Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2007, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2007, Side 8
Án titils, 2007. Stóra systir og litli bróðir, 1948. 8 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Þ að er eitthvað austurlenskt við þetta, eitthvað sem minn- ir mig á austurlenska skrift, taóískt tóm.“ Sjálfur hafði ég fyrst séð klettabelti í Himalajafjöllum þakið snjó en þó er ég sammála Halldóri þegar hann minnist á þetta. Við Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Ís- lands, erum að ræða verk Kristjáns Davíðssonar en á fimmtudag hófst sýning á verkum listmálarans í Listasafni Íslands. Kristján varð níræður í ár en þetta er þó hvorki yfirlits- né afmæl- issýning. „Við vorum með yfirlitssýningu 1981 og okkur fannst engin ástæða til að gera það aftur. En Kristján er ennþá að þróast og mál- verkin hans taka miklum breytingum og það er langt frá því að þessi öldungur hafi lagt penslana á hilluna, hann málar enn á hverjum degi.“ Áherslan er á verk listmálarans síðustu sautján árin, en Halldóri verð- ur tíðrætt um þær breytingar sem urðu á verkum hans fyrir einum þrettán árum. „Við vildum sýna aðdrag- andann að því og reyna að sýna hvernig þetta gerðist.“ Elsta myndin af sýningunni er þó frá árinu 1948 þannig að alls spannar hún nær hálfrar aldar skeið. Kundera, Kristján og Steinn Steinarr Eldri myndirnar eru meðal fárra fígúra- tívra mynda á sýningunni. „Við vildum bregða ljósi á mannamyndagerð hans,“ segir Halldór og minnist á frægar myndir Kristjáns af Steini Steinarr sem hann segir eitt besta portrett sem málað hefur verið á Íslandi, en Kristján kynntist flestum helstu skáldum Íslands ágætlega og bjó raunar tvisvar í Unuhúsi. Kristján er einnig sjálf- lærður á fiðlu. En hvernig birtast þessi áhrif í verkum hans? „Mér finnst það koma inn með þennan ryþmíska blæ, þarna er einhver hrynjandi sem gerbreytir heildarstrúktúr myndanna.“ Kristján hefur einmitt myndskreytt þónokkrar bókakáp- ur, frægastar þeirra eru nokkrar kápur Milans Kundera, bæði á frönsku, ensku og íslensku, en Kundera ritar einmitt formála bókar um Kristján sem kemur út samhliða sýningunni. „Enda er þar kominn annar maður sem ann frelsinu og kann að meta þann sterka ein- stakling sem Kristján er.“ Eldri myndir Kristjáns einkennast flestar af mikilli litadýrð og mjög sterkum litum. En fyrir einum þrettán árum tekur hvíti liturinn skyndilega völdin. „Þetta er mjög sérkennilegt. Hann hefur alltaf ver- ið mikill teiknari og líklega ekkert óeðlilegt að það komi tímabil þar sem hann vildi leggja megináherslu á teikninguna,“ segir Halldór og bætir við: „En þetta hefur líka sitthvað að gera með hans náttúrusýn. Þetta er vetrarlandslag, tilraun til þess að búa til nýja stemningu, leys- ingar, hláku og snjóalandslag.“ Halldór segir að þótt um abstraktverk sé að ræða sé ekkert launungarmál að Kristján sé iðulega að mála landslag, landslag sem hann hefur ávallt tengst mjög sterkum bönd- um. „Það er líka ákveðið áræði fólgið í því að tæma verkið. Margir halda að aðalatriðið sé að fylla í flötinn en staðreyndin er sú að það er miklu erfiðara að tæma verkið. Þegar þú ert kominn niður í einfalda teikn- ingu er ekkert sem þú getur falið þig á bak við.“ Kristján er mjög ein- staklingsbundinn listamaður sem eltir sjaldnast tískustrauma og rekst illa í hóp. Þó segir Halldór hann þarna hafa verið að svara kalli tímans. „Þetta er tímabil þar sem menn tókust á við tómið með mjög afgerandi hætti, og hann gerir það greinilega. Abstrakt Kjarval Hann er í raun eini listamaðurinn okkar sem hafnar allri reglufestu,“ segir Halldór spurður um sérstöðu Kristjáns. Hann er okkar abstrakt Kjarval, hann líkist honum mjög andlega þótt Kristján sé abstrakt en Kjarval fígúratívur. Þeir eru báðir feikilega miklir teiknarar og báðir miklir einfarar sem eiga sér engar beinar hliðstæður.“ Einnig sér Halldór líkindi við Henri Matisse hinn franska. „Matisse er einn af fáum erlendum listmálurum sem tóku stakkaskiptum eftir sjötugt, mér finnst Kristján líkjast honum að þessu leyti, hann gerir hallarbyltingu í eigin ranni eftir sjötugt – það er þessi afstaða hans sem við erum að halda upp á. Hann er einn okkar fyrsti lýríski ab- straktmálari – og sá sem víkur aldrei af þessari braut en finnur innan þessara marka stöðugt nýjar leiðir. Það er einstakt.“ Kjörlendi góðra listamanna Og Kristján skiptir listamenn samtímans miklu máli. „Hann hefur haft gríðarlega mikil áhrif á yngri kynslóðir hvað það varðar að vera sér á báti. Hann hefur haft mjög losandi áhrif á íslenska list og listamenn. Íslensk list er ekki mjög losaraleg í eðli sínu, hún er mjög bundin og yfirleitt eru Íslendingar mjög agaðir og meira fyrir það að fínpússa en að sletta úr klaufunum. Hann kennir okkur að maður þurfi ekki endi- lega að fínpússa sé maður nógu áræðinn strax í upphafi. Þetta er að skila sér núna til ungu kynslóðarinnar sem virðir þetta áræði æ meir – að spila af fingrum fram, í sjálfu fingraspilinu – í því að láta vaða – er falið eitthvað einstakt sem þú getur ekki stjórnað, en stjórnar samt. Þú ert þarna á mörkunum. Ég held Kristján hafi kennt mörgum yngri listamönnum að á þessum mörkum þess sem þú stjórnar og stjórnar ekki, þar sé kjörlendi góðra listamanna.“ Hvít hallarbylting Á fimmtudag var opnuð sýning á verkum eftir Kristján Davíðsson í Listasafni Íslands. Á sýningunni má sjá afrakstur síðustu sautján ára í list Kristjáns að viðbættum verkum sem bregða ljósi á þróun listamannsins í átt til þeirra stílbriðga sem hann hefur ræktað frá lokum níunda áratugarins. Í tilefni opnunarinnar er endurbirt grein sem Kristján skrifaði í Tímarit Máls og menningar árið 1950 um myndlist samtímans. Einnig er rætt stuttlega við Halldór Björn Runólfsson, forstöðumann Listasafns Íslands, um sýninguna. Halldór B. Runólfsson Erlent landslag II, 1945. Stef, 1963. Án titils, 1997. »Ha áhr varðar ur haft list og Enn að m

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.