Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN UMRÆÐAN um nauðsyn nið- urskurðar á útgjöldum ríkissjóðs er ekki ný af nálinni. Má heita að ráðstjórnarmenn hafi verið brýndir á því í hartnær áratug að sýna miklu meiri aðgæzlu í eyðslu og fjárfestingum, en raun hefir á orðið. Staðreyndirnar tala sínu máli: Allan tímann hefir útgjaldahlið fjárlaga farið fram úr verð- lagsþróun, en tólfunum hefir þó kastað við lokauppgjör, þegar eyðsla umfram heimildir fjárlaga hefir verið færð til bókar við loka- uppgjör og aukafjárlög afgreidd. Þótt varhugaverð verðþensla sækti á var því í engu sinnt, og að- varanir á alþingi látnar sem vind um eyru þjóta. Enda mennirnir í stanzlausum atkvæðakaupum ásamt því að mylja eigur almennings undir auðjöfrana og einkavinina. Að vísu skiluðu þau viðvik sér drjúg- um í flokks- og kosningasjóði, en engrar fyrirhyggju gætt í neinu nema að halda völdum – hvað sem það kostaði. Af þessu öllu sýpur þjóðin seyð- ið nú, þegar verðbólgan æðir áfram á nýjan leik; kjaraskerðing ríður yfir og þeir verða harðast úti sem sízt skyldi. Og viðbrögð ráðstjórnarmanna alltof sein og áhrifalítil. Raunar mestan part látalæti og lausatök hvað samdrátt í ríkisrekstri áhrærir. Það mun enn á sannast við afgreiðslu fjárlaga á hausti komanda. Dæmigerð fyrir þessa trúðleik- ara er niðurskurður á vegafram- kvæmdum á Vestfjörðum og Norð-Austurlandi. Sem þáttur í samdrætti eru þær eins og kræki- ber í helvíti miðað við þann vanda sem við er að etja. En að því er gætandi að á þeim svæðum er fáum atkvæðum hætt hvort sem er; og eins hitt að forystumenn Ís- firðinga a.m.k. eru þekktir fyrir að kyssa á pólitíska vöndinn eftir nótum. Það hlýtur þó að vekja vonir í brjóstum manna, að báðir að- alstjórnendur í leikhúsinu hafa hrakizt frá völdum við lítinn orðs- tír; og hinn síðari með hraksmán. Til þess eru vítin að varast þau. Sverrir Hermannsson Látalæti og lausatök Höfundur er fv. formaður Frjálslynda flokksins. Á SÍÐASTLIÐNUM einum og hálfum áratug höfum við Íslend- ingar notið meira góð- æris í efnahagslegu tilliti en nokkru sinni fyrr. Þennan góða ár- angur má ekki hvað síst rekja til þess að frelsi hefur verið inn- leitt inn í þær greinar atvinnulífsins sem áð- ur bjuggu við ríkisaf- skipti. Það hefur verið full pólitísk samstaða um að stíga þessi skref meðal þeirra stjórnmálaflokka sem farið hafa með stjórn þjóðarskútunnar á þessu tímabili. Almenningur hefur notið þessara breytinga í ríkum mæli, enda hef- ur kaupmáttur launa aukist gríð- arlega á þessu árabili eins og öll- um er kunnugt og ekki er ágreiningur um. Fram að þessu hafa þær raddir því virkað hjá- róma sem lagt hafa til að skrefið yrði stigið til baka og ríkið tæki á ný til við atvinnustarfsemi sem það hafði áður horfið frá. Í hugum flestra hafa hugmyndir í þessa veru þótt fráleitar og því vart svara verðar. Nú ber hins vegar svo við að á undanförnum vikum hafa ítrekað komið fram tillögur um að ríkið fari aftur að höndla með lyf, en hið opinbera lét af þeirri starfsemi fyrir rúmum áratug. Að fyrra bragði hefðu menn af- greitt slíkar tillögur á sama hátt og aðrar í þessa veru. Þegar hins vegar tillögur í þessa átt heyrast frá forystufólki innan heilbrigðisþjónust- unnar verður málið allt flóknara. Því hef- ur verið teflt fram sem rökum að verð á lyfjum sé allt of hátt á Íslandi og ekki sé nægjanlega mik- il samkeppni milli fyrirtækjanna í þessari grein. Ríkisafskipti, með tilheyrandi afturhvarfi til fortíðar, sé töfralausnin. Fyrir alla þá sem telja að ríkið eigi almennt ekki að stunda at- vinnustarfsemi, hljóta tillögur í þessa átt að teljast vafasamar í meira lagi og fyrir þá sem þekkja betur til málaflokksins beinlínis fá- ránlegar. Staðreyndin er nefnilega sú að verslun með lyf er ein mjög fárra starfgreina sem býr við bein opinber verðlagsafskipti, þar sem hámarksverð lyfja er háð opinberri ákvörðun. Ríkið hefur þegar náð prýðis árangri við að ná niður lyfjaverði, sbr. samkomulag þess við heildsölufyrirtækin frá 2004 sem tryggir að verð á frumlyfjum í heildsölu verður hið sama og á hin- um Norðurlöndunum í september nk. Verð á frumlyfjum er raunar þegar orðið lægra en í Danmörku. Aðkoma hins opinbera að verð- lagningu lyfja er því meiri en í flestum öðrum greinum. Í þess ljósi hafa tillögur um stofnun nýrrar Lyfjaverslunar rík- isins því á sér yfirbragð hins full- komna fáránleika. Verða því allir þeir sem hafa meiri trú á frjálsu framtaki en ríkisafskiptum að koma í veg fyrir að tillögur þessar verði að veruleika. Lyfjaverslun ríkisins árið 2006 Andrés Magnússon skrifar um hugmyndir um aðkomu ríkisins af lyfjaverði og -innflutningi ’Í þess ljósi hafa tillögurum stofnun nýrrar Lyfja- verslunar ríkisins því á sér yfirbragð hins full- komna fáránleika. ‘ Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Í TENGSLUM við nýframkomna skýrslu bandaríska sendiráðsins um mansal á Íslandi hefur Palermó- samningurinn verið nefndur til sög- unnar, en hann krefur aðildarríkin um aðgerðir svo koma megi í veg fyrir alþjóðlega skipulagða glæpa- starfsemi. Sérstök bókun er við samninginn sem fjallar um mansal og samkvæmt henni skuldbinda að- ildarríkin sig til að vinna á mark- vissan hátt gegn mansali, ekki síst kvenna og barna, m.a. til kynlífs- þrælkunar. Palermósamningurinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 15. nóvember 2000 og þ. 13. desember sama ár var hann undirritaður fyrir Íslands hönd. Fljótlega eftir það, eða í mars 2001, spurði ég þáverandi dómsmálaráðherra, Sólveigu Pét- ursdóttur, hvort ekki stæði til að fullgilda hann og festa í íslensk lög. Hún svaraði því til að ekkert stæði í vegi fyrir því að samningurinn yrði fullgiltur og að verið væri að kanna hvaða lagabreytingar þyrfti að gera til að svo mætti verða. Síð- an hef ég margsinnis minnt á samninginn í þingræð- um og ævinlega fengið þau svör að þess sé skammt að bíða að samningurinn verði fullgiltur. Í lok febrúar sl. kom út skýrsla starfshóps sem kynnti sér mismunandi löggjöf um vændi o.fl. á Norð- urlöndunum og víðar. Starfshópurinn starfaði á vegum dóms- málaráðuneytisins. Í skýrslunni kemur fram að enn sé verið að fara yfir hvort, og þá hvaða, lagabreyt- inga sé þörf til að fullgilda megi Palermósamninginn. Evrópuráðið grípur til aðgerða Á grundvelli Palermósamnings- ins hefur Evrópuráðið útbúið sér- stakan samning gegn mansali. Hann hefur einnig verið undirrit- aður fyrir Íslands hönd, það var gert 16. maí 2005. Í þeim samningi er lögð áhersla á aðgerðir til vernd- ar fórnarlömbum mansals svo tryggja megi mannréttindi þeirra þegar og ef þau finnast í löndum aðildarríkjanna. Einnig eru í hon- um ákvæði sem krefja stjórnvöld landanna um að grípa til aðgerða sem gætu dregið úr eftirspurn eftir fólki, sem selt hefur verið milli landa, m.a. í þeim til- gangi að stunda vændi. Í áðurnefndri skýrslu starfshóps dómsmálaráðuneyt- isins frá í febrúar kemur fram það sama og sagt er um Pa- lermósamninginn; að verið sé að athuga hvort hann kalli á lagabreytingar. Af þessu sem hér hefur verið rakið verður ekki betur séð en að stjórnvöld séu áhugalaus um þá samninga sem hér um ræðir og um leið þau alvarlegu mál sem þeim er ætlað að taka á. Nútíma þrælahald Á hverju ári er verslað með hundruð þúsunda kvenna og barna um allan heim í þágu ört vaxandi kynlífsiðnaðar. Áætlað hefur verið að tekjur glæpahringja af mansali séu orðnar sambærilegar við tekjur af ólöglegri sölu vopna og eitur- lyfja, sem fram að þessu hafa verið peningamyllur alþjóðlegra glæpa- samtaka. Reyndar er talið að þess- ar þrjár greinar þrífist orðið hver með annarri og séu meira eða minna tengdar. Þar sem ólögleg vopn er að finna, leynast gjarnan eiturlyf og nú í auknum mæli sala á fólki til kynlífsþrælkunar. Samfara mansali eru framin alvarleg mann- réttindabrot, sem aðildarríki áð- urnefndra samninga eru sammála um að leggja beri harðar refsingar við, en einnig eru í samningunum ákvæði um að grípa þurfi til að- gerða til þess að vernda og aðstoða fórnarlömb slíkra glæpa. Fórnarlambavernd Það er hlutverk stjórnarandstöð- unnar að veita ríkisstjórninni að- hald. Það hef ég reynt að gera eftir fremsta megni í málum er varða vændi og mansal, en því miður án nægilegs árangurs. Í október 2004 mælti ég fyrir frumvarpi til laga um fórnarlamba- og vitnavernd, sem byggir að hluta á Palermó- samningnum. Frumvarpið skyldar íslensk stjórnvöld til að tryggja ör- yggi fórnarlamba mansals og virða mannréttindi þeirra í hvívetna. Það gerir ráð fyrir að þeir sem þiggja slíka vernd taki þátt í áætlun um félagslegan stuðning þann tíma sem verndin stendur og að þeim standi til boða félagsleg, sálræn og lög- fræðileg aðstoð, læknishjálp og þjónusta túlka, sem og starfs- þjálfun og aðstoð við atvinnuleit. Loks er gert ráð fyrir að þeim standi til boða aðstoð við að sækja um ótímabundið dvalar- og atvinnu- leyfi þegar fórnarlamba- og vitna- verndinni lýkur. Frumvarp þetta dagaði uppi í allsherjarnefnd Al- þingis, eins og svo mörg önnur frumvörp stjórnarandstöðunnar. En undanfarið hef ég unnið að end- urbótum á frumvarpinu og mun leggja það fram í nýjum búningi í haust. Stjórnvöldum gefst þá tæki- færi til að reka af sér slyðruorðið og standa við þá samninga sem þau hafa undirgengist, svo koma megi til bjargar fórnarlömbum þeirra glæpamanna sem selja konur og börn milli landa til kynlífsþrælk- unar. Stjórnvöld áhugalaus um Palermósamninginn Kolbrún Halldórsdóttir fjallar um mansal á Íslandi, frumvarp þar að lútandi og Palermó- samninginn ’Á hverju ári er verslaðmeð hundruð þúsunda kvenna og barna um all- an heim í þágu ört vax- andi kynlífsiðnaðar. ‘ Kolbrún Halldórsdóttir Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.