Morgunblaðið - 16.10.2006, Side 1
mánudagur 16. 10. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Skagamenn sækja rétt sinn til KSÍ vegna Hafþórs Ægis>> 7
AKUREYRI TÓK STIG
ANDRI SNÆR STEFÁNSSON JAFNAÐI METIN Á
ÁSVÖLLUM – STJÖRNUMENN ENN ÁN STIGA » 5
ÁSTHILDUR Helgadóttir, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
skoraði tvö mörk fyrir Malmö þeg-
ar liðið sigraði
Kopparbergs/
Göteborg FC ,
3:0, í sænsku úr-
valsdeildinni í
knattspyrnu í
gær. Ásthildur
skoraði annað
mark Malmö á
48. mínútu og
innsiglaði svo
öruggan sigur
liðsins á 70. mínútu leiksins.
Áshildur fór af velli á 84. mínútu
en Dóra Stefánsdóttir lék allan tím-
ann.
Ásthildur er þar með orðin
markahæst í deildinni, hefur skor-
að 19 mörk í 20 leikjum. Næstar á
eftir Áshildi á markalistanum er
Victoria Svensson, Djurgården, og
hin brasilíska Marta í liði Umeå en
báðar hafa þær skorað 18 mörk.
Umeå er efst í deildinni með 48
stig og hefur þegar tryggt sér
meistarartitilinn en tvær umferðir
eru eftir. Djurgården er í öðru sæti
með 42 stig og Ásthildur og stöllur
hennar í Malmö eru í þriðja sætinu
með 39 stig.
Ásthildur
skoraði tvö
Ásthildur
Helgadóttir
GRÉTAR Rafn
Steinsson, lands-
liðsmaður í
knattspyrnu,
skoraði mark
fyrir hollenska
liðið AZ Alkmaar
í 2:0-sigri liðsins
á útivelli í Rot-
terdam gegn
Spörtu á laug-
ardag. Grétar
kom inná sem varamaður á 30. mín-
útu og skoraði hann fyrsta markið
með skalla á 55. mínútu. Jóhannes
Karl Guðjónsson sat á vara-
mannabekk Alkmaar og kom ekki
inná. Á heimasíðu félagsins segir
Grétar að hann sé ánægður með að
hafa fengið tækifæri á ný. „Ég lék
tvo leiki með íslenska landsliðinu
og mætti á ný til Hollands með mik-
ið sjálfstraust. Ég er einn af þrem-
ur bestu leikmönnum íslenska
landsliðsins og ef þeir leika illa þá
töpum við. Hjá Alkmaar eru leik-
menn teknir útaf ef þeir leika ekki
nógu vel og aðrir jafngóðir leik-
menn settir inná. Það var það sem
gerðist í þessum leik,“ segir Grétar.
Grétar Rafn
skoraði
Grétar Rafn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Best Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val og Viktor Bjarki Arnarssson úr Víking voru valinn bestu leikmenn Landsbankadeildarinnar í knattspyrnu á loka-
hófi KSÍ á laugardaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem þau fá þessa viðurkenningu en Margrét Lára varð einnig markahæst í kvennadeildinni .Nánar á B2.
TVÍBURABRÆÐURNIR Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir hafa ákveðið að ganga til liðs við Ís-
landsmeistara FH í knattspyrnu og samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins skrifa þeir undir
samninga við Hafnarfjarðarliðið í vikunni.
Þeir bræður, sem eru 33 ára gamlir, léku með
Skagamönnum í sumar auk þess að þjálfa liðið í
síðari umferð Íslandsmótsins og sýndu þeir afar
skemmtileg tilþrif. Arnar lék 15 leiki í Lands-
bankadeildinni og skoraði 5 mörk og Bjarki lék
11 leiki og skoraði 2 mörk.
Arnar hefur samtals leikið 96 leiki í efstu
deild með ÍA og KR og skorað í þeim 54 mörk
og þá hefur hann leikið 32 landsleiki. Auk þess
að spila með ÍA og KR hefur Arnar leikið sem
atvinnumaður með ensku liðunum Bolton, Leic-
ester og Stoke, Dundee United í Skotlandi,
Feyenoord í Hollandi, Sochaux í Frakklandi og
Nürnberg í Þýskalandi.
Bjarki hefur eins og Arnar leikið 96 leiki í
efstu deild með ÍA og KR og hefur skorað í
þeim 31 mark og þá hefur hann 27 sinnum leikið
með íslenska landsliðinu. Bjarki var í atvinnu-
mennskunni í nokkur ár en hann lék með enska
liðinu Preston, Molde í Noregi, þýsku liðunum
Mannheim og Nürnberg og með Feyenoord í
Hollandi.
Ray, Óskar Örn og Atli í KR?
Í gær mátti hefja viðræður við leikmenn sem
losna undan samningum síðar á árinu og verður
fjörugt á leikmannamarkaðnum næstu vikurnar
enda nokkuð margir leikmenn á lausu. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru KR-
ingar á höttunum eftir Grindvíkingunum Ray
Anthony Jónssyni og Óskari Erni Haukssyni og
Eyjamanninum Atla Jóhannssyni og Valsmenn
vilja fá Jóhann Þórhallsson og Jóhann Helgason
sem léku báðir með Grindavík í sumar.
Arnar og Bjarki fara til FH
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is