Morgunblaðið - 30.04.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
,,Við erum enn á lífi,“ sagði Alan Cur-
bishley, knattspyrnustjóri West Ham,
eftir frábæran 3:0 útisigur á Wigan í
sannköllum fallslag sem háður var á
JJB Stadium. West Ham lék einn af
sínum bestu leikjum á tímabilinu og
þeir Luis Boa Morte, hans fyrsta
mark fyrir félagið, Yosso Benayoun
og Marlon Herewood sáu um að
skora mörkin gegn Wigan sem lék
sinn sjöunda leik í röð án sigurs í
deildinni.
,,Að koma hingað, vinna 3:0 sigur
og spila eins og við gerðum var frá-
bært. Við verðum að taka þetta með
okkur í næsta leik. Við eigum tvo
leiki eftir og þurfum að fá eins mikið
af stigum út úr þeim og mögulegt er.
Við erum á góðum skriði og þessi
frammistaða í síðustu leikjum hefur
gefið okkur möguleika,“ sagði Curbis-
hley.
Fellur Hermann með fjórða
liðinu í úrvalsdeildinni?
Líkur á að Hermann Hreiðarsson
falli með fjórða liðinu úr úrvalsdeild-
inni eru töluvert miklar eftir að liðið
steinlá fyrir Blackburn á Ewood
Park, 4:1. Hermann varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark þegar hann
kom Blackburn í 2:1 og manni færri
síðasta hálftímann fékk liðið á sig tvö
mörk til viðbótar.
Gefumst ekki upp
,,Við megum ekki gefast upp. Við
eigum enn möguleika á að bjarga
okkur út úr vandræðunum. Það þarf
samt allt að falla með okkur til þess.
Úrslitin í leik Wigan og West Ham
voru okkur hagstæð og við erum
þakklátir fyrir það en ég ætla ekkert
að spá í hvað við þurfum mörg stig til
víðbótar til að forðast fallið. Við eig-
um leik gegn Tottenham á mánudag-
inn og þá hafa hin botnliðin spilað og
þá vitum við hvað við þurfum að
gera,“ sagði Alan Pardew knatt-
spyrnustjóri Charlton.
,,Úrslitin í leiknum voru ekki sam-
kvæmt gangi leiksins. Ég hélt að við
værum að landa sigri og jafnvel þótt
við værum manni undir, en því miður
tókst það ekki,“ sagði Pardew. Ben
Thatcher fékk að líta rauða spjaldið
þegar hann fékk sína aðra áminningu
á 63. mínútu.
Syrtir í álinn hjá Fulham
Fulham tapaði fyrir Arsenal, 3:1, á
Emirates í gær og er Fulham-liðið
komið í bullandi fallbaráttu en því
hefur tekist að vinna í síðustu tíu
leikjum sínum. Fulham tekur á móti
Liverpool um næstu helgi en leikur
við Middlesbrough á útivelli í loka-
umferðinni.
Julio Baptista kom Arsenal yfir
með fallegu skallamarki á 4. mínútu
og heimamenn réðu lögum og lofum í
fyrri hálfleik en tókst ekki að bæta
við fleiri mörkum áður en flautað var
til leikhlés. Heiðar Helguson kom
inná í liði Fulham eftir stundarfjórð-
ung í seinni hálfleik og hann hleypti
meira lífi í sóknarleik liðsins. Þó kom
jöfnunarmark Simons Davies eins og
þruma úr heiðskíru lofti á 78. mínútu
og skrifast á Jens Lehmann. En
Adam var ekki lengi í paradís hjá
gestunum. Emmanuel Adebayor kom
Arsenal í 2:1 og Gilberto Silva inn-
siglaði sigurinn með marki úr víta-
spyrnu. Arsenal á því enn möguleika
á þriðja sætinu en eftir ósigur Liver-
pool gegn Portsmouth munar aðeins
einu stigi á liðunum.
Æsileg fallbarátta
ÞAÐ stefnir í æsilega fallbaráttu í
ensku úrvalsdeildinni og líklegt að
úrslitin í þeirri grimmu baráttu
ráðist ekki fyrr en í lokaumferð-
inni sem fram fer sunnudaginn 13.
maí. Watford er þegar fallið en sex
lið eiga á hættu að fylgja því niður.
Þeirra á meðal eru þrjú Íslend-
ingalið, Charlton, sem Hermann
Hreiðarsson leikur með, West Ham
United sem er í eigu þeirra Egg-
erts Magnússonar og Björgólfs
Guðmundssonar, og Fulham sem
Dalvíkingurinn Heiðar Helguson
leikur með. Auk þeirra eru Wigan,
Sheffield United og Middlesbrough
í baráttunni um að forðast fallið en
síðastnefnda liðið stendur best að
vígi.
AP
Bjargvættur Carlos Tevez hefur leikið stórt hlutverk með liði West Ham í undanförnum leikjum.
Þrjú Íslendingalið eiga á hættu að fylgja Watford niður í 1. deildina – Hermann
skoraði sjálfsmark á Ewood Park þegar Charlton steinlá fyrir Blackburn
Í HNOTSKURN
»Charlton á eftir að mætaTottenham á heimavelli og
Liverpool á útivelli í síðustu
tveimur leikjum sínum í deild-
inni.
»West Ham tekur á móti Bolt-on um næstu helgi og sækir
Manchester United heim á Old
Trafford í lokaumferðinni.
»Wigan á eftir að spila viðMiddlesbrough á heimavelli
og Sheffield United á útivelli.
Fulham tekur á móti Liverpool í
næst síðustu umferðinni og sæk-
ir Middlesbrough heim í loka-
umferðinni.
Gylfi Ein-arsson var
ekki í leik-
mannahópi Leeds
sem gerði 1:1-
jafntefli við Ips-
wich á heimavelli
sínum. Leeds er
þar með fallið í 2.
deildina en þegar
einni umferð er ólokið er Leeds í
þriðja neðsta sæti, þremur stigum á
eftir Hull, en markatala Leeds er
það miklu verri að liðið getur ekki
bjargað sér.
Theódór Elmar Bjarnason var ámeðal varamanna hjá Celtic
sem tapaði á heimavelli fyrir Hearts
í skosku úrvalsdeildinni í gær. He-
arts spillti þar með partíinu hjá Cel-
tic en eftir leikinn fékk Celtic meist-
arabikarinn sem það var fyrir löngu
búið að vinna. Eggert Jónsson var
ekki í leikmannahópi Hearts.
Arsenal varð í gær Evrópumeist-ari í kvennaflokki þegar liðið
gerði markalaust jafntefli við
sænska liðið Umeå í síðari úrslita-
leik liðanna sem háður var í Lund-
únum. Arsenal vann fyrri leikinn í
Svíþjóð, 1:0, og er það með fyrsta
liðið utan Skandinavíu og Þýska-
lands til að hampa Evrópubikarnum.
Á leið sinni í átt að Evrópubikarnum
sló Arsenal lið Breiðabliks út.
Jose Mourinho,knatt-
spyrnustjóri
Chelsea, segist
ekki bera neinn
kala til Phils Ne-
villes, fyrirliða
Everton, sem
varð fyrir því
óláni að skora í
eigið mark gegn
sínum gömlu félögum í Manchester
United. „Ég er ekki búinn að sjá
markið en ég efast ekki um heið-
arleika Nevilles og hef enga ástæðu
til að ætla að það hafi verið eitthvert
óhreint mjöl í pokahorninu,“ sagði
Mourinho.
John O’Shea sagðist ekki hafa trú-að sínum eigin eyrum þegar Wes
Brown tjáði honum að Chelsea hefði
gert jafntefli við Bolton á Stamford
Bridge. „Þegar við gerðum fjórða
markið þá kom Brown til mín og
sagði að Chelsea væri að gera jafn-
tefli. Ég trúði honum ekki og hélt að
hann væri að fíflast,“ sagði O’Shea,
sem skoraði fyrsta mark United í
leiknum gegn Everton.
Enska knattspyrnusambandiðætlar að rannska hvað fór úr-
skeiðis á Elland Road, heimavelli
Leeds, en gera þurfti hálftíma hlé á
leiknum þegar stuðningsmenn
Leeds þustu inn á völlinn þegar Ips-
wich jafnaði metin á lokamín-
útunum.
MichaelOwen mun
hugsanlega koma
við sögu hjá
Newcastle í
fyrsta sinn á leik-
tíðinni í kvöld
þegar liðið mætir
Reading, sem
þeir Ívar Ingimarsson og Brynjar
Björn Gunnarsson leika með. Owen
hefur ekkert leikið síðan hann
meiddist alvarlega á hné í leik Eng-
lendinga og Svía á HM.
Didier Drogba, Chelsea, er semfyrr markahæstur í úrvals-
deildinni. Hann hefur skorað 19
mörk, þremur meira en Cristiano
Ronaldo hjá Manchester United.
Benni McCarthy, Blackburn kemur
svo í þriðja sætinu með 15 mörk.
Fólk sport@mbl.is
,,VIÐ gerðum okkur seka um mistök. Jafn-
tefli á útivelli gegn Arsenal hefðu verið
frábær úrslit en eftir að við jöfnuðum ætl-
uðum við bara að sækja til sigurs og það
bitnaði á varnarleiknum,“ sagði Lawrie
Sanchez knattspyrnustjóri Fulham eftir
ósigurinn gegn Arsenal, 3:1, í gær.
Sanchez sem tók við liði Fulham af Chris
Coleman fyrir nokkru hefur því enn séð
sigur hjá sínum mönnum en Fulham hefur
nú leikið tíu leiki í röð án sigurs og með
sama áframhaldi bíður liðsins fátt annað en
fall.
,,Við eigum tvo leiki eftir, þar af annan á
heimavelli og við eigum góða möguleika á
að halda sætinu. Við verðum að sýna stuðn-
ingsmönnum hvað í liðinu býr,“ sagði Sanc-
hez.
Viljum ná þriðja sætinu
,,Við höfum skapað okkur fleiri tækifæri
en nokkurt annað lið í deildinni en nýtingin
hjá okkur hefur ekki verið góð og það var
uppi á teningnum í þessum leik. Tímabilið
er ekki búið hjá okkur. Við viljum ná þriðja
sætinu og sýna með því stuðningsmönnum
okkar virðingu því heilt yfir höfum við ekki
staðið okkur nógu vel,“ sagði Arsene Wen-
ger knattspyrnustjóri Arsenal en liðið er
stigi á eftir Liverpool í fjórða sætinu.
Jafntefli hefði
verið frábært
GÖMLU félagarnir hjá Manchester United,
Steve Bruce hjá Birmingham og Roy
Keane hjá Sunderland, stýrðu liðum sínum
upp í ensku úrvalsdeildina um helgina. Það
var ljóst þegar Derby tapaði fyrir Crystal
Palace í gær, 2:0. Derby var eina liðið sem
gat ógnað Birmingham og Sunderland en
þegar einni umferð er ólokið er Birm-
ingham efst með 86 stig, Sunderland 85 og
Derby í þriðja sætinu með 81 stig.
Derby fer í aukakeppni ásamt þremur
öðrum liðum um eitt laust sæti í úrvals-
deildinni en WBA, Wolves, Southampton,
Stoke og Colchester slást um að komast í
aukakeppnina ásamt Derby.
Birmingham og Sunderland féllu bæði
úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og um
tíma leit ekki út fyrir að þau myndu end-
urheimta sæti sitt í deild þeirra bestu en
með góðum endaspretti tókst þeim Bruce
og Keane að koma liðum sínum upp.
Bruce og
Keane upp