Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 B 7
Þegar lán til íbúðakaupa ertekið er fleira en vaxtakjörog lánsupphæðin sjálf semhuga þarf að, því alls kyns
kostnaður tengist slíku láni, m.a. ef
gera þarf breytingar á því síðar meir.
Blaðamanni lék forvitni á að vita hver
þessi kostnaður væri í dag og hvort
hann hafi eitthvað breyst á liðnu ári
og leitaði hann því til viðskiptabank-
anna þriggja, Glitnis, KB banka og
Landsbanka Íslands, Sparisjóða-
bankans, SPRON og Íbúðalánasjóðs.
Leitað var eftir kostnaði við lántöku
(lántökugjald), veðleyfi, veðflutning,
skuldskeytingu (nafnabreytingu) og
uppgreiðslu (uppgreiðslugjald), bæði
nú og fyrir ári.
Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu
hafa aðeins verið gerðar breytingar á
kostnaði þessara liða hjá KB banka,
Landsbanka og Íbúðalánasjóði á und-
anförnu ári.
KB banki hefur hækkað kostnað
við veðleyfi úr 3.500 kr. í 7.000 kr. Þá
ber að geta þess að kostnaður við veð-
flutning og skuldskeytingu getur
numið 40.000 kr. ef um flókin mál er
að ræða en yfirleitt er kostnaðurinn
25.000 kr.
Hjá Landsbankanum hefur
verðskrá bankans hvað þessa liði
varðar verið breytt talsvert en þar
fengust þær upplýsingar að breyting-
arnar hefðu verið gerðar með það að
markmiði að verð fyrir þjónustu end-
urspegli þann kostnað sem bankinn
verði fyrir við að veita þjónustuna. Í
þeim tilfellum sem hér um ræði sé
verið að færa þóknunina nær raun-
verulegum kostnaði en þar hafi verið
um mikla nákvæmnisvinnu að ræða,
viðtöl við viðskiptavini, öflun gagna,
s.s. veðbókarvottorða, greiðslumats,
verðmat á skjalagerð, skráningu, eft-
irlit með þinglýsingu og varðveislu
skjala. Oft sé um skilyrt veðleyfi að
ræða þar sem vinna þurfi eftir þeim
skilyrðum. Ef um skuldskeytingu
(nafnabreytingu) sé að ræða þurfi að
meta stöðu hins nýja viðskiptamanns,
bæði m.t.t. til greiðslugetu og ann-
arra viðskipta hans við bankann. Þá
hafi þessir liðir verið óbreyttir sl. 3 ár,
en þá hafi verið hækkun upp á 500
krónur. Fram að þeim tíma hafi
gjaldið verið óbreytt í mörg ár.
Lægri vextir og uppgreiðsluþóknun
Uppgreiðslugjald var tekið upp hjá
Íbúðalánasjóði í nóvember 2005 og
2.000 kr. greiðsla vegna veðleyfis og
veðflutnings var tekin upp í byrjun
árs. Hvað uppgreiðslugjaldið varðar
geta lántakendur valið hvort þeir
taka lán með hærri vöxtum en jafn-
framt geta þeir þá greitt aukalega af
því eða greitt lánið upp hvenær sem
er án kostnaðar, eða þeir tækju lán
með lægri vöxtum en yrðu þá að
greiða uppgreiðsluþóknun ef þeir
borga inn á lánið eða greiða það upp.
Uppgreiðsluþóknunin er jöfn nú-
virtum mismun á greiðsluröð lánsins,
núvirtu með vöxtum nýrra íbúðalána
sjóðsins eins og þau eru við upp-
greiðslu annars vegar og lánsfjár-
hæðinni eins og hún stendur á
greiðsludegi hins vegar en þó aðeins
ef vextir hafa lækkað frá því að upp-
greidda lánið er tekið. Þetta þýðir að
ef vextir nýrra íbúðalána sjóðsins eru
jafnir eða hærri en vextir þess láns
sem verið er að greiða upp þá er upp-
greiðsluþóknunin engin. Upp-
greiðsluþóknunin verður því ekki
virk nema vextir nýrra íbúðalána
sjóðsins hafi lækkað frá því að upp-
greidda lánið var tekið.
Til viðbótar þessu er ráðherra
heimilt að setja á almennt upp-
greiðslugjald ef eiginfjárstaða sjóðs-
ins rýrnar þannig að afkomu hans og
rekstri stafar hætta af. Þessi heimild
verður ekki virk nema þessar aðstæð-
ur skapist og stjórn Íbúðalánasjóðs
geri tillögu þar að lútandi til ráð-
herra. Þar sem hér er um heimildar-
ákvæði að ræða er ráðherra ekki
skyldugur til að setja reglugerð sem
setur þetta almenna uppgreiðslu-
gjald á, heldur getur ákveðið að fara
aðrar leiðir.
Þó kostnaður vegna veðflutnings
og skuldskeytingar sé hæstur hjá KB
banka verður að taka tillit til þess að í
flestum tilfellum er lántökugjald
hvað lægst hjá þeim banka. Í tilfelli
láns að fjárhæð 13 milljónir króna er
lántökugjald bankans jafnhátt lán-
tökugjaldi annarra aðila, svo dæmi
séu nefnd. Sé um hærra lán að ræða
er lántökugjaldið alltaf lægra hjá KB
banka en sé um lægra lán að ræða
getur það í einstaka tilfellum verið
það sama eða örlítið hærra en hjá hin-
um aðilunum. Þetta er vegna þess að
lántökugjald KB banka er samsett af
tveimur liðum, annars vegar er um
fasta upphæð að ræða, 65.000 kr., og
hins vegar um breytilega upphæð að
ræða sem fer þó eftir upphæð lánsins.
Hinir aðilarnir taka allir 1% lánsfjár-
hæðarinnar í lántökugjald.
"
)**+")**+
=&#
%
L*":
L*: #
!ML* N
$ "#
1
!*
%
-"!!!#&!.:#!!
,&. !
!
% 49:#!:%&!3*O
64.!
464.!
-!&.!
N
# !!*
! N N7:
!* A
!*.3#&
N! * :
:#!#* .
N1
!* /0
: ! : !*
3
!P#
4 N ,
-.***
-.***
*)+/
)
0123
,
-.+**
-.+**
-.+**
)
,
+.+**
4.***
4.***
*)
)
5
67 4 ,
-.+**
-.+**
*)+
)
N N
67
!#
!#
!#
,
).***
).***
,N
;!"#
! $ .
8.***
)+.***
)+.***
)
N Kostnaður vegna íbúðalána mismunandi
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is