Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 06.07.2006, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN LILJA DAGNÝSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsungin í Fossvogskapellu föstudaginn 7. júlí kl. 13.00. Birgir Ó. Ríkharðsson, Ásta Gréta Samúelsdóttir, Bryndís Ósk Haraldsdóttir, Bjarni Bærings Bjarnason, Ásmundur Sveinsson, Ann Hubner, Dagný Sveinsdóttir, Michael Cramblit, Steinn Ó. Sveinsson, Lína Þyrí Jóhannesdóttir, Emma Kristín Sveinsdóttir, Nathan G. Brunner, ömmubörn og langömmubörn. Okkar ástkæra GRÉTA HEIÐBJÖRT GUÐMUNDSDÓTTIR, Flögu, Þistilfirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 29. júní síðastliðinn. Hún verður jarðsungin frá Þórshafnarkirkju föstu- daginn 7. júlí kl. 14.00. Reynir Þórisson, Þóra Lilja Reynisdóttir, Rúnar Óli Aðalsteinsson, Ríkharður Reynisson, Birna Björnsdóttir, Brynja Reynisdóttir, Sigtryggur Sigtryggsson, Ómar Vilberg Reynisson, Reynir Örn Reynisson, Unnur Jóhannsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA JÓNSDÓTTIR, Laufási, Raufarhöfn, sem lést laugardaginn 1. júlí verður jarðsungin frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 8. júlí kl. 14.00. Þórhildur Guðnadóttir, Jónas Friðrik Guðnason, Sigrún Guðnadóttir, Baldur Hólmsteinsson, Guðný Margrét Guðnadóttir, Jón Grímsson, Árni Stefán Guðnason, Sigríður Þorsteinsdóttir, Jón Guðnason, Arnþrúður Hafdís Gunnlaugsdóttir, Örn Guðnason, Björg Karlsdóttir, Guðrún Hólmfríður Guðnadóttir, Þórður Theodórsson, Helgi Friðrik Halldórsson, Karen Helga Viðarsdóttir, Margrét Helga Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÞORVALDUR ÞORVALDSSON fyrrum kaupmaður, lést á Dvalarheimili aldraðra Sauðárkróki þriðju- daginn 4. júlí sl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 14. júlí og hefst athöfnin kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Erla Gígja Þorvaldsdóttir, Jónas Þór Pálsson, Sigurlaug Alda Þorvaldsdóttir, Ólafur Arnarsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og bróðir, BRAGI JÓNSSON frá Brekku í Aðaldal, síðast til heimilis í Akurgerði 39, sem lést föstudaginn 30. júní verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 11. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Guðrún Magnúsdóttir, Ragnar Bragason, Kristín Ólafsdóttir, Magnús Jón Bragason, Hildur Mary Thorarensen, Ómar Geir Bragason, Jónína Vilborg Sigmarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systur. ✝ HallgerðurSjöfn Helgadótt- ir fæddist á Seyðis- firði 28. desember 1942. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 26. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingveldur Mar- grét Bjarnadóttir frá Stokkseyri, f. 5. apríl 1915, d. 19. desember 1986, og Helgi Steinþór Sig- urlínus Elíesersson frá Seyðisfirði, f. 27. apríl 1910, d. 24. september 1986. Systkini Hall- gerðar Sjafnar eru Bjarndís, f. 14. desember 1934, Elíeser, f. 29. júní 1936, Helgi Sævar, f. 18. júlí 1946, og Magnús, f. 13. apríl 1956. Eiginmaður Hallgerðar Sjafnar er Kristinn Árnason, bifreiðar- stjóri og verslunarmaður, frá Finnstöðum í Eiðaþinghá, f. 4. júní 1938. Foreldrar hans voru Stefanía Þ. Guðjónsdóttir frá Uppsölum í Eiðaþinghá, f. 2. sept- ember 1904, d. 2. desember 1998, og Árni Jónsson frá Finnstöðum í Eiðaþinghá, f. 13. maí 1896, d. 17. maí 1967. Börn Hallgerðar Sjafn- ar og Kristins eru: 1) Árni, f. 10. september 1964, fulltrúi hjá Íslands- pósti á Egilsstöðum, 2) stúlka, fædd and- vana 2. apríl 1966, 3) stúlka, f. 3. maí 1967, d. 4. maí 1967, og 4) Helgi, verk- stjóri hjá Landflutn- ingum – Samskipum á Egilsstöðum, f. 4. janúar 1972, sam- býliskona Svava Þórey Einarsdóttir frá Fáskrúðsfirði, f. 4. okt. 1975, og börn þeirra eru Aðalheiður Sjöfn, f. 25. sept. 1999, og Kristinn Viktor, f. 12. ágúst 2002. Hallgerður Sjöfn og Kristinn hófu sambúð 1962 á Seyðisfirði í foreldrahúsum hennar og síðan stofnuðu þau sitt eigið heimili á Norðurgötu 10. Til Egilsstaða fluttu þau svo 1969 og hafa búið þar síðan í Dynskógum 1. Hall- gerður Sjöfn vann við þjónustu- og verslunarstörf ásamt því að vera heimavinnandi húsmóðir. Hallgerður Sjöfn verður jarð- sungin frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Það að sitja við sjúkrarúm móður sinnar og gera sér grein fyrir því að líf hennar er að fjara út er eitthvað sem ekki er hægt að búa sig undir. Maður heldur að á svona stundu streymi myndbrot minninga fram, en svo er ekki. Maður dofnar upp og stendur við hliðina á sjálfum sér. Maður nær að átta sig á því hvað er að gerast og svo lýkur þessu. Lífs- hlaup okkar saman stóð í tæp 42 ár, vissulega má ég þakka það, sumir hafa ekki fengið svona langan tíma. Samt tókst mér ekki að segja allt sem ég átti eftir ósagt. Ég átti eftir að þakka fyrir mig, þakka fyrir at- lætið og umhyggjuna og síðast en ekki síst uppeldið því þar átti hún stóran hlut að málum. Við vorum að vísu ekki alltaf samstíga en sluppum án tjóns. Það er merkilegt hvernig maður nær að breyta sambandi við foreldri úr því að vera samband milli sonar og móður í að verða vinátta. Þannig vil ég trúa að hafi verið milli okkar. Við vorum að vísu ekki alltaf sammála og stundum var tekist á en aldrei alvarlega. Þrjóskan var í gen- unum og stundum var ekki þægilegt að gefa eftir, en svo kom smá bros og það dugði oftast til að við næðum átt- um. Áhugamál mömmu var að koma upp góðu heimili fyrir okkur kallana í lífi hennar og það tókst henni. Hún var alltaf að við að halda heimilinu í lagi og búa okkur gott og fallegt skjól. Oft áttuðum við kallarnir á heimilinu okkur ekki á hvað henni gekk til. Sáum ekki ástæðuna fyrir því að ekki mátti setja fætur upp í ljósan sófa eða taka með mat inn í stofu. Oft fannst okkur húsgögnin vera færð á milli nokkuð þétt og átt- um til að gera athugasemdir við það, á þær var hlustað en ekki talin ástæða til að fara eftir þeim. Við ein- faldlega höfðum ekki vit á þessu. Á þessum dögum sem liðnir eru síðan hún kvaddi hafa ákveðnar minningar komið upp í hugann. Það eru atriði frá árunum á Seyðisfirði, frá Norðurgötunni og Túngötunni. Fyrstu árunum hér á Egilsstöðum og allt sem á eftir kom, minningar sem ekki verða rifjaðar upp hér en eru geymdar í huga manns á meðan hann starfar. Ég minntist á það hér að framan að áhugamál hennar hefði verið að koma okkur upp góðu heim- ili en hún átti líka annað áhugamál sem var ættfræði og fróðleikur um fólk. Ekki til að komast að leynd- armálum fólks heldur til að vita hver var hvað og hvar það áttu heima. Ekki ósjaldan kom maður að henni með „Búkollu“ í höndunum að leita eftir myndum af ábúendum jarða á Austurlandi. Hún lagði svo bókina frá sér og sagði: „Ég vissi að ég hafði séð þetta andlit einhvers staðar áð- ur.“ Stolt var hún af barnabörnun- um, þeim Aðalheiði Sjöfn og Kristni Viktori, þau voru eftirlæti hennar og skipuðu heiðurssæti í hennar lífi. Þegar Aðalheiður Sjöfn var nokkra daga gömul kom ég út á Sólvelli og þá var amma að passa í fyrsta skipti. Stoltið og væntumþykjan sem lýsti af henni gleymast seint. Þó missir okkar sem eldri erum sé mikill þá er missir þeirra Aðalheiðar Sjafnar og Kristins Viktors mestur. En við verðum dugleg að segja þeim frá „Sjöbbu ömmu“ eins og Kristinn Viktor kallar hana. Líka að halda ut- an um hvert annað og passa pabba sem nú horfir á eftir sambýlingi sín- um til 45 ára. En nú er mál að hætta, ég þykist vita að hún sé að fylgjast með mér og telji tíma mínum betur varið til tiltektar enn svona skrifa. Að lokum vil ég fyrir hönd fjöl- skyldunnar þakka starfsfólki á gjör- gæsludeild Landspítalans við Hring- braut allt sem þau gerðu fyrir mömmu og okkur hin á meðan hún háði sitt lokastríð. Þau auðvelduðu bæði henni og okkur að komast í gegnum þetta. Ég kveð að sinni. Og eins og svo oft áður segi ég: „Takk fyrir mig og við sjáumst.“ Árni. Elsku mamma mín, ekki hefði ég getað trúað því að þetta væri í síð- asta sinn sem ég talaði við þig mið- vikudaginn 21. júní, þegar ég óskaði þér góðs gengis í hjartauppskurðin- um sem þú fórst í 22. júní. Þessi dag- ur var lengi að líða, við fengum ekki fréttir af þér fyrr en kl. 19 um kvöld- ið þar sem aðgerðin hafði tekið mun lengri tíma en búist var við. Þær fréttir sem við fengum um að óljóst væri um bata þinn, komu eins og reiðarslag fyrir mig og mína. Við vorum á leið til Hveragerðis í sum- arbústað og ætluðum að vera tilbúin að heimsækja þig um leið og hægt væri. Við vorum öll hálflömuð og vissum ekki okkar rjúkandi ráð. Til Hveragerðis vorum við nú komin um miðjan dag á föstudeginum 23. júní, þegar pabbi og Árni hringdu og sögðu að þú hefðir veikst mikið. Við rukum af stað til að vera hjá þér, þetta var löng leið og manni fannst maður ekkert komast áfram. Ég og Svava mín fengum að koma til þín á gjörgæsluna, það var erfitt að sjá þig með allar þessar slöngur tengdar við þig, elsku mamma mín, þá fyrst skildi maður hve ástandið var alvar- legt. Heilsa þín versnaði smám sam- an næstu daga og svo aðfaranótt mánudagsins 26. júní var hringt frá gjörgæslunni og okkur tjáð að heilsu þinni hefði hrakað. Þú varst umvafin ástvinum þínum þegar þú kvaddir. Upp í hugann koma ótal minning- ar um það sem við öll gerðum saman og þá sérstaklega eftir að Aðalheiður Sjöfn og Kristinn Viktor fæddust. Þau voru þínir dýrlingar, Þú gerðir allt fyrir þau, við gátum alltaf leitað til þín þegar okkur vantaði pössun eða eitthvað annað, þá redduðu amma og afi á Dynskógunum því. En ég vildi að þín heitasta ósk hefði ræst um að eignast stærri húsbíl svo þið hefðuð getað tekið dúllurnar ykkar með ykkur í útilegu. Elsku mamma, ég skal lofa þér að við pössum upp á að pabba líði sem allra best á þessum erfiðu tímum sem framundan eru fyrir okkur öll. Þín verður sárt saknað, elsku mamma mín. Ég vil að lokum senda starfsfólki gjörgæsludeildar 12b á Landspítal- anum bestu þakkir fyrir allt. Þinn sonur Helgi. Elskuleg tengdamóðir mín Hall- gerður Sjöfn Helgadóttir eða Sjöfn eins og hún ávallt var kölluð í dag- legu tali hefur kvatt þennan heim. Það er ólýsanlega sárt að þurfa að kyngja því, að þú sért farin frá okk- ur. Missir okkar er mikill og ekki síst fyrir litlu barnabörnin þín tvö, þau Aðalheiði Sjöfn sem er svo mikil ömmustelpa og fyrir Kristin Viktor. Þessa þrjá daga sem við biðum á milli vonar og ótta um að þú hefðir þetta af, töluðum við til þín þar sem þú varst tengd við ótal tæki og tól og fannst okkur þú skynja nærveru okkar. En svo kom reiðarslagið. Elsku Sjöfn mín, þér á ég svo mik- ið að þakka, hvernig verður lífið án þín? Jólin sem við höfum eytt saman undanfarin ár. Útilegurnar okkar og spjall yfir kaffibolla heima á Dyn- skógunum. Hugur minn reikar aftur til ársins 1997 þegar við Helgi vorum að byrja saman. Allt frá fyrstu tíð var mér tekið opnum örmum á fallega heim- ilinu ykkar Kidda. Mánuðirnir sem við Helgi bjuggum hjá ykkur var gott veganesti fyrir ungt fólk á leið í sambúð, að búa í öruggum höndum ykkar var ómetanlegt. Mikil gleði ríkti þegar litla prinsessan okkar fæddist í september 1999 og svo aft- ur þegar litli prinsinn fæddist 2002. Barnabörnin þín voru gullmolar í þínum augum og eyddir þú miklum tíma með þeim meðan heilsa þín leyfði. Þú varst alltaf boðin og búin að létta undir með okkur, sama hvað var; bakstur fyrir skírnir barna okk- ar, afmæli, flutningur á milli húsa eða hvað sem var. Elsku Sjöfn mín, ég fékk að halda í hönd þína síðasta spölinn og fyrir það er ég þakklát. Ég mun ávallt minnast þín sem yndislegrar manneskju sem vildir allt fyrir alla gera. Núna ertu komin til dætra þinna tveggja og ég vona að þér líði vel. Við treystum því að þú takir vel á móti okkur þegar okkar tími kemur. Megi algóður guð styrkja okkur í þessari miklu sorg. Þín elskandi tengdadóttir Svava Þórey Einarsdóttir. Mig langar að minnast elsku syst- ur minnar, hennar Sjafnar, eins og hún var alltaf kölluð. Ekki hvarflaði það að mér að þetta yrði í síðasta sinn sem hún kæmi til mín í heim- sókn, þó að ég vissi að þetta væri mikil og erfið aðgerð sem hún var að fara í. Hún var svo jákvæð og viss um það að þetta myndi allt fara vel. Þetta var mikið áfall fyrir okkur fjöl- skylduna þegar við sáum að hverju stefndi. Við ólumst upp í Fjarðaseli í Seyð- HALLGERÐUR SJÖFN HELGADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.