Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Side 2
Allt fer þetta
einhvern veginn
Eftir Sigtrygg Magnason
naiv@internet.is
H
ver er staðan? var spurt í
lítilli auglýsingu í Frétta-
blaðinu á þriðjudaginn en
þá hafði slæðst inn gömul
auglýsing frá Vísi um kosn-
ingavefinn 2007. Þá rifj-
aðist upp fyrir mér að það voru kosningar
fyrir nokkrum dögum. Síðan hefur margt
gerst: stjórnin hefur haldið, stjórnin hefur
fallið, Framsókn hefur unnið, Framsókn hef-
ur tapað, Jón Sigurðsson hefur hætt, Guðni
Ágústsson hefur vitnað í Njálu, Guðni
Ágústsson hefur orðið formaður, Guðni
Ágústsson.
Ég var spurður um daginn hvort ég sakn-
aði þess að vinna ekki á fjölmiðli þegar
stjórnarmyndunarviðræður stóðu yfir. Ég
sagði nei. Kannski hafði ég bara farið á mis
við spennuna í því á þessum árum sem ég
starfaði á fjölmiðlum. Reyndar voru aldrei
neinar beinar stjórnarmyndunarviðræður,
það var bara Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sókn í ríkisstjórn og R-listinn í borgarstjórn.
Einu markverðu hlutirnir sem gerðust í ís-
lenskri pólitík áttu sér stað þegar ég fór í
frí: Johnsen-málið og þá ekki síður þegar
forsetinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalög-
in.
Hver er staðan? spurði Vísir. Jú, herra
Vísir, það er gaman að segja frá því að það
er komin ný ríkisstjórn. Það gekk mikið á.
Framsókn var sátt og Framsókn var ósátt.
Guðni dró meira að segja upp Njálu og líkti
sjálfstæðismönnum við Mörð Valgarðsson,
fyrsta spunameistara Íslandssögunnar. Þetta
er líklega það eina sem framsóknarmenn
hafa sagt um menningarmál í 12 ár.
Hver var þá Framsóknarflokkurinn í þess-
ari Njálufléttu? Líklega Höskuldur Hvíta-
nesgoði. Hver var þá Njáll? Hann hlýtur að
hafa verið í útlöndum. Æi, þetta er flókið.
Kannski var þetta frekar Rauðhetta: Fram-
sókn litla trítlar út í skóg að hitta ömmu D.
Á leiðinni hittir Framsókn Samúlfinn sem
segir henni að slappa bara af og tína blóm
handa ömmu D. Skýst svo á undan og étur
ömmu. Þá lýkur líka samlíkingunni. Úlfurinn
og amma lifa hamingjusöm saman til ævi-
loka. Rauðhetta fer á barinn, dettur í það og
kynnist veiðimanni. Þau eru saman í fjögur
ár. Allavega.
Þegar horft verður til baka til þessara
stjórnarskipta eru líklega tvær myndir eft-
irminnilegastar. Annars vegar er það koss
formannanna Geirs Haarde og Ingibjargar
Sólrúnar og hins vegar er það myndin af
Guðna Ágústssyni í bílnum sínum þar sem
hann ræðir við fréttamenn.
Kossinn, já, kossinn. Erum við þá ekki
komin í annað ævintýri? Fyrir löngu síðan
var glæsileg prinsessa sem ríkti í Reykjavík.
Síðan kom galdranornin í heimsókn, lagði á
hana álög um að hún myndi falla í dásvefn
og sofa þar til fagur prins myndi kyssa
hana. Þetta var einhvern veginn svona og
nornin var minnir mig alveg örugglega
Oddsson. Þá kemur til sögunnar ungur og
fagur prins, hálfnorskur af því allir prinsar
eru hálfnorskir, og brýst yfir þyrnigerðið
sem hóf sig hátt. Kyssir prinsessuna. Allt er
þetta yndislegt.
Hver er staðan? spyr Vísir enn og kosn-
ingarnar eru búnar. Staðan er ágæt. Þannig
séð.
Það er erfitt að vera í pólitík. Fólk þarf
bæði að vera klókt og að geta leikið leikinn í
fjölmiðlunum. Össur Skarphéðinsson segir
Steingrím J. Sigfússon hafa útilokað vinstri-
stjórn, meðal annars með því að heimta af-
sökunarbeiðni frá Jóni Sigurðssyni vegna
auglýsinga ungra framsóknarmanna þar sem
hann var í hlutverki netlöggu. Það minnir á
enn eina klassíkina í íslenskri menning-
arsögu, af því Thorbjörn Egner er sann-
arlega íslenskur. Í þessari fléttu er Stein-
grímur frænka stödd á heimili Framsóknar
en ljónið liggur á fleti sínu. Steingrími var
rænt af Framsókn og átti að sinna heim-
ilisstörfum en lætur illa að stjórn. Framsókn
skilar því Steingrími frænku. En örlögin
leiða þau saman að nýju í stjórnarandstöðu
því eins og við munum þá giftast Kasper og
Soffía. Þetta er fer allt vel. Að lokum.
Það er eins með þessa hluti og aðra: allt
fer þetta einhvern veginn. Úti er ævintýri.
Geir er undir stýri. Guðni úti í mýri.
Morgunblaðið/Sverrir
Geir og Ingibjörg á Þingvöllum „Hver er staðan? spyr Vísir enn og kosningarnar eru búnar. Staðan er ágæt. Þannig séð. Það er erfitt að vera í
pólitík. Fólk þarf bæði að vera klókt og að geta leikið leikinn í fjölmiðlunum.“
FJÖLMIÐLAR » Í þessari fléttu er Stein-
grímur frænka stödd á
heimili Framsóknar en ljónið
liggur á fleti sínu. Steingrími
var rænt af Framsókn og átti
að sinna heimilisstörfum en
lætur illa að stjórn. Framsókn
skilar því Steingrími frænku.
En örlögin leiða þau saman að
nýju í stjórnarandstöðu því
eins og við munum þá giftast
Kasper og Soffía.
2 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Gunnar Hersvein
gunnars@hi.is
!
Nýtt og betra er algengt slagorð
í auglýsingum. Nýtt og betra
tjald! Nýtt og betra appelsín, ný
og betri bifreið, ný og betri
verslun, nýr og betri sími! Nýtt
og betra kerfi! Nýtt og betra líf!
Nýjasta nýtt er ný og betri
ríkisstjórn sem boðar nýtt hug-
arfar, ný vinnubrögð og segir að breyttir
tímar kalli á nýjar lausnir. Ný og betri rík-
istjórn boðar stöðugleika, gæði, sveigj-
anleika, fjölbreytni og að gera gott sam-
félag enn betra. Nýir þingmenn eru með
nýtt og betra mjöl í pokahorninu! Slagorð-
inu nýtt og betra er í raun stefnt gegn
endurtekningunni og kyrrstöðunni.
Á nýju og betra Alþingi á fimmtudaginn
tókust nýir þingmenn á í umræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra undir nýjum
tjöldum og mátti þar greina rökræðu um
hvort sáttmáli ríkisstjórnarinnar væri nýr
og metnaðarfullur eða gömul lumma.
Kyrrstöðustjórn sagði einn ræðumanna.
Sannleikurinn er sá að við vitum ekkert
um hvert Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin eru að fara sagði formaður
Framsóknarflokksins og bætti við að
Sjálfstæðisflokkurinn væri á breyting-
arskeiði. En er ekki bara gott að breytast?
Sex af hverjum tíu kjósendum í nýrri
könnun líst a.m.k. vel á nýja ríkisstjórn!
Stjórnarliðar kepptust í umræðunum
um stefnuræðuna við að varpa ljósi á nýja
frjálslynda umbótastjórn og nýmæli í um-
hverfismálum og jafnréttismálum. Rætt
var um nýsköpun, ný svið í samkeppni við
önnur markaðssvæði, nýtt matskerfi á ör-
orku, ný tækifæri til náms, nýjan sæ-
streng og nýja hornsteina í íslenskri utan-
ríkisstefnu. Nýjar og betri siðareglur.
Stjórnarandstæðingar töluðu hins vegar
sumir um gamalt vín á nýjum belgjum.
Stjórnarandstæðingurinn Guðni sagði
að engar sögulegar sættir hefðu átt sér
stað milli Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar eins og Ingibjörg heldur fram.
Hann sagði að Ingibjörg hefði aðeins étið
saltan grautinn sinn. Samfylkingin gafst
upp sagði Steingrímur en meginmark-
miðið er að skapa samfélag þar sem fólki
líður vel sagði Geir.
Spyrja má hvort umræður á Alþingi
verði nýjar og betri? Umræðan var fyr-
irsjáanleg sagði Jóhanna Vigdís frétta-
maður eftir umræðuna. Og þó! Greina
mátti nýjan tón hjá nokkrum nýjum þing-
mönnum eins og Guðfríði Lilju Grét-
arsdóttur sem flutti einarða ræðu um um-
hverfismál og vitnaði í Jóhönnu
Jóhannsdóttur í Haga en Þjórsá rennur
fyrir neðan túnið hennar í Þjórsárdal.
Einnig má nefna nýja fulltrúa eins og
Ólöfu Nordal, Guðbjart Hannesson,
Höskuld Þórhallsson og Katrínu Jak-
obsdóttur sem vitnaði í John Stuart Mill
og minnti á virðingu fyrir skoðunum ann-
arra.
Ef til vill verður þetta bæði ný og betri
ríkisstjórn og stjórnarandstaða – þrátt
fyrir gamalkunna takta í umræðunum.
Það felst mikil ábyrgð í því að vera stjórn-
málamaður og huga að heill og hamingju
almennings. Að geta lyft sér yfir stund-
arhagsmuni! Ingibjörg nefndi t.d. að Ís-
land ætti að vera friðflytjandi í samfélagi
þjóðanna og Þórunn að landið eigi að vera
í fararbroddi þjóða heims í umhverf-
ismálum.
Nýja og betri tóna mátti því þrátt fyrir
allt greina undir yfirborðinu í umræðun-
um um stefnuræðuna. Ný og vonandi
betri ríkisstjórn og stjórnarandstaða er
tekin við! Nú verða betri fjölmiðlar að
standa sig á kjörtímabilinu og gæta hags-
muna almennings. Umfram allt þurfa nýir
og betri kjósendur að láta að sér kveða,
taka þátt í lýðræðislegri umræðu og mót-
mæla ef þeim er misboðið!
Nýtt og
betra
Alþingi
UPPHRÓPUN
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins