Morgunblaðið - 23.10.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.10.2006, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir ÖRFHENTA skyttan Jóhann Gunnar Ein- arsson hefur sótt sig mjög með Fram í Meist- aradeildinni þrátt fyrir að vera rétt rúm- lega tvítugur og sprakk út gegn Celje er hann skoraði fjórtán mörk: ,,Ég er mjög sáttur við seinni hálfleikinn hjá mér en ég var kannski slakari í þeim fyrri. Í fyrsta leiknum gegn Gummersbach þá var þetta eins og í réttum, maður var svo spenntur og æstur að við vorum eins og kindur á hlaupum. Það gengur náttúrulega ekki upp en síðan hefur þetta komið hægt og sígandi. Þannig hefur tímabilið ver- ið hjá mér í heild, ég byrjaði illa en vonandi er þetta að koma hjá mér núna,“ sagði Jóhann að leiknum loknum. Hann er nú ekki breiður á velli en hann reyndist stæðilegum varn- armönnum Celje háll sem áll: ,,Mað- ur þarf bara að vera með topp- stykkið í lagi. Ég er alltaf að reyna að segja Gumma þjálfara það en hann reynir að henda mér regulega inn í lyftingasal. Ég vill meina að maður þurfi meira en líkamlega burði eins og útsjónarsemi. Þetta er hins vegar erfitt í sextíu mínútur. Munurinn á áhugamannaliði og at- vinnumannaliði sést í lok leikja, þá förum við að gefa eftir en þeir geta endalaust keyrt á öllum hestöflum,“ sagði Jóhann. Kemur hægt og sígandi Jóhann Gunnar ALFREÐ Gíslason og lærisveinar hans í þýska stórliðinu Gummersbach lentu í kröppum dansi gegn norska liðinu Sandefjord er leikið var í Noregi á laugardag, en liðin eru í sama riðli og Fram og Celje í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Leik- menn Sandefjord veittu mikla mótspyrnu og hefðu hæglega getað jafnað leikinn undir lokin en lánaðist ekki. Það var ekki síst stórleikur ungverska lands- liðsmarkvarðarins Nandor Fazekas sem tryggði Gummersbach nauman sigur í Jotunhallen í Sand- efjord. Fazekas fór á kostum og varði 19 skot, mörg þeirra í opnum færum. Leikmenn Gummersbach byrjuðu leikinn mun betur og voru með öruggt forskot allan fyrri hálf- leikin, m.a. 18:22 í hálfleik. Í síðari hálfleik náðu leikmenn Sandefjord að bíta frá sér og minnka for- skot þýska liðsins niður í eitt mark, nær komust þeir ekki. Gummersbach slapp þar með skrekkinn og tveggja marka sig- ur, 35:37. Liðið er þar með áfram efst í F-riðli með átta stig að loknum fjórum leikjum. Celje er í öðru sæti með sex stig, Sand- efjord hefur tvö stig og Fram rekur lestina án stiga. Frakkinn Daniel Narcisse var markahæstur hjá Gummersbach með 11 mörk úr jafnmörgum skottilraunum. Guðjón Valur Sigurðs- son skoraði fimm mörk úr sjö skotum. Róbert Gunnarsson gerði eitt mark úr sínu eina markskoti í leiknum. Gummersbach í kröppum dansi Alfreð Gíslason Eftir Kristján Jónsson sport@mbl.is Slóvenska liðið er firnasterkt eins og við var að búast og þeir voru á undan allan leikinn. Erfitt er að lenda í slíkri stöðu gegn liði sem þessu því þeir gefa ekki mörg færi á sér. Sem dæmi um agaðan leik Celje þá enda nánast allar þeirra sóknir á yfirveg- uðum skottilraunum þar sem tækni- mistök og sóknarbrot þekkjast varla. Það er því hægara sagt en gert að vinna upp mun gegn slíku liði því Framarar fengu nánast engin ódýr hraðaupphlaupsmörk. Leikmenn Fram voru hins vegar afar skyn- samir og klókir í sínum sóknarað- gerðum og sá þáttur gekk fullkom- lega upp. Óvænt mótlæti Liðin mættust ytra á dögunum og þá sigruðu Slóvenarnir með ellefu marka mun. Mótlætið sem þeir urðu fyrir á laugardaginn virðist hafa komið þeim í opna skjöldu, og þá sér- staklega frammistaða Jóhanns Ein- arssonar, sem skoraði fjórtán mörk og sló virkilega í gegn. Í fyrri hálfleik var munurinn mest- ur fjögur mörk og þannig stóð í leik- hléi 12:16. Í þeim síðari náðu gest- irnir tvívegis fimm marka forskoti en Frömurum tókst í bæði skiptin að saxa á forskotið. Með örlítið betri varnarleik hefðu úrslitin getað orðið Frömurum í hag en öll líkamleg átök voru heimamönnum mjög í óhag. Framliðið er frekar ungt og margir lykilmanna liðsins lágvaxnir og grannir. Í liði Celje rekur hins vegar hvert nautið annað og skyttum þeirra gekk vel að skjóta yfir vörn Framara. Björgvin Gústafsson var hreint ekki öfundsverður af hlutverki sínu í marki Fram en hann skilaði sínu og varði oft á tíðum vel í stöð- unni maður á móti manni. Jóhann í banastuði Í sókninni var Jóhann í banastuði og nýtti snerpu sína vel með gegn- umbrotum. Hægri vængurinn var óvenju daufur hjá Fram og hinn knái Sigfús Sigfússon átti erfitt uppdrátt- ar á miðjunni. Línumaðurinn Har- aldur Þorvarðarson var hins vegar í essinu sínu og naut þess að slást við tröllvaxna varnarmenn Celje. Í liði Celje Lasko er valinn maður í hverju rúmi og sá þekktasti er Rússinn Edvard Koksarov sem al- mennt er talinn einhver besti vinstri hornamaður heimsins. Þorra Gunn- arssyni gekk vel að halda aftur af honum og Björgvin varði frá honum vítakast. Slíkt gerist ekki á hverjum degi og Koksarov var greinilega orðinn pirr- aður og verður líklega ekki kallaður Íslandsvinur á næstunni. Vagninn dró hins vegar ungur Hvít-Rússi, Si- arhei Harbok, sem er frábær skytta og var keyptur til liðsins þegar stór- skyttan Sergei Rutenka gerðist sam- herji Ólafs Stefánssonar hjá Ciudad Real. Morgunblaðið/Ómar Fyrirliðinn Guðjón Finnur Drengsson, fyrirliði Framliðsins, sækir að tveimur leikmönnum Celje Lasko. ÍSLANDSMEISTARAR Framara í handknattleik karla létu leikmenn slóv- enska stórliðsins Celje Lasko finna til tevatnsins er liðin mættust í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í Framheimilinu á laugardag. Framarar mega vel við una þrátt fyrir þriggja marka tap, 33:30, enda hefur Celje tvívegis staðið uppi sem sigurvegari í keppninni þannig að Framarar voru ekki að mæta neinum aukvisum. Góður leikur Fram dugði skammt gegn Celje Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is VIGGÓ Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, verður lengur við stjórn- völinn hjá þýska liðinu Flensburg en til stóð í upp- hafi. Ákveðið var í gær að hann yrði fram að vetr- arfríinu sem gefið verður vegna heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi. „Ég verð einum mánuði lengur en upphaflega var rætt um. Það þýðir að ég verð hér fram að ára- mótum, en síðustu leikirnir fyrir vetrarfrí eru 23., 26. og 30. desember,“ sagði Viggó í samtali við Morgunblaðið í gær. Þegar Viggó tók við þjálfun liðsins í haust var það gert vegna veikinda Svíans Kents-Harry And- Viggó verður leng BJÖRGVIN Gústavsson varði tuttugu skot í marki Fram og segir að liðið geti unnið Sandefjord á heimavelli: ,,Þetta er alveg mennskir menn hjá Celje þó þeir séu kannski að- eins skotfastari en maður á að venjast í deildinni hér heima. Það er ekkert sem mað- ur á ekki að ráða við. Ef maður kortleggur hvar þeir vilja helst skjóta þá á maður að klára sig gegn þeim,“ sagði Björgvin eftir leikinn við Celje. „Ákvarðanatakan í þessu liði er hins vegar mjög góð og þeir eru svo agaðir að þeir reyna aldrei erfið skot. Maður fær alltaf góð skot á sig og það er öðruvísi en hér heima. Í síðustu leikjum hefur okkar vandamál verið að við klárum sókn- irnar okkar ekki nægilega vel. Það breyttist í dag og það var mjög já- kvætt. Við ættum klárlega að geta unnið Sandefjord en markatala í innbyrðis viðureignum mun þá gilda varðandi áframhaldið.“ Planið er að vinna Sandefjord Björgvin Gústafsson FRAMARAR skoruðu sjö marka sinna gegn Celje Lesko með lang- skotum og önnur sjö komu af lín- unni. Jóhann G. Einarsson skoraði síðan sjö mörk úr vítaköstum. Fjög- ur mörk Fram komu eftir gegn- umbrot, þrjú úr hornunum og tvö eftir hraðaupphlaup. Svona skor- aði Fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.