Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 9

Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 9 HaraldurFreyr Guð- mundsson og fé- lagar í Aalesund tryggðu sér í dag sæti í norsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu eftir eins árs fjarveru þegar þeir sigr- uðu Bodö/Glimt á útivelli, 2:0. Har- aldur, sem er 25 ára Keflvíkingur, hefur verið í byrjunarliði Aalesund í öllum leikjum tímabilsins og þótt einn besti maður liðsins. Ströms- godset og Aalesund eru komin upp en Bryne, Bodö/Glimt og Hönefoss bítast um þriðja sætið sem gefur rétt á aukaleikjum við þriðja neðsta lið úrvalsdeildar.    Grétar Rafn Steinsson lék meðAlkmaar er liðið mátti þola tap fyrir PSV Eindhoven á heimavelli í hollensku 1. deildar keppninni. Jó- hannes Karl Guðjónsson kom ekki við sögu – sat á varamannabekkn- um.    Þriðji landsliðsmaðurinn, ArnarÞór Viðarsson, sat einnig á varamannabekknum og kom ekki inn á hjá Twente, sem vann Excelsi- or örugglega, 4:1.    Leikmenn Pa-lermo komu heldur betur á óvart þegar þeir skelltu leik- mönnum AC Mil- an að velli á San Siro-leikvang- inum í Mílanó í gærkvöldi, 2:0. Þar með skutust þeir á toppinn upp að hlið Inter Mílanó, þar sem Inter varð að sætta sig við jafntefli, 0:0, gegn Udinese. Inter og Palermo eru með 15 stig en Roma er í þriðja sæti á Ítalíu með 13 stig. AC Milan, sem hóf keppnistímabilið með átta stig í mínus, er í einu af neðstu sætunum með fjögur stig. Palermo vann sinn fimmta sigur í sjö leikjum. það var Ástralinn Mark Bresciano sem kom þeim á bragðið með margi fljótlega eftir leikhlé. Þessi sókndjarfi miðjumaður þrum- aði knettinum glæsilega fram hjá brasilíska markverðinum Dida. Eftir það hafnaði knötturinn tvisvar sinnum á tréverkinu á marki Sikileyjarliðsins – eftir skot frá Kaka og Andrea Pirlo. Það var leikmenn Palermo sem bættu marki við. Það gerði Amauri á 74 mín., eft- ir að Dida hafði varið skot frá Bres- ciano.    Carlo Ancelotti, þjálfari AC Mil-an, sagði að lið sitt hafi leikið vel í fyrri hálfleik. „Við vorum síðan óheppnir að skora ekki mörk.“ Fólk sport@mbl.is Aldrei hafa fleiri áhorfendur verið á Old Trafford en að þessu sinni, alls 75.828. Leikmenn hafa þó oft áður leikið betur en að þessu sinni en frammistaða dugði mjög rúm- lega til þess að leggja hugmynda- snauða leikmenn Liverpool sem náðu sér aldrei á strik. Vaxandi sjálfstraust í liðinu „Það er vaxandi sjálfstraust í mínu liði og það er góðs viti,“ sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, glaður í bragði þegar flautað hafði verið til leiksloka á Old Trafford. „Sjálfstraustið eykst með hverj- um leik og margir ungu leikmann- anna hafa svo sannarlega bætt sig mikið frá því að keppnistímabilið hófst,“ sagði Ferguson sem ekki gat teflt fram Christiano Ronaldo vegna veikinda. Þá eru Gabriel Heinze and Mikael Silvestre enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla. „Sem betur fer hefur það sannast hjá okkur að það kemur maður í manns stað og þeir ungu menn sem hafa tekið við hlutreki þessara þriggja hafa staðið sig frábær- lega,“ sagði Ferguson og bætti við. Höfðum ekki efni á að tapa „Við vissum það fyrir leikinn að við hefðum ekki efni á því að tapa ef við ætlum okkur að vera áfram í baráttunni við Chelsea,“ sagði Ferguson sem laut sérstöku lofs- orði á miðvallarleikmenn sína sem hann sagði hafa verið framúrskar- andi. Ferguson sagði það hafa verið ánægjulegan áfanga fyrir Scholes að skora í sínum 500. leik fyrir Manchester United. „Ég er afskap- lega ánægður fyrir hönd Scholes og þeirri staðreynda að hann náði að skora gegn erkifjendum okkar í þessum áfangaleik á hans ferli. „Frammistaða okkar var alveg viðunandi en þetta var langt frá því að vera okkar besti leikur á keppn- istímabilinu,“ sagði Schoels og var að sjálfsögðu himinlifandi yfir markinu í 500. leiknum. „Sigurinn skipti okkur mestu máli og hrista þá af okkur, alltjent í bili um leið og okkur lánast að halda í við Chelsea,“ sagði Paul Scholes og lét sér hvergi bregða í leikslok enda marga fjöruna sopið á knattspyrnuferlinum. „Það er rosalega sárt að tapa leikjum, ekki síst gegn Manchester United. Þeirri staðreynd fáum við ekki breytt héðan af. Eina sem við getum gert er að draga lærdóm af þessum leik,“ sagði Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Livepool, von- svikinn í leikslok á Old Trafford. „Við vörðumst vel í fyrri hálfleik og voru í heildina séð í nokkuð góð- um málum, en síðan verða mistök og þá var okkur harðlega refsað. Við því er ekkert að gera menn gera alltaf einhver mistök í leikj- um, hjá því verður ekki komist,“ sagði Benítez niðurlútur. Hann fór afar varlega í að gang- rýna menn sína í leikslok en ljóst að hvorki hann né stjórnendur fé- lagsins geta verið ánægður um þessar mundir, hvorki með þennan tiltekna leik né stöðuna í deildinni sem er langt undir þeim vænting- um sem gerðar eru þessa sigursæla félags. Liverpool hefur aðeins skorað eitt mark á útivelli í ensku úrvals- deildinni á keppnistímabilinu og það var gert úr vítaspyrnu. Það þjónar engum tilgangi að skamma menn eða að gagnrýna þá harðlega opinberlega. Leikmenn mínir leggja hart að sér bæði á æf- ingum og í leikjum og því er ekki hægt að skammast við þá. Hjá mis- tökum verður aldrei hægt að kom- ast, hversu hart sem þú leggur þig fram við æfingar. „Við höfum oft átt þokkalega tækifæri í leikjum okkar á útivelli en ekki tekist að fá neitt af opnum færum. Þar liggur vandinn meðal annars,“ sagði Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool. Metfjöldi áhorfenda á Old Trafford, 75.828, sá Man.United leggja Liverpool Reuters Gleði Paul Scholes, til hægri, fagnar marki sínu ásamt samherja sínum Darren Fletcher, en þetta var 500. leikur Scholes. Scholes hélt upp á 500. leikinn á viðeigandi hátt MANCHESTER United end- urheimti í gær efsta sæti ensku úr- valsdeildarinnar með verðskuld- uðum sigri á Liverpool á Old Trafford, 2:0, með mörkum frá Paul Scholes og Rio Ferdinand, eitt í hvorum hálfleik. Scholes hélt þar með upp á 500. leik sinn fyrir félag- ið á viðeigandi hátt með því að koma sínu liði yfir þegar langt var liðið á fyrri hálfleik. Liverpool tap- aði í fjórða sinn í fyrstu níu umferð- unum og er í 11. sæti með 11 stig. ENSKA dagblaðið The Observer fullyrðir í gær að enska knattspyrnufélagið West Ham hafi neitað Eggerti Magnússyni um að skoða bókhald sitt en hins vegar veitt hinum íranska Kia Joorabchian heimild til þess sama. Eins og kunnugt er fara þeir tveir fyrir hópum fjárfesta sem hafa hug á að kaupa West Ham. Eggert er reyndar sagður formaður finnska knatt- spyrnusambandsins í frétt blaðsins. Áður hefur komið fram í enskum fjöl- miðlum að Terry Brown, stjórn- arformaður West Ham, vilji selja Joorabchian meirihluta í félaginu en að baki honum stendur ísraelskur auðkýf- ingur. Brown vilji síðan vera með Eggert og félaga til taks ef ekki takist samningar við Joorabchian. Hann vill því að- eins hafa Eggert og félaga á varamannabekknum á meðan viðræður standa yfir við Joorabchian og þá sem með hon- um eru. West Ham vill hafa Eggert til vara Eggert Magnússon GARÐAR Gunnlaugsson skoraði þrennu fyrir Norrköping í lokaumferð sænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu á laugardag- inn, í stórsigri á Qviding, 5:1. Stefán Þ. Þórðarson skoraði fyrsta mark Norrköping og lagði eitt upp fyrir Garðar sem skoraði þrennuna á 19 mínútna kafla í síðari hálfleik. Þeir fé- lagarnir skoruðu þar með ellefu af þeim þrettán mörkum sem liðið gerði í síðustu þremur umferðum deildarinnar, Garðar sex og Stefán fimm. Stefán varð markahæsti leikmaður Norrköping á tímabilinu með 12 mörk í deildinni og Garðar kom næstur með 10. Stefán lék 26 af 30 leikjum liðsins en Garðar aðeins 14 en hann kom til félagsins frá Val í lok júlí. Stefán varð sjötti markahæsti leik- maður 1. deildar og Garðar endaði í 9. sæti á markalistanum. Framlag þeirra dugði þó ekki til að koma Norrköping upp í úrvalsdeildina. Þrátt fyrir frábæran endasprett hafnaði liðið í fjórða sæti, þremur stigum á eftir Brommapojkarna, sem spilar aukaleiki við þriðja neðsta lið úrvalsdeildar um sæti þar. Trelle- borg og Örebro enduðu í tveimur efstu sætunum og fóru beint upp. Garðar og Stefán á skotskónum í Svíþjóð ÍVAR Ingimarsson, Brynjar Björn Gunn- arsson og samherjar þeirra hjá Reading áttu ekki möguleika gegn léttleikandi liði Arsenal. Leikmenn Lundúnarliðsins léku sér af þeim eins og köttur af mús og unnu stórsigur, 4:0. Thierry Henry skoraði tvö mörk, Alexander Hleb og Robin van Persie eitt hvor. Steve Coppell, þjálfari Reading, sagði að sínir menn hefðu ekkert haft að gera í leikmenn Arsenal. „Þeir léku frábæra knattspyrnu – hraða og ógnandi. Við áttum ekkert svar við leik þeirra.“ Leikmenn Arsenal, sem áttu í erfiðleikum með að skora í þremur fyrstu leikjum sínum – náðu aðeins tveimur stigum úr þeim, þrátt fyrir að hafa ráðið ferðinni í þeim öllum, hafa unn- ið fimm leiki í röð og koma í humátt á eftir toppliðunum Man- chester United og Chelsea. Sparksérfræðingar á Englandi segja að framundan sé spennandi meistarabarátta á milli þessara þriggja liða. Leikmenn Arsenal fóru á kostum Thierry Henry

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.