Morgunblaðið - 31.07.2007, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á GÓÐRI stund nefnist bæjarhátíð Grundfirðinga sem
haldin var í tíunda skiptið um nýliðna helgi. Að vanda
var margt um manninn og stemningin góð, enda veður
með albesta móti. Gera má ráð fyrir að um tvö til þrjú
þúsund gestir hafi lagt leið sína í bæinn og voru öll
tjaldsvæði í bænum þéttskipuð, auk þess sem tjaldað
var í húsagörðum ættingja. Mikill fjöldi hjólhýsa og
húsbíla var einnig áberandi í bænum.
Að vanda skreyttu bæjarbúar hús sín og garða með
litskrúðugum hætti, en samkvæmt hefð er bænum skipt
í fjögur hverfi, þ.e. gult, rautt, grænt og blátt hverfi.
Íbúar viðkomandi hverfa höfðu undirbúið skemmti-
atriði og tóku einnig þátt í litríkri skrúðgöngu um bæ-
inn sem endaði á hafnarsvæðinu þar sem skemmti-
atriðin voru flutt gestum til ánægju og yndisauka. Að
skemmtidagskrá lokinni var slegið upp bryggjuballi.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Litskrúðug bæjarhátíð í Grundarfirði
SENDIHERRA Íslands á Indlandi,
dr. Gunnar Pálsson, og ráðuneytis-
stjóri sjávarútvegsmála í landbúnað-
arráðuneyti Indlands, frú Charus-
heela Soni, undirrituðu í gær
viljayfirlýsingu um samstarf Íslands
og Indlands á sviði sjávarútvegs-
mála.
Í yfirlýsingunni er lýst vilja til að
auka sjávarútvegssamstarf ríkjanna,
m.a. á sviði rannsókna, fiskveiði-
stjórnunar, fiskeldis, fiskvinnslu og
markaðssetningar sjávarafurða.
Gert er ráð fyrir að komið verði á
beinu samstarfi viðeigandi sjávarút-
vegsstofnana á Íslandi og Indlandi
og auknu samstarfi vísindamanna og
sérfræðinga á sviði sjávarútvegs. Þá
kveður viljayfirlýsingin á um að
stjórnvöld á Íslandi og Indlandi setji
á laggirnar sameiginlegan vinnuhóp
til að fjalla um samstarfið, meta ár-
angur þess og setja því nánari mark-
mið.
Þriðja stærsta
sjávarútvegsríki heims
Indland er þriðja stærsta sjávar-
útvegsríki heims ef tekið er mið af
heildarafla, en á árinu 2004 nam
hann 6,0 milljónum tonna eða um 5%
af heildarafla á heimsvísu. Um ellefu
milljónir manna starfa í sjávarútvegi
á Indlandi og hlutdeild Indlands í
heimsviðskiptum með sjávarafurðir
nemur um 2,4%. Rækjur eru helsta
útflutningsafurð Indlands í sjávarút-
vegi, en af öðrum tegundum má
nefna smokkfisk, makríl og vatna-
karfa.
Stærstu markaðir fyrir indversk-
ar sjávarafurðir eru ríki Evrópusam-
bandsins, Japan, Bandaríkin og
Kína, og hefur útflutningur til þess-
ara ríkja aukist verulega á undan-
förnum árum, bæði að magni og
verðmæti.
Vannýttar auðlindir
„Umtalsverðir vaxtarmöguleikar
eru í sjávarútvegi á Indlandi, en
greinin bíður þess að tileinka sér
nýjustu tækniframfarir, auk þess
sem fiskveiðiauðlindir, bæði til lands
og sjávar, eru vannýttar. Indversk
stjórnvöld hafa lýst því yfir að nú-
tímavæðing land- og sjávarnytja sé
eitt meginverkefni þeirra á komandi
árum. Binda indversk og íslensk
stjórnvöld vonir við að viljayfirlýs-
ingin ryðji braut fyrir nánara sam-
starf ríkjanna um að nýta þau tæki-
færi sem frekari þróun
sjávarútvegsins hefur í för með sér,“
segir í frétt frá utanríkisráðuneyt-
inu.
Vilja auka samskipti
Íslands og Indlands
Í HNOTSKURN
»Gert er ráð fyrir að komiðverði á beinu samstarfi
viðeigandi sjávarútvegsstofn-
ana á Íslandi og Indlandi og
auknu samstarfi vísinda-
manna og sérfræðinga á sviði
sjávarútvegs.
» Indland er þriðja stærstasjávarútvegsríki heims ef
tekið er mið af heildarafla, en
á árinu 2004 nam hann 6,0
milljónum tonna.
»Umtalsverðir vaxtarmögu-leikar eru í sjávarútvegi á
Indlandi, en greinin bíður þess
að tileinka sér nýjustu tækni-
framfarir.
60) 7)
8) 7)
9)
7)
:
7
)
!
"
""#
#
"$
##
"
#
%""
!"
!""
"
%"
"
"
""
#"
#%"
&'
"
""
#"
#%"
#"
#"
#""
"
%"
#"
#%"
#"
#"
#""
"
%"
"
"
#%"
#"
#"
#""
"
%"
"
"
"
""
!"
!""
"
""
#"
#""
"
"
!
! ! ! ! !
( )
*)
+,
-
!
! ! ! ! !
60)
.
/ 8)
.
/ :0
.
/ ;
$
!
!
"!
#
#"
0
0
#
<# (7=
) &>
1,
# , ) )
2 )
3 4
)' % 5/
.1 1
!$ &' 2 ?0)
#%% &' 2 +) # &' 2 0
1 1
67
6+) (7<# # '#>
1,
$" , 2 )
4 ! $ 5
+ ) 1, %" , ) 2 # &' ,' ## , ) ) 2 ##$ &' !
! ! ! ! !
"
"
"
#"
ÚR VERINU
REYNIR Traustason ritstjóri
Mannlífs hefur sent frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu í kjölfar yfirlýs-
ingu Elvars og Kristins Aðalsteins-
sona, sem báðar hafa birst hér í
blaðinu:
„Vegna yfirlýsinga þeirra Krist-
ins og Elvars Aðalsteinssona skal
áréttað að þær 3500 milljónir krón-
ur sem þeir hurfu með frá Eskifirði
eru að langmestu leyti kvótaauður
sem Aðalsteinn Jónsson skóp á far-
sælli tíð sinni sem aðaleigandi
Hraðfrystihúss Eskifjarðar. Af-
komendurnir segja í yfirlýsingum
sínum vegna greinar í Mannlífi að
umfjöllunin sé byggð á skáldskap
eða í versta falli gróusögum. Þessu
er vísað til föðurhúsanna. Sú stað-
reynd blasir við að þeir Elvar og
Kristinn stukku frá borði með
kvótaauð en eftir standa baráttu-
hjónin Þorsteinn Kristjánsson og
Björk Aðalsteinsdóttir sem tóku að
sér, ásamt Skeljungi og Trygginga-
miðstöðinni, að greiða bræðurna út
og berjast nú við að halda forræði
fyrirtækisins á Eskifirði.
Ítrekað skal að hvergi er hallað á
Aðalstein Jónsson í greininni en
rakin er saga þeirra sem kusu að
hverfa frá föðurarfleifð sinni með
fulla vasa fjár. Hvergi er sagt að
kvóti Eskju hafi verið seldur en því
er lýst að verið er að leita leiða til
að rétta við fjárhag fyrirtækisins
en núverandi eigendur standa und-
ir gjaldinu vegna útgöngu bræðr-
anna. Því er ekki haldið fram í
greininni að bræðurnir í London
hafi aðhafst neitt það sem er ólög-
legt en það kann að vera matsatriði
hversu siðlegt það er gagnvart íbú-
um á Eskifirði og starfsfólki Eskju
til lands og sjávar. Mannlíf stendur
við úttekt sína.“
Kvótapeningar
til London
„AÐDRAGANDINN er skammur
en þetta leggst afar vel í mig, ann-
ars hefði ég ekki þegið starfið,“
segir Steingrímur Sævarr Ólafs-
son, sem ráðinn hefur verið frétta-
stjóri fréttastofu Stöðvar 2 frá og
með morgundeginum.
Steingrímur tekur við stöðunni
af Sigmundi Erni Rúnarssyni, sem
ráðinn hefur verið forstöðumaður
fréttasviðs fréttastofu Stöðvar 2.
Sigmundur Ernir verður áfram
einn af þremur aðallesurum frétta-
stofu Stöðvar 2 ásamt Loga Berg-
mann Eiðssyni og Eddu Andrés-
dóttur.
Áfram ritstjóri
Íslands í dag
Steingrímur mun samhliða
fréttastjórastarfinu gegna núver-
andi starfi sínu sem ritstjóri Ís-
lands í dag þar til ráðið hefur ver-
ið í stöðuna.
Aðspurður hvort vænta megi
einhverra áherslubreytinga með
nýjum manni við stjórnvölinn seg-
ist Steingrímur lítið vilja tjá sig
um það og telur best að tíminn
leiði það í ljós. „Það eru alltaf ein-
hverjar áherslubreytingar með
nýjum mönnum en ég reikna með
að fréttastofa Stöðvar 2 verði
áfram flaggskip stöðvarinnar. Ég
á ekki von á neinum stórkostlegum
breytingum,“ segir Steingrímur.
Hann tekur þó fram að verið sé að
vinna að ákveðnum skipulags-
breytingum á fréttastofunni þessa
dagana sem lúta m.a. að lengd og
staðsetningu Íslands í dag, veðurs
og íþróttafrétta innan kvöldfrétta-
tíma Stöðvar 2 og kynntar verði á
næstunni.
Nýr fréttastjóri
Stöðvar 2
Steingrímur
Sævarr Ólafsson
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
„BYGGÐIN hefur verið að færast
austur á bóginn og þessir sum-
arbústaðaeigendur eru ekki í sömu
fjarlægð frá borginni og þeir voru.
Þannig að það er sjálfsagt ástæða
óánægju þeirra,“ segir Ólafur
Bjarnason, aðstoðarsviðsstjóri á
framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar, um gagnrýni Guðmundar S.
Johnsen, stjórnarmanns í Græði,
félagi landeigenda í Reykjavík, í
Morgunblaðinu sl. laugardag.
Að mati Ólafs hefur borgin staðið
að stækkun jarðvegstippsins á
Hólmsheiði með réttum hætti.
„Þessi kynning er nú á deiliskipu-
lagsstigi og þetta er auglýst kirfi-
lega. Þannig að við teljum rétt að
öllu farið,“ segir Ólafur. Að hans
sögn er afar mikilvægt fyrir borg-
ina að reka jarðvegstipp á borð við
þann sem staðsettur er á Hólms-
heiði og tekur hann fram að vonir
standi til að stækkaður tippurinn
geti þjónað borginni í allmörg ár.
Segir Ólafur staðsetningu tippsins
góða þar sem hann sé nálægt
helstu uppbyggingarsvæðum borg-
arinnar þar sem losa þarf heilmikið
jarðvegsefni sem upp kemur úr
byggingargrunnum.
Aðspurður vísaði Ólafur því á
bug að umtalsvert moldrok stafaði
af tippnum með þeim afleiðingum
að lífríki Langavatns væri stefnt í
hættu. „Við reynum auðvitað að
halda yfirborði tippsins eins litlu og
mögulegt er, m.a. með því að sá í
þetta eins hratt og hægt er,“ segir
Ólafur.
Spurður um gagnrýni Guðmund-
ar þess efnis að borgin noti einka-
vegi landeigenda undir þungaflutn-
inga kannaðist Ólafur ekki við það
og tók fram að núverandi vegur
myndi eðlilega ekki þola slíkt álag.
Sagði hann fyrirhugað á næstu ár-
um að leggja nýjan og betri veg
norðan frá og upp með Reynisvatni,
sem nota ætti til að flytja efni frá
Úlfarsárdal í jarðvegstippinn. Nýr
vegur mundi að einhverju leyti fara
um vegstæði núverandi vegar sem
landeigendur lögðu.
Segir Reykjavíkurborg
hafa staðið rétt að öllu