Morgunblaðið - 31.07.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 15
MENNING
JIHAD: The
Musical heitir nýr
söngleikur sem
verður frum-
sýndur á Edin-
borgarlistahátíð-
inni í næsta mán-
uði, The Edin-
burgh Fringe
Festival. The
Guardian telur
líklegt að efni
söngleiksins verði ekki öllum að
skapi, þ.e. heilagt stríð íslams, en
höfundar söngleiksins segjast ekki
hafa ætlað að ergja neinn með yrk-
isefninu. Áhorfendur verða „leiddir
um heim hryðjuverka í nafni íslams-
trúar með dansi og söng,“ eins og
það er orðað í frétt blaðsins. Tilgang-
urinn er að létta stemninguna í Bret-
landi, nú á tímum hryðjuverkaógnar.
Herferð er þegar hafin gegn söng-
leiknum og telur ákveðinn hópur
mótmælenda ósmekklegt að sýna
slíkt verk svo skömmu eftir hryðju-
verkatilræði á flugvellinum í Glas-
gow í síðasta mánuði. Höfundar
verksins segja góðlátlegt grín að
heilögu stríði íslams öllum hollt.
Jihad-söngleikurinn segir af
ógæfusömum bónda í Afganistan
sem lendir í klónum á mönnum sem
hafa í hyggju að fremja hryðjuverk, í
nafni heilags stríðs íslams. Meðal
söngva í söngleiknum er „I Wanna
Be Like Osama“, eða „Ég vil líkjast
Osama“ (bin Laden).
Kórinn í sýningunni verður klædd-
ur bleikum búrkum klæðum sem
strangtrúaðar, múslímskar konur
klæðast í ýmsum múslímaríkjum. Þá
verða dansarar með eftirlíkingar af
sjálfvirkum vopnum í höndunum.
Mótmælendur krefjast þess að söng-
leikurinn verði bannaður en höfund-
urinn, Zoe Samuel, telur verkið
höfða til Breta.
Eldfimt
efni
Söngleikur um
heilagt stríð íslams
Fyrirmynd Osama
Bin Laden.
ERU ljóð í rusl-
póstinum þínum?
Ben Myers,
menningar-
skríbent The
Guardian, gerði
rusl-ljóðlist
(spoetry) að um-
talsefni nýlega.
Umrædd ljóðlist,
sem Myers hefur
stundað sjálfur,
felst í því að taka ruslpóstinn og
smíða úr honum ljóð. Hugmynda-
fræðin virðist ekki ósvipuð þeirri
sem Eiríkur Örn Nordahl notaði við
Blandarabrandara sem klipptir voru
úr íslenskum dagblöðum og vefsíð-
um. Hann spáir að þetta sé ljóðmál
framtíðarinnar, að hluta vélrænt, að
hluta mannlegt, og rími þannig við
okkar sítengdu tíma.
Gott rusl-ljóðskáld þarf ekki bara
að vera gott skáld heldur ekki síður
að vera góður ritstjóri, sjá fljótt
hverju er ofaukið og hvað vantar í
vélræna texta tölvusprottins rusl-
póstsins.
Talið er að fyrsta spamm-ljóðið
hafi orðið til í kringum 1999 og mis-
jafnt er hvort texti ruslpóstanna er
allur notaður eða hvort aðeins titill
þeirra sé fenginn að láni sem titill að
ljóði. William S. Burroughs er iðu-
lega nefndur guðfaðir þessarar ljóð-
listar sem hann stundaði þó aldrei
sjálfur beint, en hann notaði hins
vegar mikið klippitækni við ljóða-
gerð sína.
Síðan þá hafa örlög nígerískra
prinsa í fjárhagskröggum, einmana
rússneskra sprunda, auglýsinga um
skjótan gróða, stærri líkamshluta og
almenna hamingju orðið mörgu rusl-
ljóðskáldinu að yrkisefni.
Ljóðin í
ruslinu
Gamaldags
ruslpóstur.
ÆVISAGA hjónanna Tómasar
Sæmundssonar og Sigríðar
Þórðardóttur hefur verið gefin
út í tilefni af 200 ára fæðing-
arafmæli Tómasar.
Höfundur bókarinnar er
Eggert Ásgeirsson en útlit og
hönnun annaðist Dagur Egg-
ertsson arkitekt. Í bókinni er
m.a. reynt að varpa ljósi á
skoðanatengsl þeirra Tómasar
og Jóns Sigurðssonar.
Um ævi Sigríðar hefur lítið verið fjallað til
þessa og það helsta um hana er dregið saman í
bókinni. Bókin ber titilinn Tómas Sæmundsson og
Sigríður Þórðardóttir.
Bókaútgáfa
Ævisaga Tómasar
og Sigríðar
Kápa bókarinnar
um hjónin.
MARIA Isabel Vargas hefur
opnað sýningu á málverkum í
neðri sal Start Art listamanna-
hússins að Laugavegi 12b.
Málverkin eru níu talsins og öll
unnin með akrýllitum á striga.
Þau eru máluð hérlendis en
Maria er frá Kólombíu og hef-
ur búið á Íslandi í tæpt ár en
yfirgefur landið í lok ágúst.
Sýningarlok eru á morgun,
miðvikudag, þannig að áhuga-
samir þurfa að drífa sig sem fyrst ef þeir ætla að
ná sýningunni.
Öll eru verkin til sölu en opið er í galleríinu á
milli kl. 10 og 17.
Myndlist
Kólumbísk-íslensk
akrýlmálverk
Maria Isabel
Vargas Arbeláez
REYNIR Þorgrímsson mynd-
listamaður hefur opnað sjálf-
stæða sýningu í Tjarnarsal í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Mynd-
irnar á sýningunni eru gerðar í
„Reynomatic“-stíl og heitir
sýningin „Skartgripir fjallkon-
unnar.“
Sýningin stendur til 14.
ágúst næstkomandi og er að-
gangur ókeypis. Opið er til kl.
19 á kvöldin og eru allar mynd-
irnar á sýningunni til sölu.
Þetta er tólfta sýning Reynis sem einnig er með
sýningu núna í byggðasafninu við Garðskagavita á
Reykjanesi.
Myndlist
Skartgripir
fjallkonunnar
Reynir
Þorgrímsson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
EINHVER stærsti fljótandi bóka-
markaður heims er væntanlegur
hingað til lands. Markaðurinn er í
skipinu Logos II, sem leggur að
landi í Reykjavíkurhöfn 15. ágúst
nk. með 200 manns innanborðs og
4.000 bókatitla úr ýmsum flokkum
bókmennta. Skipið hefur lagt að
bryggjum 79 landa og yfir níu millj-
ónir bókaorma hafa heimsótt það á
þeim 17 árum sem það hefur verið
notað í þessum tilgangi. Áhöfnin er
strangkristin og á að veita þeim
sem heimsækja skipið þekkingu,
hjálp og von.
37 ára verkefni
Fjölþjóðleg menning ríkir um
borð í skipinu. Sjálfboðaliðar vinna
þar í tvö ár en einnig eru þar börn
áhafnarmeðlima og kennarar sem
kenna þeim á meðan þau sigla um
heimsins höf, svo þau missi ekki úr
skóla. Tilgangurinn er að breiða út
og auka skilning manna á ólíkri
menningu þjóða. Verkefnisstjóri
Logos II er Færeyingurinn Leivur
á Lakjuni.
„Þetta hófst fyrir 37 árum og við
höfum heimsótt yfir 150 lönd,“ segir
Leivur um verkefnið, sem hófst
sem eins konar kristniboð, kristnar
bækur voru fluttar til landa þar
sem engar slíkar var að finna. Auk
Logos II er skipið Doulos gert út í
sama tilgangi. Á því er 350 manna
áhöfn og er það stærsta bókaskip
heims. Upphaflega var ætlunin að
færa þjóðum heims kristilegt les-
efni, þ.e. þeim sem ekki höfðu að-
gang að slíkum bókum.
„Verkefnið óx og fólk hvaðanæva
úr heiminum fór að vinna um borð í
skipinu, fyrsta skipinu, sem hét
Logos og var keypt 1970,“ segir
Leivur. Sjö árum síðar var ákveðið
að kaupa annað skip, Doulos. Logos
strandaði undan ströndum Chile og
var þá Logos II keypt. Skipin eru
gerð út sitt af hvorum aðilanum.
Þýska góðgerðarstofnunin Gute
Bücher für Alle, eða Góðar bækur
fyrir alla, gerir út Doulos og Logos
II, en breski góðgerðarsjóðurinn
Educational Book Exhibits á Logos
II.
„SÞ fljótandi“
Leivur hóf störf í áhöfn Logos II
fyrir þremur árum, þegar skipið
var við bryggju í Frakklandi.
„Flestir um borð eru ungir og vinna
uppi á dekki, í bókabúðinni, í eld-
húsinu, vélarrúminu eða við þrif.
Þeir sem vilja vinna í skipinu verða
að vera orðnir 18 ára,“ segir Leiv-
ur. Um 20 börn séu um borð nú,
börn skipstjóra, vélstjóra og ann-
arra um borð. „Þetta er mjög
áhugavert samfélag að búa í.
Ferðamálaráðherra Kambódíu kall-
aði okkur „Sameinuðu þjóðirnar
fljótandi“ þegar við vorum þar. Eini
munurinn væri sá að við værum
sameinuð,“ segir Leivur og hlær.
Skipið leggur að Ægisgarði 15.
ágúst og verður opnað almenningi
degi síðar. Leivur segir allar líkur á
því að áhöfnin taki þátt í Menning-
arnótt 18. ágúst nk. Áhafnarmeð-
limir munu sýna þjóðdansa á Lækj-
artorgi og um borð verða gripir frá
ólíkum löndum til sýnis og gestir
fræddir um menningu hinna ýmsu
landa. Einnig er þar kaffihús gest-
um til hressingar. Nákvæm dag-
skrá mun liggja fyrir þegar nær
dregur komu skipsins og Menning-
arnótt.
Allt í góðri trú
En eru íslenskar bækur um
borð? „Nei, það verða engar ís-
lenskar bækur,“ svarar Leivur.
Miðað við verðið á bókunum um
borð séu íslenskar bækur of dýrar.
Það muni líklega ekki borga sig að
selja íslenskar bækur, en þó sé
aldrei að vita hvað gerist. Tekjur af
bóksölu fara í að greiða niður
kostnað við rekstur skipsins, en
verkefnið reiðir sig á frjáls framlög
einstaklinga og fyrirtækja sem og
sjálfboðavinnu.
„Þetta er allt gert í góðgerðar-
skyni,“ segir Guðríður Inga Ingólfs-
dóttir, fulltrúi viðburða á vegum
Höfuðborgarstofu. Þó svo kristni-
boð sé hluti af starfsemi áhafnar-
innar sé ekki verið að troða trúnni
upp á neinn.
„Okkur líst afar vel á þennan
hóp. Þetta er fólk alls staðar að úr
heiminum. Þetta er dálítið svipað
og hugmyndin um lifandi bókasafn,
þar sem þú getur fengið lánað fólk
og rætt við það um menningarheim
þess,“ segir Guðríður. Höfuðborg-
arstofa taki því áhöfninni og verk-
efninu fagnandi.
Bókaskipið Logos II verður í Reykjavíkurhöfn 15.-29. ágúst
Fljótandi bókamarkaður
Vaggandi bækur Ung kona skoðar myndir um borð í bókaskipinu Logos II.
Ísland verður áttugasta landið sem það heimsækir.
Í HNOTSKURN
» Sjálfboðaliðar frá yfir 40löndum eru í áhöfn skips-
ins. Þeir eru um 200 talsins,
flest ungt fólk. Auk þess eru
um borð skipstjóri, stýrimenn,
vélstjórar og aðrir fagmenn
sem sjá um að sigla skipinu.
» Allir þeir sem eru yfir 18ára aldri geta sótt um að
gerast sjálfboðaliðar á skip-
inu. Hægt er að leggja inn um-
sókn á www.mvlogos2.org.
Frekari upplýsingar um skipin tvö:
http://www.mvlogos2.org/
http://mvdoulos.org/
♦♦♦
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
LEIKFÉLAGIÐ Sýnir frumsýnir á morgun, mið-
vikudag 1. ágúst, klukkan 20, leikverkið Vak-
andi manns draumur, spunaverk unnið uppúr
þjóðsögum um álfa og huldufólk. Athygli vekur
að sýnt er utanhúss, nánar tiltekið við gömlu
skotbyrgin í Öskjuhlíð, og er því allra veðra von
á leiksviðinu. Sýnir hefur áður sýnt verk á borð
Draum á Jónsmessunótt, Stútungasögu og Máf-
inn eftir Tsjekhov, öll úti í guðsgrænni nátt-
úrunni.
Leikið úti í hvaða veðri sem er
„En við sýnum í hvaða veðri sem er, og höfum
gert í 10 ár,“ segir Hrund Ólafsdóttir, leikstjóri
annars hluta verksins. „Reyndar er spáin góð;
það verður léttskýjað og sól á miðvikudaginn.“
Leiksýning Sýna er að þessu sinni í tveimur
þáttum, en „báðir þættirnir fjalla um samskipti
manna og huldufólks,“ að sögn Hrundar. Þáttur
hennar byggist á nokkrum útgáfum af þjóðsög-
unni Selmatseljan og fjallar um samband stúlku
við huldumann.
Ungir drengir og huldukonur
Hörður Skúli Daníelsson stýrir svo hinum
þættinum, glettilegri sögu af samskiptum
tveggja drengja við huldukonur.
„Samin var sérstök tenging á milli þáttanna,“
útskýrir Hrund. „Helga Ragnarsdóttir, tón-
smíðanemi í LHÍ, flytur svo tónlist ásamt leik-
urum, en hún leikur á blokkflautu, og svo verða
einnig tvær fiðlur, þverflauta og gítar.“
Þess má geta að leikfélagið Sýnir heldur ein-
mitt uppá 10 ára afmæli sitt í ár. Miðasala fer
fram í síma 847-6921 og kostar miðinn litlar 500
krónur. Auk frumsýningar verða sýningar á
Akureyri 4. ágúst kl. 17.30 á Hamarskotstúni,
aftur í Reykjavík 6. og 7. ágúst og loks á Fiski-
deginum mikla á Hánefsstaðareit á Dalvík. Gest-
um er bent á að klæða sig eftir veðri, það er óvíst
að hin hefðbundnu leikhúsföt dugi.
Samband manna og huldufólks
Ljósmynd/Ingimar Björn Davíðsson
Steinafólk Af æfingu á sýningu Sýna.