Morgunblaðið - 30.04.2007, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 3
íþróttir
Það hefur aldrei verið þægilegra að eignast Aygo. Núna þarftu ekki að hafa áhyggjur af neinu nema
að keyra bílinn – við sjáum um restina.
Aygo. Engar áhyggjur.
Ofkeyrðu þig.
www.aygo.is
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Kostar ekkert,
þannig séð
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
3
73
72
0
4/
07
*Sértilboð Elísabetar og AYGO. M.v. 84 mánuði. Innifalið er afborgun af láni, tryggingar
(ábyrgðar- og kaskótrygging) og bifreiðagjöld á fyrsta tímabili.
26.855 kr.* á mánuði:
Innifalið: Afborgun af láni - Tryggingar - Bifreiðagjald 1. tímabils - Engin útborgun.
engin útborgun
Ásthildur Helgadóttir og DóraStefánsdóttir léku báðar með
Ldb Malmö sem gerði markalaust
jafntefli við AIK í Stokkhólmi í
fjórðu umferð sænsku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu. Þetta voru
fyrstu stigin sem Malmö tapar á
leiktíðinni og fyrsti leikurinn sem
Ásthildi tekst ekki að skora en hún
hefur skorað fimm mörk í deildinni
og er markahæst. Ásthildi var skipt
útaf á 82. mín.
Margrét Lára Viðarsdóttir skor-aði tvö mörk og Guðný Björk
Óðinsdóttir eitt þegar Valur sigraði
Keflavík, 3:0 , í undanúrslitum
Lengjubikarsins í knattspyrnu.
Olga Færseth tryggði KR sig-urinn á Breiðabliki í hinum
undanúrslitaleiknum með eina
marki leiksins og því verða það Val-
ur og KR sem mætast í úrslitum
keppninnar um næstu helgi.
Jack Rodwell, leikmaður Everton,tryggði enska 16 ára landsliðinu,
sigur á Spánverjum í æfingaleik á
nýja Wembley-leikvanginum í gær –
skoraði á 52 mín., 1:0. Leikmenn
enska liðsins, sem mæta Íslend-
ingum á EM í vikunni, áttu tvö skot
sem höfnuðu á tréverkinu á marki
Spánverja. Það var við hæfi að Ever-
ton-leikmaður skoraði sigurmarkið,
en leikmenn enska liðsins léku með
sorgarbönd vegna fráfalls Alan Ball.
Marel J. Baldvinsson skoraðimark fyrir Molde er liðið
gerði jafntefli við Hönefoss í norsku
1. deildarkeppninni í gær, 1:1.
Fólk sport@mbl.is
PSV og Ajax enduðu bæði með 75
stig og aðeins einu marki munaði á
liðunum í markatölunni en Alkma-
ar var með vænlega stöðu fyrir
lokaumferðina, 72 stig, og hag-
stæðustu markatöluna. Grétar
segir að spennustigið í hópnum
hafi ekki verið hærra en venjulega
þrátt fyrir mikilvægi leiksins. Lið-
ið hafi lagt upp með sömu leik-
aðferð og í undanförnum leikjum
en eftir að markverði Alkmaar var
vísað af velli með rautt spjald í
upphafi leiks breyttust áherslurn-
ar. „Við misstum markmanninn
okkar útaf með rautt spjald á 18.
mínútu og þeir skora úr víta-
spyrnu sem dæmd var á hann. Eft-
ir það lékum við 10 gegn 11 manna
vörn Excelsior. Þeir léku „hand-
boltavörn“ eftir að hafa skorað
fyrsta markið en við náðum að
jafna og settum mikla pressu á þá.
Þeir komust í 2:1 – með ótrúlegu
marki, þrumuskoti lengst utan af
velli. Ég held að sá náungi hafi
aldrei áður skorað mark fyrir Ex-
celsior en boltinn small í þver-
slánni og fór að margra mati ekki
yfir marklínu. En línuvörðurinn
taldi að boltinn hefði farið inn fyrir
marklínuna. Við náðum að jafna í
2:2 og síðustu mínúturnar lögðum
við allt í sóknarleikinn sem varð til
þess að þeir sluppu í gegn og skor-
uðu þriðja markið rétt fyrir leiks-
lok. Svona er fótboltinn og við
verðum búnir að jafna okkur eftir
tvo daga þegar við mætum á æf-
ingu á ný. Ég dreg samt ekkert úr
því að okkur leið ekki vel eftir
leikinn í dag og menn voru mjög
vonsviknir með úrslitin,“ sagði
Grétar Rafn.
Lengra keppnistímabil
Keppnistímabilið lengist veru-
lega hjá Alkmaar eftir leiki gær-
dagsins en liðið þarf nú að leika
allt að fjóra leiki til viðbótar um
laust sæti í Meistaradeildinni.
„Okkur tókst að stytta sumarfrí-
ið um þrjár vikur með því að tapa
gegn Excelsior. Um næstu helgi
leikum við til úrslita í bikarkeppn-
inni gegn Ajax í Rotterdam. Síðan
taka við leikir um laust sæti í
Meistaradeildinni. Þeir gætu orðið
fjórir og við gerðum okkur grein
fyrir því í gær að sumarfríið verð-
ur stutt í ár. Það eru mikil hátíð-
arhöld hérna í Hollandi þessa dag-
ana þar sem drottningin á afmæli
og við fáum því tvo aukafrídaga.
Það eina góða við þetta er að það
er stutt í næsta leik. Sjálfur bik-
arúrslitaleikurinn, og ég er ekki í
vafa um að við verðum mjög
grimmir í úrslitaleiknum gegn
Ajax. Það er titill í húfi og þann
titil ætlum við að taka. Það er ekki
góð tilfinning að sjá á eftir meist-
aratitlinum í lokaumferðinni en
eins og ég hef sagt áður þá getur
allt gerst í fótbolta, “ sagði Grétar.
Koeman í sögubækurnar
PSV hefur 20 sinnum fagnað
sigri í hollensku deildarkeppninni
og Ronald Koeman þjálfari PSV er
aðeins annar þjálfarinn í sögu
deildarinnar sem fagnar meistara-
titli með tveimur liðum sem þjálf-
ari. Koeman var þjálfari Ajax þeg-
ar liðið varð hollenskur meistari
2002 og 2004. Þriðja sætið hjá AZ
Alkmaar er besti árangur liðsins í
22 ár en liðið varð síðast í þriðja
sæti árið 1985.
Cocu tryggði titilinn
Leo Beenhakker stýrði Ajax til
sigurs í deildinni tvívegis, 1980 og
1990. Hann var þjálfari Feyenoord
sem varð meistari árið 1999.
PSV skoraði tvívegis á fyrstu 10
mínútum leiksins í gær en það var
fyrirliðinn Philip Cocu sem skoraði
fimmta mark PSV á 77. mínútu og
það mark tryggði PSV meistaratit-
ilinn.
„Þetta er ótrúlegt. Það voru
margir sem afskrifuðu okkar lið á
lokasprettinum en við gáfumst
aldrei upp,“ sagði Cocu í leikslok.
Ajax var nálægt því að tryggja sér
30. meistaratitilinn en 2:0-sigur
liðsins gegn Willem dugði ekki að
þessu sinni en Ajax leikur til úr-
slita í bikarkeppninni um næstu
helgi.
PSV leikur í Meistaradeildinni á
næstu leiktíð en fjögur lið berjast
nú um eitt laust sæti í Meist-
aradeildinni í úrslitakeppni. Ajax
og Herenveen mætast og AZ
Alkmaar leikur gegn Twente.
Alkmaar var með bestu marka-
töluna, 52 mörk í plús,
PSV var með 50 mörk í plús en
Ajax var með 49 mörk í plús.
Reuters
Meistarar Phillip Cocu fyrirliði PSV hafði ástæðu til þess að fagna í gær.
„Ótrúlega
svekkjandi“
„ÞAÐ var ekkert sérstaklega góð
stemmning í búningsklefanum eft-
ir leikinn en við fáum tækifæri til
þess bæta þetta upp um næstu
helgi þegar við leikum til úrslita
gegn Ajax í bikarkeppninni,“
sagði Grétar Rafn Steinsson leik-
maður hollenska liðsins AZ
Alkmaar en liðið sá á eftir hol-
lenska meistarartitlinum í loka-
umferðinni í gær eftir 3:2-tap á
útivelli gegn Excelsior. Á sama
tíma landaði PSV sigri gegn Vi-
tesse Arnhem, 5:1 og það dugði til
sigurs í deildarkeppninni.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
PSV hirti meistaratitilinn fyrir
framan nefið á Grétari Rafni Steins-
syni og félögum hans í AZ Alkmaar
ÓLAFUR Stefánsson og félagar
hans í spænska handknattleikslið-
inu Ciudad Real stigu stórt skref í
átt að spænska meistaratitlinum
þegar þeir lögðu Portland San Ant-
onio, 30:27, í uppgjöri tveggja efstu
liðanna í deildinni sem fram fór á
heimavelli Ciudad Real. Ólafur fór
fyrir sínu liði og var markahæstur
með sjö mörk, þar af þrjú úr víta-
köstum, en næstir komu Sergei Ru-
tenka og Zorman með fjögur mörk
hvor. Ciudad gerði nánast út um
leikinn með frábærum leik í fyrri
hálfleik en staðan í leikhléi var
17:11 og þann mun náði Portland
aldrei að brúa. Þegar fimm umferð-
um er ólokið hefur Ciudad Real
eins stigs forskot á Portland. Ciu-
dad hefur 47 stig, Portland San
Antonio 46, Barcelona er í þriðja
sæti með 41 og Sigfús Sigurðsson
og félagar hans í Ademar Leon eru
í fjórða sæti með 38 stig.
Portland á mun erfiðari leiki eft-
ir – á eftir að sækja Barcelona og
Ademar Leon heim en Ciudad á eft-
ir að mæta Barcelona á heimavelli.
Ólafur með sjö í topp-
slagnum á Spáni