Morgunblaðið - 06.07.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 33
MINNINGAR
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Barðavogi 24,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu miðvikudaginn 28. júní,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn
7. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð alzheimerssjúklinga (s. 533 1088).
Erlingur Dagsson,
Þór Ingi Erlingsson, Margrét Sigurðardóttir,
Vigdís Erlingsdóttir, Steinar Geirdal,
Kristrún Erlingsdóttir Romano, John C. Romano,
Jón Sverrir Erlingsson, Kristín Stefánsdóttir,
Kjartan Ragnar Erlingsson, Kolbrún Hákonardóttir,
Grétar Örn Erlingsson, Guðrún Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín,
MARGRÉT GUNNLAUGSDÓTTIR,
Túngötu 14,
Patreksfirði,
lést fimmtudaginn 29. júní síðastliðinn.
Jarðsett verður frá Patreksfjarðarkirkju
laugardaginn 8. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árni Magnússon.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
ÞÓRUNNAR ÓLAFÍU SIGURJÓNSDÓTTUR.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
LAUFEYJAR GUÐLAUGSDÓTTUR
frá Neskaupstað.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall föður okkar,
GUNNARS SIGURÐSSONAR
fyrrv. flugvallarstjóra
Reykjavíkurflugvallar.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild E, 2. hæð á hjúkrunarheimilinu Sól-
túni 2 fyrir góða aðhlynningu.
Borghildur Aðils,
Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Jakob Gunnarsson.
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför
SIGRÚNAR ÓSKARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameins-
deild Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Ágúst I. Sigurðsson,
Óskar I. Ágústsson,
Arndís Ágústsdóttir, Sigurður Bragason,
Lína Sól Sigurðardóttir,
Áslaug Árnadóttir,
Valdimar Óskarsson.
isfirði, faðir okkar var þar vélgæslu-
maður við rafstöðina. Hún var á
fyrsta ári þegar við fluttum þangað.
Hún var átta árum yngri en ég og
eina systir mín. Ég man fæðingu
hennar og hvað ég var glöð þegar
mér var sagt að fædd væri systir,
fyrir átti ég bróður. Núna í dag þeg-
ar hún er búin að kveðja þetta líf
hrannast upp minningar um hana í
huga mínum. Ég sé hana sem lítið
barn, fallega ljóshærða og ákveðna
stelpu. Keyrandi dúkkuvagn á undan
sér og vinir hennar, kisa og hund-
urinn Kátur á eftir henni. Þetta voru
hennar leikfélagar. Ég sé fyrstu
skóladaga hennar fyrir mér og henn-
ar unglingsár. Hún var skemmtileg-
ur og samviskusamur unglingur.
Hún var á fimmtánda ári þegar for-
eldrar okkar fluttu úr Fjarðaseli út í
Seyðisfjarðarkaupstað. Og hún fór
fljótt að vinna fyrir sér og vann við
ýmis störf.
Ung kynnist hún lífsförunauti sín-
um, Kristni Árnasyni frá Finnstöð-
um í Eiðaþinghá.
Þau bjuggu á Seyðisfirði fyrstu ár-
in. Fyrst heima hjá foreldrum okkar
og síðan stofna þau heimili á Norð-
urgötu 10. Þau eignuðust svo soninn
Árna og síðan tvær stúlkur, önnur
fæddist andvana en hin lést skömmu
eftir fæðingu. Þau flytja svo til Eg-
ilsstaða árið 1969 og bjuggu á Lagar-
ásnum og síðan flytja þau í Dynskóg-
ana og hafa búið þar síðan. Þar
eignast þau soninn Helga.
Sjöfn var mikil húsmóðir og bjó
fjölskyldunni snyrtilegt og fallegt
heimili. Það var gott að heimsækja
Sjöfn og Kidda. Þau voru mjög gest-
risin og manni leið vel hjá þeim. Eftir
að synir þeirra urðu eldri fór hún að
vinna við verslunarstörf og ýmis
fleiri störf. Alltaf var hún boðin og
búin að hjálpa til og aðstoða mig við
mitt heimili og börn. Það var alltaf
hægt að treysta á hana og Kidda
hvenær sem var. Og þegar erfiðleik-
ar komu upp á okkar heimili fylgdist
hún vel með og lét hún okkur vita að
hugur hennar var hjá okkur. Alltaf
sýndi hún börnum mínum umhyggju
og hlýju og báru þau mikla virðingu
og hlýju til hennar.
Nú, þegar að leiðarlokum er kom-
ið, þakka ég henni fyrir góðar og fal-
legar minningar sem hún hefur gefið
mér og minni fjölskyldu, og bið ég al-
góðan guð að blessa minningu henn-
ar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Kiddi, Árni, Helgi, Svava,
Aðalheiður Sjöfn og Kristinn Viktor.
Guð gefi ykkur styrk í þessari
miklu sorg. Hugur okkar er hjá ykk-
ur.
Bjarndís Helgadóttir (Dídí).
Elsku Sjöfn mín, elsku systir mín,
ekki hvarflaði það að mér að ég ætti
eftir að setjast niður til að fara að
skrifa minningargrein um þig, að-
eins nokkrum dögum eftir að við töl-
uðum saman í síma þar sem þú varst
að láta okkur vita af því að loksins
væri komið að aðgerðinni sem þú
hafðir þurft að bíða svo lengi eftir og
átti að færa þér betri heilsu. En
svona finnst manni lífið vera órétt-
látt.
Minningarnar um þig streyma
fram í huga mér frá því að við erum í
foreldrahúsum og ég er polli og þú
ert að passa mig heima á Túngötunni
á Seyðisfirði, þar sem mamma og
pabbi höfðu farið til Reykjavíkur, og
ég rúmliggjandi í mislingum og þú
að hjúkra mér og reyna að láta mér
líða betur. Eða þegar þið Kiddi
stofnuðuð ykkar fyrsta heimili á
Norðurgötu 10, en þá var hann Árni
ykkar kominn til sögunnar og mikið
sótti ég til þín þá. Af Norðurgötunni
lá leiðin í Egilsstaði þar sem þið
Kiddi byggðuð ykkur fagurt heimili í
Dynskógum eitt og þar bættist ann-
ar sonur í fjölskylduna, hann Helgi,
ekki minnkuðu samskipti okkar þó
að þið færðuð ykkur í Héraðið, ófáar
ferðirnar voru farnar í heimsóknir til
þín.
Þegar foreldrar okkar voru orðnir
sjúklingar var hjálpsemi þín við þau
ómetanleg á allan hátt, því alltaf
varstu boðin og búin til að létta undir
með þeim þegar heilsa þeirra versn-
aði. Þegar veikindi komu upp hjá
einhverju af systkinum þínum og
mökum þeirra eða það þurfti að fara
eitthvað að heiman var barnapössun
ekki vandamálið hjá þér því bóngóð
varstu.
Alltaf var gaman að koma til þín
og sjá hvað allt var snyrtilegt og
hreint á þínu heimili. Það má líka
segja að þú varst hreinskilin við
mann, ekkert fals til í þér. Oft var
líka talað um það í léttum tón að þú
hefðir erft frá henni móður okkar
hæfilegt magn af Sjónarhólsþrjósk-
unni, því ákveðin gastu verið með
hlutina ef til þess kom. Gaman var að
hlusta á þig rifja upp sögur frá ár-
unum þegar fjölskyldan átti heima í
Fjarðarseli og ekki var verra ef eitt-
hvert annað systkini okkar var kom-
ið í hópinn, þá var oft hlegið dátt.
Elsku systir, eins og þú hafðir
gaman af að fylgjast með lífi og upp-
vexti barnabarna þinna er sárt til
þess að vita að þú skulir hafa þurft að
kveðja þetta líf svona snemma. Þín
er sárt saknað af okkur öllum sem
næst þér stóðu en minningin um þig
mun lifa um ókomna tíð. Ég bið guð
um að styrkja Kidda, Árna, Helga,
Svövu, Aðalheiði Sjöfn og Kristin
Viktor, því missir þeirra er mikill við
fráfall þitt.
Þinn bróðir,
Magnús.
Elsku Sjöfn mín, það er vart hægt
að hugsa sér hjartahlýrri og hrein-
skilnari manneskju en þú varst. Það
að þú sért horfin úr þessum heimi er
nær óskiljanlegt, þú sem áttir eftir
að gera svo margt m.a. að sjá litlu
barnabörnin þín vaxa upp.
Þegar ég kom inn í fjölskylduna
fyrir um 17 árum, er ég og Maggi
bróðir þinn fórum að vera saman, þá
kom ég með fimm ára dóttur í far-
teskinu. Þú tókst henni strax sem
einu af þínum systkinabörnum sem
og allt þitt fólk og er það alveg ómet-
anlegt. Bóngóð og hjálpleg varst þú
með afbrigðum. Ég man að þegar við
Maggi giftum okkur og skírðum
dóttur okkar, þá tókst þú þér frí í
vinnunni og komst óumbeðin heim til
okkar daginn áður til að setja á tert-
ur og hjálpa til. Þú passaðir fyrir
okkur stelpurnar þegar við þurftum
á því að halda og þótti þeim það nú
ekki leiðinlegt, því þær voru eins og
prinsessur hjá þér. Þú fylgdist með
þeim vaxa upp og varst dugleg við að
spyrja frétta af þeim. Þegar pabbi
minn dó sýndir þú mér mikinn hlý-
hug og stuðning sem ég fæ seint
þakkað. Margar góðar stundir höf-
um við átt saman og alltaf var jafn
gaman að koma til ykkar. Einnig var
gaman að fara út að skemmta sér
með ykkur og þegar þið systkinin
hittust eða stórfjölskyldan þá var nú
gaman og oft rifjuðuð þið upp gamla
tíma við mikla skemmtun okkar
hinna.
Elsku Sjöfn, við kveðjum þig með
miklum söknuði, takk fyrir allt og
allt, megi minning þín lifa og vera
ljós í lífi okkar allra.
Elsku Kiddi, Árni, Helgi, Svava
Þórey, Aðalheiður Sjöfn og Kristinn
Viktor, mínar innilegustu samúðar-
kveðjur og guð gefi ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum.
Þín mágkona,
Þórunn.
Elsku Sjöfn mín, þegar ég fékk
fréttirnar um að þú værir dáin brast
eitthvað inni í mér. Allar minning-
arnar í gegnum árin skutust fram og
þær voru ófáar.
Það var mjög gaman að geta
kynnst svona góðri og hjartahlýrri
manneskju eins og þér. Þegar ég var
fimm ára fluttum við mamma inn til
fósturpabba míns, bróður þíns. Ég
gekk inn í stóra fjölskyldu þar sem
allir tóku mér rosalega vel, sérstak-
lega þú. Þú leist á mig sem bróð-
urdóttur þína frá fyrsta degi. Öll fjöl-
skyldan leit í rauninni strax á mig
sem eina af henni og verð ég æv-
inlega þakklát fyrir það. Ég man eft-
ir ófáum skiptum þar sem þú varst
að dúllast eitthvað með mig, mér
fannst líka svo gaman að skottast í
kringum þig. Aldrei gerðirðu upp á
milli okkar systranna þó að Elfa
væri blóðskyld þér en ég ekki. Þú
hugsaðir alltaf einstaklega vel um
okkur systurnar þegar við vorum í
pössun hjá þér og dekraðir við okkur
eins og þér einni var lagið. Sunnu-
dagsrúnturinn endaði oftast í eld-
húsinu hjá ykkur hjónunum og alltaf
áttirðu súkkulaði og annað gotterí í
skál.
Þegar ég hugsa til baka virðist þú
alltaf hafa tekið þátt í stórum stund-
um í lífi mínu og þótt þú sért farin vil
ég að þú takir enn þá þátt í þeim.
Þegar að Elfa Magga litla systir mín
fæddist varst það þú sem tilkynntir
mér það. Það var líka í pössun hjá
þér, í eitt skipti rétt fyrir jólin, sem
ég komst að því að jólasveinninn
væri líklega ekki til. Þú áttir líka
stóran þátt í að kenna mér að hjóla
ásamt Helga syni þínum og fóstur-
pabba mínum. Ég get ennþá heyrt
röddina þína og hlátur þinn í huga
mér. Mig langar svo til að segja þér
hversu þakklát ég er fyrir að þú
komst inn í líf mitt og hversu þakklát
ég er fyrir allar frænkurnar og
frændurna sem ég eignaðist um leið
og pabba.
Megi minningin um þig lifa að ei-
lífu og lýsa þeim sem stóðu þér næst
um ókomna tíð. Takk fyrir allt,
frænka, það var heiður að fá að
kynnast þér. Hvíldu í friði, þín
frænka,
Eydís.
Elsku Sjöfn mín, þegar ég fékk
þær fréttir að þú værir dáin átti ég
erfitt með að trúa því og þótti mér
það óraunverulegt, mér leið eins og
þetta væri slæmur draumur sem ég
myndi vakna upp af. Í huga mínum
fannst mér eins og þú værir enn á lífi
og þú værir við bestu heilsu. Svo átt-
aði ég mig að þetta væri raunveru-
leikinn og að ég myndi aldrei sjá þig
aftur og hryggði það hjarta mitt.
Minningarnar komu upp og stóð ein
sérstaklega upp úr. Sú minning var
þegar ég og Eydís fengum pössun
hjá þér og Kidda meðan mamma og
pabbi fóru burt eina helgi til Reykja-
víkur. Það var skemmtilegur tími og
varst þú ávallt að dekra við okkur
Eydísi. Þú varst alltaf svo góð við
okkur og passaðir að okkur skorti
ekki neitt. Þú hitaðir stundum kakó
og gafst mér, þá var spjallað saman
og þótti mér alltaf skemmtilegt að
tala við þig. Ég man líka að þegar ég
var lítil og kom í heimsókn þótti mér
skemmtilegast að segja þér gaman-
sögur af pabba og borða bökunar-
súkkulaðið sem þú dróst alltaf fram.
Það var hlegið af sögunum og hafðir
þú gaman af. Þú varst svo góð mann-
eskja og hjartahlý, og góðmennskan
var svo mikil að henni fær ekki orð-
um lýst. Ég mun alltaf finna söknuð í
hjarta mínu og finnast eitthvað
vanta, en þakklát er ég guði fyrir að
leyfa mér að kynnast þér og þakklát
er ég einnig fyrir allar góðu minning-
arnar. Ég er stolt af þér og finnst
mér heiður að hafa fengið að kynnast
þér og sannkölluð hetja varstu þegar
þú barðist fyrir lífi þínu en því miður
tapaðirðu þeirri baráttu. Takk, elsku
frænka mín, fyrir allt saman og megi
guð geyma þig.
Hvíldu í friði, þín frænka,
Elfa.
Fleiri minningargreinar um Hall-
gerði Sjöfn Helgadóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Helga
Kjartansdóttir, Vallý.
Elsku amma mín, ég sakna
þín svo mikið, amma mín, ég
elska þig.
Aðalheiður Sjöfn.
HINSTA KVEÐJA