Morgunblaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 11
Sjávarútvegsráðherra boðaði í gær um 30% skerðingu á þorskkvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Samhliða því voru mótvægisaðgerðir ríkis- stjórnarinnar kynntar. Friðrik Ársælsson innti eftir viðbrögðum hagsmunaaðila og sveitarstjórnarmanna við tíðindunum. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 11 FRÉTTIR Sveitarstjórnarmenn á norð- austurhorninu, Björn Ingi- marsson, sveitarstjóri Langa- nesbyggðar, og Jón Helgi Björnsson, oddviti sveit- arstjórnar Norðurþings, telja niðurskurðinn gríðarlega af- drifaríkan fyrir sveit- arfélögin. Jón Helgi segir að niðurskurðurinn sýni að nauðsynlegt sé að skjóta styrkari stoðum undir at- vinnulífið í Þingeyjarsýslu og það megi meðal annars gera með því að nýta þá orku sem er að finna í sýslunni. „Það fyndist mér mjög skynsamlegt,“ segir Jón Helgi, spurður hvort ríkisstjórnin eigi að reyna að flýta fyrir álversframkvæmdum í sýslunni. Björn Ingimarsson segir að þótt áhrif nið- urskurðar á þorskkvóta muni vera lítt áber- andi í stærstu byggðakjörnum landsins sé líklegt að þau geti falið í sér endanlegt hrun í smærri byggðakjörnum á Norðausturlandi. Hann segir atvinnulíf í Langanesbyggð hafa verið með ágætum um árabil og það hafi ekki verið fyrir tilstuðlan stjórnvalda, líkt og víða annars staðar. „Hugsanlega er þetta meðvitaður niðurskurður. Það hvarflar að manni að það sé ráðagerð stjórnmálamanna að grisja dreifbýlið. Það virðist sem stjórn- völd ætli sér ekki að gera nokkurn skapaðan hlut ef þessa mótvægisaðgerðayfirlýsingu er að marka.“ Jón Björnsson og Björn Ingimarsson Getur verið upphaf- ið að endalokunum FORSETA bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, Ásbirni Ótt- arssyni, var mikið niðri fyrir þegar blaðamaður hafði sam- band við hann í gær. „Við getum ekki rekið sveitarfé- lag undir þessu, það eru al- veg hreinar línur. Þessi 30% skerðing er náttúrlega gjörsamlega galin,“ segir hann. Spurður um hver næstu skref sveitarfélagsins séu segir Ásbjörn að menn verði bara að bíða og vona að stjórnvöld standi við það að styðja við bakið á þeim sveitarfélögum sem verst hafi orðið úti. „Menn verða að fara að kveikja á því að þetta mun hafa gríðarleg áhrif hérna á Snæfells- nesinu og vakna af þeim þyrnirósarsvefni að það þurfi að bjarga einhverjum tveimur eða þremur byggðarlögum á Vestfjörðum.“ Tekjuskerðingin nemi tveimur milljörðum á ársgrundvelli fyrir Snæfellsbæ og því sé rekstrargrundvöllur bæjarfélagsins ekki lengur til staðar. Ásbirni virðist ekki lítast vel á tillögur rík- isstjórnar um mótvægisaðgerðir við kvóta- skerðingu. „Þær eru hvorki fugl né fiskur og ég sé ekki fyrir mér að ráðamenn komi með tvo milljarða hingað inn í Snæfellsbæ,“ segir hann og heldur áfram: „Það er verið að tala um að leggja einhverja vegi og bæta fjar- skipti. Það getur verið að það sé til þess að fólk geti flúið til Reykjavíkur á nýjum vegum og verið í símasambandi allan tímann. Ég bara sé engan tilgang með þessu. Þetta gagnast okkur ekki hér.“ Ásbjörn Óttarsson Telur sig ekki geta rekið sveitarfélagið „VIÐ verðum að vinna úr þessu og finna leiðir til þess að vega upp á móti þessari skerðingu, því þetta er í raun skerðing á almennum lífs- kjörum hér á Vestfjörðum. Ég bind vonir við og treysti á að ríkisvaldið muni hrinda þeim aðgerðum í framkvæmd sem í dag voru boð- aðar og það ríður á að það verði gert strax, þannig að íbúar á þessum svæðum skynji það að stjórnvöldum sé full alvara með þessum mótvægisaðgerðum.“ Þetta segir Birna Lár- usdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarð- arbæjar, þegar hún er innt eftir viðbrögðum við kvótaskerðingunni sem boðuð var í gær. „Mér finnst hins vegar orðið dálítið klisju- kennt að tala sífellt um samgöngubætur og fjarskipti,“ segir Birna. Slíkar framkvæmdir muni ekki ráða úrslitum fyrir fiskvinnslufólk og sjósækjendur auk þess sem fyrrverandi samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, hafi hrint í framkvæmd metnaðarfullri samgöngu- áætlun á svæðinu og hið sama eigi við um fjar- skiptamál. Búið sé að taka ákvörðun um stærstu framkvæmdirnar, Óshlíðargöngin og lúkningu framkvæmda við Ísafjarðardjúp, og tæknilega ómögulegt sé að flýta þeim. „En áhyggjur mínar þessa stundina beinast að þeim fyrirtækjum sem nú berjast í bökkum og ég vona svo sannarlega að þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um eflingu Byggða- stofnunar verði þess valdandi að fyrirtæki geti leitað á hennar náðir í auknum mæli,“ segir Birna. Birna Lárusdóttir „Skerðing á almenn- um lífskjörum“ ELLIÐI Vignisson, bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum, segir að bærinn fari ekki var- hluta af ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra um nið- urskurð aflaheimilda. Þorskurinn sé þar, eins og víðast annars staðar, burðar- ásinn í sjávarútveginum þar sem hæst verð fáist fyrir hann. Veiðar á honum hafi gríð- arleg áhrif á afkomu sjávarútvegsins í Eyjum, hvort sem um er að ræða sjávarútvegsfyr- irtækin, íbúana eða bæjarfélagið. Hann kveðst þó hafa skilning á ákvörðun ráðherra um að fara að tillögum Hafrannsóknastofn- unar og fagnar því að stóraukin áhersla verð- ur lögð á fiskrannsóknir, ekki síst á þorsk- stofninum. Elliði segir það góðra gjalda vert að efla jöfnunarsjóð sveitarfélaga og stórauka fjár- magn til þess að bæta samgöngur og fjar- skipti og auka veg menntunar á landsbyggð- inni. „En það þarf miklu meira að koma til og get ég þar bent á niðurfellingu veiðigjalds, lækkun flutningskostnaðar, tilflutning op- inberra starfa frá höfuðborgarsvæðinu til sjávarbyggða og eflingu rannsókna- og há- skólasetra á landsbyggðinni. Nú kann sú staða að vera komin upp að sjávarútvegurinn og verstöðvarnar þurfi á tímabundinni aðstoð að halda til þess að laga sig að breyttum aðstæðum ef ekki á illa að fara. Ef rétt verður staðið að mótvæg- isaðgerðum kunna þær að styrkja samfélögin til lengri tíma litið,“ segir Elliði að lokum. Elliði Vignisson Aðgerðirnar gætu styrkt samfélögin „ÞAÐ er alveg skuggalegt hljóð í mönnum sem hringja hingað. Margir af reyndustu skipstjórunum okkar eru búnir að tala við mig og segjast ekki ætla að eyða síðustu starfsárunum í það að reyna ljúga menn út á sjó fyrir enga afkomu,“ segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. „Ég hef aldrei heyrt annað eins svart- nætti fyrir utan það að ég er kominn með kvíðakast yfir því hvernig það muni ganga að semja við útgerðarmenn fyrir hönd sjó- manna þegar veiðiheimildirnar eru á þess- um nótum,“ segir Árni. Árni segist lengi hafa tekið upp hanskann fyrir Hafrannsóknastofnun og sagt að það væri það besta sem Íslendingar hefðu en nú væri hann ekki jafnsannfærður og áður um ágæti stofnunarinnar. „Ég heyri það miklu hærra en nokkru sinni áður hvað menn eru gjörsamlega búnir að gefa skít í þessar for- sendur sem liggja til grundvallar ákvörð- uninni.“ Árni segir að hvarflað hafi að sér að skerðingin sé snaggaraleg aðferð ráða- manna til þess að koma sjávarútveginum á örfáar hendur. „Einyrkjarnir sem eru veik- astir fyrir detta allir út með tölu og eftir standa þrír til fjórir stórir aðilar sem gína yfir öllu saman. Mér sýnast stjórnvöld hafa stefnt að þessu leynt og jafnvel ljóst,“ segir Árni. Árni Bjarnason „Aldrei heyrt annað eins svartnætti“ „VIÐBRÖGÐIN eru þau að þetta kom kannski ekkert á óvart, mér finnst þetta hafa legið í loftinu alveg frá því að Hafrannsóknastofnun gaf út veiðiráðgjöfina,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands. „Þrátt fyrir það er þetta að sjálfsögðu sama höggið fyrir mína umbjóðendur.“ Sævar segist ekki geta gert sér í hugarlund hvernig hægt verði að veiða 100.000 tonn af ýsu við hliðina á 130.000 tonnum af þorski og telur það í raun ógerlegt. „Ég óttast að þetta geti ýtt undir brottkast því eitthvað verða menn að gera með þann þorsk sem kemur upp við ýsuveiðar. Ef þeir eiga ekki kvótann fyrir því þá er náttúrlega ekki um margt annað að ræða.“ Hann segir það einnig atyglisvert að mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar beri það með sér að ráðherrar hafi gríðarlegar áhyggj- ur af útgerðum og sveitarfélögum auk þess sem þeir hyggist grípa til sértækra aðgerða í þágu fiskverkafóks. Sjómenn séu hins vegar hvergi nefndir á nafn. „Ég held að það sé að verða þannig á stjórnarheimilinu eins og víða annars staðar að þessir ágætu menn, sem hafa borið þjóðina á höndum sér í áranna rás, séu að verða gleymdir. Það finnst mér sárt að heyra,“ segir Sævar. Sævar segir að þrátt fyrir að ákvörðunin sé mikið áfall sé það vissulega fagnaðarefni að sjávarútvegsráðherra skuli við sama tilefni hafa boðað eflingu hafrannsókna við Íslands- strendur. Sævar Gunnarsson Sjómenn fallnir í gleymsku BJÖRGÓLFUR Jóhannsson, stjórnarmaður í Lands- sambandi íslenskra útvegs- manna (LÍU) og forstjóri Icelandic Group, segir að sú leið sem sjávarútvegs- ráðherra hafi farið sé mjög varasöm og gagnrýnir ráð- herra fyrir að hafa ekki tekið sjálfstæða ákvörðun í málinu. Hann kveður það hafa verið skilning sinn í gegnum tíðina að ráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar sé ekki heilög tala sem fara beri eftir í einu og öllu. „ Ráðherra hefði ekki tekið mikla áhættu með því að fara upp í 155 til 160 þúsund tonn og ég vísa því á bug að það séu óvönduð vinnubrögð af okkar hálfu að hafa lagt það til,“ segir Björgólfur. „Það verður að horfa til þess að sjávarútvegurinn þarf að vera sjálfbær og atvinnustarfsemi honum tengd þarf að geta eflst og dafnað. Það verður ekki við þessar aðstæður,“ segir Björgólfur og óttast flótta úr greininni. „Það er morgunljóst að þetta eru váleg tíðindi fyr- ir útgerðarmenn og ég er mjög hræddur við það að svokallaðir einyrkjar í greininni leggi upp laupana við þessar aðstæður og sam- þjöppun verði meiri fyrir vikið,“ segir Björg- ólfur. Hann kveður tímabært að efla hafrann- sóknir til muna og taka inn í myndina fleiri þætti heldur en gert er í dag. Til að mynda þurfi að skoða umhverfisáhrif, svo sem hvort hlýnun jarðar hafi áhrif á hvar þorskinn er að finna. Björgólfur Jóhannsson Ekki sjálfstæð ákvörðun ráðherra „ÉG lýsi bara gríðarlegum vonbrigðum með þessa ákvörðun því hún er eltinga- leikur við vísindi sem ég tel að standist engan veginn. Allt byggist þetta á svoköll- uðu togararalli sem allir veiðimenn sjá að er tómt bull og vitleysa. Það virðist hins vegar ekki hvarfla að Hafró að endurskoða þessa að- ferðafræði,“ segir Arthur Bogason, formaður Félags íslenskra smábátaeigenda. „Eftir að tillögur Hafró eru lagðar fram er sett í gang ógurlegt sjónarspil með tilheyrandi samráði og samtölum. En hver er niðurstaðan? Hún er nákvæmlega það sem Hafró lagði til. Ég get ekki séð að reynsla sjómanna af miðunum eða ótrúlegt fiskirí í vetur hafi vigtað nokkurn skapaðan hlut hjá mönnum. „Svo finnst mér skorta á það að leiðbein- ingar fylgi úthlutuninni því þótt ég sé þeirrar skoðunar að íslenskir veiðimenn séu þeir flinkustu í heimi treysti ég þeim tæpast til þess að veiða 100.000 tonn af ýsu með aðeins 130.000 tonn af þorski sem meðafla,“ segir Arthur og kveður allt morandi í þorski á ýsu- slóðum. „Þessi niðurstaða er algjörlega út í hött. Ég skil ekki hvernig á að stunda veið- arnar öðru vísi en með því að brottkast stór- aukist, það hlýtur bara að gerast.“ Arthur kveður smábátaeigendur byggja mun meira á þorski en aðra útgerð. Þrátt fyrir það hafi hann ekkert heyrt um sérstakar að- gerðir varðandi smábátaflotann og það hrika- lega áfall sem við honum blasi. Arthur Bogason Eltingaleikur við vafasöm vísindi Gríðarleg lífskjaraskerðing blasir við Óttast að brottkast muni stóraukast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.