Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Árna Tómas Ragnarsson
arnit@centrum.is
A
ð undanförnu
hef ég skrifað
nokkrum sinn-
um um mál Ís-
lensku óp-
erunnar og ekki
verið par sátt-
ur. Með ráðn-
ingu Stefáns Baldurssonar í stól óp-
erustjóra er loksins ástæða til að
gleðjast vegna málefna Óperunnar,
en Stefán er tvímælalaust mjög hæf-
ur maður í starfið og raunar vart
hægt að hugsa sér annan heppilegri
til að stýra því uppbyggingarstarfi
og stefnumótun, sem Óperunni er nú
brýn nauðsyn að ráðast í.
Verkefni næstu stjórnar Óp-
erunnar og hins nýja óperustjóra
hljóta í meginatriðum að verða eft-
irfarandi:
Að móta stefnu í verkefnavali til
nánustu framtíðar.
Að móta framtíðarskipulag Ís-
lensku óperunnar og hugsanlega
sameinast Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands.
Að byggja brýr á milli Íslensku
óperunnar og nýs Tónlistarhúss í
Reykjavík.
Verkefnaval
Ég hef þegar margsinnis tjáð mig
um verkefnaval síðustu ára, sem
hefur leitt til mikillar fækkunar á
óperusýningum og tölu óperugesta
og lækkunar á eigin tekjum Íslensku
óperunnar með miðasölu. Hinn ný-
ráðni óperustjóri tjáði sig strax um
þau efni og kvaðst ætla að bera hag
almennings fyrir brjósti í þessum
efnum. Sú yfirlýsing og mikil
reynsla Stefáns í leikhúsbransanum
ættu að tryggja að málum verði vel
borgið í hans höndum á næstu árum
og óþarfi að fjölyrða meira um það.
Framtíðarskipulag
Fyrir nokkrum árum varð Íslenska
óperan sjálfseignarstofnun, en hafði
áður verið í eigu Styrktarfélags Ís-
lensku óperunnar. Stjórn Óp-
erunnar var kosin á aðalfundum fé-
lagsins, en eftir breytinguna var
stjórnin skipuð af óperustjóra í
fyrstu, en síðan af sjálfri sér! Jafn-
framt var ákveðið að meirihluti
stjórnar skyldi skipaður fulltrúum
atvinnulífsins og skipti þekking eða
áhugi viðkomandi á óperu eða leik-
húsrekstri þá engu máli. Vinafélag
Óperunnar skipaði tvo fulltrúa, en
hið opinbera – menntamálaráðu-
neytið – átti engan fulltrúa í stjórn-
inni þótt yfirgnæfandi meirihluti
rekstrarfjár kæmi þaðan! Í skjóli
þessa vitlausa skipulags hefur stjórn
Óperunnar verið ómarkviss og lítið
aðhald verið með þeirri stefnu, sem
leiddi til hruns í aðsókn.
Hér þarf að gera bragarbót á. Nú-
verandi stjórn Óperunnar á að segja
af sér og ný stjórn að taka við. Út
frá sögulegu samhengi er sjálfsagt
að Vinafélag Óperunnar hafi áfram
tvo fulltrúa í stjórn, en mennta-
málaráðuneytið ætti að skipa hina
þrjá fulltrúana úr hópi fólks, sem
hefur áhuga eða reynslu á þessu
sviði á hliðstæðan hátt og gert er við
skipun þjóðleikhúsráðs.
Sameining við Sinfóníuna!
Þá þarf einnig að hugsa vandlega
um það hvort ekki sé rétt að Ís-
lenska óperan og Sinfóníuhljómsveit
Íslands gangi í eina sæng. Frá upp-
hafi hafa hljóðfæraleikarar Sinfóní-
unnar tekið mikinn þátt í starfi Óp-
erunnar og hefur t.d. ekki verið
hægt að hafa óperusýningar þegar
Sinfónían þarf að nýta alla sína
krafta. Þannig hefur hvort sem er
alltaf þurft að samræma starfsemi
þessara stofnana og fyrir Óperuna
verður það alltaf mjög mikilvægt að
njóta krafta þeirra frábæru spilara,
sem hljómsveitina skipa.
Auk hagræðingar vegna hljóð-
færaleiksins er einnig um aðra sjálf-
sagða hagræðingu að ræða svo sem
við skrifstofuhald og markaðs- og
sölustarf. Það er engin skynsamleg
ástæða fyrir því að þessir aðilar pu-
krist hvor í sínu horni með mjög
hliðstæða starfsemi og komi um leið
í veg fyrir betri nýtingu almanna-
fjár.
Tónlistarhúsið og Óperan
Í síðustu grein minni gagnrýndi ég
forráðamenn Tónlistarhússins fyrir
að vilja ekki taka vel á móti óperu í
húsið og krafðist skýringa. Mér til
undrunar var mér ekki svarað með
öðru en kaffiboði þeirra Stefánanna
Eggertssonar stjórnarformanns og
Hermannssonar framkvæmdastjóra
Austurhafnar, en það félag sér um
uppbyggingu hússins fyrir hönd rík-
is og borgar, en félagið Portus bygg-
ir húsið og mun annast rekstur þess.
Hér þarf að koma smáforsaga.
Þegar hugsað var um byggingu Tón-
listarhússins fyrir rúmlega 20 árum
skiptust menn í tvær fylkingar um
það hvort ópera ætti að vera með
eða ekki. Þeir sem voru á móti óperu
unnu þann slag. Margir óperuunn-
endur og fleiri urðu þá bæði undr-
andi og sárir, en fyrir nokkrum ár-
um tók Björn Bjarnason
menntamálaráðherra af skarið og
gekk skrefið til hálfs við að hleypa
óperu í húsið. Það var gert með því
að láta stækka sviðið og hafa hljóm-
sveitargryfju. Hitt vantaði þó enn,
en það var að gera aðstöðu baksviðs
boðlega til að taka við sviðsbúnaði
og fleiru, sem fylgir óperusýningum.
Um þetta hefur verið pexað í nokkur
ár og hefur ekki mikið vantað upp á
til að óperufólk mætti sæmilega vel
við una.
Stjórnendur Íslensku óperunnar
hafa hins vegar verið mjög ósáttir
við þá Tónlistarhúsmenn, – svo
ósáttir að í seinni tíð hafa þeir verið
ófúsir til að skoða eða ræða þá
möguleika, sem í boði hafa verið, en í
staðinn hallað sér að glæfralegri
hugmynd um óperuhús í Kópavogi.
Ég kalla hana „glæfralega“ vegna
þess að húsið í Kópavogi mun kosta
2-3 milljarða króna hið minnsta og
vegna þess að óperur eru ekki sýnd-
ar nema í mesta lagi 30-40 sinnum á
ári. Því er rekstrargrundvöllur slíks
húss vægast sagt hæpinn. Þar að
auki er staðsetning óperuhúss í
Kópavogi vægast sagt óheppileg,
bæði með tilliti til samvinnu við Sin-
fóníuhljómsveitina og svo er miðbær
Reykjavíkur augljóslega kjörinn
vettvangur fyrir þjóðaróperu.
Svo langt var gengið af þeim óp-
erumönnum að þegar fulltrúum
þeirra var boðið að hitta ráðgjafa
Tónlistarhússins fyrir rúmu ári og
gera tillögur þá lögðu þeir lítið til
málanna. Þeir stungu einnig undir
stól skoðanakönnun, sem þeir höfðu
sjálfir látið gera og sýndi að mikill
meirihluti Íslendinga vildi fá óperu í
Tónlistarhúsið. Loks bitu þeir óp-
erumenn höfuðið af skömminni með
því að líta ekki við þeim viðamiklu
breytingum, sem nú hafa verið gerð-
ar á baksviðsaðstöðu í Tónlistarhús-
inu og gætu gjörbreytt aðstöðu til
óperuflutnings í húsinu. For-
ráðamenn Óperunnar hafa vitað af
þessum breytingum, en þagað um
þær mánuðum saman þótt mjög lík-
legt sé að þær muni duga Óperunni
til að eiga sína heimahöfn í Tónlist-
arhúsinu, a.m.k. setja þar upp með
góðu móti flestar ef ekki allar þær
stærri óperur, sem ættu að vera á
verkefnaskrá.
Óperuaðstaða í
Tónlistarhúsinu
Talsvert hefur verið rætt um að-
stöðu fyrir óperusýningar í Tónlist-
arhúsinu með tilliti til stærðar
áhorfendasalar og hljómburðar.
Þessi mál eru bæði einföld og flókin.
Þau eru flókin vegna þess að það er
aldrei hægt að segja nákvæmlega
fyrir um hljómburð með vissu eins
og mýmörg dæmi sanna. Hins vegar
hafa bestu fáanlegir sérfræðingar
verið fengnir til að hanna hljómburð
í húsinu og þeir fullyrða að hljóm-
burður verði góður, bæði fyrir óp-
erur og sinfóníur. Að svo stöddu
verðum við auðvitað að trúa því.
Hvað varðar stærð salarins þá hafa
stjórnendur Óperunnar rætt um að
heppileg stærð sé um 800 sæti.
Hvernig sú tala er fengin er ekki
gott að segja, en þá er því í öllu falli
til að svara að hér munar ekki miklu
því sæti á gólfi Tónlistarhússins eru
8-900 á óperusýningum, en svo má
einnig nýta sæti á svölum í kring eft-
ir þörfum þannig að um 1.400 manns
geta alls setið óperusýningar. Með
fleiri sætum gefst möguleiki á að
bjóða börnum, öldruðum og ör-
yrkjum að kaupa miða á vægu verði,
en það hefur ekki verið hægt í Óp-
erunni til þessa og miðaverð þar (um
5.000 krónur) virkað hamlandi á að-
sókn. Fleiri sæti ættu því að þjóna
hagsmunum bæði Óperunnar og al-
mennings um leið og þau auka
tekjur af miðasölunni.
Nú þarf aðeins að leggja loka-
hnykkinn á að fara yfir aðstöðu bak-
sviðs í Tónlistarhúsinu þannig að
smáatriðin skemmi ekki heild-
armyndina í þessu stóra máli. Í um-
ræddu kaffiboði kom nefnilega síð-
ast en ekki síst í ljós að forráðamenn
Austurhafnar, – Stefánarnir, taka
aðkomu óperu í Tónlistarhúsið fagn-
andi og hefur því af þeirra hálfu ver-
ið leyst úr alltof langvarandi ágrein-
ingsmáli, sem aldrei hefði átt að
vera uppi á borðum. Ég ber fullt
traust til þess að óperu-Stefáninn
Baldursson muni vinna betur með
nöfnum sínum en forveri hans og að
þar með rætist draumur óperuunn-
enda um að sjá reglubundinn óp-
eruflutning á fjölum Tónlistarhúss-
ins.
Kaffiboð og/eða tvö
óperuhús nauðsynleg?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Brúðkaup Fígarós Þær viðamiklu breytingar, sem nú hafa verið gerðar á baksviðsaðstöðu í Tónlistarhúsinu gætu
gjörbreytt aðstöðu til óperuflutnings í húsinu. Óperan og Sinfónían eiga þá kannski eftir að blása til brúðkaups.
Það þarf að skipta um stjórn Ís-
lensku óperunnar og huga að sam-
einingu hennar og Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands, segir
greinarhöfundur sem telur enn
fremur að enn sé ekki útilokað að
Óperan fái inni í Tónlistarhúsinu.
Hugmyndir um óperuhús í Kópa-
vogi telur hann hins vegar „glæfra-
legar“.
» Í umræddu kaffiboði
kom nefnilega síðast
en ekki síst í ljós að
forráðamenn Aust-
urhafnar, – Stefánarnir,
taka aðkomu óperu í
Tónlistarhúsið fagnandi
og hefur því af þeirra
hálfu verið leyst úr
alltof langvarandi
ágreiningsmáli, sem
aldrei hefði átt að
vera uppi á borðum.
Höfundur er læknir.