Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Veigar PállGunnarsson lagði upp mark fyrir Stabæk í norsku úrvals- deildinni í knatt- spyrnu í gær í 1:1-jafntefli liðs- ins gegn Start á útivelli. Veigar gaf fína sendingu á Daniel Nann- skog í fyrri hálfleik og skoraði sænski framherjinn en Start jafnaði leikinn með síðustu spyrnu leiksins. Veigar Páll skoraði mark í fyrri hálfleik sem var ekki dæmt gilt vegna rangstöðu. Jóhannes Harð- arson var ekki í leikmannahópi Start en hann er að jafna sig af meiðslum.    Kristján Örn Sigurðsson ogÓlafur Örn Bjarnason voru í byrjunarliði Brann sem sótti meist- aralið Rosenborg heim í Þránd- heimi. Rosenborg hafði betur, 3:0, en þetta var fyrsti tapleikur Brann í fyrstu fjórum umferðum deild- arinnar. Ármann Smári Björnsson kom ekki við sögu hjá Brann en hann var á meðal varamanna liðsins.    Hannes Þ. Sigurðsson var í byrj-unarliði Viking sem tapaði 2:0 á útivelli gegn Fredrikstad. Garðar Jóhannsson var ekki í leik- mannahópi Fredrikstad og Hösk- uldur Eiríksson var ekki í liði Vik- ing. Birkir Bjarnason kom við sögu í liði Viking en hann fór inn á sem varamaður á 34. mínútu í fyrri hálf- leik en var síðan skipt út af á 65. mínútu. Vakti sú skipting mikla at- hygli norskra fjölmiðla enda ekki á hverjum degi sem slíkt sést í knatt- spyrnuleik. Rúmlega 12 þúsund áhorfendur voru á leiknum.    Haraldur Guðmundsson var ívörn Aalesund í miklum botnslag gegn Odd/Grenland. Har- aldur fékk gult spjald í síðari hálf- leik en vörn liðsins hrundi á síðustu mínútum leiksins þar sem Odd skor- aði þrjú mörk á 10 mínútna kafla.    Árni GauturArason var í marki Vålerenga sem gerði marka- laust jafntefli á heimavelli gegn Strömsgodset á laugardag. Våle- renga fékk fjöl- mörg færi í leikn- um en liðinu hefur gengið afar illa að skora.    ÍA sigraði KA, 6:4, í æfingaleikfyrir norðan í gær en áður hafði liðið gert 0:0-jafntefli við Þór. Bjarni Guðjónsson skoraði tvö marka ÍA. Fólk sport@mbl.is „Þetta er mikið afrek og við erum í undarlegri stöðu. Við vildum fagna þessum árangri eins og við værum meistarar en við vitum að þetta lið getur farið enn lengra og strákarnir hafa trú á því að þeir geti unnið hvaða lið sem er. Næsta verkefni er skammt undan og við ætlum að halda áfram á sömu braut, sagði Skiles. Lið sem er 3:0 undir í leiks- eríu í úrslitakeppni NBA-deildar- innar hefur aldrei náð að snúa við blaðinu og var þetta í 80. sinn sem að lið vinnur 4:0 í sjö leikja seríu í NBA-deildinni. Í stóru atvinnu- deildunum í Bandaríkjunum haf þrjú lið náð að vinna fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjunum, 1942 Toronto Maple Leafs, 1975, New York Islanders og árið 2004 náði hafnarboltaliðið Boston Red Sox að komast í þann hóp. Pat Riley þjálfari Miami Heat sagði fyrir fjórða leikinn gegn Bulls að NBA-lið ætti eftir að gera slíkt hið sama, að vinna fjóra leiki í röð í stöðunni 3:0. „Einhverntíma mun eitthvað lið ná slíkum árangri,“ sagði Riley en hann hafði ekki rétt fyrir sér að þessu sinni. Bulls alla leið í úrslit? „Við áttum í höggi við mjög gott lið og að mínu mati áttu þeir skilið að fara áfram. Ég tel að Chicago Bulls geti vel farið alla leið í úrslit NBA-deildarinnar,“ bætti Riley við. Dwyane Wade skoraði 24 stig fyrir Heat en hann hitti aðeins úr 8 af alls 22 skotum sínum í leiknum. Wade gaf 10 stoðsendingar. Sha- quille O’Neal var með 18 stig en að venju var vítanýting hans skelfileg en hann náði ekki að skora úr 7 vítaskotum sínum í leiknum. Alonzo Mourning skoraði 14 stig og James Posey tók 18 fráköst og þar af 17 í vörn sem er félagsmet. Wallace „heitur“ Á lokakafla leiksins brutu leik- menn Heat á Ben Wallece í hvert sinn sem hann fékk boltann en hann er lélegasta vítaskytta liðsins. Wallace þakkaði fyrir sig með því að skora úr sjö af alls átta víta- skotum sínum á lokakaflanum. „Ég gæti tekið átta vítaskot í næsta leik og ekkert þeirra færi ofaní. Í þess- um leik gekk þetta vel. Liðið er að þroskast í rétta átt,“ sagði Wallace eftir leikinn en hann mætir fyrrum liðsfélögum sínum úr Detroit Pi- stons í undanúrslitum. Ben Gordon var stigahæstur í liði Bulls með 24 stig og Luol Deng skoraði 22 stig og tók að auki 11 fráköst. Bakverðir Bulls fóru á kostum í leikseríunni með þá Gordon og Kirk Hinrich fremsta í flokki. Chicago Bulls „sópaði“meisturunum út úr úrslitakeppni NBA-deildarinnar AP Vonbrigði Shaquille O’Neal miðherji Miami Heat fór snemma í sumarfrí í ár í NBA-deildinni eftir fjórða tap liðsins gegn Chicago Bulls. Heat átti aldrei mögu- leika gegn Chicago Bulls CHICAGO Bulls gerði sér lítið fyrir og lagði Miami Heat í fjórða leikn- um í röð í átta liða úrslitum Aust- urdeildar í NBA-deildinni í körfu- knattleik í gær, 92:79, og er meistaralið s.l. árs úr leik. Miami Heat skoraði aðeins 79 stig á heimavelli sínum gegn 92 stigum Bulls en liðið mætir Detroit Pistons í undanúrslitum. Þetta er í fyrsta sinn sem Bulls vinnur leikseríu í úr- slitakeppninni eftir að Michael Jor- dan hætti að leika með liðinu. Í HNOTSKURN »Árið 2000 tapaði San Ant-onio Spurs í fyrstu umferð úrslitakeppninnar gegn Phoe- nix Suns en Spurs hafði titil að verja. Bulls er fyrsta liðið sem vinnur ríkjandi meistaralið í fyrstu umferð frá árinu 2000. »Scott Skiles þjálfari Bullsvar þjálfari Suns árið 2000. »Alonzo Mourning leik-maður Miami Heat hefur hug á því að leggja skóna á hilluna. RÓBERT Fannar Halldórsson og Rósa Jóns- dóttir urðu um helgina Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í skvassi sem fram fór í húsakynnum Vegg- sports. Þetta er þriðja árið í röð sem Róbert fagn- ar meistaratitlinum en fimmta árið í röð sem Rósa ber sigur úr býtum. Kim Magnús Nilsen, margfaldur Íslands- meistari, varð annar í karlaflokki en hann tapaði úrslitaleiknum, 3:0 (9:4. 9:4, 9:3). Sig- urður Sveinsson hafnaði svo í þriðja sæti. Rósa sigraði Hildi Ágústu Ólafsdóttur í úrslitaleik, 3:0 (9:7, 9:1, 9:2). Í þriðja sætinu hafnaði Brynja Halldórsdóttir. Í A-flokki karla bar Helgi Geirharðsson sigur úr býtum en hann sigraði gömlu handboltakempuna Valdimar Grímsson í úr- slitaleik. Í flokki 40 ára og eldri varð svo Þrándur Arnþórsson hlut- skarpastur. Róbert og Rósa vörðu titla sína Rósa Jónsdóttir BAYERN München þarf á kraftaverki að halda ef liðinu á að takast að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Bæjarar biðu lægri hlut fyrir Hamburg, 1:2, á heimavelli sínum og sitja sem fastast í fjórða sæti, sjö stigum á eftir liðinu í þriðja sæti þegar þremur umferðum er ólokið. Þrjú efstu liðin vinna sér sæti í Meistaradeildinni svo allt stefnir í að Bayern, sem hefur unnið meistaratitilinn í sjö skipti á síðustu tíu arum, verði ekki með í Meistaradeildinni í fyrsta skipti síðan 1996. ,,Það er augljóst að lið okkar mun taka miklum breytingum fyrir næsta tímabil. Stuðningsmenn okkar heimta breytingar. Margir leikmanna okkar hafa fengið tækifæri en hafa ekki nýtt það og þeir verðskulda ekki fleiri. Við eigum fullt af peningum og það verður byggt upp nýtt lið,“ sagði Ulu Höness fram- kvæmdastjóri Bayern München eftir ósigurinn gegn Hamburg. Fregnir bárust af því á laugardaginn en Bæjarar hafi náð samkomulagi um kaup á ítalska landsliðsmiðherjanum Luca Toni frá Fiorentina og þá hefur Miroslav Klose framherji Wer- der Bremen og þýska landsliðsins verið sterklega orðaður við liðið. Bayern kemst ekki í Meistaradeildina KRISTJÁN Helgason tryggði sér á laug- ardaginn Íslandsmeistaratitilinn í snóker þegar hann lagði Brynjar Valdimarsson í úrslitum sem fram fóru á Billjardbarnum í Faxafeni. Kristján vann nokkuð öruggan sigur eða með níu römmum gegn tveimur. Í undanúrslitunum hafði Kristján betur gegn Unnari Bragasyni, 7:1, og Brynjar sigraði Tryggva Erlingsson, 7:2. Kristján varð síðast Íslandsmeistari árið 2001, í fyrra hampaði Jóhannes B. Jóhannesson Íslandsmeistaratitlinum en Brynjar, sem tap- aði fyrir Kristjáni, var krýndur meistari fyrir þremur ár- um. Gylfi Ingason varð Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og Tryggvi Erlingsson í flokki 40 ára og eldri. Þá urðu Kristján Helgason og Jóhann Marel Viðarsson Íslandsmeistarar í tvímenningi. Kristján Íslands- meistari í snóker Kristján Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.