Morgunblaðið - 16.10.2006, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 5
Þýski landsliðs-miðherjinn í
knattspyrnu Lu-
kas Podolski
skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Bay-
ern München,
þegar Bæjarar
fögnuðu sigri á
Herthu Berlín
4:2. Roy Makaay, Claudio Pizarro og
Willy Sagnol skoruðu hin mörk Bæj-
ara, sem höfðu fyrir leikinn aðeins
skorað sjö mörk í sex leikjum.
Felix Magath, þjálfari Bayern,sem hafði deilt hart á miðherja
sína fyrir hvað þeir nýttu marktæki-
færi sín illa og skoruðu fá mörk, tefldi
fram þremur miðherjum og var
greinilegt að hann ætlaði sér að
hressa upp á markatöluna fyrir fram-
an 69 þús. áhorfendur á Allianz
Arena-leikvanginum glæsilega – upp-
selt. Makaay skoraði fyrsta markið
eftir aðeins níu mín. eftir sendingu
frá Podolski, sem hefur leikið betur
með þýska landsliðinu heldur en Bay-
ern. Podolski opnaði síðan mark-
areikning sinn með fjórða og síðasta
marki Bayern á 78. mín., eftir einleik.
Magath var ánægður með sína menn
og sagði að fyrri hálfleikurinn hefði
verið frábær hjá þeim. „Strákarnir
sýndu þá hvað þeir geta og léku sinn
besta leik á keppnistímabilinu,“ sagði
Magath, sem hrósaði Podolski fyrir
stórgóðan leik.
Ég er afar ánægður með minnhlut,“ sagði hinn 21 árs Po-
dolski, sem Bæjarar keyptu frá Köln
í sumar. Hann
hefur brotið ísinn
hjá Bayern. „Ég
er ánægður – ég
skoraði tvö mörk
fyrir Þýskaland
gegn Slóvakíu á
miðvikudaginn og
mitt fyrsta mark
fyrir Bayern hér í
München,“ sagði
Podolski, sem lék sinn annan leik í
byrjunarliði Bæjara. Þess má geta til
gamans að Hertha fagnaði síðast
sigri í München árið 1977 eða fyrir
rétt tæplega þremur áratugum.
Werder Bremen, sem tekur ámóti Bayern um næstu helgi,
fagnaði stórsigri í Bochum, 6:0. Wer-
der, Bayern og Schalke eru í efstu
sætunum í Þýskalandi, með 13 stig.
Leikmenn Wer-der skoraði
fimm af mörk-
unum á síðustu 30
mín. leiksins, eftir
að Aaron Hunt
hafði skorað fyrsta
markið á sjöundu
mín. Christian
Schulz, Vranjes, Diego, Clemens
Fritz og Naldo skoruðu hin mörkin
fyrir Werder.
Markverðir voru heldur betur ísviðsljósinu í Þýskalandi á
laugardaginn – þrír vörðu víta-
spyrnur.
Markus Pröll hjá Frankfurt, varði
eina vítaspyrnu líkt og þeir Frank
Rost hjá Schalke og Jörg Butt hjá
Leverkusen.
Fólk sport@mbl.is
spyrnu valdi Jóhann í 25 manna hóp fyrir leikinn
gegn Svíum á Laugardalsvelli. Jóhann slasaðist í
næsta leik á eftir og missti þar með af tækifærinu
að sýna sig og sanna með íslenska landsliðinu.
Hóf atvinnumannaferilinn hjá Watford
Jóhann, sem er 29 ára að aldri, gerðist atvinnu-
maður árið 1998 en þá samdi hann við enska liðið
Watford og lék hann með liðinu allt fram til ársins
2001. Lyn frá Osló í Noregi fékk Jóhann til liðs við
sig árið 2001 og var hann í herbúðum liðsins í þrjú
ár en hann samdi við Örgryte frá Gautaborg árið
2004. Þar lék hann í tvö ár og er nú að ljúka við
fyrsta keppnistímabilið með GAIS. Jóhann hefur
leikið átta A-landsleiki en ekki náð að skora mark í
þeim leikjum.
slitið krossband
EIÐUR Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Evr-
ópu- og Spánarmeistara Barcelona í gærkvöld þeg-
ar liðið lagði Sevilla, 3:1, í spænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Brasilíski snillingurinn Ronaldinho
skoraði tvö marka Barcelona sem náði með sigr-
inum fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar.
Eiður Smári lék í fremstu víglínu ásamt Argent-
ínumanninum Lionel Messi en var skipt út af átta
mínútum fyrir leikslok og leysti Argentínumaðurinn
Javier Saviola hann af hólmi.
Ronaldinho skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu á
28. mínútu sem dæmd var eftir að landi hans, bak-
vörðurinn Belletti, var felldur í teignum. Frederic
Kanoute jafnaði metin fyrir UEFA-meistarana á 36.
mínútu en Ronaldinho var fljótur að svara fyrir
Barcelona því hann kom sínum mönnum yfir með
marki úr aukaspyrnu tveimur
mínútum eftir mark Kanoute.
Frank Rikjaard þjálfari Börs-
unga ákvað að kalla Ronaldino af
velli á 73. mínútu enda tveir stór-
leikir fram undan hjá liðinu í vik-
unni. Á miðvikudaginn sækja
Börsungar lið Chelsea heim á
Stamford Bridge í Meistara-
deildinni og næsta sunnudag er
komið að stórleik erkifjendanna
Real Madrid og Barcelona á San-
tiago Bernebau vellinum í Madrid.
Lionel Messi innsiglaði sigur Barcelona með
þriðja marki liðsins á 81. mínútu eftir sendingu frá
Xavi.
Eiður lék í 82 mínútur
Eiður Smári.
Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur
sport@mbl.is
Í upphafi leiks var flest sem benti
til öruggs sigurs Hauka, þeir skor-
uðu fyrsta markið og héldu forystu
sinni nær allan leikinn. Þeir höfðu
þriggja marka forskot í leikhléi
18:15 og um miðjan síðari hálfleik-
inn jókst munurinn í 5 mörk 29:24.
En Akureyringar voru ekki af baki
dottnir. Gríðarlega góður baráttu-
andi var í liði þeirra og þegar inn-
an við fjórar mínútur voru eftir af
leiknum jöfnuðu þeir 32:32. Við
það vöknuðu Hafnfirðingar og
framundan voru æsispennandi
lokamínútur. Árni Þór Sigtryggs-
son kom Haukum yfir á ný með
glæsilegu langskoti en Hörður
Fannar Sigþórsson lék sama leik
fyrir Akureyringa og aðeins tæpar
tvær mínútur voru eftir af leikn-
um. Kári Kristján Kristjánsson,
besti leikmaður Hafnfirðinga, kom
Haukum yfir á ný en Akureyringar
neituðu að gefast upp og Andri
Snær Stefánsson skoraði sitt eina
mark og jöfnunarmark norðan-
manna með góðu skoti úr horninu.
Sævar Árnason: Gríðarlega
ánægður með eitt stig
Sævar Árnason, þjálfari Akur-
eyrar var ánægður með stigið í
leikslok. „Miðað við hvernig við
vorum að spila og hvernig leik-
urinn þróaðist þá er ég gríðarlega
ánægður með eitt stig. Við vorum
hrikalega lélegir í þessum leik
svona lengst af. Varnarlega vorum
við ekki að gera vel en við náðum
okkur upp í lokin og söxuðum á
þetta jafnt og þétt. Ég var ekki
nógu ánægður með þennan leik
svona í heildinni en er ánægður
með að fá eitt stig miðað við
hvernig komið var,“ sagði Sævar
Árnason, þjálfari.
Lið Haukanna er skipað blöndu
af ungum og efnilegum leikmönn-
um og eldri og reyndari sem hafa
upplifað margt á löngum hand-
boltaferli. Magnús Sigmundsson
markvörður varði á köflum vel í
marki þeirra og leikmenn eins og
Freyr Brynjarsson og Guðmundur
Pedersen eru hoknir af reynslu.
Það kom berlega í ljós í þessum
leik en besti leikmaður liðsins var
engu að síður Kári Kristján Krist-
jánsson, sem er aðeins 22 ára gam-
all.
Akureyringar eru með vel skip-
að lið og þeir eiga örugglega eftir
að láta vel að sér kveða í deildinni í
vetur. Magnús Stefánsson og
Nikolaj Jankovic léku best í liði
þeirra og þá varði Sveinbjörn Pét-
ursson á köflum frábærlega.
Akureyringurinn Andri Snær tryggði
jafnteflið með eina marki sínu
Akureyringar stigu sigurdans að
loknum leik sínum gegn Haukum í
íþróttahúsinu Ásvöllum í Hafn-
arfirði. Þeir höfðu líka góða ástæðu
til að fagna því þrautseigja þeirra
og þolgæði færðu þeim eitt stig
gegn Haukum, sem flestir áttu von
á að myndu sigra í þessum leik
nokkuð örugglega. Leiknum lauk
með jafntefli, 34:34, en Akureyr-
ingar voru þremur mörkum undir
eftir fyrri hálfleikinn.
Akureyringar fögnuðu
jafntefli gegn Haukum
*
*
'
'
'
#
! $%& & $
!
Sterkur Hörður Fannar Sigþórsson skoraði þrjú mörk fyrir Akureyri gegn
Haukum að Ásvöllum í gær þegar liðin skildu jöfn.