Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 37
DAGBÓK
Slegið verður upp spánskri ferðamálaveisluvið Smáralind á föstudag og laugardag.Þá bjóða ferðamálaráð Spánar, Andalús-íu, Kanaríeyja, Lanzarote og Tenerife til
kynningar á því besta sem Spánn hefur að bjóða ís-
lenskum ferðamönnum. Að auki standa að dag-
skránni Íslensk-spánska verslunarráðið, Glóbus og
Íslenska golfsambandið.
Belén Gonzalez er yfirmaður Ferðamálaskrif-
stofu Spánar í Ósló: „Á föstudag tökum við á móti
gestum úr ferðageiranum og fulltrúum fjölmiðla og
kynnum þau fyrir spennandi áfangastöðum á
Spáni. Um leið sækjumst við eftir viðbrögðum og
tillögum um hvernig best má höfða til íslenskra
ferðamanna til að kynna Spán enn betur fyrir
þeim,“ segir Belén.
Allir velkomnir á hátíðina
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við kynnum
landið fyrir ferðamálafólki á Íslandi en sú ný-
breytni verður nú að á laugardag verður haldin
mikil hátíð sem opin er almenningi.“
Spánska tjaldið mun rísa við Smáralind og verð-
ur opið á laugardag frá 12 til 18 og gestum boðið að
upplifa spánskt andrúmsloft hér í Norður-Atlants-
hafi.
Bragða má á spánskum mat, dansaður verður
flamenco, og kynntar spánskar vörur sem seldar
eru í íslenskum verslunum. Þá geta gestir spreytt
sig í pútti, en Spánn býður upp á marga áhuga-
verða golfvelli.“
Fulltrúar frá ýmsum vinsælum ferðamannastöð-
um verða til staðar til að veita gestum allar helstu
upplýsingar sem þarf til að skipuleggja spennandi
ferðalag.
Fjöldi Íslendinga heimsækir Spán árlega
„Þó að íslenska þjóðin sé ekki stór í íbúum talið
ferðast mikill fjöldi Íslendinga til Spánar á hverju
ári og við verðum vör við mikinn áhuga á landi,
þjóð og menningu Spánar meðal Íslendinga.
Áætlað er að yfir 50.000 Íslendingar heimsæki
Spán árlega, bæði til að njóta góða veðursins, sól-
arinnar og strandanna, en einnig til að spila golf,
upplifa náttúruna, menningu borgar og sveita og
ekki síst njóta spánskrar matargerðarlistar. Á
þeim áfangastöðum sem kynntir verða á Lækjar-
torgi má njóta alls þessa, sólbakaðra stranda og
spánsks menningarlífs eins og það gerist litríkast.“
Sem fyrr segir mun spánska ferðahátíðin vera í
tjaldi við Smáralind á laugardag og er aðgangur
öllum heimill og ókeypis.
Nánari upplýsingar um áfangastaðinn Spán má
nálgast á slóðinni www.spain.info en þar má meðal
annars nálgast viðburðadagatal, alls kyns marg-
miðlunarefni um Spán og „sýndarferðir“ (e. virtual
tours) um áhugaverða áfangastaði. Einnig má
panta gistingu á vefnum og nota rafrænan leiðar-
vísi fyrir þá sem ferðast um Spán á bíl.
Ferðalög | Spánskur matur, flamenco, og golf meðal þess sem er í boði fyrir gesti
Spánsk hátíð við Smáralind
Belén González de
Val fæddist í Madríd
1961. Hún lauk bakkal-
árgráðu í sögu og
landafræði í Madríd
1984 og sérfræði-
gráðum í mannland-
fræði, hagþróunar-
fræði og opinberri
stjórnun. Belén hefur
starfað við ferða- og
menningarmál um
langt skeið, var yfirmaður upplýsingadeildar
Ferðamálaráðs Spánar 2002–2004 og yfir-
maður Spænsku ferðamálaskrifstofunnar í
Ósló frá 2004.
Belén hefur verið gift síðan 1986 og á þrjú
börn.
Sókn eða vörn?
Norður
♠9
♥D6
♦G9542
♣ÁKG73
Vestur Austur
♠G654 ♠K1032
♥9752 ♥G10
♦K1073 ♦D8
♣8 ♣109542
Suður
♠ÁD87
♥ÁK843
♦Á6
♣D6
Suður spilar sex grönd og fær út
lauf.
Spilið er frá tvímenningi eldri spil-
ara í Veróna og vannst víða með tækni-
lega góðri spilamennsku. Sagnhafi tók
á laufdrottningu í fyrsta slag og spilaði
hjarta fjórum sinnum.
Vestur lenti inni á hjartaníu og
skipti þá gjarnan yfir í tígul – nía,
drottning og ás. Þegar suður tók nú
fimma hjartað varð austur að fara nið-
ur á K10 í spaða, því ekki mátti hann
henda laufi. Sagnhafi spilaði þá lauf-
unum og vestur varð að halda í tígul-
kóng og fækka við sig um tvo spaða.
Spaðasvíning skilaði sagnhafa ellefta
slagnum og sá tólfti kom á spaðahund,
enda spaðinn fallinn. Tvöföld þvingun í
áföngum.
En vestur getur hnekkt slemmunni
með því að spila spaða en ekki tígli inni
á hjartaníu. Við það rofnar nauðsyn-
legur samgangur fyrir þvingunina og
vörnin getur valdað spaðann.
Paul Hackett (faðir bræðranna geð-
þekku, Justins og Jasons) fann þá
vörn, einn fárra manna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Be2 O-O 6. Rf3 e5 7. O-O Ra6 8. Be3
Rg4 9. Bg5 De8 10. h3 h6 11. Bc1 exd4
12. Rxd4 Rf6 13. Bf3 Rh7 14. h4 h5 15.
He1 Rc5 16. Bf4 Re6 17. Rxe6 fxe6 18.
Dd2 e5 19. Bg3 Be6 20. Hac1 Df7 21.
Rd5 Rf6 22. c5 c6 23. Rxf6+ Bxf6 24. b3
d5 25. exd5 Bxd5 26. Bxd5 cxd5 27.
Bxe5 Bxh4 28. g3 Be7 29. Bd6 Hae8 30.
Bxe7 Hxe7 31. Hxe7 Dxe7 32. Dxd5+
Kh7 33. Dd6 Df7 34. Hc2 Df3 35. Hd2
Hf7 36. Dd5 Df6 37. Dd4 Df5 38. He2
Hd7 39. De3 Hf7 40. Hd2 Df6 41. b4
He7 42. Dd4 Df3 43. Da1 Hf7 44. Dd1
Df5 45. Dc2 Dg4 46. Dc3 Df5 47. Dc4
Df6 48. b5 He7 49. Kg2 Hc7 50. Hd4
De7 51. Hd5 De6
Staðan kom upp á lokuðu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu í Vágur í
Færeyjum. Omar Salama (2214) frá
Egyptalandi hafði hvítt gegn heima-
manninum Sjurdur Thorsteinsson
(2067). 52. Hxh5+! og svartur gafst upp
enda verður hann drottningu undir eftir
52... gxh5 53. Dxe6.
Lokastaða mótsins varð þessi:
1. John Arni Nilssen (2356)
6½ vinning af 9 mögulegum.
2. John Rodgaard (2344) 6 v.
3.-5. Helgi Dam Ziska (2306),
Bjorn Brinck-Claussen (2359),
Simon Bekker-Jensen (2393) 5½ v.
6. Lenka Ptácníková (2183) 5 v.
7. Hans Kristian Simonsen (2295)
4½ v.
8. Per Andreasen (2303) 3 v.
9. Omar Salama (2214) 2 v.
10. Sjurdur Thorsteinsson (2067)
1½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Auglýsingar inni í þáttum
UNDANFARIÐ hefur borið á því
að auglýsingum sé troðið inn í miðja
þætti á Stöð 2. Ég hef kvartað við
Stöð 2 vegna þessa og svörin sem ég
fékk voru þau að þetta væri gert í
stað þess að hækka afnotagjöldin.
Mér finnst þetta vera hin mesta
frekja og yfirgangur, mér finnst
þetta óþolandi og ekki eiga heima í
áskriftarsjónvarpi.
Ég leyfi mér líka að efast um að
þetta sé alls kostar rétt, þetta gæti
alveg eins bara verið gert til að auka
hagnað stöðvarinnar, við áskrif-
endur erum ekki í nokkurri stöðu til
að meta það.
Ég skora á Stöðvar 2 fólk að
hætta þessu og til vara skora ég á
aðra áskrifendur að kvarta. Ég fyrir
mitt leyti hef ákveðið að hætta
áskrift ef þessu linnir ekki, því þá
getur maður alveg eins látið sig hafa
þessar auglýsingar á Skjá einum og
Sirkus án þess að þurfa að greiða
fyrir það sérstaklega.
Reiður áskrifandi.
Skemmtileg síða á netinu
ÉG rakst á mjög skemmtilega síðu
um daginn á netinu. Reyndar ekkert
svo skemmtileg fyrir utan það að
einkennismerki fyrirtækisins sem
var með síðuna kveikti í mér, þetta
hef ég nú séð einhvers staðar áður
hugsaði ég. Jú, einmitt. Íslands-
banki. Merkin tvö eru nú bara nokk-
uð lík. Eða eiginlega bara næstum
því alveg eins, sömu litir, sömu form.
Hvor ætli hafi verið á undan? Var Ís-
landsbanki ekki stofnaður 1990? Big
Sky Brewing Company var sett á fót
1995. Ef ég hefði klagað í Íslands-
banka fyrir komu Glitnis hefði þessi
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
uppgötvun mín kannski verið aðeins
merkilegri.
Gengur bara betur næst.
Árni Theodór Long.
Eftirsjá í fréttamanni
AÐ sögn Mbl. 29. júní sl. hefur
Benedikt Sigurðsson yfirgefið RÚV
og tekið til starfa sem upplýsinga-
fulltrúi hjá KB banka.
Að mínu áliti er Benedikt einn af
bestu fréttamönnum sem RÚV hef-
ur haft á að skipa undanfarin ár. Ég
sakna Benedikts, sem frábærs
fréttamanns. Staða hans verður
vandskipuð en maður kemur í
manns stað og RÚV hefur vonandi
marga frábæra fréttamenn til að
fylla í hans starf.
Ég óska Benedikt velfarnaðar í
nýju starfi.
Svanur Jóhannsson.
DEMANTSBRÚÐKAUP | Í dag, 6.
júlí, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjón-
in Þorgerður Jónsdóttir frá Neðri
Svertingsstöðum í Miðfirði og Jón
Friðriksson frá Stóra Ósi, einnig í
Miðfirði, nú til heimilis í Holtsbúð 87 í
Garðabæ. Þau eru að heiman í dag.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 6. júlí, ersjötug Erna Ármannsdóttir,
Hjarðarhaga 19, Reykjavík. Hún mun
verja deginum með dætrum sínum og
barnabarni.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
85 ÁRA afmæli. Í dag, 6. júlí, er 85ára Sigríður V. Bjarnadóttir
húsmóðir. Sigríður er nú til heimilis á
Hjúkrunarheimilinu á Höfn í Horna-
firði.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
Innihaldið skiptir máli
Til leigu um 2000 fm húsnæði í verslanamiðstöðinni Glerártorgi á
Akureyri. Húsnæðið hýsti áður verslun Byko og er laust til afhend-
ingar fljótlega. Á Glerártorgi eru fjölbreyttar sérverslanir og næg
bílastæði. Glerártorg er helsti verslunarkjarni á Norðausturlandi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á Fasteignasölunni BYGGÐ,
Strandgötu 29, Akureyri. Sími 464-9955.
Til leigu á Akureyri
Glerártorg
Strandgötu 29 Akureyri
S: 464 9955 • F: 464 9901
www.byggd.is
Laugavegi 68 / sími 551 7015
Útsala