Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2007, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölbreyttni mikilvæg „Í máli Bónuss og Krónunnar kristallast mikilvægi þess að fjölmiðlar séu fjölbreyttir, bæði hvað varðar eigendur
og rekstrarform. Við megum nefnilega ekki gleyma því að fjölmiðlar eru bara fyrirtæki eins og öll hin fyrirtækin.“
Eftir Sigtrygg Magnason
naiv@internet.is
I
f there’s something wrong
in the neighbourhood,
who can you call?
Ghostbusters!
Mig langaði að vitna í amerískt
ljóð eftir Ray Parker yngra í upp-
hafi þessa pistils.
Mér datt þetta ástsæla ljóð í hug þegar
ég velti því fyrir mér hvert fólk með upp-
lýsingar um meint verðsamráð lág-
vöruverðsverslana á Íslandi treystir sér til
að leita. Eins og hlustendur Ríkisútvarps-
ins og lesendur Morgunblaðsins eru vel
upplýstir um þá hafa vaknað grunsemdir
um óeðlilega hegðun lágvöruverslana í sam-
bandi við verðkannanir og verðlagningu.
Þetta er auðvitað stórmál ef rétt reynist og
satt best að segja lítur þetta ekki vel út því
ábendingum og upplýsingum frá fyrrver-
andi og núverandi starfsfólki Bónuss og
Krónunnar hefur rignt yfir RÚV og ASÍ
undanfarna daga frá því Guðrún Frímanns-
dóttir, fréttamaður á fréttastofu Útvarps,
sagði fyrst frá starfsháttum verslananna á
miðvikudag.
Það ríkir fákeppni á íslenskum mat-
vörumarkaði. Tveir risar ráða lögum og lof-
um. Kaupás og Hagar eru gríðarlega stór
og sterk fyrirtæki sem hafa innan vébanda
sinna verslanir í öllum verðflokkum, allt frá
lágvöruverðsverslunum upp í klukkubúð-
irnar sem eru sumar hverjar opnar allan
sólarhringinn. Ólíkt því sem þekkist frá út-
löndum eru sumar þessar lágvöruverðs-
verslanir glæsilegar og jafnvel staðsettar í
helstu kringlu þessa lands þar sem leigu-
verð á fermetra er örugglega sæmilega
hátt. En hvað um það.
Fréttastofa Útvarps átti fréttina og Síð-
degisútvarpið fylgdi henni vel eftir. Daginn
eftir tók Morgunblaðið fréttina upp á for-
síðu með stuttri frétt og tæpri heilsíðu inni
í blaðinu. Í Fréttablaðinu var þetta efsta
frétt á síðu 2, í 24 stundum ca. 3 dálks-
entimetrar. Ég hef áður í pistlum mínum í
Lesbók fjallað um ólíka stöðu áskriftarfjöl-
miðla og fríblaðanna. Áskrifendur veita
fjölmiðlinum aðhald og stuðning. Þeir eru
mikilvægt mótvægi við auglýsingadeildir og
eigendur blaðanna. Fríblöðin berast inn á
heimilið án þess að viðkomandi greiði fyrir
þau. Sérstakar aðgerðir þarf til að koma í
veg fyrir að þau séu borin í hús. Ef mér
mislíkar efni þeirra eða ritstjórn get ég sett
upp miða þar sem ég afþakka þau eða von-
ast til þess að verða þess heiðurs aðnjót-
andi að lenda í næstu fjölmiðlakönnun og
segjast aldrei sjá fríblöðin.
Fríblöðin eru viðskiptahugmynd sem
gengur út á að auglýsingar greiði fyrir
kostnaðinn við að halda úti ritstjórn og vel
það. Í viðskiptahugmyndinni felst það að
fréttir eru mikilvæg og vinsæl neysluvara í
samtímanum og með því að gefa út góðan
fréttamiðil sé hagstætt að selja auglýs-
ingar. Af þessu leiðir að auglýsendur og
eigendur hafa mikið vægi og vald þegar
kemur að fríblöðunum. Í módeli fríblaðanna
eru engir áskrifendur. Auglýsendur borga
laun ritstjórnanna og eigendur geta skorist
í leikinn ef í hart fer og tekjur af auglýs-
ingum detta niður í stuttan tíma.
Þá komum við að upphafsorðum þessa
pistils. Hvert hringir maður til að koma á
framfæri gríðarlega mikilvægum upplýs-
ingum um neytendamál, eins og til dæmis
samráði á matvörumarkaði? Þegar kemur
að slíkum neytendamálum er fríblöðunum
greinilega vandi á höndum. Matvöruversl-
anirnar eru hluti af stórum keðjum sem síð-
an eru hluti af sterku viðskiptaveldi sem
rekur fjölda verslana og þjónustufyrirtækja
og í sumum tilfellum eru stórir auglýsendur
hluti af eigendahópi fjölmiðlanna.
Karl Garðarsson sem eitt sinn var kennd-
ur við Blaðið sagði að fríblöð væru eins góð
og þau þyrftu að vera. Auðvitað eru þau
það. Þau verða eins og önnur fyrirtæki að
finna hinn gullna meðalveg milli kostnaðar
og metnaðar. Ritstjórnir fríblaðanna eru
eins og stjórnendur fyrirtækjanna meðvit-
aðir um að það eru auglýsendur sem borga
þeim launin. Án auglýsendanna væru engar
ritstjórnir, engin fríblöð. Og hvert hringir
þá sá sem hefur mikilvægar upplýsingar
um mögulegt samráð og svindl á mat-
vörumarkaði? Í ritstjórnir fríblaðanna?
Í máli Bónuss og Krónunnar kristallast
mikilvægi þess að fjölmiðlar séu fjöl-
breyttir, bæði hvað varðar eigendur og
rekstrarform. Við megum nefnilega ekki
gleyma því að fjölmiðlar eru bara fyrirtæki
eins og öll hin fyrirtækin.
Fríblöðin, Bónus og Krónan
FJÖLMIÐLAR »Matvöruverslanirnar eru
hluti af stórum keðjum
sem síðan eru hluti af sterku
viðskiptaveldi sem rekur
fjölda verslana og þjónustu-
fyrirtækja og í sumum til-
fellum eru stórir auglýsendur
hluti af eigendahópi fjöl-
miðlanna.
2 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Gunnar Hersvein
gunnars@hi.is
!
Tíu litlir fossar í samanburði við Háls-
lón, Ufsarlón og Laugarfellsveitu! Ég
lagði bílnum á heiðarveginum við
Laugarkofa sem er gangnakofi og hélt í
stutta fossagöngu með greinina
„Fossaval í Jökulsá í Fljótsdal“ (Glett-
ingur, 8. árg. 1. tbl. 1988) eftir Helga
Hallgrímssonar náttúrufræðing í vas-
anum.
Í Laugará voru fagrir fossar og má helst nefna
Slæðufoss og Stuðlafoss sem minnka um helm-
ing með Laugarfellsveitu og hverfa á stundum.
Eftir að hafa dáðst að Slæðufossi og fallið í stafi
yfir fagurri umgjörð Stuðlafoss, sem ber nafnið
með sóma því beggja vegna við hann eru um 10
m háir og reglulegir stuðlar, gekk ég niður að
Faxfossi eða Faxa í Jökulsá.
Faxi er mikilfenglegur 20-22 m hár foss og
fellur í tveimur þrepum og myndar mikinn úða.
Áin breiðir úr sér fyrir ofan fossinn og kvíslast
þar milli klettahrauka í flúðum og flugastraum.
Ég starði á fossinn í félagi við bergnuminn hrút –
og gekk svo upp með gilinu meðfram Jökulsá að
Kirkjufossi.
Kirkjufoss er hæstur fossa í Jökulsá í Fljóts-
dal. Hann er þrískiptur og er heildarfallhæð
hans um 30-40 m. Fossinn er sérkennilegur á að
líta í tveimur stöllum og kvíslum. Ég stóð í úða á
austurbakkanum og allir hlutar hans sneru beint
að mér. Hvílík dýrð! Við stíflun Jökulsárinnar
verða fossarnir í Fljótsdal að jafnaði vatnslitlir
nema þegar vatn rennur úr Ufsarlóni. Þvílík …!
Skammt fyrir ofan Kirkjufoss eru nokkrir lág-
ir flúðastallar sem Helgi Hallgrímsson kallar
Hólmaflúðir og fyrir ofan þá er sérkennilegur
Tungufoss sem fellur báðum megin út af 20–30
m langri og 10 m breiðri klettatungu. Innan við
hann er foss nefndur Skakkifoss því hann vísar
þvert við árfarveginn og snýr í vestur.
Nokkru ofar er tilþrifamikill flúðafoss sem er
hæstur af efstu fossum Jökulsár, nefndur
Hrakstrandarfoss og segja menn gott að sofna í
gangnamannaskála þar við dyninn frá fossinum.
Heildarfallhæð fossins er um 15-20 m. Næsti
foss í Jökulsá er myndarlegur flúðafoss, kallaður
Ufsarfoss.
Efsti fossinn í Jökulsá er hinn nafnkunni
Eyjabakkafoss. Hann er aðeins um 5-10 m hár
en nokkuð breiður og fjölbreyttur foss. Deil-
urnar um Eyjabakkalón eru víðkunnar en lóns-
stæði hefur nú verið gert neðar og þar verður
Ufsarlón. Fyrr þennan fossadag skoðaði ég feg-
urðarveituna Töfrafoss sem var um 20-30 metra
hár en hvarf þegar Jökulsá á Fjöllum var stífluð
og Hálslón fylltist.
Degi er tekið að halla og fossagöngunni lokið.
Ég held aftur í Laugarkofa og baða mig í nátt-
úrulaug við kofann. Helgi segir að þar hafi fyrr á
öldum verið talið heilsusamlegt að baða sig. Í
heitri lauginni velti ég því fyrir mér hvað verði
sagt um okkar samtíð á næstu öldum.
Ræsi bílinn á ný og keyri aftur í Fljótsdalinn
með 420 kV háspennulínur á tröllvöxnum möst-
um í augum. Tíu litlir fossar á mælikvarða Kára-
hnjúkavirkjunar: Landsvirkjunar, Reyðaráls og
Alcoa! Vesturöræfin, víðerni Snæfells, eru nú
mannvirkjasvæði.
Tíu litlir
fossar
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
svörtumyndir sigurþórs
(teikningar sem blöðin hafa ekki viljað birta !)
Ráðhúskaffi
Ráðhús Reykjavíkur 25. okt.– 11. nóv. 2007
was a new
experience
for me !
Killing an Arab
Four years in Iraq