Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2007, Page 10
10 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Rúnar Helga Vignisson
rhv@simnet.is
N
ú þegar Nathan
Zuckerman er all-
ur, eins og Philip
Roth hefur fullyrt í
viðtölum, rifjast
upp viðburðaríkur
ferill sem spannar rúma þrjá áratugi.
Zuckerman kemur við sögu í einum
tíu bókum eða þriðja hverju verki
Roths. Hann hefur því verið fyr-
irferðarmikill í lífi lesenda Roths og
spurning hvernig þeir þrífast án
hans.
Nathan Zuckerman kom fyrst
fram í bókinni My Life as a Man árið
1974 og þá sem sköpunarverk enn
annars rithöfundar sem Roth hefur
búið til, Peters Tarnopol. Zuckerman
verður síðan aðalsöguhetja bók-
arinnar The Ghost Writer frá árinu
1979, þá einungis rúmlega tvítugur.
Sögupersónan Zuckerman er búin að
slá í gegn sem rithöfundur í Zuc-
kerman Unbound, The Anatomy Les-
son og The Prague Orgy og á í alvar-
legri sálarkreppu, ekki síst vegna
hneykslismála í kjölfar útkomu bók-
arinnar Carnovsky sem þykir minna
á Portnoy’s Complaint eftir Roth.
Zuckerman er einnig miðsviðs í
skáldsögunni The Counterlife þótt
hann sé ýmist lifandi eða dauður. Síð-
an kemur Ameríski þríleikurinn, hin-
ar vinsælu og margverðlaunuðu bæk-
ur American Pastoral, I Married a
Communist og The Human Stain, þar
sem Zuckerman kemur lítið við sögu
sjálfur heldur rekur sögu annarra.
Reyndar kemur Zuckerman líka ögn
við sögu í sjálfsævisögulegri bók, The
Facts – A Novelist’s Autobiography,
skrifar þar eins konar eftirmála. Nú
kemur að sögn Roths sjálfs síðasta
bókin um Zuckerman, Exit Ghost, og
hún kallast á margan hátt á við fyrstu
bókina um kappann.
Zuckerman kemur úr sveitinni
Zuckerman er vart svipur hjá sjón í
Exit Ghost. Hann hefur verið í sjálf-
skipaðri útlegð uppi í sveit í ellefu ár,
m.a. vegna líflátshótana sem honum
bárust en kannski aðallega vegna
þess að hann fékk krabbamein í
blöðruhálskirtil sem gerði hann bæði
getulausan og ófæran um að stjórna
þvaglátum sínum. Eftir að hafa ein-
beitt sér að ritstörfum allan þennan
tíma er þessi gamli kvennabósi mætt-
ur með bleiu í klofinu til New York í
þeim tilgangi að gangast undir að-
gerð sem á að gera honum kleift að
hafa einhverja stjórn á þvaglátunum
og endurheimta þannig glataða reisn.
Í New York lendir hann aftur inni í
hringiðu mannlífsins og minnir sjálf-
an sig sumpart á fræga söguhetju
Washingtons Irving, Rip Van Winkle,
sem svaf í tuttugu ár og vaknaði til
nýs samfélags. Zuckerman sér mann-
lífið á götum stórborgarinnar með
ferskum augum og undrast t.d. að all-
ir skuli nú hafa svo mikið að segja að
þeir þurfi að tala linnulaust í síma.
Þegar Zuckerman rekst á smáaug-
lýsingu þar sem ungt par óskar eftir
að skipta á íbúð í borginni og sveitinni
ákveður hann að slá til. Hann hefur
samband og kemst að því að um tvo
unga rithöfunda er að ræða, hún um
þrítugt og búin að birta nokkrar smá-
sögur, rétt eins og hann sjálfur þegar
hann heimsótti hinn virta smásagna-
höfund E.I. Lonoff upp í sveit í bók-
inni The Ghost Writer. Nú er Zuc-
kerman orðinn að virtum höfundi
sem er dáður af yngri höfundum. Hér
hafa því orðið algjör umskipti frá
fyrstu bókinni um kappann.
En ýmsir draugar ásækja nú hinn
71 árs gamla Zuckerman.
Arfleifðin
Í framhaldi af kynnum Zuckermans
af ungu rithöfundunum tekur vinur
þeirra, Richard Kliman að nafni, að
herja á hann. Kliman vinnur að ævi-
sögu Lonoffs, sem Roth er talinn
hafa byggt á Bernard Malamud, og
vill gjarnan fá að nota Zuckerman
sem heimild. Kliman segist vilja end-
urreisa nafn þessa mikla rithöfundar
sem sé flestum gleymdur. Gamanið
kárnar hins vegar þegar Kliman
kveðst hafa heimildir fyrir því, m.a.
frá seinni konu Lonoffs, að höfund-
urinn hafi búið yfir hræðilegu leynd-
armáli, sifjaspelli sem hann hafi
framið með systur sinni. Kliman seg-
ist hafa komist yfir helminginn af síð-
asta handriti Lonoffs, skáldsögu sem
honum hafi ekki enst aldur til að
ljúka og fjalli einmitt um þetta sifja-
spell.
Zuckerman hrýs hugur við að
Kliman nái að koma frá sér bók sem
sverti nafn Lonoffs og hótar að gera
allt sem í hans valdi stendur til þess
að koma í veg fyrir það. Kliman gefst
hins vegar ekki upp enda ungur og
fylginn sér, rétt eins og Zuckerman
forðum. Lesanda fer fljótlega að
gruna að andstyggð Zuckermans á
fyrirætlunum Klimans tengist því að
hann óttist sambærilega meðferð að
sér látnum. Og hvert verður þá mitt
„sifjaspell“? spyr hann. Það spilar
líka inn í að Zuckerman telur sér trú
um að Kliman sé elskhugi ungu
skáldkonunnar sem hann þráir sjálf-
ur en getur ekki fengið sökum elli og
krankleika. Þá er hér velt upp spurn-
ingunni um hvort fræðimenn eigi að
nýta sér æviatriði höfundar til að
varpa ljósi á bókmenntaverk hans.
Svar Zuckermans er afdráttarlaust.
Leikrit vanmáttarins
Jamie, skáldkonan unga, vill flýja
New York eftir hryðjuverkaárás-
irnar. Hún er stöðugt hrædd, rétt
eins og hún sé nútímaútgáfa af Önnu
Frank sem einmitt leikur stórt hlut-
verk í The Ghost Writer. Zuckerman
heillast af Jamie eins og við er að bú-
ast í skáldsögu eftir Roth þar sem
ungar konur eru stöðug freisting fyr-
ir óseðjandi karla. Jamie er íturvaxin
og greind og sú samsetning er ómót-
stæðileg fyrir Zuckerman, jafnvel
þótt hann sé kominn til ára sinna og
vart til ástalífs fallinn.
En Jamie gegnir ekki bara því
hlutverki að endurvekja með Zuc-
kerman kenndir sem hafa legið í
dvala í sveitinni. Það vekur athygli að
hún er komin af auðugum Texasbúa
sem þekkir Bush-fjölskylduna. Svo
vill til, og það er auðvitað engin til-
viljun af höfundarins hálfu, að Zuc-
kerman er í New York vikuna sem
forsetakosningarnar milli Bush og
Kerrys fara fram árið 2004. Zuc-
kerman hefur lítt fylgst með þjóð-
málum í sveitinni, hvorki horft á sjón-
varp né lesið blöð, í og með til að
forðast sárindin sem íhaldssamir
stjórnmálamenn hafa valdið honum í
gegnum tíðina. Hann vill ekki að sér
líði eins og barni á fjögurra ára fresti,
upplifi tilfinningar barnsins en sárs-
auka hins fullorðna, eins og hann
orðar það. Roth notar hins vegar Ja-
mie til þess að sýna það uppnám sem
ungt frjálslynt fólk í Bandaríkjunum
komst í þegar úrslit kosninganna
lágu fyrir. Til marks um það er að Ja-
mie dreymir um að vakna upp daginn
eftir að George Bush hefur verið
skotinn. Roth notar þessa ungu konu
einnig til þess að sýna hið tvíbenta
samband norðurríkjanna við suð-
urríkin með því að láta hana lifa á ol-
íupeningum frá föður sínum. Hvaða
áhrif mun Bush hafa á þetta unga
fólk? spyr Zuckerman og veltir fyrir
sér hvort skaðinn sem Bush hefur
valdið muni hafa sambærileg áhrif á
það og Víetnamstríðið á kynslóðina á
undan.
Til að túlka vanmátt Zuckermans
gagnvart ungu konunni er karlinn
látinn skrifa lítið leikrit inn í bókina,
Hann og hún, þar sem hann sviðsetur
ímynduð samtöl milli sín og Jamie.
Einungis þar fær hann útrás fyrir
löngun sína til þess að eiga samskipti
við ungu konuna. En meira að segja
þar reynist hún treg í taumi.
Vofan hverfur
Titill bókarinnar, Exit Ghost eða Vof-
an hverfur, er sóttur í leikritið Mak-
beð eftir Shakespeare. Roth hefur
lýst því í viðtali að hann hafi lesið
Makbeð aftur áður en hann fór á sýn-
ingu á leikritinu og þá hafi þessar
sviðsleiðbeiningar vakið athygli hans,
nánar tiltekið þegar vofa Bankós
hverfur af sviðinu. Leikritið kemur
líka við sögu í bókinni því ungu rit-
höfundarnir lesa það hvort fyrir ann-
að og velta fyrir sér tengslum þess
við ríkisstjórn Georges W. Bush.
Titillinn kallast náttúrlega á við tit-
il fyrstu bókarinnar um Zuckerman,
The Ghost Writer, og hentar að því
leyti vel til þess að loka hringnum.
Nærtækt er að spyrja hvaða vofu
Roth eigi við. Er það hinn ungi Zuc-
kerman úr The Ghost Writer sem
gengur aftur og leitar á hinn aldna
Zuckerman þegar hann kemur til
stórborgarinnar á ný? Eða er gamli
maðurinn orðinn að vofu? Exit Ghost
lýkur á þætti úr leikritinu Hann og
hún og í sviðsleiðbeiningum í lok þess
er því lýst að Zuckerman pakki niður
og haldi á brott. „Gone for good“ eru
lokaorð bókarinnar, farinn fyrir fullt
og allt. Zuckerman sjálfur virðist þá
vera vofan sem lætur sig hverfa og í
framhaldi af því má spyrja hvort
hann sé vofa Roths sjálfs. Það liggur
beint við í ljósi þess að Zuckerman er
iðulega talinn vera hliðarsjálf og mál-
pípa Roths, enda eiga þeir margt
sameiginlegt, s.s. að vera gyðingar,
fæddir sama árið í sömu borg, vera
báðir rithöfundar með skrautlegan
feril að baki og verja ævikvöldinu í
uppsveitum Nýja-Englands. Næsta
skref gæti þá verið að Roth sé að búa
sig undir að hverfa af sjónarsviðinu.
Það getur auðvitað gerst fljótlega,
maðurinn verður 75 ára á næsta ári,
en í viðtali við Hermione Lee fyrir
skemmstu var þó ekki að heyra að
þetta væri síðasta bókin hans, því
hann kvaðst hlakka til að sjá hvað
kæmi í staðinn fyrir Zuckerman.
Kannski eitthvert annað hliðarsjálf
eða hliðarheili eins og Roth hefur
kallað Zuckerman?
Zuckerman sem skapari og
sköpunarverk
Exit Ghost er ekki ein af sterkustu
bókum Roths en hún nýtur hinna
bókanna um Zuckerman og sækir
merkinguna að töluverðu leyti til
þeirra. Zuckerman er húsgangur hjá
þeim sem fylgst hafa með höfund-
arferli Roths en um leið er hann að
vissu leyti bæði afsprengi annarra
bóka Roths og innblástur að enn
fleirum. Roth hefur notað þetta hlið-
arsjálf sitt til þess að fást við ým-
islegt sem á daga hans sjálfs hefur
drifið, svo sem eins og þá hneykslan
sem fór um heiminn þegar Portnoy’s
Complaint kom út, en hann hefur líka
notað Zuckerman til að skyggna
bandarískt þjóðlíf. Ennfremur hefur
Zuckerman skapað höfundi sínum
viðfangsefni í gegnum þá eilífu um-
ræðu sem farið hefur fram um hvort
hann sé bara lítt dulbúinn Roth. Í
framhaldi af því þróaði Roth magn-
aða rannsókn á sambandi lífs og list-
ar sem náði hámarki í tveimur af
bestu bókum hans, The Counterlife
og Operation Shylock, þar sem Philip
Roth er aðalsöguhetjan og á sér líka
tvífara með sama nafni.
Hugmyndafræðina að baki Zuc-
kerman er kannski einna helsta að
finna í bókinni The Facts. Í lok henn-
ar lætur Roth þetta meinta hlið-
arsjálf skrifa sér bréf og leggja mat á
þessi sjálfsævisögulegu skrif. Þá seg-
ir Zuckerman: „Þú ert miklu betur
settur með því að skrifa um mig en
með því að lýsa eigin lífi út í hörgul.“
Hann heldur því fram að í skáldskap
megi komast nær sannleikanum en í
ævisögu, rithöfundurinn hafi þar
frjálsari hendur vegna þess að hann
sé ekki eins upptekinn af velsæmi
borgarans. Það er hins vegar mikil
einföldun að líta svo á að Zuckerman
sé að öllu leyti Roth sjálfur, enda seg-
ist Roth nota raunveruleikann sem
stökkpall inn í skáldskapinn.
Fyrir okkur sem höfum fylgst með
Zuckerman á sínu makalausa ferða-
lagi um tíu bækur þar sem Ameríka
nútímans er undir, með öllum sínum
öfgum, eru þetta ákveðin þáttaskil og
ekki laust við eftirsjá þó að Zuckerm-
an sé ekkert sérstaklega aðlaðandi
persóna. En hann er hispurslaus og
skarpur og segir jafn vel frá og Philip
Roth. Úr því sem komið er, karlinn
kallar sig jú mann sem sé ekki til
lengur, er sennilega best að vofan láti
sig hverfa og leyfi öðrum að komast
að.
Vertu sæll, Zuckerman, og takk
fyrir samveruna. Blessuð sé minning
þín.
Nathan Zuckerman, minning
Nathan Zuckerman fæddist í New-
ark í New Jersey-ríki árið 1933.
Hann var kveðinn niður af skapara
sínum, Philip Milton Roth, f. í New-
ark í New Jersey-ríki 19.3. 1933,
fyrr á þessu ári. Nathan á einn
bróður, Henry, en ekki er vitað með
vissu um afdrif hans.
Nathan stundaði nám við Chi-
cago-háskóla áður en hann hóf rit-
störf. Eftir hann liggja mörg skáld-
verk, en þeirra frægast er
sennilega bókin Carnovsky.
Útförin hefur ekki farið fram
enda mun Zuckerman lifa áfram
með okkur. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á bækur Philips Roth.
Philip Roth „Exit Ghost er ekki ein af sterkustu bókum Roths en hún nýtur hinna bókanna um Zuckerman og sæk-
ir merkinguna að töluverðu leyti til þeirra.“
Höfundur er rithöfundur og hefur
þýtt Philip Roth á íslensku.
» Fyrir okkur sem
höfum fylgst með
Zuckerman á sínu
makalausa ferðalagi
um tíu bækur þar sem
Ameríka nútímans er
undir, með öllum sín-
um öfgum, eru þetta
ákveðin þáttaskil og
ekki laust við eftirsjá
þó að Zuckerman sé
ekkert sérstaklega
aðlaðandi persóna.
Bækur þar sem Zuckerman
kemur við sögu:
My Life as a Man (1974)
The Ghost Writer (1979)
Zuckerman Unbound (1981)
The Anatomy Lesson (1983)
The Prague Orgy (1985)
The Counterlife (1986)
The Facts – A Novelist’s Auto-
biography (1988)
American Pastoral (1997)
I Married a Communist (1998)
The Human Stain (2000)
Exit Ghost (2007)