Morgunblaðið - 31.07.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 17
AUSTURLAND
Skátaheitið
Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til
þess að gera skyldu mína við guð og ættjörðina,
að hjálpa öðrum og að halda skátalögin.
Skátar ungir sem aldnir
Endurnýjum skátaheitið á Sólrisudegi, kl 8:00 í fyrramálið.
Í tilefni þess að 1. ágúst 2007 eru 100 ár liðin frá upphafi
skátahreyfingarinnar munu skátar um allan heim endurnýja skátaheitið
kl. 8:00 að morgni í sínu landi, við dögun nýrrar aldar í skátastarfi.
Þetta getur hver skáti gert hvar sem hann er staddur á þessum tíma.
Opið hús verður í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123 í Reykjavík, frá kl.
06:30 og þar verður skátaheitið endurnýjað kl. 08:00 undir stjórn skáta-
höfðingja og horft verður á dagskrá frá Brownsea eyju í Englandi.
Mývatnssveit | Halldór Snæbjörns-
son og Egill Steingrímsson eru
starfsmenn Hótel Reynihlíðar, þeir
eru hér að gera nýjan rúgbrauðs-
pott í Bjarnarflagi fyrir hótelið.
Rúgbrauð bakað í Bjarnarflagi
með reyktum silungi og smjöri er
ómissandi hluti af mývetnskri mat-
armenningu bæði fyrir heimafólk
og gesti. Af samtali við þá félaga,
sem báðir eru langreyndir í rúg-
brauðsgerðinni og innfæddir Mý-
vetningar, er ljóst að ekki er fjarri
lagi að álykta að í sveitinni sé bak-
að úr meira en 100 kílóum af rúg-
mjöli í viku hverri yfir sumartím-
ann. Nýi potturinn, sem þeir
félagar eru hér að byggja úr hol-
steini frá Léttsteypunni, er bæði
víður og breiður og þróaður af ár-
hundraða reynslu kynslóðanna.
Fjöldi Mývetninga á sér pott í hita-
svæði Bjarnarflags og bakar eftir
hendinni til heimanota allt árið.
Fátt jafnast á við glóðvolgt hvera-
brauðið með smjörsneið sem helst
er skorin þykkt með ostaskera og
lögð á brauðið.
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Gera rúgbrauðs-
pott í Flaginu
FRANSKIR dagar sem haldnir
voru á Fáskrúðsfirði um helgina
tókust í alla staði vel. Margir að-
komumenn voru á staðnum yfir
helgina, enda eru dagarnir notaðir
af brottfluttum til að vitja gamalla
heimkynna og heimsækja ættingja.
Á laugardag var útihátíð í mið-
bænum þar sem margt var gert til
skemmtunar. Þá var hlaupið minn-
ingarhlaup um Berg Hallgrímsson
og var góð þátttaka í því, bæði
yngri sem eldri hlauparar sprettu
úr spori. Farið var að franska
grafreitnum þar sem lagður var
blómsveigur við krossinn af
fulltrúum Fjarðabyggðar og Graf-
ilines, auk sendiherra Frakklands
á Íslandi. Sóknarpresturinn séra
Þórey Guðmundsdóttir flutti ritn-
ingarorð. Harmonikkuleikarar
voru bæði á dvalarheimilinu Upp-
sölum og í félagsheimilinu Skrúð.
Hjólreiðakeppnin Tour de Fá-
skrúðsfjörður fór fram að venju
og var nú hjólað í gegnum jarð-
göngin frá Reyðarfirði. Íslands-
meistaramót í Pétanque var haldið
um kvöldið og síðan var dans-
leikur í Skrúð. Allt fór þetta vel
fram.
Á sunnudag var meðal annars
hlaupið svokallað spítalahlaup frá
franska spítalanum í Hafnarnesi
að gamla grunnstæðinu hans inni
á Fáskrúðsfirði, eða um 19 km. Er
þetta liður í því að fá húsið flutt á
sinn upprunalega stað. Veðrið
skartaði sínu fegursta alla dagana.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Hreyfing Hópurinn sem hljóp frá franska spítalum í Hafnarnesi að gamla grunnstæðinu hans inni á Fáskrúðsfirði.
Hjólað og hlaupið á frönskum dögum
FRANSKIR dagar voru um
helgina haldnir í tólfta sinn á Fá-
skrúðsfirði. Opnaðar voru sýningar
á fimmtudagskvöld og farin svoköll-
uð kenderíisganga um bæinn.
Formlega voru dagarnir settir á
föstudagskvöldið við varðeld og
brekkusöng.
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar,
Helga Jónsdóttir, ávarpaði gesti,
svo og fulltrúa frá vinabænum Gra-
velines í Frakklandi sem viðstaddir
voru, og bauð hún þá velkomna á
hátíðina. Þökkuðu þeir fyrir sig og
sungu á frönsku. Mikill fjöldi var
saman kominn við varðeldinn og
söng fram eftir kvöldi.
Í tengslum við franska daga er
það orðinn fastur liður að haldnir
eru tónleikar í Fáskrúðsfjarðar-
kirkju þar sem Bergþór Pálson
kemur með góða gesti. Í þetta sinn
voru með honum Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir. Fluttu þau meðal annars lög
við ljóð Páls Ólafssonar. Sungið var
bæði á frönsku og íslensku við góð-
ar undirtektir viðstaddra, og urðu
þau að syngja aukalög í lok tón-
leikanna. Hátíðinni lauk á sunnu-
dag. Margir lögðu vinnu í undirbún-
ing hátíðarinnar til að gera hana
sem besta. Framkvæmdastjóri var
Berglind Agnarsdóttir.
Tónleikar í kirkjunni
Morgunblaðið/Albert Kemp
Tónlist Sigrún Hjálmtýsdóttir var gestur Bergþórs Pálsssonar ásamt Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur á tónleikum í Fáskrúðsfjarðarkirkju.