Morgunblaðið - 20.11.2006, Side 30
30 F MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sala á lóðum í nýjum áfanga í Leir-
vogstungu í Mosfellsbæ hefst
þriðjudaginn 21. nóvember næst-
komandi. Að þessu sinni eru boðnar
46 lóðir fyrir einnar og tveggja
hæða einbýlishús og raðhús.
„Þessar lóðir eru í hallandi landi
og frá þeim er gott útsýni yfir Leir-
voginn til Reykjavíkur. Þær standa
nærri sjó og svæðið frá þeim og nið-
ur að hafi er friðað þannig að ljóst
er að engar framtíðarframkvæmdir
geta spillt því útsýni sem þaðan er,“
segir Bjarni Sv. Guðmundsson, ann-
ar eigandi Leirvogstungu.
„Lóðir í Leirvogstungu hafa verið
eftirsóttar. Engin fjölbýlishús verða
í hverfinu auk þess sem rýmra er
um lóðir en víða annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu og meira um
falleg, opin, sameiginleg svæði á
milli þeirra. Vandað er til alls frá-
gangs. Áhersla er lögð á leiksvæði,
hellulögð torg, tré og gróður.“
Hverfið í Leirvogstungu er reist á
gamalli bújörð og hefur sama fjöl-
skyldan búið þar í á annað hundrað
ár. Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson
er af fimmta ættlið fjölskyldunnar
og stendur að framkvæmdunum
ásamt konu sinni Katrínu Sif Ragn-
arsdóttur. Faðir Bjarna, Guðmund-
ur Magnússon, tók nú í sumar
fyrstu skóflustunguna að hverfinu
ásamt Herdísi Sigurjónsdóttur
varaforseta bæjar-
stjórnar Mosfellsbæj-
ar. Bjarni og Katrín
hafa fengið til liðs við
sig fagaðila á öllum
sviðum til að aðstoða
við framkvæmdina en
hafa í gegnum allt
ferlið haldið þeirri
meginstefnu að í
Leirvogstungu bygg-
ist upp sérbýlishverfi
sem er í takt við nátt-
úruna og umhverfið.
Á heimasíðunni www.leirvog-
stunga.is er hægt að skoða lóðir og
verð og fylla út tilboðseyðublöð. Til-
boðseyðublöðin eru svo send til fast-
eignasala. Tilboðin eru bindandi og
fast verð hefur verið ákveðið fyrir
hverja lóð. Það eru Fasteignasala
Mosfellsbæjar og Landslög – lög-
fræðistofa sem sjá um framkvæmd
og skipulag. “
Nýjar lóðir í Leirvogstungu
Lóðir Sala á nýjum lóðum í landi
Leirvogstungu hefst á morgun.
Klapparhlíð - Lúxusíbúð f/50
ára og eldri
Glæsileg 119,3 m2 lúxusíbúð í 4ra hæða lyftuhúsi
fyrir 50 ára og eldri. Íbúðin er glæsileg í alla staði,
innréttingar spónlagðar með liggjandi hnotu,
hvítar flísar á gólfum með marmaraáferð, baðher-
bergi sturtuklefa og mjög stór og björt stofa og
borðstofa. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara.
Þetta er eign fyrir vandláta. Verð kr. 36,9 m.
Leirutangi - 92 m2 jarðhæð
92 m2 neðri hæð í fjórbýlishúsi í grónu og barn-
vænu hverfi í Mosfellsbæ. Góð aðkoma er að
íbúðinni og stór sérgarður. Stofan er björt og rúm-
góð, eldhús með borðkrók, gott svefnherbergi,
baðherbergi m/kari, þvottahús/geymsla og stórt
herbergi. Verð kr. 17,8 m.
Blikahöfði - 77 m2 Flott 2ja herbergja
íbúð á efstu hæð í mjög góðu 3ja hæða fjölbýli
með opnum stigagangi. Íbúðin er sérstaklega
rúmgóð og fallegt útsýni er til suðvesturs. Mahóní-
innréttingar og parket á gólfum. Verð kr. 19,2 m.
Leirutangi - jarðhæð
*NÝTT Á SKRÁ* 92 m2 neðri hæð með sérinn-
gangi og sérgarði í litlu fjórbýli á barnvænum stað.
Gott hjónaherbergi, eldhús með borðkrók, góð
stofa, baðherbergi með kari, tvö herbergi og
geymsla/þvottahús. Hluti íbúðarinnar er glugga-
laus. Þetta er vel staðsett eign á barnvænum stað.
Verð kr. 17,8 m.
SÉRBÝLI Í MOSFELLSBÆ
Lindarbyggð - Glæsilegt par-
hús
Til sölu mjög glæsilegt 177,1 m2 parhús á einni
hæð á fallegum stað í lokuðum botnlanga í Lind-
arbyggð í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Ingi-
mundi Sveinssyni, arkitekt og mjög bjart og rúm-
gott. Stór stofa með góðri lofthæð og borðstofa
við hlið eldhúss. 4 góð svefnherbergi, sjónvarps-
hol og glæsilegt baðherbergi. Bílskýli hefur verið
lokað af og gæti vel nýst sem t.d. unglingaher-
bergi. Fallegur suðurgarður og hellulagt bílaplan.
Þessar eignir eru sjaldséðar á fasteignasölum.
Verð kr. 41,8 m.
Þrastarhöfði - Glæsileg íbúð
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög glæsilega, 3ja
herbergja endaíbúð á efstu hæð við Þrastarhöfða
4-6 í Mosfellsbæ ásamt bílastæði í bílakjallara.
Íbúðin er vönduð í alla staði með eikarparketi og
flísum á gólfum. Fallegar eikainnréttingar í eldhúsi
og stór glersturtuklefi á baði. Mjög stór stofa er í
íbúðinni og vel mögulegt er að bæta við 3ja svefn-
herberginu. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni út á
Sundin. Verð kr. 24,9 m.
Miðholt - 3ja herb.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 82,4 m2, 3ja her-
bergja endaíbúð í 11 íbúða fjölbýli í miðbæ Mos-
fellsbæjar. Íbúðin er mjög björt og vel umgengin -
baðherbergi m/kari, 2 fín svefnherbergi, stór
stofa/borðstofa og eldhús inn af stofu. Svalir í
suðurátt og stutt í alla þjónustu. Þetta er björt og
rúmgóð íbúð á hagstæðu verði. Verð kr. 17,8 m.
Hjallahlíð - 4ra herb.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallega 94 m2, 4ra
herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjórbýli með sérinn-
gangi af svalagangi. Baðherbergi er flísalagt í hólf
og gólf m/sturtu, eldhús með góðum borðkrók og
flísum á gólfi, fallegt teppi á stofu og gangi, 3
svefnherbergi með linoleum dúk á gólfi og vinnu-
krókur. Mjög stutt er í nýjan grunnskóla, leikskóla
og glæsilega sundlaug. Verð kr. 21,9 m.
Tröllateigur - 151,4 m2 lúxusíbúð
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu mjög stóra og
bjarta 4ra herbergja íbúð í afar vandaðri lyftublokk
ásamt bílastæði í upphitaðri bílageymslu. 3 stór
svefnherbergi, björt og rúmgóð stofa, eldhús með
fallegri mahoníinnréttingu, tvö baðherbergi, sér-
þvottahús og tvær geymslur. 18 m2 svalir í suð-
vestur. Íbúðin getur verið laus til afhendingar
strax. Áhv. 19,2 m. frá Glitni með 4,15% vöxtum.
Verðtilboð óskast.
Krókabyggð - endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallegt 96 m2 enda-
raðhús ásamt ca 16 m2 rislofti í Krókabyggð. Tvö
stór svefnherbergi, baðherbergi m/kari, mjög fal-
legt eldhús, stórt og björt stofa og gott sjónvarps-
herbergi í risi. Nýtt parket á stofu, eldhúsi og
svefnherbergjum og ný og falleg innrétting í eld-
húsi m/nýjum tækjum. Stór afgirt hornlóð með
timburverönd. Verð kr. 27,9 m.
Tröllateigur - 167,1 m2 enda-
raðhús
167,1 m2 endaraðhús á tveimur hæðum í ný-
byggðu hverfi við miðbæ Mosfellsbæjar. Á jarð-
hæð eru stofa, borðstofa, eldhús, gestasalerni og
bílskúr, en á 2. hæð eru 3 góð svefnherbergi,
vinnuherbergi, þvottahús og stórt baðherbergi.
Flísar og bambusparket á gólfi og fallegar innrétt-
ingar í eldhúsi og baði. Áhvílandi kr. 27,0 milljónir
með 4,15-4,2% vöxtum. **Verð nú kr. 39,8 m.**
Hlíðarás - 408 m2 tækifæri Til
sölu eitt stærsta einbýlishúsið í Mosfellsbæ. Hús-
ið er samtals 408 m2 á tveimur hæðum, með tvö-
földum bílskúr. Húsið býður upp á mikla mögu-
leika, m.a. væri hægt að innrétta 2-3 íbúðarrými
(ósamþykkt) á neðri hæð, og halda eftir stórri efri
sérhæð með bílskúr. Húsið stendur neðst í Ása-
hverfinu með miklu útsýni til suðvesturs, út á Leir-
voginn og að Esjunni. Verð 139.700 kr. pr. m2.
Verð kr. 57,0 m.
Fellsás - 312,3 m2 einb.hús
312,3 m2 tvílyft einbýlishús á fallegum útsýnis-
stað í hlíðum Helgafells í Mosfellsbæ. Á jarðhæð
er búið að innrétta tvö 2ja herbergja íbúðarrými,
sem nú eru í útleigu. Á efri hæðinni er rúmgóð
íbúð með stóru alrými og stóru eldhúsi, tvö svefn-
herbergi, baðherbergi og í risi er verið að innrétta
herbergi. Þetta er stór og mikil eign með góða
tekjumöguleika. Húsið stendur á eignarlóð með
miklu útsýni til Esjunnar og út á Leirvoginn. Verð-
tilboð
Tröllateigur 141-150 m2 íbúðir
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu fjórar 141-150
m2 íbúðir í nýju fjórbýlishúsi í byggingu við Tröll-
ateig 41 í Mosfellsbæ. Húsið er eitt síðustu húsa í
nýju hverfi sem er að rísa við miðbæ Mosfellsbæj-
ar. Stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttasvæði.
Íbúðirnar eru 4ra - 5 herbergja og afhendast full-
búnar með innréttingum, en án gólfefna, þó verð-
ur baðherbergi og þvottahús flísalagt. Íbúðirnar
verða afhentar í apríl 2007. Verð frá kr. 28,5 -
32,5 m.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Flugumýri - 216 m2 atvinnu-
húsn. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá snyrtilegt
og gott atvinnuhúsnæði við Flugumýri í Mosfells-
bæ. Um er að ræða 174 m2 flísalagðan vinnslusal
með tveimur innkeyrsluhurðum auk millilofts. Þar
er kaffistofa, 2 skrifstofur og lagerrými. Verð kr.
26,5 m.
Urðarholt - 150 m2 atvinnu-
húsnæði Erum með 150 m2 atvinnuhús-
næði á jarðhæð í miðbæ Mosfellsbæjar. Gott
verslunarpláss og inn af því hefur verið innréttuð
íbúðaraðstaða. Gott gluggapláss er út á bílastæð-
ið og gott aðgengi. Rýmið stendur við Mosfells-
bakarí sem er eitt best bakarí á landinu. Rýmið er
til sölu eða leigu og getur verið laust til afhending-
ar fljótlega.
REYKJAVÍK
Þorláksgeisli - 3ja m/bílsk. -
RVÍK
Erum með mjög fallega 93,2 m2, 3ja herbergja
íbúð 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi ásamt bílastæði í
bílageymslu í Grafarholti. Íbúðin er rúmgóð og
björt, eikarparket á gólfum en innihurðar og inn-
réttingar eru spónlagðar með eik. Baðherbergi,
forstofa og þvottahús eru flísalagt. Flott hús, innst
í botnlanga. Áhv. 14,1 millón frá Glitni m/4,15%
vöxtum. Verð kr. 21,9 m.
Þórðarsveigur - 3ja herb. +
bílsk.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög bjarta og fal-
lega 86,9 m2, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 4ra
hæða lyftublokk með bílastæði í bílakjallara í Graf-
arholti. Hvítur olíuborinn askur og flísar á gólfum
og hvíttuð eikarinnrétting í eldhúsi. Góðir skápar í
herbergjum og sérþvottahús. Mjög fallegt útsýni
er til norðurs að Esjunni og Úlfarsfelli. Verð kr.
20,9 m.
Hverafold - 2ja herb + bíla-
geymsla 56 m2, 2ja herbergja íbúð á jarð-
hæð í 4ra hæða fjölbýli við Hverafold í Grafarvogi
ásamt bílastæði í upphitaðri bílageymslu. Íbúðin,
sem er nýmáluð, skiptist í rúmgott hjónaherbergi,
bjarta stofu, eldhúskrók, þvottahús/geymslu og
baðherbergi m/kari. Úr stofu er gengið út á hellu-
lagða verönd. Verð kr. 16,4 m.
KÓPAVOGUR
Heiðarhjalli - 4ra herb. + bíl-
skúr
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög glæsilega
117,8 m2 íbúð á 2. hæð ásamt 21,9 m2 bílskúr við
Heiðarhjalla í Kópavogi. Stofa, borðstofa, hjóna-
herbergi, tvö barnaherbergi, eldhús, baðherbergi,
þvotthús/geymsla og svefnloft (óskráð). Fallegar
sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og
svefnherbergjum. Þetta er glæsileg eign með
miklu útsýni. Íbúðin er laus til afhendingar. Verð
kr. 34,5 m.
Gullsmári - Penthouse -
KÓPAVOGI Mjög glæsileg 131,8 m2 pent-
house íbúð á efstu hæð í 7 hæða lyftublokk í
Kópavogi. Íbúðin er mjög smekklega innréttuð,
stórt eldhús, stofa, 3 svefnherbergi, þvottahús og
glæsilegt baðherbergi á aðalhæð og sjónvarpshol
og svefnherbergi í risi. Tvennar svalir og mjög
stórt hjónaherbergi. Þetta er glæsileg íbúð með
miklu útsýni. Verð kr. 34,9 m.
LÓÐIR OG LÖND
Smábýli 5 - Kjalarnesi *NÝTT Á
SKRÁ* Vorum að fá ca 5.8 hektara lóð undir ein-
býlishús á fallegum útsýnisstað í jaðri Esjunnar.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja hafa
rúmt í kringum sig, en þó í aðeins 10 mínútna fjar-
lægð frá allri þjónustu. Verð kr. 27,0 m.
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali
Sími: 586 8080
Fax: 586 8081
www.fastmos.is
Byggingarlóðir í Leirvogstungu *NÝJAR LÓÐIR Á SVÆÐI 3*
Erum að hefja sölu á lóðum undir einbýlishús og raðhús á svæði 3 við Laxatungu í Mosfellsbæ. Þetta er eitt af fallegustu bygg-
ingarlöndum á höfuðborgarsvæðinu, með Leirvogsá og Köldukvísl á sitt hvora hönd. Á svæðinu verða eingöngu byggð einbýlis-
, rað- og parhús. Kynntu þér málið á www.leirvogstunga.is eða hafðu samband við okkur hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.