Morgunblaðið - 23.10.2006, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 5
ÍR-ingurinn Björgvin Þór Hólm-geirsson, sem er markahæstur í
úrvalsdeild karla með 32/4 mörk,
hefur skorað mörk sín þannig – 16
með langskotum, fjögur úr vítaköst-
um, fjögur eftir hraðaupphlaup,
fjögur eftir gegnumbrot, þrjú úr
horni og eitt af línu.
Davíð Þór Georgsson, félagiBjörgvins Þór hjá ÍR, kemur
næstur á blaði með 31/18 mörk. Fyr-
ir utan 18 mörkin úr vítaköstum,
hefur hann skorað 6 með lang-
skotum, 5 eftir gegnumbrot, eitt úr
horni og eitt af línu.
Fylkismaðurinn Eymar Kruger,sem hefur skorað 30 mörk, hef-
ur skorað 20 með langskotum, sex úr
vítaköstum, tvö af línu, eitt eftir
hraðaupphlaup og eitt eftir gegn-
umbrot.
Eymar hef-ur skorað
flest mörk með
langskotum,
20. Björgvin
Þór kemur
næstur á blaði
með 16 mörk,
þá Valdimar
Þórsson, HK,
með 15 mörk.
Patrekur Jó-
hannesson, Stjörnunni, hefur skor-
að 14 mörk með langskotum. Mark-
ús Máni Michaelsson, Val, er með 13
mörk, Árni Þór Sigtryggsson,
Haukum, 12 mörk, Fannar Frið-
geirsson, Val, hefur skorað 10 mörk
með langskotum og einnig Magnús
Stefánsson, Akureyri.
Hörður Fannar Sigþórsson, Ak-ureyri, Ingvar Árnason, Val
og Volodymir Kysil, Stjörnunni,
hafa skorað flest mörk af línu, eða 9
mörk hvor. Sergey Petraitis, HK, er
í fjórða sæti með 8 mörk af línu.
Elías Már Halldórsson, Stjörn-unni, hefur skorað flest mörk
úr horni, eða ellefu mörk. Þórir B.
Gunnarsson, Fram, hefur skorað 8
mörk úr horni og einnig Nikolaj
Jankovic, Akureyri. Ragnar Már
Helgason, ÍR, og Stefán Stefánsson,
Fram, hafa skorað 7 mörk úr horn-
um.
Haukar erufljótastir
fram. Samúel Ív-
ar Árnason hefur
skorað flest mörk
úr hraðaupp-
hlaupum, eða 9.
Félagi hans
Freyr Brynj-
arsson kemur
næstur á blaði
með 8 mörk. Þá kemur Ragnar Már
Helgason, ÍR, með sex mörk eftir
hraðaupphlaup.
Gegnumbrot eru ekki sterkustuhliðar leikmanna. Fjórir leik-
menn hefa skorað 5 mörk eftir gegn-
umbrot – Gísli Jón Þórsson, Hauk-
um, Davíð Georgsson, ÍR, Bjarni Óli
Guðmundsson, Stjörnunni og Ernir
Hrafn Arnarson, Val.
Fólk sport@mbl.is
Breiðhyltingar léku vörn með einn
fyrir framan til að trufla sóknarleik
Stjörnunnar – enda sjálfsagt fyrir þá
að ganga á lagið þar sem Patrekur
Jóhannesson var ekki með vegna
veikinda, Ólafur Víðir Ólafsson frá
vegna meiðsla og David Kekelia tók
út leikbann. Garðbæingar aftur á
móti stóðu vörnina á línunni og
stæðilegum varnarmönnum þeirra
gekk framan af að stöðva sóknarleik
gestanna sem þurftu auk þess að
komast framhjá Roland Eradze í
markinu. Hinu megin stóð mark-
vörður ÍR, Þorgils Orri Jónsson, líka
vaktina af prýði þegar hann varði
meðal annars tvö vítaköst. Fyrir vik-
ið komust sóknarmenn lítt áleiðis og
staðan um miðjan fyrri hálfleik 5:5.
Þá brotnuðu ÍR-ingar og töluvert
dró út bitinu í sóknarleik þeirra þeg-
ar Roland lokaði markinu í rúmar 12
mínútur, á meðan hans menn skora 7
mörk, var Stjarnan komin í vænlega
stöðu. Þjálfari ÍR tók þá leikhlé og
las hressilega yfir sínu mönnum sem
dugði til hressa þá nógu mikið til að
ná að vera ekki meira en 13:8 undir í
hálfleik.
Skothríð eftir hlé
Síðari hálfleikur var öllu fjörugri.
Þar sem Stjarnan missti tvo menn
útaf rétt fyrir leikhlé þurftu þeir að
þrauka rúma mínútu tveimur færri
og tókst það, ekki síst þar sem þeir
beittu leynivopni þegar leikkerfi
opnaði Hermanni Björnssyni þríveg-
is greiða leið í gegnum vörn ÍR. Her-
bragð ÍR-inga var hins vegar að
skjóta á markið og það gekk upp því
á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks
skoruðu þeir meira en í öllum fyrri
svo að munaði einu marki um miðjan
seinni hálfleik. Þá fór Roland aftur í
málið og varði án afláts, meðal ann-
ars fjögur vítaköst á meðan félagar
hans komust í sex marka forskot.
Þar með var ballið í raun búið, Breið-
hyltingar reyndu að klóra í bakkann
en Garðbæingar slógu ekki af og
gættu þess halda forskotinu.
Gátum notað þúsund afsakanir
Konráð Olavsson gegndi stöðu
þjálfara Stjörnunnar á laugardaginn
og tókst að stýra liðinu til sigurs.
„Við vorum ákveðnir í að sýna úr
hverju við erum gerðir. Við höfðum
fyrir leikinn þúsund afsakanir til að
gefast upp fyrirfram en ég er mjög
stoltur af strákunum því þeir komu
hingað og sýndu hvað í þeim býr.
Hálft liðið er á öðrum fætinum eða í
veikindum en við erum hættir að ein-
blína á einstaklingana, erum með
okkar leikkerfi og reglur hvernig við
vinnum saman sem lið. Þar sem allir
eru með það á hreinu skiptir engu
máli hvað maðurinn heitir. Menn
vissu sín hlutverk og Tite kunni hlut-
verk Patreks uppá hár svo að hann
gekk inn í það og leysti vel,“ sagði
Konráð eftir leikinn en hyggst ekki
að taka alfarið að sér þjálfun liðsins.
„Við þurftum að stimpla okkur inn í
deildina, gerðum það og þetta var
langþráður sigur. Ég veit ekki hvað
verður, það verður að spyrja aðra en
mig. Sjálfur er ég með margar
skuldbindingar og það yrði erfitt fyr-
ir mig að taka við en ég er ekkert að
fara neitt.“ Sem fyrr segir var Rol-
and í miklu stuði því flest skotanna
sem hann varði voru erfið, önnur
voru nokkuð auðveld þegar ÍR-ingar
hentu að markinu og vonuðu að hann
yrði ekki fyrir. Björn Ó. Guðmunds-
son var einnig í ham og Tite Kaland-
aze gerði góða hluti en fór örlítið var-
lega þegar búið var að berja á
honum.
Markvarslan okkur um megn
Erlendur Ísfeld þjálfari ÍR var
ekki ósáttur við sína menn, taldi tap-
ið liggja í markvörslunni. „Við höfð-
um mikið fyrir okkar leik og ég get
ekki verið ósáttur við leikmenn að
neinu leyti því þeir lögðu sig alla
fram. Þegar markvörður mótherja
ver um þrjátíu bolta vinnur maður
ekki leik og þó ég geti ekki kvartað
yfir markvörslu okkar þá liggur
munurinn hér. Þessi leikur þróaðist
eins og hann gerði og datt ekki fyrir
okkur. Við löguðum nokkra hluti og
ég laug að strákunum að Roland
myndi ekki verja svona í seinni hálf-
leik og þá myndum við taka þá en
það gekk ekki eftir. Við minnkum
reglulega muninn en náum ekki að
klára Roland í markinu hjá þeim.
Eina jákvæða sem ég get sagt er að
við erum að berjast allan leikinn,
sama hversu erfitt það er. Það eru
ungir strákar að bera upp leik okkar
og við vissum að þetta yrði erfitt,
jafnvel að fá ekkert stig eftir fjórar
umferðir en er nú fúll yfir að hafa
ekki sex stig.“ Það má taka undir orð
þjálfarans um að leikmenn hafi lagt á
sig en það komu slakir kaflar þegar
einbeitingin var ekki alveg í lagi og
það reyndist dýrt því mótherjar
þeirra gengu strax á lagið, sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Leikmenn sýndu
þó í síðari hálfleik að þeir eru nógu
snöggir til að ná upp hraðanum.
Björgvin Hólmgeirsson átti mjög
góðan leik og Davíð Georgsson einn-
ig, Jón Heiðar Gunnarsson og Ragn-
ar Helgason héldu línumanni Stjörn-
unnar í skefjum.
Morgunblaðið/Ómar
Ákveðinn Tite Kalandaze skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna gegn ÍR. Brynjar Steinarsson er varnarlaus.
Langþráður sigur
Stjörnumanna í höfn
ÁN þriggja lykilleikmanna og ný-
lega lausir við þjálfara sína gerðu
Stjörnumenn sér lítið fyrir og unnu
sinn fyrsta deildarleik þegar ÍR
sótti þá heim í Garðabæinn í gær.
Stjarnan hafði alltaf forystu,
nauma stundum og vann 30:25.
Þriggja leik bið Stjörnunnar er því
lokið en með sigri í leiknum meist-
arar meistaranna og nýlega í bik-
arkeppninni sýndu Garðbæingar að
þyrfti aðeins að brjóta ísinn. ÍR aft-
ur á móti vann Hauka í fyrsta leik
og hefur síðan beðið lægri hlut.
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
Lögðu ÍR í Garðabænum án Patreks, Ólafs Víðis og David Kekelia
'
'
!
( #)
# $%& & $