Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 8

Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 8
Á síðasta ári mældist hag- vöxtur í Rússlandi 6,4% og verg landsfram- leiðsla nam 770 millj- örðum Bandaríkjadala. Þá nam bein erlend fjárfesting 26 milljörðum Bandaríkjadala á fyrri helmingi ársins en á sama tímabili í fyrra nam bein erlend fjárfesting 10,7 milljörðum dala, og hafði þá aukist um 4,5 milljarða dala frá sama tímabili árið 2004, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Rúss- lands. Fjármálaráðuneyti Rússlands gerir ráð fyrir 6,6% hagvexti í ár og hækkaði nýlega spá sína úr 6,5%. Samkvæmt endurskoðaðri hagspá fyrir árin 2006–2009, er áætlað að hagvöxtur verði 5% árið 2007 og 4,9% árin 2008 og 2009. Þó gera bjartsýnustu spár ráð fyrir 6% hag- vexti árið 2007, 5,8% hagvexti árið 2008 og 5,9% hagvexti árið 2009. RIA Novosti-fréttastofan greinir frá þessu og segir að aðdráttarafl Rússlands sé nú með mesta móti hvað fjárfestingar varðar, því ekki sé um einu afrek hagkerfisins að ræða. Samrunar og yfirtökur aukast Á þessu ári hefur fjöldi samruna og yfirtaka átt sér stað í Rússlandi. Tyrkneski bjórframleiðandinn Efes Breweries tók yfir rekstur Krasny Vostok-bjórverksmiðjunnar fyrir 390 milljónir dala. Raiffeisen Int- ernational yfirtók Impexbank fyrir 500 milljónir dala og Deutsche Bank AG keypti 60% hlutafjár United Financial Group fyrir 400 milljónir dala. Og annað met Rússlands tengist einmitt þessum yfirtökum. Á fyrstu sex mánuðum ársins náði hlutdeild landsins á evrópskum markaði fyrir samruna og yfirtökur 6,25% en var 4,5% á síðasta ári. Á heildina litið hefur rússneski samruna og yfirtök- umarkaðurinn hækkað um 57% að virði á síðustu tólf mánuðum, sem þýðir að rússneskar eignir hafa vax- ið í áliti hjá alþjóðlegum fjárfestum, að mati RIA Novosti. Þá sjá sérfræðingar hjá KPMG International aðra jákvæða hlið á fjárfestingarmarkaðnum rússneska, færslu fjárfestinga úr olíu- og gas- iðnaðinum yfir í aðrar tegundir iðn- aðar. Gangi áætlanir eftir mun Rússland slá enn annað metið en gert er ráð fyrir að virði samruna og yfirtökumarkaðarins nái 50 millj- arða dala markinu fyrir árslok. Stórfyrirtæki opna skrifstofur Í dag eru erlendir fjárfestar virkir á nær öllum sviðum í rússneska hag- kerfinu og þá eru þeir ekki einungis að fjárfesta í stærstu borgum Rúss- lands, heldur hafa þeir fært sig til smærri héraða í auknum mæli. Sem dæmi má nefna að Cargill, einn stærsti fjárfestir heims í landbún- aði, á í viðræðum við yfirvöld í Vo- lograd-héraði um að koma á fót olíu- vinnsluverksmiðju. Gangi áætlanir eftir mun fjárfesting Cargill nema 55 milljónum Bandaríkjadala. Þá hyggst franska fyrirtækið Accor Group byggja fjölda hótela í Volga- héraðinu, Serbíu og Krasnodar-hér- aði. En umsvif erlendra fjárfesta sjást hvað best þegar aukning á viðskipt- um þeirra er skoðuð. Öfugt við fyrri ár nemur yfirtaka á rússneskum eignum um 81% erlendra viðskipta, meðan afgangurinn er hlutfall sam- runa og yfirtaka sem Rússar hafa sjálfir gert innan landamæra sinna. Þetta hefur, að mati RIA Novosti, leitt til þess að stór fjárfestingarfyr- irtæki eru farin að feta í fótspor við- skiptavina sinna og hyggja á land- vinninga í Rússlandi. Fyrirtæki sem hafa opnað skrifstofur í Rússlandi á síðustu þremur árum eru meðal annars Credit Suisse First Boston, Merrill Lynch, Deutsche Bank, Dresdner Kleinworth og Morgan Stanley. Þá hyggst Goldman Sachs jafnvel opna skrifstofu í Rússlandi á næstunni. Fjárfestingarmet slegin í Rússlandi Hagkerfi Rússlands stóð í blóma á síðasta ári og ekkert lát virðist vera á vextinum. Sigurhanna Kristinsdóttir skoðaði erlendar fjárfestingar þar í landi en áhugi erlendra fjárfesta á Rússlandi hefur aukist talsvert undanfarið. sigurhanna@mbl.is Reuters Uppbygging Kranar í Kreml eru til vitnis um miklar endurbætur og uppbyggingu í Moskvuborg. 8 B FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ  RÚSSNESKIR 5.000 rúblna seðlar hafa verið settir í dreif- ingu aftur en eftir efnahags- hrunið í Rússlandi árið 1998 þegar rúblan hrundi voru þeir teknir úr dreifingu. Seðlabanki Rússlands segir að þörfinni fyr- ir að hafa seðlana í dreifingu sé „stjórnað af stjóðsstreymissþörf og vexti meðaltekna í landinu.“ Seðlabankinn segir seðlana ekki setta í dreifingu til að mæta aukinni verðbólgu, sem var 11% í fyrra og mælist 8,5% frá upphafi árs. Rússlandi lyfti nýlega höftum á fjármunaflutn- ingum og rúblunni er hún varð skiptanleg að fullu. Áður þurftu Rússar sem vildu skipta fjárhæðum á gjaldeyrisreikn- inga í erlendri mynt að leggja fjórðung fjárhæðarinnar á reikning í Seðlabankanum. Þá var útlendingum sem vildu færa fjárhæðir til Rússlands gert að hafa veðtryggingu, en þetta var gert til að koma í veg fyrir spákaupmennsku. 5.000 rúblna seðlar í dreifingu aftur Unnið er að því að sameinarússnesku álfyrirtækinRusAl og Sual, að því erfram kemur í frétt á breska fréttavefnum TimesOnline. Verði samruni fyrirtækjanna að veruleika verður þar með til stærsta álfyrir- tæki í heimi. Þá segir í fréttinni að gert sé ráð fyrir að hið sam- einaða fyrirtæki verði skráð í kauphöllinni í London. Í frétt Tim- esOnline segir að sameinað fyrir- tæki RusAl og Sual verði stærra álfyrirtæki en tvö stærstu álfyr- irtækin í heiminum í dag, Alcoa og Alcan. Markaðsvirði sameinaðs fyrirtækis verði um 10 milljarðar sterlingspunda, jafnvirði um 1.300 milljarðar íslenskra króna. Þá seg- ir að talið sé að nú þegar liggi fyrir drög að samkomulagi um samruna RusAl og Sual og að samruninn geti komið til framkvæmda á þessu hausti. RusAl er í dag þriðji stærsti ál- framleiðandi í heimi og framleiðir um 2,7 milljónir tonna af áli á ári. Hið bandaríska Alcoa og kanadíska Alcan framleiða um 3,5 milljónir tonna hvort um sig. Ársframleiða sameinaðs fyrirtækis RusAl og Sual veður yfir 3,7 milljónir tonna. Í frétt TimesOnline segir að stjórnendur RusAl og Sual hafi ekki viljað tjá sig um hugsanlegan samruna fyrirtækjanna. Þeir hafi hins vegar viðurkennt að skráning í kauphöllinni í London sé til skoð- unar. Í fréttinni segir að samruni Ru- sAl og Sual myndi auka líkurnar á hugsanlegum samruna stóru álfyr- irtækjanna í Norður-Ameríku. Stjórnendur þeirra hafi verið að leitast við að draga eins mikið úr kostnaði og mögulegt er. Þau þurfi hins vegar að stækka til að standa betur að vígi í samkeppninni við hið væntanlega rússneska fyrir- tæki og einnig ört vaxandi álfyr- irtæki í Kína. Ólígörkum fjölgar í Bretlandi Samruni RusAl og Sual myndi væntanlega hafa í för með sér að tveir rússneskir ólígarkar bætist við í þann hóp rússneskra auð- manna sem haslað hafa sér völl í bresku viðskipta- og þjóðlífi á um- liðnum árum. RusAl er í eigu hins 38 ára rúss- neska Oleg V. Deripaska. Eigur hans eru metnar á um 7,4 milljarða sterlingspunda, eða um þúsund milljarða íslenskra króna. Samkvæmt rússneska blaðinu Vedemosti er Deripaska talin álíka auðugur og Roman Abramovich, eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Í marsmánuði síðastliðn- um hélt tímaritið Forbes því fram að Abramovich væri annar ríkasti maðurinn í Bretlandi. Þeir Deripaska og Abramovich voru eitt sinn félagar í áliðnaðin- um, þegar álfyrirtæki þeirra tveggja voru sameinuð. Deripaska keypti síðar hlut Abramovich í hinu sameinaða fyrirtæki. Rússneska álfyrirtækið Sual er í meirihlutaeigu félaga Derpaska í rússneskri ólígarkastétt, hins 49 ára Viktors Vekselbergs. Hann er talinn fjórði ríkasti maður Rússlands, en eigur hans eru metnar á um 5,2 milljarða punda, eða um 700 milljarða ís- lenskra króna. Auk þess að vera stór í rúss- neskum áliðnaði er hann einnig stór hluthafi í olíufyrirtækinu TNK-BP, þriðja stærsta olíufyrir- tæki Rússlands. Vekselberg ávann sér velvilja rússneskra stjórnvalda fyrir nokkru er hann keypti safn af hin- um þekktu rússnesku Faberge- eggjum fyrir rúmlega 90 milljónir Bandaríkjadollara og kom þeim aftur til Rússlands. Í frétt TimesOnline segir að ef sameinað fyrirtæki RusAl og Sual verður skráð í kauphöllinni í Lond- on þá gefi það þeim Derpaska og Vekselberg tækifæri til að færa auð sinn frá Rússlandi til Bret- lands. Samruni álfyrirtækja í Rússlandi Oleg V. Deripaska Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.