Morgunblaðið - 23.10.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 23.10.2006, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Það hefur mikið verið talað um markaþurrð Shevchenko, sem skor- aði gríðarlega mikið fyrir AC Milan á Ítalíu áður en hann var keyptur til Chelsea í sumar fyrir metfé. Hann hafði aðeins gert eitt mark fyrir fé- lagið fyrir leikinn í gær, þegar Chelsea tapaði 2:1 þann 23,. ágúst fyrir Middlesbrough. En hann var heitur á laugardaginn, skoraði fallegt mark eftir fyrirgjöf frá Arjen Robben og eitt mark var dæmt af honum vegna rangstöðu. Síðan átti hann tvö fín skot sem David James í marki Portsmouth varð að hafa sig allan við að verja. „Hann hefur verið að bæta sig mik- ið og verður betri með hverjum leikn- um og það hlaut að koma að því að hann skoraði. Hann hefur komið sér í færi en verið „óheppinn“ eða að markverðirnir hafa varið frábærlega frá honum. Sú var raunin í fyrri hálf- leik þegar James varði meistaralega frá honum í tvígang,“ sagði Jose Mo- urinho, stjóri Chelsea ánægður með sinn mann eftir leikinn. „Maður hafði á tilfinningunni að þetta ætlaði að verða enn einn leikurinn þar sem hann væri nærri því að skora en tæk- ist það ekki. En svo kom þetta fína mark,“ sagði Mourinho. Ballack með sitt fyrsta mark Síðara mark Chelsea kom aðeins tveimur mínútum eftir að Shevc- henko skoraði. Ballack gerði það og fagnaði vel enda fyrsta mark hans fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni. Bal- lack skallaði í netið eftir fína send- ingu frá Didier Drogba. Benjani Mwaruwari minnkaði síðan muninn á 69. mínútu en lengra komust gestirn- ir ekki. Hilario var í marki Chelsea þar sem Carlo Cudicini er ekki búinn að jafna sig eftir að hann rotaðist í leik liðsins við Reading um síðustu helgi og Petr Cech er enn á sjúkrahúsi eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í sama leik. Mourinho. Cech vill í markið sem fyrst Hann sagðist hafa rætt við Cech á föstudaginn. „Honum fer mikið fram og það hefði ekki komið á óvart þó hann hefði lítinn áhuga á fótbolta en hann er strax farinn að tala um að komast í markið hjá okkur sem fyrst,“ sagði Mourinho. Portsmouth var betra liðið framan af leik og var stjóri Chelsea sammála því: „Þetta var erfiður leikur enda lékum við hörkuleik í vikunni við Barcelona. Portsmouth er með gott lið og þeir gerðu okkur lífið erfitt í upphafi. Við fengum samt færi og hefðum náð að skora ef David James hefði ekki verið í markinu hjá þeim. Hann átti frábæran leik. Á heildina þá hefðum við átt að gera út um leik- inn fyrr, en ég kvarta ekki. Sigur er sigur,“ sagði stjórinn. Dómarinn ekki góður Hann kvartaði samt yfir því að dómarinn skyldi bóka markaskorara sína fyrir að fagna. „Ég skil ekki hvers vegna dómarinn bókaði marka- skorara okkar. Hann dæmdi leik Ars- enal og Charlton þar sem Robin van Persie stökk yfir auglýsingaskilti til að fagna með áhorfendum og það þótti honum í lagi. Þeir sem skoruðu fyrir okkur eru báðir nýir leikmenn og því miklar tilfinningar sem fylgja því að skora fyrir sitt nýja félag. En þá sá dómarinn ástæðu til að sýna þeim gula spjaldið. Mér fannst dóm- arinn ekki góður í dag og hann dæmdi á móti okkur allan leikinn, tók af okkur tvö mörk, sem ég held nú samt að hafi verið rétt hjá honum,“ sagði Mourinho. Everton að hlið Portsmouth Everton læddi sér að hlið Portsmo- uth með því að leggja Sheffield Unit- ed 2:0 á Goodison Park. Mikel Arteta gerði fyrra markið með skalla strax á 13. mínútu eftir fyrirgjöf frá Phil Ne- ville. Síðara markið kom á 32. mínútu og það gerði James Beattie úr víta- spyrnu sem dæmd var á Claude Dav- is fyrir brot á Andy Johnson. „Mér fannst þetta alls ekki vera vítaspyrna. Claude Davis er mjög fljótur og hann komst fram fyrir pilt- inn sem sá að hann kæmist ekkert gegn Davis og létt sig detta,“ sagði Neil Warnock, stjóri Sheffield eftir leikinn. Shevchenko í gang NÝJU mennirnir í liði Chelsea, Andry Shevchenko og Michael Bal- lack tryggðu meisturum Chelsea sigur á Harry Redknapp og piltum hans í Portsmouth þegar liðin mættust á Stamford Bridge á laug- ardaginn. Mörk Chelsea komu með tveggja mínútna millibili í síðari hálfleik en gestirnir náðu að minnka muninn fyrir leikslok. Þetta var fyrsta mark Þjóðverjans Ballacks í ensku úrvalsdeildinni, en markaskorarinn mikli, Shevc- henko, hafði gert eitt mark fyrir sitt nýja félag. Reuters Loksins Andry Shevchenko fagnar langþráðu marki sínu fyrir Chelsea ásamt Didier Drogba. Nýju mennirnir hjá meisturunum, Shevchenko og Ballack, gerðu mörk Chelsea þegar liðið lagði „spútniklið“ Portsmouth á Stamford Bridge Didier Zokora, miðjumaðurenska knattspyrnuliðsins Tott- enham Hotspur, er úr leik í bili þar sem hann hefur greinst með hita- beltissjúkdóminn malaríu. Zokora er 25 ára lands- liðsmaður Fíla- beinsstrand- arinnar og lék með Genk og Beveren í Belgíu en síðan St. Eti- enne í Frakk- landi og var keyptur þaðan til Tottenham í sumar. Hann hefur spilað alla átta leiki Tottenham í úr- valsdeildinni á þessu tímabili, sex þeirra í byrjunarliði.    Rio Ferdinand, miðvörður Man-chester United, segir að mál sé komið til að félög og knatt- spyrnumenn sem staðin verða að því að leikmenn eða stuðningsmenn sýni andstæðingum sínum fordóma vegna kynþáttar verði beittir þung- um sektum og leikbönnum. Því mið- ur sé tekið á kynþáttafordómum á knattspyrnuvöllum í Evrópu með silkihönskum.    Lauren, landsliðsmaður Kamer-ún, sem leikur með Arsenal, verður ekki klár í slaginn fyrr en á nýju ári. Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, segir að Laur- en verði í fyrsta lagi tilbúinn að leika í janúar, en hann hefur verið frá keppni í nær ár. „Hann hefur lagt hart að sér við æfingar og er all- ur að koma til,“ sagði Wenger, sem spurður hvort Lauren kæmi aftur í liðið – hvort Emannuel Eboue væri ekki hægri bakvörður númer eitt. „Það á enginn fasta stöðu í liðinu. Sá leik- maður sem leikur næsta leik – er hægri bakvörður númer eitt.“    Arsene Wenger var í sjöundahimni eftir sigurleikinn gegn Reading og sagði að leikmenn sínir hefðu leikið stórgóða knattspyrnu og hefðu átt að skora fleiri mörk en fjögur, 4:0. „Við höfum sett stefnuna á að verða Englandsmeistarar og leikmenn mínir eru ákveðnir í að halda áfram á sömu braut,“ sagði Wenger og sparksérfræðingar í Englandi áttu varla orð til að lýsa leik Arsenal, þar sem leikmenn liðs- ins tóku öll völd og sýndu oft á tíðum stórkostlega knattspyrnu. Stuðn- ingsmenn Arsenal voru í miklu stuði á leiknum og sungu; „Hafið þið séð Chelsea leika eins og okkar menn gerðu?“    Wenger, sem varð 57 ára ásunnudaginn, sagðist ekki geta beðið um betri afmælisgjöf frá leikmönnum sínum en knattspyrn- una sem þeir sýndu honum. „Við er- um komnir á góða siglingu – lékum vel og skoruðum frábær mörk. Það var stórkostlegt að sjá knöttinn hafna í netinu hjá Reading eftir að- eins eina mínútu. Eftir það vissi ég að eftirleikurinn yrði auðveldur,“ sagði Wenger, sem sagði eftir leikinn að hann ætlaði sér að halda upp á daginn með því að horfa á meiri knatt- spyrnu – til dæmis leik Real Madrid og Barcelona. Einnig þætti um mörkin sem hafa verið skoruð í Evr- ópu um helgina. „Ég verð í stöðugri veislu fram eftir kvöldi,“ sagði Wen- ger, sem hugsar aðeins um eitt, eins og sparksérfræðingar segja – knatt- spyrnu! Fólk sport@mbl.is BOLTON er áfram í þriðja sætinu eftir sigur á Blackburn á útivelli, 1:0, þar sem Jussi Jaaskelainen markvörður Bolton varði tvær víta- spyrnur. Bolton er sem fyrr tveim- ur stigum á eftir Manchester Unit- ed og Liverpool og þremur stigum á undan Arsenal. Spánverjinn Ivan Campo tryggði Bolton sigurinn í Blackburn en hann skoraði sigurmarkið á 62. mínútu. Eftir það voru dæmdar tvær vítaspyrnur á Bolton en Ja- askelainen varði báðar, fyrst frá Benni McCarthy og síðan frá Jason Roberts. Blackburn átti 25 mark- skot, þar af 17 sem hittu á markið hjá Jaaskelainen, en Bolton átti 8 markskot. West Ham United mátti þola enn einn ósigurinn í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gær þegar liðið tapaði, 1:0, fyrir Tottenham á White Hart Lane. West Ham situr sem fastast í næst neðsta sæti deild- arinnar og hefur ekki unnið leik í tvo mánuði. Egyptinn Ahmed Mido sem skoraði mark Tottenham Hotspur á lokasekúndum fyrri hálf- leiks. Varði tvær vítaspyrnur ASTON Villa er enn eina liðið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem ekki hefur tapað leik það sem af er deildinni. Villa tók á móti Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham á laugardaginn og náðu heimamenn á Villa Park forystu á 25. mínútu með marki Gareth Barry úr vítaspyrnu sem dæmd var á Liam Rosenior fyrir að fella Stili- an Petrov. Moritz Volz jafnaði fyrir Fulham á síðustu mínútu fyrri hálf- leiks og við það sat. Heiðar Helguson var á vara- mannabekk Fulham allan leikinn en aðeins var gerð ein breyting hjá Fulham, Colins John kom inn fyrir Brian McBrida á 72. mínútu. Villa er með 15 stig en liðið hefur gert flest jafntefli allra liða í deild- inni, sex talsins. Watford kemur þar á eftir með fimm jafntefli. Villa enn taplaust

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.