Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 38

Morgunblaðið - 06.07.2006, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 hnattar, 4 flug- vélar, 7 snáðum, 8 málm- ur, 9 umfram, 11 harmur, 13 grenja, 14 telur, 15 bút, 17 hönd, 20 stöð- ugt, 22 reyfið, 23 naddur, 24 falla, 25 smákorns. Lóðrétt | 1 hosu, 2 stafa- tegund, 3 hæsi, 4 þæg, 5 glatar, 6 rugga, 10 snaginn, 12 spök, 13 snák, 15 þjófnað, 16 kostnaður, 18 snúin, 19 bjálfar, 20 spotta, 21 hagnýta sér. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 lúsablesi, 8 undum, 9 gests, 10 ugg, 11 Arnar, 13 skaða, 15 stúss, 18 staka, 21 tík, 22 mafía, 23 arður, 24 prófastur. Lóðrétt: 2 úldin, 3 aumur, 4 leggs, 5 sussa, 6 suma, 7 Esja, 12 als, 14 kot, 15 sómi, 16 útför, 17 starf, 18 skass, 19 auðnu, 20 arra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert margbrotinn og fjölbreytilegur. Val þitt í dag mun ráðast af viður- kenningu þinni á því hve flókinn þú ert. Það mun leiða til þess að þú finn- ur lífi þínu fyllingu í stað þess að lifa eingöngu glæsilegu lífi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gefur ímyndunarafli þínu lausan tauminn og bæði týnist og finnst. Sennilega er þetta tákn þess að þér finnist raunveruleikinn ekki ýkja spennandi – þú ættir því að nota ímyndunaraflið til að hressa upp á raunveruleikann. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Fólk hefur sínar ástæður til að dá þig. Þú yrðir hissa, upp með þér og stoltur ef þú vissir hverjar þessar ástæður eru. Taktu mið af öllu því rétta sem þú gerir þegar þú byggir upp sambönd. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þó þér hafi gengið vel að fullkomna venjur þínar þá er enn hluti af þér sem þú ert ekki sáttur við. Hvað myndi gerast ef þú hættir að berjast? Þú gætir jafnvel lært að meta þennan óstýriláta hluta persónuleika þíns. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ástæða þess að þér finnst ákveðnar kringumstæður fyndnar þegar engum öðrum finnst það, er að þú sérð ákveð- inn sannleika sem aðrir sjá ekki. Þennan sannleiksmæli þinn munt þú nota til að bæta sjálfan þig í dag. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þetta er lukkudagur þinn og þú ættir að gefa stjórnina frá þér. Fleygðu draumum þínum upp í loft eins og lundapysju og sjáðu hvaða stefnu þeir taka, heimboð til útlanda, vinnings- miða eða bréf frá himnum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Enginn er óendanlega dáðugur, en þú gerir þitt besta og ætlast til hins sama af þeim sem þú þekkir. Þú gætir þurft að vísa leiðina í dag þegar freisting- arnar kalla. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Umhverfi þitt kemur upp um alla þína galla, sérstaklega skipulagsleysið sem hrjáir þig. Sem betur fer þekkir þú meyju sem gjarnan vill hjálpa þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú einblínir af þráhyggju á eitt vanda- mál og það án þess að þreytast á því. Ef þú heldur áfram á sömu braut færðu orð á þig fyrir geggjaða snilli- gáfu. Þú munt líka njóta mikillar vel- gengni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert bara sendiboðinn, ekki skila- boðin. Þannig að ef þú klúðrar ein- hverju þá er það frekar samskipta- vandamál fremur en eitthvað sem þú hefur gert af þér. Vertu góður við sjálfan þig. Þú skilar þínu starfi vel. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ef þú knýrð dyra nógu lengi þá verð- ur opnað fyrir þér fyrr en síðar. Það gæti verið eitthvað athugavert við hurðina sem opnast strax og þú bank- ar. Hugleiddu hvort ekki sé til auð- veldari leið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú býrð yfir öllum þeim orðaforða sem þú þarft til að koma skilaboð- unum á framfæri. Tóninn í máli þínu skiptir öllu máli og því ættir þú að bíða þangað til þú ert sannfærður um mál þitt áður en þú leggur til atlögu. Stjörnuspá Holiday Mathis Júpíter, hinn stóri í stjörnumerkjunum, mun ákveða að stíga fram á við á sinn rausnarlega og skemmtilega hátt – og mögulega gerir þú það líka. Júpíter á leið í gegnum sporðdreka gefur til kynna stórkostleg en dulbúin tækifæri. En þú munt sjá tækifærin og þekkja þau á ómót- stæðilegu aðdráttarafli þeirra. Tónlist Borgarbókasafn – aðalsafn | Kl. 16–18: Hljómsveitin Loftvarnir vinnur við skapandi sumarstarf hjá Hinu húsinu. Þessir þrír ungu strákar spila hljóðbækur, smásögur og annað talað orð og semja tónlist undir til áhrifaauka. Café Paris | DJ Lucky spilar gæða Funk Soul og Reggae alla fimmtudaga í sumar. Reykholtskirkja | Aðrir tónleikar af sjö í orgeltónleikaröð sumarsins sem haldnir eru á vegum Reykholtskirkju og FÍO laugardaginn 8. júlí kl. 17. Lenka Mátéováa leikur á orgel og Peter Maté á píanó. Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir til 22. júlí. Opið fim., föst. og laug. kl. 14–17. Anima gallerí | Sumarsýning: Opið fim., föst. og laug. kl. 12–17. Til 15. júlí. Aurum | Petra og Hanna Lind leitast eftir að geta skapað heim innan ákveðins rýmis með minnstu mögulegu efni. Til 7. júlí. Bókasafn Mosfellsbæjar | Um er að ræða myndlistarsýningu 13 myndlistarmanna frá 5 Evrópulöndum í Listasal Mosfellsbæjar 1.–8 júlí og vinnusmiðju í Þrúðvangi Ála- fosskvos 1.–10.júlí. Café Karólína | Sýningin ber titilinn „Hlynur sterkur Hlynur“ (portret af Hlyni Hallssyni myndlistarmanni) og er þriðja sýningin í röðinni af stjörnumerkjaport- rettum unnin sem innsetning í rými. Til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Reynomatic myndir, nærmyndir af náttúr- unni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júlímánuð. DaLí gallerí | Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður sýnir til 9. júlí. Deiglan | Sýning á frummyndum Rúnu K. Tetzschner við ævintýri hennar um Óféta- börnin. Sérlega fíngerðar og litríkar penna- og vatnstússlitamyndir af ófétunum ör- smáu. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir sýnir í forkirkju. Ásgerður er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og hafa verk hennar ætíð haft sterka skírskotun til landsins og til náttúrunnar. Til 26. ágúst. Sýning á íkonum frá Balkanskaga á vegum Mótettukórs Hallgrímskirkju. Opið kl. 9–20 alla daga. Til 9. júlí. Tómas Guðni Eggertsson, organisti á Snæfellsnesi, leikur á hádegistónleikum kl. 12. Handverk og Hönnun | Á sumarsýningu er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list- iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Til 27. ágúst. Aðgangur er ókeypis. Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menn- ingarsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning- unni eru einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Til 31. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja- landi, Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor- kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einn- ig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning, Louisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýn- ing sem haldin hefur verið á verkum Louisu og rekur allan hennar listamannsferil í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safn- búð og kaffistofa Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af- mæli bankans. Til 30. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlutum í skúlptúra og innsetningar. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna út- hlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin endur- speglar brot af því helsta í norrænni sam- tímalist. Til 20. ágúst. Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verkanna og hefðbundin listasöguleg við- mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portettum Sigur- jóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánu- daga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Græn- landi eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Lau. og sun. kl. 12–17. Nýlistasafnið | 47 félagar Myndhöggvara- félags Reykjavíkur sýna postulínsverk af ýmsum stærðum og gerðum. Clare Charn- ley og Bryndís Ragnarsdóttir flytja gjörn- inginn „Tala“ á myndbandi og gjörningur La Loko sýnir „Pylsur án landamæra“. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Mál- verkasýning Sesselju Tómasdóttur mynd- listarmanns til 17. júlí. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Opið mið.–föst. kl. 14–18 og laug.–sun. kl. 14–17. Aðgangur er ókeypis. www.safn.is Saltfisksetur Íslands | Í Saltfisksetrinu stendur yfir sýning í máli og myndum um fiskveiðar Portúgala á norðurslóðum. Þetta er bæði skemmtileg og fræðandi sýning sem vert er að sjá. Til 10. júlí. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundsonar.Opið daglega frá kl. 14–21 í sumar. Sýning Ragnars Jónassonar og Sólveigar Einarsdóttur í Gallerí Vesturvegg, Skaft- felli. Á sýningunni má sjá bráðnandi ís úr plastefni og málverk einungis unnin úr málningu. Til 6. júlí. www.skaftfell.is Suðsuðvestur | Heimir Björgúlfsson sýnir nýtt vídeóverk og collage unna úr ljós- myndum til 16. júlí. www.sudsudvestur.is Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og Staðurogstund http://www.mbl.is/sos/ Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.