Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 1

Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 1
mánudagur 23. 10. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Vængbrotið lið Stjörnunnar rak af sér slyðruorðið >> 5 VIGGÓ Í ÞÝSKALANDI VERÐUR LENGUR VIÐ STJÓRNVÖLINN HJÁ ÞÝSKA LIÐINU FLENSBURG EN TIL STÓÐ Í UPPHAFI >> 6 Morgunblaðið/Golli Marksækin Margrét Lára Viðarsdóttir, hin marksækns knattspyrnukona frá Vestmannaeyjum, sést hér í landsleik gegn Svíum á Laugardalsvellinum. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég fór út til Þýskalands á þriðjudag- inn og hafði aðeins verið á þremur æf- ingum fyrir leikinn. Ég átti þess vegna ekkert von á að vera í liðinu, hvað þá í byrjunarliðinu eins og raun varð á. Allt hefur til þessa farið fram úr mínum björtustu vonum,“ sagði Margrét Lára þegar Morgunblaðið náði tali af henni í gærkvöld. Leikurinn var í 1. umferð bikar- keppninnar en Margrét Lára er að- eins lögleg með Duisburg í bikar- keppninni fram að áramótum en þá fær hún einnig leikheimild í deilda- keppninni. „Það kom skemmtilega á óvart að fá tækifæri í byrjunarliðinu og tel mig hafi nýtt tækifærið vel,“ sagði Margrét sem óskaði eftir að vera skipt út af þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. „Þá fann ég til í bakinu auk þess sem ég var orðin þreytt þar sem hraðinn sem mikið meiri hér heldur en í boltanum heima. Ég er ekki í vafa um að þetta var hraðasti knattspyrnuleikur sem ég hef tekið þátt í um ævina,“ segir Mar- grét sem lýsir markinu svo; „Ég fékk háa sendingu inn á markteigshornið hægra megin, tók knöttinn niður, hann skoppaði einu sinni áður en ég skaut honum rakleitt í markið. Þetta var skemmtilegt. Hér er það þannig að maður fær engan tíma með bolt- ann, það verður bara að spyrna knettinum í fyrsta,“ sagði Margrét Lára. „Það er í raun og veru ekki hægt að bera knattspyrnuna hér í Þýskalandi saman við knattspyrnuna heima þótt að á Íslandi sé margir góðir leikmenn sem geta vel gert það gott hér. Hér fer nær allur leikurinn fram með einni og tveimur snertingum. Ég á mikið verk fyrir höndum að koma mér inn í þá knattspyrnu sem hér er leikin þótt mér hafi tekist vel upp í dag,“ sagði Margrét Lára og er svo sannarlega með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að vel hafi gengið í fyrsta leik. „Þessi tæpa vika síðan ég kom hingað út hefur verið mjög erfið og það er mikil vinna framundan,“ sagði Margrét sem horfir bjartsýnum aug- um fram á veginn. „Við erum með afar gott lið og því komu þessi úrslit ekki á óvart þar sem ýmislegt hefur gengið leikmönn- um Potsdam í mót upp á síðkastið, meðal annars féllu þeir út úr Evrópu- keppninni á fimmtudagskvöldið. Mitt lið hefur verið á mikill uppleið upp á síðkastið og þess vegna kom sigurinn okkur alls ekki á óvart þótt hann hafi ef til vill komið öðrum í opna skjöldu,“ sagði Margrét Lára sem bíður spennt eftir næsta bikarleik sem er ráðgerð- ur 18. nóvember. „Ég vonast til að fá tækifæri þá. Annars er það ekkert sjálfgefið þar sem liðið hefur leikið vel upp á síðkastið og þar af leiðandi eru breytingar ekki gerðar nema af ýtrustu nauðsyn. En ég vissi það líka þegar ég gerði samninginn við Duis- burg að ég fengi ekkert upp í hend- urnar enda var það ein ástæða þess að ég fór hingað til Þýskalands, það að fá meiri keppni og geta þannig bætt mig sem knattspyrnumaður,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir. „Þessi dagur hefur verið sannkallaður draumur“ „ÞESSI dagur hefur verið sannkallaður draumur,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona hjá þýska liðinu Duisburg. Hún fékk sann- kallaða draumabyrjun með liðinu í gær þegar hún skoraði þriðja mark liðs- ins í 3:1 sigri liðsins á Þýskalands- og Evrópumeisturum, Potsdam, auk þess að leggja upp fyrsta mark liðsins. Það sem meira er þá fór leikurinn fram í Potsdam, en forráðamenn liðsins sóttust stíft eftir kröftum Mar- grétar Lára en urðu undir í kapphlaupinu við Duisburg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.