi annarra séu mismun-
andi. Leikfangaverslanir eru einnig
oft með tilboð eða ákveðnar vöru á
lækkuðu verði sem og bókaversl-
anir.
5. Rafmögnuð
spenna á lokamínútunum
Raftæki og húsgögn eru heldur
ekki jafnárstíðabundin og fatnaður
en margar verslanir sem eru með
slíkar vörur á boðstólum eru engu
að síðar oft með góð tilboð á þessum
tíma. Ef þig vantar raftæki, eins og
sjónvarp til þess að sjá úrslitaleik-
inn á HM almennilega, tölvu eða ör-
bylgjuofn, gæti þetta verið rétti tím-
inn til þess að láta til skarar skríða.
Það sama á einnig við um húsgögn
og sófa en oft er slegið af þeim á
leiktímabilinu, þótt prósentutalan sé
ekki eins há og í fatageiranum.
Raftæki og húsgögn hlaupa hins
vegar oft á tugum og jafnvel hundr-
uðum þúsunda og þá getur munað
mikið um 10–30% afslátt. Hér gilda
þó alveg sömu lögmál og við kaup á
flíkum, en mistökin geta verið dýr-
keyptari því um stærri upphæðir er
að ræða. Mundu, að þú ert þjálf-
arinn í þínu lífi og tekur ákvarð-
anirnar.
NEYTENDUR | Góð ráð til þess að gera góð kaup á útsölum
Í sókn á útsölum
Morgunblaðið/Eyþór
Sparikjólar og skartgripir eru á verulegum afslætti.
Það eru tæpir tveir mánuðir eftir af sumrinu og sólin hlýtur að fara að
skína. Garðhúsgögn á helmingsafslætti gætu því verið góð kaup.
Gjafavörur og
nytjahlutir fyrir
heimilið fást í tölu-
verðu úrvali á út-
sölum.
Útsala, útsala. Orðið hljómar yndislega í eyrum en
það þarf stundum dálitla kænsku til þess að gera góð
kaup á útsölum. Unnur H. Jóhannsdóttir ákvað að
ímynda sér að hún væri í fótbolta þar sem hann er svo
vinsæll þessa dagana, spila sóknarbolta á útsöluvöll-
unum og beita þar fimm taktískum reglum.
Nú fyrir sumarið hefur Slát-
urfélag Suðurlands sett
skemmtilega nýjung á markað,
BBQ Partýrif, sem bæði full-
orðnir og börn munu kunna vel
að meta.
Rifin eru tilvalin sem létt góð-
gæti fyrir mat, til að seðja
hungrið á svölum sumardegi eða
sem aðalréttur í sumarveislunni
eða á ferðalaginu. Rifin eru fullelduð svo aðeins þarf
að setja þau í ofn eða á grill í nokkrar mínútur og
ekki er verra að pensla þau með barbeque-sósu í lok-
in.
NÝTT
BBQ Partýrif á grillið
Sykurlaust tyggjó
Komið er á markað tyggjó sem kallast V6 Mini
Stick. Það er fáanlegt í
tveimur bragðtegundum,
þ.e. „Fresh Mint “ og „Spe-
armint“, og er sykurlaust. Í
fréttatilkynningu frá Nóa
Síríusi kemur fram að
tyggjóið fáist í handhægum
umbúðum á stærð við kreditkort.
BÖRN eru orðin vön því að það eigi stöð-
ugt að vera eitthvað að gerast. Sum-
arleyfið verður því þétt dagskrá frá
morgni til kvölds því að foreldrar fyllast
örvæntingu við tilhugsunina um að þeim
sjálfum og börnunum leiðist, hefur danska
dagblaðið Jyllands Posten eftir fjöl-
skyldusálfræðingi.
Sumarfríið á að vera sá tími þar sem
fjölskyldan nær að njóta samverustunda
og slaka á, en margir foreldrar og börn
þeirra óttast svo mikið að láta sér leiðast
hver í félagsskap annarra að fríið er gert
að þéttskipaðri skemmtidagskrá. Danskir
sumarfrískjarnar, íþróttamiðstöðvar og
afþreyingarfyrirtæki njóta góðs af þessari
þróun.
Börn eru svo gott sem vanin á að eitt-
hvað örvandi sé stöðugt að gerast, segir
John Aasted Halse fjölskyldusálfræðingur.
„Þau óttast tilhugsunina um að láta sér
leiðast og fjölskyldan er „tívolíseruð“.
Halse telur vinsældir afþreyingarmið-
stöðvanna þó einnig sýna að fjölskyldurn-
ar hafa áhuga á að gera eitthvað saman.
„En það er líka birtingarform þess að
margir foreldrar telja að forsenda sam-
veru með börnunum sé að alltaf sé eitt-
hvað að gerast. Og um leið finnst mörgum
foreldrum að auðvelt sé að fara í svona frí
því á meðan aðrir skemmti börnunum
þeirra þá geti þeir slakað á,“ sagði Halse.
BÖRN
Fjölskyldur óttast leiða í sumarfríinu
Morgunblaðið/Ásdís
Börn að leik í fjölskyldugarðinum. Þó að alltaf sé gaman að gera eitthvað skemmtilegt
með fjölskyldunni má ekki gleyma að rólegu stundirnar eru líka nauðsynlegar.