Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
GuðmundurViðar Mete
hefur samið við
knattspyrnulið
Keflavíkur á ný
en hann hefur
leikið með liðinu
undanfarin ár.
Guðmundur er
varnarmaður og
fagnaði hann bikarmeistaratitlinum
í haust ásamt félögum sínum úr
Keflavík. Samningur Guðmundar
er til þriggja ára.
Ellert Jón Björnsson skrifaði ígær undir nýjan tveggja ára
samning við ÍA en samningur hans
við félagið var runninn út. Ellert er
24 ára gamall miðju- og sókn-
armaður sem lék 13 leiki með
Skagamönnum í Landsbankadeild-
inni í sumar og skoraði 3 mörk.
Bjarki Sigurðsson, fyrrverandilandsliðsmaður í handknatt-
leik, og þjálfari Aftureldingar
dró fram skóna á laugardaginn og
lék síðustu 20 mínúturnar með læri-
sveinum sínum er þeir mættu Hetti
á Varmá í Mosfellsbæ. Þetta var
fyrsti leikur Bjarka á Íslandsmóti í
handknattleik í hálft annað ár og
sást vel að hann hefur fáu gleymt á
þeim tíma. Bjarki skoraði eitt mark
en átti um tug stoðsendinga. Aftur-
elding vann örugglega, 39:14, eftir
að Hattarmenn höfðu náð að stríða
Mosfellingum í fyrri hálfleik.
Ólafur Stefánsson lék ekki meðCiudad Real vegna meiðsla
þegar liðið vann öruggan sigur á
Brest Meshkov, 34:27, í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik í Hvíta-Rússlandi í gær.
Haraldur Freyr Guðmundssonlék allan leikinn með Álaborg
í gær þegar liðið tapaði fyrir Bryne,
2:0, í norsku 1. deildinni. Álaborg er
í öðru sæti deildarinnar.
Hannes Þ. Sigurðsson skoraðieina mark Bröndby þegar lið-
ið tapaði á heimavelli fyrir Midtjyll-
and, 3:1, í dönsku úrvalsdeildinni.
Hannes minnkaði muninn á 83. mín-
útu en hann lék allan leikinn.
Veigar Páll Gunnarsson skoraðifyrra mark Stabæk þegar liðið
gerði 2:2 jafntefli við Start í norsku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í
gær. Veigar, sem
missti af lands-
leiknum gegn
Svíum vegna höf-
uðverks, skoraði
fyrsta mark
leiksins og var
það 15. mark
hans í deildinni
en félagi hans í liði Stabæk, Daniel
Nannskog, er markahæstur með 16
mörk.
Árni Gautur Arason varði markVålerenga sem sigraði Molde á
útivelli, 3:0. Marel Jóhann Baldvins-
son var í byrjunarliði Molde en var
skipt útaf á 70. mínútu leiksins.
Birkir Bjarnason lék síðustutvær mínúturnar fyrir Viking
sem sigraði Odd Grenland, 1:0, á
útivelli.
Brann tapaði dýrmætum stigum ítoppbaráttu norsku úrvals-
deildarinnar í gærvöldi þegar liðið
tapaði fyrir Lyn í Osló, 2:0. Stefán
Gíslason lék allan leikinn fyrir Lyn
en Indriði Sigurðsson var í leik-
banni. Ólafur Örn Bjarnason og
Kristján Örn Sigurðsson léku allan
tímann í vörn Brann en Ármann
Smári Björnsson sat á bekknum.
Fólk sport@mbl.is
RÚNAR Kristinsson er eini Ís-
lendingurinn sem eftir er í liði
Lokeren og hann var fyrirliði
og bestur af fremur slökum
leikmönnum liðsins sem gerðu
markalaust jafntefli við Beersc-
hot í belgísku 1. deildini í
knattspyrnu á laugardags-
kvöldið.
Leikurinn bauð ekki upp á
mikla skemmtun og það eina
sem gladdi augað voru sendingar Rúnars sem
voru margar hverjar mjög fallegar og eins barð-
ist Rúnar vel allan leikinn.
Eftir leikinn voru belgísku blaðamennirnir
sammála um að Lokeren saknaði Arnars Þórs
Viðarssonar, gamla fyrirliða liðsins, til að lífga
upp á andann í liðinu og koma með smá grín í
hópinn eftir erfiða leiki.
Fjórir Íslendingar voru á mála hjá Lokeren á
síðustu leiktíð. Arnar Grétarsson, Marel Jóhann
Baldvinsson, Arnar Þór Viðarsson og Rúnar
Kristinsson. Arnar Þór er genginn til liðs við
Twente í Hollandi, Arnar Grétarsson er kominn í
sitt gamla félag, Breiðablik, og Marel Jóhann
spilar með Molde í Noregi en hann lék með
Breiðabliki í sumar og varð markakóngur Lands-
bankadeildarinnar með 11 mörk.
Lokeren er í 13. sæti deildarinnar með níu stig
eftir níu umferðir. Genk og Anderlecht tróna á
toppnum með 20 stig og Charleroi kemur þar á
eftir með 18 stig.
Rúnar bestur hjá Lokeren
Rúnar Kristinsson
Gestirnir úr Garðabænum voru fastir
fyrir, með stóra og stæðilega vörn, svo
að Valsdrengjunum gekk ekki vel að
finna leiðina að markinu fram eftir
fyrri hálfleik. Sjálfir voru Valsmenn
ákveðnir í vörninni, spiluðu með Bald-
vin fremstan til að brjóta niður sókn-
arleik Stjörnunnar og tóku síðan af
hörku á móti þeim sem nálguðust
markið. Stjörnumönnum gekk ekkert
að hrista þá af sér, svo að Valsmenn
náðu um miðjan fyrri hálfleik yfir-
höndinni, þá skiptust hlutverkin og
Garðbæingar þurftu að elta til að
reyna að jafna.
Allur síðari hálfleikur var í járnum
þegar Garðbæingar náðu reglulega að
jafna en það varð skarð fyrir skildi
þegar Tite Kalandaze skytta Stjörn-
unnar meiddist í lok fyrri hálfleiks og
kom ekki meira við sögu. Harkan jókst
og leikar æstust en ungu drengirnir í
Val gáfu ekkert eftir í þeim efnum,
sýndu styrk sinn og unnu.
Héldum í hefðina
og byrjuðum illa
„Við héldum í hefðina og byrjuðum
illa en svo kom þetta þó það væri góð
barátta frá byrjun,“ sagði Baldvin,
sem skoraði 4 mörk og var sterkur í
vörninni. „Við gerðum of mörg tækni-
mistök svo að við náðum ekki að hrista
þá af okkur. Það var mikil barátta og
stemmning enda nóg af hæfileikum. Ef
menn ætla ekki að berjast þá getum
við gleymt þessu en ef þeir berjast eins
og í dag er þetta gott. Mótið er galopið
og hvorugt liðið hér í dag er að missa af
baráttu um titilinn því mótið verður
opið fram í apríl,“ bætti Baldvin og var
jákvæður eftir langa fjarveru úr hand-
boltanum. „Ég var aðeins með á móti
Fylki og hef átt mína bestu daga und-
anfarið, er mjög hress þó ég hafi aukið
æfingaálagið. Ég er samt ekki alveg
kominn yfir hjallann en er bjartsýnn
og held áfram að fara vel með mig og
æfa vel.“ Ernir Arnarson var bestur
hjá Val, öflugur og bar enga virðingu
fyrir jöxlunum úr Garðabænum. Fann-
hannesson, sem var að venju lykilmað-
ur Stjörnunnar þó það hafi ekki dugað
til. „Mér fannst spilið hjá okkur mun
betra í seinni hálfleik því fyrir hlé var
mest um einstaklingsframtak og
göngubolta. Það var samt svekkjandi
að ná ekki í stig en það verður að taka
með reikninginn að við höfum ekki æft
með fullt lið allan undirbúninginn. Tite
og Roland voru meiddir auk þess að
Úkraínumaðurinn kom seint inn. Við
vissum það en leikurinn meistari
meistaranna gaf vonir um að þetta
væri að smella hjá okkur. Svo var ekki,
við töpuðum og það er auðvitað erfitt í
átta liða deild að detta svona aftarlega,
en seinni hálfleikur hérna er einn besti
sem við höfum sýnt. Við vælum samt
ekkert yfir því, tökum á því en fyrir
framtíðina er gott að fá stráka eins og
komu inná – þeir eru framtíðin en ekki
við gömlu jálkarnir, við erum á síðustu
dropunum. Ég vona að við byggjum á
því og ungu strákarnir eiga heiður
skilinn fyrir hve vel þeir kláruðu sig
þrátt fyrir lítinn undirbúning.“ Vissu-
lega áttu sumir af ungu drengjunum
góða spretti, til dæmis Guðmundur
Guðmundsson. Tite átti góða spretti en
náði að einum hálfleik. Volodimir Kysil
náði ekki að sýna sínar bestu hliðar en
Björn Friðriksson var atkvæðamikill
þegar hann leysti Úkraínumanninn af.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Patrekur Jóhannesson var atkvæðamikill í liði Stjörnunnar gegn Valsmönnum. Hér reynir Ægir Jónsson varnarjaxl Valsmanna að stöðva Patrek.
STIGALEYSI hrjáir enn Garðbæinga
eftir að þeir lutu í lægra haldi fyrir
Val í Laugardalshöllinni á laugardag-
inn. Engu að síður gáfu Stjörnumenn
allt sitt í leikinn og voru batamerki á
leik þeirra en sprækir Valsstrákar
spiluðu kraftmikla vörn sem lét finna
fyrir sér og tókst nógu oft að snúa á
Garðbæinga til að vinna 30:29. Bald-
vin Þorsteinsson lék næstum allann
leikinn fyrir Val eftir 10 mánaða hlé.
Stigaleysi í Garðabæ
'
(
) ! $%& & $
ar Friðgeirsson var einnig drjúgur en
þó lögðu allir sitt af mörkum og tóku
duglega á því í vörninni. Einnig átti
Ólafur Gíslason drjúgan þátt í sigrin-
um með stórleik milli stanganna.
Ánægður með „guttana“
„Ég er ánægður með strákana sem
komu inná hjá okkur, þeir hafa margir
ekki spilað mikið en börðust virkilega
og lögðu sig fram.“ sagði Patrekur Jó-
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
JÓHANN B. Guðmundsson leikmaður sænska
knattspyrnuliðsins GAIS sem leikur í efstu deild
þar í landi er á batavegi eftir meiðsli á hné. Jóhann
hefur verið í byrjunarliði GAIS í öllum leikjum
liðsins á leiktíðinni en á dögunum meiddist hann á
hné og var jafnvel talið að hann myndi ekki leika
fleiri leiki með liðinu á þessari leiktíð. Í frétt Ví-
kufrétta segir frá því að Jóhann hafi fengið það
staðfest að ekki sé um slitið krossband að ræða.
Síðasti leikur keppnistímabilsins er þann 5. nóv-
ember og stefnir Keflvíkingurinn á að leika með
liði sínu í þeim leik. GAIS er frá Gautaborg og er
nýliði í efstu deild. Liðinu var spáð falli áður en
keppnistímabilið hófst en gengi liðsins hefur vakið
athygli enda er liðið í 10. sæti deildarinnar. Eyjólf-
ur Sverrisson þjálfari íslenska landsliðsins í knatt-
Jóhann ekki með s