Morgunblaðið - 02.11.2006, Page 6

Morgunblaðið - 02.11.2006, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÝLIÐINN októbermánuður var samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofunni mjög nærri meðallagi með tilliti til hitastigs. Meðalhiti í Reykjavík mældist þannig 4,8 stig og er það 0,4 stigum ofan með- allags. Á Akureyri var meðalhitinn 3,5 stig og er það 0,5 stigum ofan meðallags. Á báðum stöðunum var úrkoma talsvert fyrir ofan með- allag. Ef breskar og bandarískar lang- tímaspár ganga eftir má búast við áframhaldandi hlýindum um allt land næstu þrjá mánuði og úr- komu yfir meðallagi suðvest- anlands. Samkvæmt upplýsingum frá Einari Sveinbjörnssyni veð- urfræðingi gera langtímaspár ann- ars vegar frá Evrópsku reiknimið- stöðinni í Redding í Bretlandi og hins vegar frá Columbiaháskóla í New York ráð fyrir því að næstu þrjá mánuði verði hitinn hérlendis í efsta þriðjungi meðaltals. „Sam- kvæmt þessu er líklegast að það verði nokkru hlýrra en að með- allagi um allt land,“ segir Einar og bendir á að samkvæmt bresku spánni séu verulegar líkur á að úr- koman hérlendis næstu þrjá mán- uði verði í efsta þriðjungi um sunn- anvert landið, en ekki fjarri meðallaginu annars staðar. „Að samanlögðu segir þetta okk- ur að sunnan- og suðaustanátt verði meira ríkjandi en í meðalári með hlýindum og vætu sunnantil, en þá minna um norðlægar áttir með kulda úr norðri,“ segir Einar og tekur fram að þessar spár segi ekkert til um veðrið frá degi til dags eða viku til viku, heldur al- mennt hvernig tíðarfari er spáð þessa þrjá vetrarmánuði. „Þótt þessi spá sé að grunni til tiltölulega hlý útilokar hún þó alls ekki kalda norðanáttarkafla sem koma vafalítið inn á milli hlýind- anna.“ Hægt er að lesa sér nánar til um langtímaspárnar í hugleiðingu Einars á bloggsíðu hans sem finna má á slóðinni: http://esv.blog.is. Fremur hlýr október Líkur á að hiti og úrkoma verði yfir meðallagi næstu þrjá mánuði Morgunblaðið/Ómar Tíðarfarið Spár til næstu þriggja mánaða benda til að sunnan- og suð- austanátt verði meir en í meðalári með hlýindum og vætu sunnantil. SENDIHERRA Bretlands, Alph Mehmet, afhenti í gærmorgun ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins mótmælaskjal 25 ríkja og framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins vegna hvalveiða Íslendinga í at- vinnuskyni. Ríkin sem mótmæla eru: Argentína, Austurríki, Ástralía, Belgía, Bandaríkin, Bretland, Brasilía, Chile, Finnland, Frakkland, Holland, Ír- land, Ísrael, Ítalía, Lúxemborg, Mexíkó, Mónakó, Nýja-Sjáland, Perú, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Sví- þjóð, Tékkland og Þýskaland. Morgunblaðið/Ásdís 25 ríki mótmæla hvalveiðum VALGERÐUR Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra tilkynnti í gær að ís- lensk stjórnvöld hefðu ákveðið að opna aðalræðisskrifstofu í Þórs- höfn í Færeyjum með starfsmanni á næsta ári, að uppfylltum öllum formskilyrðum. Þessi ákvörðun var tilkynnt í kjölfar þess að samn- ingur um fríverslun milli Íslands og Færeyja var undirritaður en samningurinn felur í sér að Ísland og Færeyjar verða sameiginlegt markaðssvæði. Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að samningurinn sé sá víð- tækasti um efnahags- og viðskipta- mál sem Ísland hafi gert og taki til vöruviðskipta, þjónustuviðskipta, fjárfestinga og viðskipta með land- búnaðarafurðir. Samkvæmt samningnum skulu íslenskir ríkisborgarar og íslensk fyrirtæki njóta sömu réttinda í Færeyjum og Færeyingar og fær- eysk fyrirtæki. Jafnframt skulu Færeyingar og færeysk fyrirtæki njóta sömu réttinda hér á landi og Íslendingar og íslensk fyrirtæki. Víðtæk frí- verslun við Færeyjar Ræðisskrifstofa verður opnuð Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Rúnar Pálmason ÖKUMAÐUR torfæruhjóls hefur verið sýknaður af ákæru um utan- vegaakstur í Henglinum í júní sl. en dæmdur í 10 þúsund króna sekt fyr- ir að vera ekki með lögboðin skrán- ingarmerki á hjólinu. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem sakborningur er sýknaður af ákæru fyrir utan- vegaakstur en náttúruverndarlög eru frá árinu 1999. Var þetta mál hið fyrsta sem dæmt var í að loknu um- fangsmiklu eftirliti með utanvega- akstri í sumar en fleiri mál bíða af- greiðslu. Lögreglueftirlit með utanvega- akstri úr þyrlu Landhelgisgæslunn- ar var víða í sumar sem leið og komu lögreglumenn auga á manninn í Henglinum. Hann taldi sig í rétti á vegslóða sem þarna var og sagði hann merktan inn á kort sem reið- leið og að auki vera stikaðan, þrátt fyrir að vera hvorki merktan sem reiðleið né sem slóða fyrir vélknúin ökutæki. Hestamenn voru mjög óánægðir með umferð vélknúinna ökutækja og funduðu með sýslu- manninum á Selfossi vegna málsins. Varanlegur slóði í náttúrunni Að mati Héraðsdóms Suðurlands sem skoðaði ljósmyndir sem teknar voru úr þyrlunni úr lofti mátti sjá umræddan slóða greinilega og taldi dómurinn að meta yrði hann sem greinilegan og varanlegan slóða í náttúru Íslands. Ennfremur sagði lögreglumaður sem vitni fyrir dómi að vegslóðinn væri augljós í nátt- úrunni og greinilega ekki nýr. Var maðurinn því sýknaður af þeim hluta ákærunnar sem fjallaði um ut- anvegaakstur en sakfelldur og dæmdur í sekt fyrir númersleysið á hjólinu. Ólafur Helgi Kjartansson segist munu fara vandlega yfir dóminn og forsendur hans og fara þess á leit við ríkissaksóknara að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar ef ástæða þykir. Hjörtur Aðalsteinsson héraðs- dómari dæmdi málið. Sækjandi var Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður á Selfossi. Ákærði varði sig sjálfur fyrir dómi. Frá 2004 hefur umhverfisráðu- neytið unnið að gerð vegakorts sem á að sýna nákvæmlega hvaða slóða má aka. Einar Sveinbjörnsson, að- stoðarmaður umhverfisráðherra, segir að þar sem kortið muni hafa lagagildi verði það ekki gert nema í samvinnu við sveitarfélög og með breytingum á aðalskipulagi þeirra enda fari þau með skipulagsvald. Þetta sé ekki einfalt verk því sam- ráð þurfi að hafa við marga aðila. Sektaður fyrir að vera ekki með lögboðin skráningarmerki Sýknaður af ákæru fyrir ut- anvegaakstur á torfæruhjóli Í HNOTSKURN » Sýknan byggðist á þvíað slóðinn var greini- legur. » Í umferðarlögum eruengin ákvæði um að slóði þurfi að vera merktur til að falla undir skilgreiningu lag- anna á „vegi.“ » Unnið hefur verið aðgerð korts sem á að sýna löglega slóða frá 2004. SÓLVEIG Pétursdóttir sat fund norrænna þingforseta í gær í tengslum við þing Norð- urlandaráðs. Á fund- inum skiptust þing- forsetarnir m.a. á upplýsingum um starfs- aðstöðu fjölmiðlafólks í þjóðþingunum og að- gang þess að þingmönn- um. Þá var rætt um að- stoð við þing í löndum þar sem lýðræðisuppbygging er í gangi og lýsti forseti Alþingis því yfir að Alþingi væri reiðubúið að taka þátt í verkefnum með öðrum norrænum þingum á þessu sviði. Forseti Alþingis sagði frá umræðum um hlerunarmál á Íslandi og kynnti málstað Íslendinga í hvalveiðum. Ennfremur skýrði hún frá undirbúningi að breyt- ingum á ýmsum þáttum þingskapa Alþing- is og væntanlegu skólaþingi. Sat fund nor- rænna þingforseta Sólveig Pétursdóttir SÚ ÁKVÖRÐUN yfirstjórnenda Landspít- ala – háskólasjúkrahúss, að fallast ekki á endurkomu Stefáns E. Matthíassonar yf- irlæknis, í kjölfar dóms Héraðsdóms, veg- ur að grundvallarréttaröryggi allra starfsmanna spítalans. Þá er hún síst til þess fallin að lægja þá sívaxandi úlfúð og vantraust sem gætir vegna stjórnsýslu þessa fjölmenna vinnustaðar. Þetta segir í ályktun stjórnar Lækna- félags Reykjavíkur. Í ljósi þessa eru það eindregin tilmæli stjórnar Læknafélags Reykjavíkur til yfirstjórnenda LSH að Stefán verði settur aftur í fyrra starf öll- um hlutaðeigandi til heilla. Stefán verði aftur settur í fyrra starf ÓKUNNUGUR maður sem tók átta ára telpu upp í bíl sinn við Rauðavatn á sunnudag og ók með hana smáspöl er ófundinn að sögn lögreglunnar. Málið er í rannsókn en það atvikaðist þannig að telpan var ásamt vinkonu sinni á gangi skammt frá Rauðavatni þegar bíl- inn bar að. Telpan fór upp í bílinn en vinkonan varð skelkuð og hrópaði á eft- ir bílnum þegar hann ók á brott. Stöðv- aði maðurinn þá bílinn og hleypti telp- unni út. Sá sem tók telpu upp í bíl ófundinn LÖGREGLAN í Reykjavík hefur sleppt karlmanni úr gæsluvarðhaldi vegna nauðgunarmáls sem kom upp 22. október. Sætir maðurinn grun um að hafa tekið rúmlega tvítuga konu upp í bíl sinni í mið- bænum en í stað þess að aka henni á áætl- unarstað fór hann með hana út fyrir borg- ina og þröngvaði henni til samræðis. Kærði hún nauðgunina samdægurs til lög- reglunnar. Að sögn Harðar Jóhann- essonar yfirlögregluþjóns var ekki talin ástæða til krefjast framlengingar á gæslu- varðhaldinu í þágu rannsóknarinnar, en krafist var farbanns yfir manninum og féllst héraðsdómur á kröfuna. Sætir mað- urinn því farbanni til 13. desember og er málið enn til rannsóknar. Ekki liggur fyrir játning í málinu að sögn Harðar. Sleppt úr haldi en sætir farbanni HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem hefur játað allmarga þjófnaði og fleiri brot þar sem dregist hafði að þingfesta ákæru gegn honum vegna anna hjá Hér- aðsdómi Reykjaness. Ákæra var gefin út 9. október en hún var hins vegar ekki þingfest fyrr en 27. október. Maðurinn var á sínum tíma úr- skurðaður í gæsluvarðhald á þeim grund- velli að hann væri fíkniefnaneytandi í mik- illi neyslu og fjármagnaði neyslu sína með afbrotum. Var það mat lögreglu að mikil hætta væri á því að hann héldi afbrotum áfram meðan málinu væri ólokið. Sleppt vegna tafa hjá dómnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.