Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 2
2 B FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
0
5
0
Glitnir efnir til opins kynningarfundar um horfur í efnahagsmálum og hvernig þær
snerta fyrirtæki og heimili. Fundurinn verður haldinn á Hótel Nordica í sal A/B.
LEIÐIN AÐ JAFNVÆGI
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis, kynnir spá Greiningar Glitnis um helstu
efnahagsstærðir, s.s. vexti, verðbólgu og laun, í umhverfi íslenskra heimila og fyrirtækja 2006–2010.
HVERT STEFNIR KRÓNAN?
Jón Bjarki Bentsson, hagfræðingur hjá Greiningu Glitnis, kynnir spá Greiningar Glitnis um þróun gengis
krónunnar á næstu misserum.
HVERT STEFNIR ÍBÚÐAVERÐ?
Ingvar Arnarson, hagfræðingur hjá Greiningu Glitnis, kynnir spá Greiningar Glitnis um þróun íbúðaverðs
á næstu misserum.
FRAMÞRÓUN Á INNLENDUM FJÁRMÁLAMARKAÐI
Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums-Burðaráss, fjallar um framþróun á innlendum
fjármálamarkaði og þróun íslenska bankakerfisins.
Skráning fer fram á www.glitnir.is og í þjónustuveri bankans í síma 440 4000.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Morgunverðarfundur Glitnis þriðjudaginn 29. ágúst kl. 8.15–10.00.
FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI
HORFUR Í EFNAHAGSMÁLUM
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, frétta-
stjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar
Íslands er nú komin yfir 5.900 stig
eftir samfellda hækkun ellefu daga í
röð eða allt frá 9. ágúst. Hækkunin í
gær nam rúmu 1% og endaði vísital-
an daginn í 5.905 stigum. Úrvalsvísi-
talan stóð í um 5.300 stigum þegar
núverandi hækkunarhrina hófst og
hefur því hækkað um nær 11,5%.
Hækkunin er að miklu leyti knúin
áfram af hækkunum á gengi bréfa
viðskiptabankanna sem samanlagt
vega mjög þungt í Úrvalsvísitölunni.
Össur hástökkvari vikunnar
Þannig hækkaði gengi bréfa Kaup-
þings banka um 12,4% á einni viku,
gengi bréfa Landsbankans um 11%
og bréfa Glitnis um 7,8%. Gengi
bréfa bæði FL Group og Alfesca
hækkaði einnig verulega eða um
10,6% og 10,1%. Hástökkvari vik-
unnar var hins vegar Össur en gengi
bréfa félagsins hækkaði um 13,7%.
Gengi bréfa tveggja félaga, Dags-
brúnar og Marels, lækkaði frá miðri
síðustu viku eða um 0,4% og 1,9%.
„Meginskýring er sú að markað-
urinn er mjög jákvæður, sex mánaða
uppgjörin voru mun betri en menn
höfðu reiknað með, nánast hjá öllum
fyrirtækjum. Bankarnir eru að klára
fjármögnun og hafa brugðist við
þeim athugasemdum sem voru gerð-
ar í febrúar og mars, s.s. um kross-
eignarhald og fjármögnun,“ segir
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
VBS fjárfestingarbanka, og vísar til
skýrslna sem hafi sýnt að bankarnir
stæðu traustum fótum.
Hann segir það sitt mat að menn
hafi talið að botninum hafi verið náð
og nú gæti aukinnar bjartsýni.
„Fjárfestar hafa komið inn á mark-
aðinn aftur af fullum krafti. Bæði
stærri og smærri fjárfestar og er-
lendir líka, grunar mig. En það má
líka nefna það að krónan hefur verið
mun stöðugri en menn áttu von á og
styrkst aftur. Það hjálpar líka mark-
aðinum. Það var auðvitað mjög
slæmt þegar krónan var í þessari
miklu veikingu og menn kannski með
hlutabréfakaup sem að hluta til voru
fjármögnuð með erlendum lánum.“
Jafet telur horfurnar vera nokkuð
góðar. „Já, menn telja þær vera
þokkalega góðar. En stemmingin fer
líka aðeins eftir því hvað gerist á er-
lendum mörkuðum. Það hefur verið
ágætur gangur á erlendu mörkuðum
líka, þó ekki í líkingu við þann ís-
lenska. En það fer saman, þ.e.a.s. ef
erlendi markaðurinn fer niður þá
hefur íslenski markaðurinn síðustu
tvo þrjú misseri líka aðeins farið nið-
ur.“
Linnulaus hækkun á gengi
hlutabréfa í úrvalsvísitölunni
Morgunblaðið/Ásdís
Aukin bjartsýni Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri VBS fjárfestingarbanka,
telur horfur á hlutabréfamarkaði vera þokkalega bjartar.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ll S T U T T
NÝTT þjónustufyrirtæki á upp-
lýsingatæknimarkaði, Titan ehf.,
mun hefja rekstur innan fárra
vikna, en meðal stofnenda eru Örv-
ar Sigurðsson framkvæmdastjóri
Equant á Íslandi, Hans Pétur Jóns-
son, framkvæmdastjóri sölusviðs
Opinna kerfa, og Benedikt Grön-
dal, forstöðumaður samskipta-
lausna Opinna kerfa, sem koma til
liðs við Titan seinna í haust. Segir í
fréttatilkynningu að stefnt sé að að-
komu öflugra fjárfesta að hinu ný-
stofnaða fyrirtæki sem einnig verð-
ur í eigu starfsmanna.
Til að byrja með mun fyrirtækið
einkum einbeita sér að söluráðgjöf
og þjónustu á sviði IP-tækninnar.
Stefna forsvarsmenn Titans að því
að færa út kvíarnar mjög hratt og
bjóða upp á alhliða upplýsinga-
tækniþjónustu og hefur fyrirtækið
tryggt sér viðskiptasamninga sem
veita því umboð til að bjóða vörur
frá Cisco, HP, Sun og fleiri þekkt-
um framleiðendum.
Fram kemur í tilkynningunni að
Titan muni einnig bjóða þjónustu
þeim erlendu fyrirtækjum á Íslandi
sem leita til Orange Business Sol-
ution (áður Equant) og hefur verið
gerður endursölusamningur við
Símann því tengdur.
Titan stefnir að því að vera með
um 50 sérfræðinga á sínum snærum
innan tveggja ára.
Nýtt upplýsinga-
tæknifyrirtæki