Morgunblaðið - 31.07.2007, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ljósmyndari: Linda Björk Gísladóttir
Nafn myndar: Fagurt útsýni
Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru:
50 fríar 10 x 15 myndir
<< 1.verðlaun
Kodak EasyShare Z712 IS
2.verðlaun
Kodak EasyShare V610
3.verðlaun
Samsung Digimax i6 PMP
STEYPTUR hefur verið nýr grunnur undir hús nr. 11
við Aðalgötu á Blönduósi. Það sem er sérstakt við það
er að húsið er upphaflega byggt árið 1906 eða 1907 og
því orðið 100 ára. Fyrir nokkru var húsið híft af sínum
gamla grunni og komið fyrir handan götunnar til tíma-
bundinnar dvalar. Núna hillir undir það að húsið kom-
ist aftur á sinn stað og öðlist aftur sinn fyrri sess í sam-
félaginu.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Nýr grunnur undir húsið
Grímsey | Dorte Kuula, ritstjóri frá Danmörku,
var í heimsókn í Grímsey ásamt eiginmanni sín-
um, Henrik Særmark-Thomsen blaðamanni og
forstjóra ferðaskrifstofunnar Hannibal og Marco
Polo. Dorte ritstýrir helgarferðablaði Jótlands-
póstsins. Hún kom einmitt hingað til lands til að
kynna fyrir Dönum ferðamöguleika á Norður-
landi. Heimsóknina á heimskautsbauginn og
fuglalífið sem er með eindæmum blómlegt þessa
júlídaga sagðist Dorte hlakka til að að kynna fyrir
lesendum sínum.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Ferðamenn Dorte og Henrik við höfnina í Grímsey.
Ritstjóri ferða-
blaðs heimsækir
Grímsey
LANDIÐ
UM 30 iðkendur listhlaups á skaut-
um taka nú þátt í fyrstu æfingabúð-
um Listhlaupadeildar Skautafélags
Akureyrar. Næstu fjórar vikurnar
munu iðkendurnir læra íslistir af
reyndum innlendum og erlendum
þjálfurum, t.a.m. Karen Fletcher,
Tristan Cousins og Joy Sutcliffe.
Einnig mun Sanna-Maija Wiksten
annast kennslu, en hún hefur mikla
reynslu af keppni í listhlaupi á
skautum t.d. af Norðurlanda-, Evr-
ópu- og heimsmeistaramótum.
„Þetta eru stærstu æfingabúðir
sem listhlaupadeild á Íslandi hefur
staðið fyrir,“ sagði Kristín Þöll
Þórsdóttir meðlimur í stjórn List-
hlaupadeildar Skautafélags Ak-
ureyrar. „Þetta er því einstakur
viðburður í sögu Listhlaupadeild-
arinnar.“
Fyrsti dagur æfingabúðanna fór
fram síðastliðinn föstudag, en á
hverjum degi er æft frá kl. 9-15.
Listhlaupadeild
Akureyrar skipu-
leggur æfingabúðir
Efnilegar Akureyrarstúlkurnar svifu um svellið aftur og bak og áfram
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Æfingin skapar meistarann Stúlkurnar áttu ekki í nokkrum vandræðum með að leika á eftir þjálfaranum.
Margt Um 30 þátttakendur eru í æfingabúðunum. Hraði Iðkendurnir sýndu fádæma öryggi og lipurð.