Morgunblaðið - 31.07.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 207. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
KRINGLUMYNDIN
HVAÐ ER LIST Í ALMENNINGSRÝMI? ANDLEG
UPPLYFTING EÐA BARA TIL UPPFYLLINGAR? >> 37
ENGIN EITUREFNI,
BARA GLEÐIVÍMA
JAMBOREE
ADRENALÍN >> 18
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
EKKI leikur vafi á að viðskipti eru að
glæðast á milli Íslands og Kanada og
starfsemi íslenskra fyrirtækja í Kan-
ada fer vaxandi. Glænýr loftferða-
samningur er talinn geta stóreflt
möguleika á viðskiptum og ferða-
mennsku og nýr fríverslunarsamn-
ingur EFTA-ríkjanna og Kanada
opnar ýmis tækifæri.
Haft var í gær eftir Geir H. Haarde
forsætisráðherra, sem er í heimsókn í
Kanada, að mjög mikil viðskiptatæki-
færi væru á austurströnd Kanada.
„Íslensk fyrirtæki hafa á undan-
förnum árum verið að hasla sér völl í
Kanada þótt það hafi kannski farið
hljótt,“ segir Hlynur Guðjónsson, við-
skiptafulltrúi hjá viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins í New York.
Vísar hann m.a. til umsvifa Rúmfata-
lagersins sem er nú kominn með ná-
lægt 40 verslanir í landinu. Einnig má
nefna umfangsmikla starfsemi Eim-
skips og dótturfélags þess, Atlas Cold
Storage, sem er mjög stór atvinnu-
rekandi í Kanada. Þá eru íslenskir
bankar farnir að veita fjármálaþjón-
ustu í Kanada þar sem bæði Glitnir
og Landsbankinn hafa opnað skrif-
stofur. Viðskiptin hafa verið að
aukast jafnt og þétt síðastliðin 4 til 5
ár. Hlynur telur öruggt að aukin
tækifæri séu fyrir hendi í landinu fyr-
ir íslenska framleiðendur. Fyrir-
spurnir eru þegar farnar að berast
um þýðingu fríverslunarsamningsins
fyrir kanadísk fyrirtæki.
Stóraukinn innflutningur
Í gær var greint frá kaupum
Geysis Green Energy ehf. á 20%
hlutafjár í kanadísku jarðhitafyr-
irtæki og fréttir bárust af því að Eim-
skip hefði yfirtekið kæli- og frysti-
geymslufyrirtæki í Kanada. Og
ferðamönnum fjölgar. 2.559 Kan-
adamenn fóru um Keflavíkurflugvöll
árið 2002 en 4.424 í fyrra. Innflutn-
ingur frá Kanada hefur stóraukist. Í
fyrra nam hann 12,3 milljörðum kr.
samanborið við 1.829 milljónir 2003.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fjörkippur Mikil aukning er í við-
skiptum Íslands og Kanada.
Tækifær-
in verða
æ fleiri
Íslensk fyrirtæki hasla
sér völl í Kanada
„ÞAÐ þykir skemmtilegt að hafa synt út í Viðey og marga hefur
langað að gera það en ekki haft tækifæri til þess, þannig að ég
ákvað að hóa öllum saman og fara í eina góða ferð,“ segir Bene-
dikt Hjartarson sundkappi, sem stóð fyrir hópsundi frá Sunda-
höfn út í Viðey í gærkvöldi. Hann segir sjósundiðkun hafa auk-
ist gífurlega í sumar og er það ekki furða að mati Benedikts, því
fáar íþróttir toppi vellíðunartilfinninguna sem fari um líkam-
ann allan í marga daga eftir rækilegan sprett í sjónum.
Á fjórða tug karla og kvenna tók þátt í sundinu í gær og var
það meira en Benedikt vænti, en hann hafði óttast, að veðrið
drægi kjarkinn úr mörgum. Mikil stemning myndaðist á sund-
inu og þótt getustig hópsins spannaði allan skalann var reynt að
halda hópinn og hjálpast að, eins og sjá má á þessari mynd þar
sem Ólöf Lára Halldórsdóttir sundkona úr Ægi hjálpar félaga
sínum upp á bryggju í Viðey.
Vellíðan í marga daga á eftir
Tugir manna tóku þátt í hópsundi út í Viðey
Morgunblaðið/Ómar
Í Hollywood
rætast allir
draumar.
Yfirbragð
draumanna
hefur þó ver-
ið heldur
ósnyrtilegra
en ákjósan-
legt hefði
verið und-
anfarið vegna
mikillar fjölgunar dúfna í borg-
inni.
En það telst tæpast nógu draum-
kennt að senda borgarfulltrúa á
veiðar með byssu um öxl til að
leysa vandann. Lausn yfirvalda í
Kaliforníu er einföld og dýravin-
um mjög að skapi, að sögn breska
ríkisútvarpsins, BBC. Getnaðar-
vörn verður sett í fuglafóður sem
dreift verður á húsþök og nú er
spáð að dúfum í Hollywood fækki
um helming fyrir árið 2012.
Dúfum gefin
getnaðarvörn
Á SÍÐASTLIÐNUM fjórum árum
hafa tekjur ríkisins af fjármagns-
tekjuskatti einstaklinga fjórfaldast.
Álagning opinberra gjalda á ein-
staklinga og þá sem stunda atvinnu-
rekstur í eigin nafni vegna tekna
ársins 2006 liggur nú fyrir og kem-
ur þar fram að tekjur ríkisins vegna
fjármagnstekna einstaklinga hækk-
uðu um 34% frá árinu á undan.
„Þetta endurspeglar hvað hefur
verið að gerast í samfélaginu en
þegar þessi skattur var lagður á,
reiknuðu menn nú ekki með að
þetta yrði jafn öflugur skattstofn og
hann hefur orðið,“ segir Skúli Egg-
ert Þórðarson ríkisskattstjóri. Hann
bendir á að rúman þriðjung hækk-
unar þeirra tekna sem skattskyldar
eru megi rekja til fjármagnstekna.
„Þar munar mestu um söluhagnað
af hlutabréfum, sem er um 76 millj-
arða króna stofn. Arður af hluta-
bréfum hefur líka aukist mikið á
undanförnum árum en sá skattstofn
hefur hækkað um næstum því 40%.
Arður af erlendum hlutabréfum hef-
ur líka hækkað um 130% og vaxta-
tekjur af innstæðum banka um
64%.“
Hærra hlutfall af skattskyldum
tekjum en áður
Sem hlutfall af skattskyldum
tekjum einstaklinga eru fjármagns-
tekjur nú orðnar rétt tæplega 20%
en voru 9% árið 2003. Að mati Skúla
Eggerts má segja að skattafram-
kvæmdin hafi tekist vel, bæði hvað
varðar tekjur til ríkissjóðs en einnig
hvað varðar skil einstaklinga á
skattinum til skattyfirvalda. „Það
kann að vera skýring að þetta er
hófleg skattheimta en auðvitað höf-
um við fengið dæmi um að menn
séu að koma sér undan að greiða
fjármagnstekjuskatt eins og aðra
skatta.“
Fjölmargir greiða fjármagns-
tekjuskatt en hafa verður í huga að
skatturinn er m.a. greiddur af
ávöxtunartekjum innstæðna banka-
reikninga. Margir greiða því skatt-
inn þótt ekki sé alltaf um háar upp-
hæðir að ræða.
Þriðjungi hærri tekjur rík-
isins vegna fjármagnstekna
! " #
$#
#
Skatttekjur | 8
Morgunblaðinu í dag
fylgir kynningarblaðið
Fjallabyggð 2007