Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Árna Tómas Ragnarsson arnit@centrum.is A ð undanförnu hef ég skrifað nokkrum sinn- um um mál Ís- lensku óp- erunnar og ekki verið par sátt- ur. Með ráðn- ingu Stefáns Baldurssonar í stól óp- erustjóra er loksins ástæða til að gleðjast vegna málefna Óperunnar, en Stefán er tvímælalaust mjög hæf- ur maður í starfið og raunar vart hægt að hugsa sér annan heppilegri til að stýra því uppbyggingarstarfi og stefnumótun, sem Óperunni er nú brýn nauðsyn að ráðast í. Verkefni næstu stjórnar Óp- erunnar og hins nýja óperustjóra hljóta í meginatriðum að verða eft- irfarandi: Að móta stefnu í verkefnavali til nánustu framtíðar. Að móta framtíðarskipulag Ís- lensku óperunnar og hugsanlega sameinast Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Að byggja brýr á milli Íslensku óperunnar og nýs Tónlistarhúss í Reykjavík. Verkefnaval Ég hef þegar margsinnis tjáð mig um verkefnaval síðustu ára, sem hefur leitt til mikillar fækkunar á óperusýningum og tölu óperugesta og lækkunar á eigin tekjum Íslensku óperunnar með miðasölu. Hinn ný- ráðni óperustjóri tjáði sig strax um þau efni og kvaðst ætla að bera hag almennings fyrir brjósti í þessum efnum. Sú yfirlýsing og mikil reynsla Stefáns í leikhúsbransanum ættu að tryggja að málum verði vel borgið í hans höndum á næstu árum og óþarfi að fjölyrða meira um það. Framtíðarskipulag Fyrir nokkrum árum varð Íslenska óperan sjálfseignarstofnun, en hafði áður verið í eigu Styrktarfélags Ís- lensku óperunnar. Stjórn Óp- erunnar var kosin á aðalfundum fé- lagsins, en eftir breytinguna var stjórnin skipuð af óperustjóra í fyrstu, en síðan af sjálfri sér! Jafn- framt var ákveðið að meirihluti stjórnar skyldi skipaður fulltrúum atvinnulífsins og skipti þekking eða áhugi viðkomandi á óperu eða leik- húsrekstri þá engu máli. Vinafélag Óperunnar skipaði tvo fulltrúa, en hið opinbera – menntamálaráðu- neytið – átti engan fulltrúa í stjórn- inni þótt yfirgnæfandi meirihluti rekstrarfjár kæmi þaðan! Í skjóli þessa vitlausa skipulags hefur stjórn Óperunnar verið ómarkviss og lítið aðhald verið með þeirri stefnu, sem leiddi til hruns í aðsókn. Hér þarf að gera bragarbót á. Nú- verandi stjórn Óperunnar á að segja af sér og ný stjórn að taka við. Út frá sögulegu samhengi er sjálfsagt að Vinafélag Óperunnar hafi áfram tvo fulltrúa í stjórn, en mennta- málaráðuneytið ætti að skipa hina þrjá fulltrúana úr hópi fólks, sem hefur áhuga eða reynslu á þessu sviði á hliðstæðan hátt og gert er við skipun þjóðleikhúsráðs. Sameining við Sinfóníuna! Þá þarf einnig að hugsa vandlega um það hvort ekki sé rétt að Ís- lenska óperan og Sinfóníuhljómsveit Íslands gangi í eina sæng. Frá upp- hafi hafa hljóðfæraleikarar Sinfóní- unnar tekið mikinn þátt í starfi Óp- erunnar og hefur t.d. ekki verið hægt að hafa óperusýningar þegar Sinfónían þarf að nýta alla sína krafta. Þannig hefur hvort sem er alltaf þurft að samræma starfsemi þessara stofnana og fyrir Óperuna verður það alltaf mjög mikilvægt að njóta krafta þeirra frábæru spilara, sem hljómsveitina skipa. Auk hagræðingar vegna hljóð- færaleiksins er einnig um aðra sjálf- sagða hagræðingu að ræða svo sem við skrifstofuhald og markaðs- og sölustarf. Það er engin skynsamleg ástæða fyrir því að þessir aðilar pu- krist hvor í sínu horni með mjög hliðstæða starfsemi og komi um leið í veg fyrir betri nýtingu almanna- fjár. Tónlistarhúsið og Óperan Í síðustu grein minni gagnrýndi ég forráðamenn Tónlistarhússins fyrir að vilja ekki taka vel á móti óperu í húsið og krafðist skýringa. Mér til undrunar var mér ekki svarað með öðru en kaffiboði þeirra Stefánanna Eggertssonar stjórnarformanns og Hermannssonar framkvæmdastjóra Austurhafnar, en það félag sér um uppbyggingu hússins fyrir hönd rík- is og borgar, en félagið Portus bygg- ir húsið og mun annast rekstur þess. Hér þarf að koma smáforsaga. Þegar hugsað var um byggingu Tón- listarhússins fyrir rúmlega 20 árum skiptust menn í tvær fylkingar um það hvort ópera ætti að vera með eða ekki. Þeir sem voru á móti óperu unnu þann slag. Margir óperuunn- endur og fleiri urðu þá bæði undr- andi og sárir, en fyrir nokkrum ár- um tók Björn Bjarnason menntamálaráðherra af skarið og gekk skrefið til hálfs við að hleypa óperu í húsið. Það var gert með því að láta stækka sviðið og hafa hljóm- sveitargryfju. Hitt vantaði þó enn, en það var að gera aðstöðu baksviðs boðlega til að taka við sviðsbúnaði og fleiru, sem fylgir óperusýningum. Um þetta hefur verið pexað í nokkur ár og hefur ekki mikið vantað upp á til að óperufólk mætti sæmilega vel við una. Stjórnendur Íslensku óperunnar hafa hins vegar verið mjög ósáttir við þá Tónlistarhúsmenn, – svo ósáttir að í seinni tíð hafa þeir verið ófúsir til að skoða eða ræða þá möguleika, sem í boði hafa verið, en í staðinn hallað sér að glæfralegri hugmynd um óperuhús í Kópavogi. Ég kalla hana „glæfralega“ vegna þess að húsið í Kópavogi mun kosta 2-3 milljarða króna hið minnsta og vegna þess að óperur eru ekki sýnd- ar nema í mesta lagi 30-40 sinnum á ári. Því er rekstrargrundvöllur slíks húss vægast sagt hæpinn. Þar að auki er staðsetning óperuhúss í Kópavogi vægast sagt óheppileg, bæði með tilliti til samvinnu við Sin- fóníuhljómsveitina og svo er miðbær Reykjavíkur augljóslega kjörinn vettvangur fyrir þjóðaróperu. Svo langt var gengið af þeim óp- erumönnum að þegar fulltrúum þeirra var boðið að hitta ráðgjafa Tónlistarhússins fyrir rúmu ári og gera tillögur þá lögðu þeir lítið til málanna. Þeir stungu einnig undir stól skoðanakönnun, sem þeir höfðu sjálfir látið gera og sýndi að mikill meirihluti Íslendinga vildi fá óperu í Tónlistarhúsið. Loks bitu þeir óp- erumenn höfuðið af skömminni með því að líta ekki við þeim viðamiklu breytingum, sem nú hafa verið gerð- ar á baksviðsaðstöðu í Tónlistarhús- inu og gætu gjörbreytt aðstöðu til óperuflutnings í húsinu. For- ráðamenn Óperunnar hafa vitað af þessum breytingum, en þagað um þær mánuðum saman þótt mjög lík- legt sé að þær muni duga Óperunni til að eiga sína heimahöfn í Tónlist- arhúsinu, a.m.k. setja þar upp með góðu móti flestar ef ekki allar þær stærri óperur, sem ættu að vera á verkefnaskrá. Óperuaðstaða í Tónlistarhúsinu Talsvert hefur verið rætt um að- stöðu fyrir óperusýningar í Tónlist- arhúsinu með tilliti til stærðar áhorfendasalar og hljómburðar. Þessi mál eru bæði einföld og flókin. Þau eru flókin vegna þess að það er aldrei hægt að segja nákvæmlega fyrir um hljómburð með vissu eins og mýmörg dæmi sanna. Hins vegar hafa bestu fáanlegir sérfræðingar verið fengnir til að hanna hljómburð í húsinu og þeir fullyrða að hljóm- burður verði góður, bæði fyrir óp- erur og sinfóníur. Að svo stöddu verðum við auðvitað að trúa því. Hvað varðar stærð salarins þá hafa stjórnendur Óperunnar rætt um að heppileg stærð sé um 800 sæti. Hvernig sú tala er fengin er ekki gott að segja, en þá er því í öllu falli til að svara að hér munar ekki miklu því sæti á gólfi Tónlistarhússins eru 8-900 á óperusýningum, en svo má einnig nýta sæti á svölum í kring eft- ir þörfum þannig að um 1.400 manns geta alls setið óperusýningar. Með fleiri sætum gefst möguleiki á að bjóða börnum, öldruðum og ör- yrkjum að kaupa miða á vægu verði, en það hefur ekki verið hægt í Óp- erunni til þessa og miðaverð þar (um 5.000 krónur) virkað hamlandi á að- sókn. Fleiri sæti ættu því að þjóna hagsmunum bæði Óperunnar og al- mennings um leið og þau auka tekjur af miðasölunni. Nú þarf aðeins að leggja loka- hnykkinn á að fara yfir aðstöðu bak- sviðs í Tónlistarhúsinu þannig að smáatriðin skemmi ekki heild- armyndina í þessu stóra máli. Í um- ræddu kaffiboði kom nefnilega síð- ast en ekki síst í ljós að forráðamenn Austurhafnar, – Stefánarnir, taka aðkomu óperu í Tónlistarhúsið fagn- andi og hefur því af þeirra hálfu ver- ið leyst úr alltof langvarandi ágrein- ingsmáli, sem aldrei hefði átt að vera uppi á borðum. Ég ber fullt traust til þess að óperu-Stefáninn Baldursson muni vinna betur með nöfnum sínum en forveri hans og að þar með rætist draumur óperuunn- enda um að sjá reglubundinn óp- eruflutning á fjölum Tónlistarhúss- ins. Kaffiboð og/eða tvö óperuhús nauðsynleg? Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brúðkaup Fígarós Þær viðamiklu breytingar, sem nú hafa verið gerðar á baksviðsaðstöðu í Tónlistarhúsinu gætu gjörbreytt aðstöðu til óperuflutnings í húsinu. Óperan og Sinfónían eiga þá kannski eftir að blása til brúðkaups. Það þarf að skipta um stjórn Ís- lensku óperunnar og huga að sam- einingu hennar og Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, segir greinarhöfundur sem telur enn fremur að enn sé ekki útilokað að Óperan fái inni í Tónlistarhúsinu. Hugmyndir um óperuhús í Kópa- vogi telur hann hins vegar „glæfra- legar“. » Í umræddu kaffiboði kom nefnilega síðast en ekki síst í ljós að forráðamenn Aust- urhafnar, – Stefánarnir, taka aðkomu óperu í Tónlistarhúsið fagnandi og hefur því af þeirra hálfu verið leyst úr alltof langvarandi ágreiningsmáli, sem aldrei hefði átt að vera uppi á borðum. Höfundur er læknir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.