Morgunblaðið - 23.10.2006, Side 12

Morgunblaðið - 23.10.2006, Side 12
12 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Jakob Sigurðsson og félagar íspænska liðinu Vigo töpuðu enn og aftur á föstudagskvöldið þegar þeir tóku á móti Provincia de Pa- lencia í 2. deildinni. Lokatölur urðu 72:87 og gerði Jakob sex stig, en hann lék stóran hluta af leiknum. Liðið hefur nú tapað fimm af sex leikjum sínum í deildinni.    Jón ArnórStefánsson gat ekkert leikið með Valencia vegna meiðsla þegar liðið sótti Fuenlabrada heim í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær. Valencia tapaði leiknum, 78:60. Jón Arnór meiddist í leik fyr- ir viku og eftir því sem næst verður komið spilar hann ekki með liði sínu næstu þrjár vikur af þeim sökum.    Damon Johnson skoraði 3 stigþegar lið hans L’Hospitalet tók á móti Basket Cai Zaragoza í spænsku 1. deildinni í körfuknatt- leik í gær. Damon og samhejar töp- uðu 73:82.    Hörður Axel Vilhjálmsson skor-aði 5 stig fyrir Dunas Hotels Gran Canaria þegar liðið tapaði á útivelli fyrir Real Canoe Natación Club, 72:94, í spænsku 3.deildinni í körfuknattleik í gær.    Logi Gunnarsson og félagar íToPo í Finnlandi heimsóttu Componenta á laugardaginn og töp- uðu 96:83. Logi átti fínan leik og var stigahæstur í liðinu ásamt tveimur öðrum leikmönnum, en hver um sig gerði 20 stig. Logi hitti úr 6 af 12 þriggja stiga skotum sínum í leikn- um.    Pavel Ermolinski og félagar hansí Axarquia í 2. deildinni á Spáni, tapaði fyrir Ourense Balon- cesto á útivelli um helgina. Lokatöl- ur urðu 77:59 og gerði Pavel tvö stig en hann lék í 16 mínútur.    Íslenskakvennalands- liðið í golfi endaði í 33. sæti af 42 sveitum á Evr- ópumóti áhuga- manna sem lauk um helgina í Suð- ur-Afríku. Ís- lensku stelp- urnar léku illa á lokadeginum, Tinna Jóhannsdóttir var á 80 högg- um eða 8 fyrir pari, Nína Björk Geirsdóttir var á 81 höggi og Anna Lísa Jóhannsdóttir á 82. Suður- Afríka sigraði á tíu höggum undir pari í heildina rétt eins og Svíar, sem áttu titil að verja.    Jermaine Williams, bandaríksiframherjinn hjá Keflavík, var besti leikmaður fyrstu umferða Ice- land Express deildar karla í körfu ef mið er tekið af tölfræði umferð- arinnar. Hann fékk 33 í einkunn á leikvarpinu. Hlynur Bæringsson úr Snæfelli varð annar og jafnir þar á eftir voru Páll Axel Vilbergsson úr Grindavík og Robert Hodgson hjá Þór í Þorlákshöfn.    Víkingarnir Matthías Stephensenog Magnea Ólafs urðu sig- urvegarar í Adidas stigamótinu í borðtennis, sem fór fram í TBR- húsinu um helgina. Matthías vann félaga sinn Magnús K. Magnússon í spenn- andi úrslitaviðureign, 3:2. (11:5, 11:8, 7:11, 9:11, 11:6). Magnea vann KR-inginn Auði T. Aðalbjarn- ardóttur í úrslitaleik 3:1. (8:11, 11:7, 11:8, 11:7). Fólk sport@mbl.is Haukastelpur byrjuðu betur og héldu frumkvæðinu lengstum í fyrri hálfleik og Valsstelpur komust að- eins einu sinni yfir, 5:6, eftir tíu mín- útna leik. En Haukastelpur náðu hins vegar aldrei neinum afgerandi tökum á leiknum og leiddu með tveimur mörkum í leikhléi, 17:15. Þær náðu svo mest þriggja marka forskoti en gestirnir frá Hlíðarenda neituðu að hleypa þeim lengra frá sér. Valsstelpur jöfnuðu metin 24:24, þegar tíu mínútur voru eftir og loka- kaflinn var síðan æsispennandi. Þeg- ar fimm mínútur voru eftir var stað- an jöfn, 26:26, en það var Brynja Steinen sem skoraði síðasta mark leiksins með góðu gegnumbroti þeg- ar ein mínúta var eftir, og þá voru Valsstelpur einum leikmanni færri. Haukastelpur fengu gott tækifæri til þess að jafna þrettán sekúndum síð- ar en þá gerði áðurnefnd Jolanta sér lítið fyrir og varði vítakast frá Ram- une Pekarskyte. Í síðustu sókn leiks- ins átti Brynja misheppnað skot þeg- ar fjórtán sekúndur voru eftir, í þann mund sem dómararnir voru að fara að dæma leikleysu, og boltinn fór lengst út af. Einhverra hluta vegna stöðvuðu dómarar leiksins ekki leik- klukkuna og Haukastelpur fengu ekki tækifæri til þess að jafna. Skrýtið og ósanngjarnt. Eins og við var að búast ruku allir Haukarar upp til handa og fóta, blótuðu dómurun- um í sand og ösku, en Valsararnir fögnuðu innilega sigrinum og topp- sætinu. En á hinn bóginn var sigur Vals- stelpna síður en svo ósanngjarn því liðið var oft og tíðum að leika prýði- legan handbolta. Sóknarleikur liðs- ins var fjölbreyttur enda er breidd liðsins afar góð. Þá var vörnin sterk og grimm, allt að því gróf. En auðvit- að spila liðin eins fast og dómararnir leyfa þeim að komast upp með og Haukastelpur tóku líka á því í vörn- inni og létu finna fyrir sér. Á tímabili var leikurinn við það að leysast upp í slagsmál og áttu dómararnir í hinu mesta basli með stjórnina. Valsliðið getur spilað mjög hraðan handbolta og hann fer liðinu vel og þegar þetta lið dettur í stuð er það illviðráðan- legt. Markvarslan var góð og þá sér- staklega hjá Jolanta og ekki ónýtt að eiga slíkan varamarkvörð. Síðan var Ágústa Edda Björnsdóttir virkilega góð og gamla brýnið Alla Georgijs- dóttir sýndi að hún er langt í frá dauð úr öllum æðum. Leikur Haukastelpna var tilviljun- arkenndari en hjá Val og einstak- lingsframtakið oft fullfyrirferðar- mikið. Leikkerfi áttu það til að ganga illa upp og þá var það ekki til að bæta úr skák að landsliðsmarkvörðurinn Helga Torfadóttir fann sig engan veginn. Það sem hins vegar gerði það að verkum að Haukaliðið var yfir lengstum og nálægt því að ná jafn- tefli, jafnvel sigri, var góður leikur nokkurra lykilleikmanna. Ramune stendur alltaf fyrir sínu og ekki auð- velt að koma í veg fyrir að hún fái sín skot. Sandra Stojkovic skoraði tíu mörk og hér er á ferðinni klók skytta; hún skýtur nú ekki mjög fast en skot hennar eru nákvæm og hún virðist „lesa“ markverði vel. Í heildina séð buðu leikmenn Hauka og Vals upp á þrælgóðan, skemmtilegan, hraðan, spennandi og mjög svo harðan leik þar sem dóm- gæslan var því miður ekki í sama gæðaflokki þótt hún hafi alls ekki verið alslæm. En við búum við það hér á Íslandi að mörg óreynd dóm- arapör fá nú í vetur mikla ábyrgð og þau hljóta að læra mikið í svona leik, eða það skulum við rétt vona. „Þetta var alvöruslagur“ Ágústa Edda Björnsdóttir, leik- maður Vals, átti mjög góðan leik en hún var nánast í keng þegar blaða- maður Morgunblaðsins náði af henni tali skömmu eftir leik en hún hlaut þungt högg á síðuna seint í síðari hálfleik. „Þetta var alvöruslagur eins og eiginlega alltaf þegar við mætum Haukum. Það er ávallt barist af mik- illi hörku og ekkert gefið eftir. Við enda bjuggum okkur undir harðan leik en vissum samt ekki alveg hvar við stóðum. Hálft liðið hjá okkur er búið að liggja í flensu og því vissum við að þetta yrði sérstaklega erfitt. Hins vegar gleymdu allir leikmenn flensunni þegar í leikinn var komið; gáfu allt sem þeir áttu, fórnuðu sér hreinlega enda fáum við vikufrí núna, og uppskárum góðan sigur. Það var mikil harka í þessum leik og Haukavörnin hefur nú verið þekkt fyrir að berja hraustlega frá sér í gegnum tíðina en við gáfum þeim ekkert eftir í þeim efnunum og dóm- aragreyin höfðu í nógu að snúast. En þetta var virkilega mikilvægur sigur hjá okkur eftir frekar lélega byrjun á mótinu,“ sagði Ágústa Edda. „Komið út í tóm slagsmál“ Hanna Guðrún Stefánsdóttir, leik- maður Hauka, var ekki ánægð með niðurstöðuna eins og gefur að skilja: „Það var barist hart í þessum leik og þetta var á tímabili komið út í tóm slagsmál og læti, en á það ekki að vera þannig?“ spyr Hanna og hlær. Hún bætti þessu við: „Við spiluðum ágæta vörn í fyrri hálfleik og í það heila gekk þetta ekkert illa hjá okk- ur. Það sem hins vegar gerði gæfu- muninn var að við fengum enga markvörslu en þær voru hins vegar með mjög góða markvörslu. Það er bara of mikið að lenda í slíku og gerir allt svo miklu erfiðara. Síðan vorum við reyndar alltof oft seinar til baka úr sókninni, skokkuðum til baka, snerum jafnvel á sex metrunum og það er bara ekki þannig sem á að gera þetta. Síðan var auðvitað mjög svekkjandi að fá ekki tækifæri á að jafna, ég skil ekki af hverju dómar- arnir stöðvuðu ekki leikklukkuna, þetta er bara eins og þegar boltinn fer upp í stúku, þá á að stöðva tím- ann,“ sagði Hanna Guðrún Stefáns- dóttir. Morgunblaðið/Ómar Ég skal Brynja Steinsen er hér komin framhjá varnarmönnum Stjörnunnar og ef marka má svipinn ætlar hún sér að skora. Jolanta kom Valsliðinu í toppsætið VALSSTELPUR unnu góðan úti- sigur á Haukastelpum í gærkvöldi í hörðum, skemmtilegum og spenn- andi leik. Lokatölur á Ásvöllum urðu 26:27 þar sem varamarkvörð- ur Vals, Jolanta Slapikiene, átti frá- bæra innkomu í síðari hálfleik og gerði í raun gæfumuninn fyrir lið sitt. Eftir þennan sigur vermir Val- ur toppsæti deildarinnar með níu stig eftir sex leiki en Haukar eru í sjötta sæti með sex stig eftir fimm leiki. Eftir Svan Má Snorrason Morgunblaðið/Ómar Lögð á ráðin Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals leggur stúlkunum línurnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.