Morgunblaðið - 30.04.2007, Side 2
2 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
ÁRNI Gautur Arason landsliðs-
markvörður í knattspyrnu verður
laus allra mála hjá norska liðinu
Vålerenga þann 30. nóvember á
þessu ári og ætlar Árni Gautur að
skoða þá möguleika sem eru í stöð-
unni. Árni sagði í gær við Morg-
unblaðið að hann hefði ekki rætt við
forsvarsmenn Vålerenga með form-
legum hætti. „Ég ætla ekki að flýta
mér í þessum málum og ef eitthvað
áhugavert kemur upp á borðið þá
skoða ég það. Mér líður vel hjá Våle-
renga og það kæmi mér ekkert á
óvart að fá nýtt samningstilboð frá
Vålerenga á næstu vikum eða mán-
uðum. Það á allt saman eftir að
koma í ljós. Þetta tekur allt sinn
tíma og ég er ekki einu sinni búinn
að fá mér umboðsmann til þess að
skoða mín mál nánar,“ sagði Árni í
gær. Sambýliskona hans og dóttir
þeirra eru búsettar í Þrándheimi en
Árni býr í Osló. „Konan mín er í
námi í Þrándheimi en ég á ekki von
á því að fara aftur í raðir Rosenborg
í Þrándheimi þrátt fyrir að fjöl-
skylda mín sé þar þessa stundina,“
sagði Árni en hann hefur leikið með
Vålerenga frá árinu 2004. Hann var
um tíma í herbúðum enska úrvals-
deildarliðsins Manchester City. Árni
lék með Rosenborg á árunum 1998-
2003 en liðið vann norska meist-
aratitilinn á hverju ári á þessum
tíma. Árið 2005 varð Árni meistari
með Vålerenga í deildarkeppninni.
Árni Gautur skoðar aðra möguleika
RAGNAR Óskarsson átti enn einn
stórleikinn með liði Ivry í frönsku 1.
deildinni í handknattleik um
helgina. Ragnar skoraði níu mörk
þegar Ivry vann góðan útisigur á
Toulouse, 28:30, og steig þar með
stórt skref í átt að meistaratitlinum.
Ivry náði tveggja stiga forskoti á
Montpellier því Montpellier, sem
hefur hampað meistaratitlinum í
fjögur skipti á síðustu fimm árum,
varð að láta sér lynda jafntefli við
Nimes, 26:26, en Ragnar gengur
sem kunnugt er til liðs við Nimes í
sumar.
Ragnar er markahæstur í deild-
inni – hefur skor-
að 149 mörk – en
næstur á eftir
honum er Túnis-
inn Heykel Meg-
annem með 134
mörk.
Þegar þrjár
umferðir eru eftir
er Ivry efst með
61 stig, Montpel-
lier hefur 59 og Dunkerkque 56.
Bjarni Fritzson skoraði eitt mark
fyrir Créteil sem sigraði Villeur-
banne á útivelli, 19:21, og eru Ragn-
ar og félagar hans í áttunda sæti.
Ragnar með níu fyrir Ivry
Ragnar Óskarsson
Alexander Pet-ersson skor-
aði 9 mörk og var
markahæstur í
liði Grosswall-
stadt sem gerði
jafntefli, 26:26, við
Balingen í þýsku
1. deildinni í hand-
knattleik. Einar
Hólmgeirsson lék hins vegar ekki
með Grosswallstadt vegna meiðsla.
Gylfi Gylfason komst ekki á blaðhjá Wilhelmshavener sem gerði
jafntefli við Hildesheim, 29:29.
FC København, sem þeir ArnórAtlason og Gísli Kristjánsson
leika með, tapaði á heimavelli fyrir
Viborg, 26:29, í fyrsta leik liðanna í
undanúrslitum um danska meist-
aratitilinn í handknattleik. Arnór gat
ekki leikið með København vegna
meiðsla en Gísli skoraði 2 mörk. Hans
Óttar Lindberg, sem á íslenska for-
eldra, var markahæstur í liði Viborg
með 9 mörk.
Heiðmar Felixson skoraði 10mörk fyrir Hannover Burgdorf
þegar liðið gerði jafntefli, 30:30, við
Dessau í norðurriðli þýsku 2. deild-
arinnar í handbolta. Burgdorf er í
fjórða sæti í riðlinum.
Bjarni Ólafur Eiríksson og Hólm-ar Örn Rúnarsson voru í byrj-
unarliði Silkeborg sem tapaði fyrir
FC Köbenhavn, 0:1, í dönsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær. Bjarni
lék allan tímann en Hólmari var skipt
útaf á 60. mínútu. Hörður Sveinsson
gat ekki leikið með Silkeborg vegna
meiðsla. Silkeborg er fallið úr úrvals-
deildinni en FC Köbenhavn hefur
tryggt sér meistaratitilinn.
Sigurður Jónsson og lærisveinarhans í Djurgården töpuðu á úti-
velli fyrir Kalmar, 1:0, í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu. Sölvi
Geir Ottesen var í hópi Djurgården
en kom ekkert við sögu.
Gunnar ÞórGunnarsson
lék allan tímann
fyrir Hammarby
sem vann stór-
sigur á Bromma-
pojkarna. Hamm-
arby er í
toppsætinu með
sjö stig eftir fjórar
umferðir ásamt
Kalmar og Malmö en Djurgården og
Halmstad koma næst með sex stig.
Angelo Peruzzi, markvörður La-zio á Ítalíu, hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna – lék sinn síð-
asta leik geroma í gær, 0:0. Peruzzi,
sem er 37 ára, lék 31 landsleik fyrir
Ítalíu. hann hóf feril sinn Roma 1987,
lék síðan með Verona, Juventus og
Inter, áður en hann gekk til liðs við
Lazio árið 2000.
Fólk sport@mbl.is
Hamburg setti þar með punktinn aft-
an við i-ið hjá þýsku liðunum á Evr-
ópumótunum því fyrr um daginn
hrósuðu Kiel og Magdeburg sigri,
Kiel í Meistaradeildinni með því að
sigra Flensburg og Magdeburg í
EHF-keppninni með sigri á spænska
liðinu Aragon.
Gríðarleg spenna var í ljónagryfju
Ademar Leon-liðsins í gær en 6.500
manns, flestir á bandi heimamanna,
hvöttu sína menn til dáða. Heima-
menn voru fimm mörkum yfir þegar
skammt var til leiksloka en S-Kóreu-
maðurinn Kyung-Shin Yoon var hetja
og tryggði Hamborg Evrópumeist-
aratitilinn þegar honum tókst að
minnka muninn í fjögur mörk 10 sek-
úndum fyrir leikslok.
Sigfús var ekki á meðal markaskor-
ara hjá Ademar Leon en markahæst-
ur í þeirra liði var Möller Jakobsen
með átta mörk.
Yoon átti stórleik hjá Hamburg og
skoraði 10 mörk, þar af eitt af vítalín-
unni. Næstur kom franski línumað-
urinn Bertrand Gille með átta mörk,
en hann fékk að líta rauða spjaldið
fyrir brot um miðjan seinni hálfleik.
Sigfús neitaði viðtali
Sigfús var greinilega ekki ánægður
með lífið eftir leikinn, en framkoma
hans var til skammar þegar Morgun-
blaðið leitaði viðbragða hans eftir
leikinn. Sigfús nánast skellti á blaða-
mann og það eina sem hann sagði var:
„Ég hef ekkert að segja. Talaðu við
mig einhvern tímann seinna,“ sagði
Sigfús.
Langþráður sigur hjá Kiel í
Meistaradeildinni
Kiel vann langþráðan sigur í Meist-
aradeild Evrópu þegar liðið lagði
Flensburg, 29:27, í síðari úrslitaleikn-
um sem háður var í Ostsee-höllinni í
Kiel að viðstöddum 10.500 áhorfend-
um. Jafntefli varð í fyrri leiknum,
28:28, og því vann Kiel samanlagt,
57:55. Kiel hafði undirtökin lengstum
gegn Flensburg. Staðan í hálfleik var
15:10, en með mikilli seiglu tókst
Flensburg að hleypa spennu í leikinn
á lokamínútum leiksins. Liðið varð
fyrir áfalli á 19. mínútu þegar Daninn
Joachim Boldsen fékk að líta rauða
spjaldið.
Það var sænski landsliðsmaðurinn
Kim Andersson sem innsiglaði sigur
Kiel þegar hann skoraði 29. markið á
lokasekúndum leiksins en Andersson
jafnaði metin í fyrri leiknum í Flens-
burg.
Frakkinn Nicola Karabatic var
markahæstur í Kiel með níu mörk,
Christian Zeitz skoraði sjö og Kim
Andersson fimm. Franski landsliðs-
markvörðurinn Thierry Omayer átt
enn einn stórleikinn á milli stanganna
hjá Kiel en hann varði 20 skot. Marcin
Lijewski var atkvæðamestur hjá
Flensburg með sjö mörk og þeir And-
ers Eggert og Torge Johannsson
gerðu fjögur mörk hvor.
Kiel getur þar með unnið þrennu á
tímabilinu. Liðið hefur þegar tryggt
sér sigur í bikarkeppninni og Meist-
aradeildinni og trónir á toppi þýsku 1.
deildarinnar.
Magdeburg vann EHF-keppnina
Magdeburg fagnaði sigri á heima-
velli gegn spænska liðinu Aragon,
31:28, í síðari úrslitaleiknum í EHF-
keppninni en fyrri leiknum lyktaði
með jafntefli, 30:30.
Pólverjinn Grzegorz Tkaczyk skor-
aði sex mörk fyrir Magdeburg og þeir
Bartosz Jurecki, Joel Abati og Karol
Bielecki gerðu fimm mörk hver fyrir
Magdeburg.
AP
Fögnuður Leikmenn Kiel fagna ógurlega eftir að hafa verið krýndir Evrópumeistarar eftir sigur á Flensburg í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni sem
fram fór í gær. Kiel á möguleika á að vinna þrennuna á tímabilinu en liðið hefur þegar unnið tvo titla á leiktíðinni.
Kyung-Shin Yoon gerði
draum Sigfúsar að engu
SIGFÚS Sigurðsson, handknatt-
leiksmaður hjá spænska liðinu
Ademar Leon, fékk draum sinn
ekki uppfylltan í gær. Ademar
Leon sigraði þýska liðið Hamburg,
37:33, í síðari úrslitaleik liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa á Spáni í
gær en það dugði ekki til. Þjóðverj-
arnir hrósuðu sigri en þeir höfðu
betur á útimarkareglunni því fyrri
leiknum í Þýslalandi lauk með sigri
Hamburg, 28:24, og því samanlögð
markatala úr leikjunum tveimur
61:61.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
EIÐUR Smári Guðjohnsen sat á
bekknum hjá Barcelona allan tím-
ann þegar liðið marði Lavente, 1:0,
í spænsku 1. deildinni í gær. Samuel
Eto’o skoraði sigurmarkið í fyrri
hálfleik.
Toppliðin unnu öll og allt stefnir í
æsilega baráttu um titilinn. Sevilla,
sem er stigi á eftir Börsungum,
lagði Espanyol, 3:1, og Real Ma-
drid, sem er tveimur stigum á eftir
Barcelona, gerði enn betur því liðið
burstaði Bilbao á útivelli, 4:1. Ruud
van Nistelrooy skoraði tvö mark-
anna og þeir Sergio Ramos og Guti
gerðu sitt markið hver.
Eiður sat á bekknum