Morgunblaðið - 30.04.2007, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 5
MichaelTonge
skoraði sig-
urmark Sheffield
United í leiknum
gegn Watford og
fór þar langt með
að tryggja Shef-
field-liðinu veru
sína í deildinni
en það kom í úrvalsdeildina síðast-
liðið vor. Neil Warnock knatt-
spyrnustjóri Sheffield sagði eftir
leikinn að staða liðsins hefði vænk-
ast en menn yrðu að vera á varð-
bergi.
John Carew og varamaðurinnShaun Maloney skoruðu mörk
Aston Villa sem vann góðan úti-
sigur á Manchester City. Heima-
menn fengu kjörið tækifæri til að
jafna metin í 1:1 í fyrri hálfleik en
miðjumaðurinn Joey Barton skaut
yfir úr vítaspyrnu.
Liverpool stillti upp hálfgerðuvaraliði gegn Portsmouth á
Fratton Park og fékk að súpa seyð-
ið af því. Portsmouth fór með sigur
af hólmi, 2:1, og á góða möguleika á
Evrópusæti. Benjani Mwaruwari
skoraði fyrra markið eftir mistök
Jerzy Dudek markvarðar Liverpool
og Króatinn Niko Kranjcar bætti
við öðru fyrir leiklé. Sami Hyypia
lagaði stöðuna fyrir Liverpool sem
sótti hart á lokakaflanum en tókst
ekki að jafna metin.
Steven Gerrard, Jamie Carrag-her og Jose Reina, þrír af lyk-
ilmönnum Liverpool, voru hvíldir
fyrir leikinn gegn Chelsea í Meist-
aradeildinni annað kvöld.
Michael Ballack og RicardoCarvalho leika ekki með
Chelsea gegn Liverpool annað
kvöld. Ballack gekkst undir aðgerð
á ökka í Þýskalandi um helgina og
leikur væntanlega ekkert meira á
tímabilinu og Carvahlo meiddist á
hné í fyrri hálfleiknum gegn Bolton
og verður frá í einhvern tíma.
Knatt-spyrnumað-
urinn Gennaro
Gattuso, miðju-
maðurinn sterki
hjá AC Milan,
hefur jafnað sig
af meiðslum og
verður með í
seinni leik liðsins
gegn Manchester
United á miðvikudaginn. Hins veg-
ar er óvíst hvort Paolo Maldini
verður með en hann og Gattuso
meiddust báðir í fyrri leik liðanna á
Old Trafford og þurftu að fara af
velli.
Sammy Lee fyrrum leikmaðurLiverpool mun stjórna liði
Bolton í síðustu tveimur leikjum.
Lee hefur verið aðstoðarmaður
Sam Allardyce sem óvænt hætti
störfum hjá Bolton í gær.
Fólk sport@mbl.is
Úrslitin geta ráðist um næstu helgi
því takist Chelsea ekki að leggja Ars-
enal á Emirates Stadium og Man-
chester United sigri eða geri jafntefli
við granna sína í Manchester City á
Manchester Stadium er ljóst að titill-
inn hafnar í höndum Sir Alex Fergu-
sons og læriveina hans í United.
Mikil dramatík
Toppliðin tóku daginn snemma á
laugardaginn en flautað var til leiks
Manchester United og Everton og í
leik Chelsea gegn Bolton um hádeg-
isbilið. Er óhætt að segja að mikil
dramatík hafi verið í leikjunum. Þeg-
ar upp var staðið bar United sigurorð
af Everton í hreint ótrúlega sveiflu-
kenndum leik, 4:2, og Chelsea og
Bolton skildu jöfn, 2:2.
Everton náði yfirhendinni á 10.
mínútu þegar Alan Stubbs þrumaði
boltanum í netið úr aukaspyrnu sem
hafði viðkomu í Michael Carrick og í
upphafi síðari hálfleiks blés ekki byr-
lega fyrir Manchester-liðinu þegar
Manuel Fernandez kom Everton í 2:0
með þrumufleyg. Sir Alex var felmtri
sleginn þar sem hann stýrði sínum
mönnum frá hliðarlínunni en mistök
markvarðarins unga Iains Turners
11 mínútum eftir mark Fernandez
breytti algjörlega gangi leiksins. Tur-
ner, sem stóð vaktina í stað Tims
Howards sem mátti ekki spila gegn
sínum gömlu félögum, missti boltann
klaufalega eftir hornspyrnu og John
O’Shea náði að pota boltanum inn.
Markið kveikti þvílíkan eld í United-
liðinu að það tók öll völd á vellinum.
Ferguson skellti Cristiano Ronaldo
inn á og fimm mínútum eftir innkomu
hans jafnaði United metin eða öllu
heldur Phil Neville sem varð fyrir því
óláni að skora í eigið mark gegn lið-
inu sem hann yfirgaf fyrir þremur ár-
um. Manchester-liðið lét kné fylgja
kviði; gamli Everton-maðurinn
Wayne Rooney, sem fékk óblíðar við-
tökur hjá stuðningsmönnum Ever-
ton, kom United í 3:2 á 79. mínútu og
varamaðurinn ungi Chris Eagles inn-
siglaði sigur rauðu djöflanna á 90.
mínútu.
„Leikmenn mínir voru frábærir.
Þeir gáfust aldrei upp og þetta var af-
ar mikilvægur sigur og ekki síst þar
sem Chelsea náði ekki að sigra. Við
komumst í gang þegar markvörður
Everton missti boltann og eftir það
mark var liðið stórkostlegt,“ sagði sir
Alex Ferguson sem sagðist ætla að
gefa vini sínum Sam Allardyce,
knattspyrnustjóra Bolton, stóran
koss og faðmlag.
„Við erum núna með fimm stiga
forskot og höfum að auki miklu betri
markatölu þannig að möguleikar okk-
ar á að taka titilinn eru ansi góðir. Við
vitum hins vegar að leikurinn við
Manchester City á laugardaginn
verður okkur erfiður enda stuttur
tími liðinn frá leiknum við AC Milan
en sá karakter sem í liðinu er mun
fleyta okkur áfram,“ sagði Ferguson.
Var refsað grimmilega
fyrir mistökin
„Við komum okkur í góða stöðu
með því að komast tveimur mörkum
yfir en við hleyptum þeim inn í leik-
inn með afar klaufalegum mörkum og
það sem eftir lifði leiksins gerðum við
okkur seka um enn fleiri mistök og
var refsað grimmilega fyrir það,“
sagði Phil Neville, fyrirliði Everton.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, seg-
ist ekki vera búinn að gefast upp í
baráttunni við Manchester United en
eftir úrslitin sé United komið ansi ná-
lægt titlinum.
„Baráttunni er ekki lokið. Meðan
möguleikinn er fyrir hendi höfum við
trúna en því er ekki að neita að þetta
er næstum því tapað stríð. Manchest-
er United er mjög nálgt titlinum. Við
þurfum að vinna alla þrjá leiki okkar
og United að tapa tveimur af sínum
þremur,“ sagði Mourino.
Chelsea lenti undir gegn Bolton á
Stamford Bridge þegar Slóvakinn
Lubomor Michalik skoraði á 18. mín-
útu en Salomon Kalou jafnaði metin
þremur mínútum síðar. Jussi Jaaska-
leinen, markvörður Bolton, varð svo
fyrir því að skora í eigið mark á 34.
mínútu en í upphafi síðari hálfleiks
jafnaði Kevin Davies og þar við sat.
Það er enginn tími
til þess að svekkja sig
„Ég er eðlilega svekktur með
þessa niðurstöðu en það er enginn
tími til þess. Við eigum stórleik gegn
Liverpool á þriðjudaginn og það þýð-
ir ekkert að hengja haus,“ sagði Mo-
urinho sem ákvað að hvíla Frank
Lampard og Didier Drogba en
meiðsli Ricardos Carvahlos á 30. mín-
útu urðu til þess að Lampard kom inn
á og Drogba skipti við Shevchenko í
hálfleik.
16. meistaratitillinn
blasir við United
Manchester þarf fjögur stig úr þremur síðustu leikjunum til að hampa titlinum
MANCHESTER United þarf fjögur
stig úr síðustu þremur leikjum sínum
til að hampa Englandsbikarnum í 16.
sinn í sögu félagsins og í fyrsta sinn í
fjögur ár. Manchester United náði
fimm stiga forskoti í baráttunni við
Chelsea um titilinn á laugardaginn
með því að bera sigurorð af Everton
á Goodison Park, í hreint ótrúlegum
leik, en á meðan urðu Englands-
meistarar tveggja síðustu ára,
Chelsea, að láta sér lynda jafntefli og
það á heimavelli gegn Bolton.
AP
Sjálfsmark Phil Neville fyrrum leikmaður Manchester United kom sínum gömlu félögum til hjálpar þegar hann jafn-
aði metin fyrir þá í 2:2 í leik Everton og Manchester United á Goodison Park á laugardaginn.
Í HNOTSKURN
»Chelsea hefur nú leikið 61leik í röð á heimavelli án
þess að bíða ósigur í úrvals-
deildinni. Arsenal var síðasta
liðið til að fagna sigri á Stam-
ford, í febrúar 2004.
»Manchester United á eftirað leika við Man. City og
Chelsea á útivelli og gegn West
Ham á heimavelli.
»Chelsea á eftir að leika viðArsenal á útivelli og gegn
Man. Utd. og Everton á heima-
velli.
»Didier Drogba, Chelsea, ermarkahæstur í deildinni
með 19 mörk, Cristiano Ro-
naldo, Man. Utd., hefur skorað
16 og Benni McCarthy, Black-
burn, 15.
SAM Allardyce sagði starfi
sínu lausu sem knatt-
spyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Bolton aðeins
sólarhring eftir að hafa stýrt
sínum mönnum í leik gegn
Englandsmeisturum Chelsea
á Stamford Bridge þar sem
úrslitin urðu, 2:2.
Á leið til City?
Allardyce hefur verið við
stjórnvölinn hjá Bolton í átta
ár og sterkur orðrómur er í
gangi að hann sé á leið til
Manchest-
er City
þar sem
Stuart Pe-
arce er við
stjórnvöl-
inn.
Fregnir
herma að
Ray Ran-
son vænt-
anlegur eigandi Manchester
City hafi ákveðið að All-
ardyce taki við stjórn liðs-
ins.,,Þetta er ein erfiðasta
ákvörðun sem ég hef þurft
að taka í mínu lífi. Ég hef
verið hjá þessu félagi sem
leikmaður og knatt-
spyrnustjóri í 18 ár en ég tel
tímabært að nýjir menn taki
við. Það var gagnkvæmt
samkomulag á milli mín og
félagsins að betra væri að ég
hætti þegar í stað til að gefa
eftirmanni mínum tækifæri á
að komast inn í hlutina áður
en tímabilinu lýkur,“ sagði
Allardyce sem hefur gert
frábæra hluti með lið Bolton.
Allardyce hættur hjá Bolton
Sam Allardyce
ROBBIE Keane, framherji Tottenham, er
sjóðheitur þessa dagana en írski landsliðs-
miðherjinn skoraði tvö marka Tottenham sem
lagði Middlesbrough, 3:2, á Riverside í Middl-
esbrough. Keane hefur þar með skorað átta
mörk í síðustu fimm deildarleikjum og með
sigrinum steig Tottenham skrefi nær UEFA-
sæti á næstu leiktíð.
Keane og Dimitar Berbatov komu Totten-
ham í 2:0. Mark Viduka minnkaði muninn en
Keane svaraði að bragði fyrir Tottenham áður
en Emmanuel Pogatetz minnkaði muninn fyrir
heimamenn.
„Við gerðum okkur þetta fullerfitt enn og
aftur en Robinson kom okkur til bjargar með
frábærri markvörslu hvað
eftir annað. Við þurfum svo
sannarlega á sigri að halda
og miðað við úrslit annarra
leikja var þetta lífsnauðsyn-
legur sigur. Ég get ekki ver-
ið annað en ánægður með
framlag framherja okkar.
Keane og Berbatov hafa
skorað 21 mark hvor og
Defoe hefur skorað mörg
mörk. Það er ekkert annað lið í landinu sem
státar af svona öflugum framherjum þori ég að
fullyrða,“ sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri
Tottenham.
Keane sjóðheitur hjá Tottenham
Robbie Keane