Morgunblaðið - 31.07.2007, Page 18
|þriðjudagur|31. 7. 2007| mbl.is
A
ð vera skáti snýst um að vera
svolítið sjálfstæður og að læra
með því að framkvæma hlutina,
mest tengt útilífi,“ segir Egill
Erlingsson, 17 ára sem verið
hefur skáti í 9 ár í Ægisbúum. „Það er allt í
lagi að gera mistök, maður lærir mest á
þeim. “
Óli Björn Vilhjálmsson, 16 ára segir fé-
lagsskapinn líka góðan og að samvinnan sé
þar mikilvæg. „Maður getur ekkert setið út í
horni og látið aðra gera hlutina fyrir sig. Það
er bara þannig að maður verður að vera
með.“
„Það er ekki ríkjandi mikil einstaklings-
hyggja í skátunum. Þar er mikið sjálf-
boðaliðastarf,“ bendir Heiða Kristín Ragn-
arsdóttir 16 ára á og Ægisbúi til 7 ára. Það
er ekki þetta „Hvað græði ég á því?“-
viðhorf.“
– Þið eruð greinileg óhrædd við að hafa
ólíkar skoðanir en leitið samt sameiginlegra
lausna. Er það ekki oft erfitt?
„Jú, þegar það eru margar mismunandi
manneskjur í hópnum,“ segir Heiða Kristín.
„En það tekst alveg,“ staðhæfir Laufey
Haraldsdóttir 15 ára og með 4 ára reynslu.
„Ef það eru tveir möguleikar þá fram-
kvæmum við bara stundum báða,“ segir Egill
diplómatískur.
– Hvað finnst ykkur skátarnir hafa gefið
ykkur?
„Það sem ég hef helst lært er að hugsa út
fyrir kassann. Ekki beinlínis að brjóta regl-
urnar en að sveigja þær eins og maður get-
ur,“ segir Egill og Heiða samsinnir því.
„Maður gerir allt mögulegt sem maður
myndi ekki gera ef maður væri ekki skáti,
eins og að hoppa út í á.“
Laufey segir skátastarfið líka hafa hjálpað
mörgum að sigrast á feimni.
– Og allt er þetta án vímuefna?
„Já, þetta er vímulaus skemmtun,“ segja
þau samhljóma. „Það þarf enginn vímuefni.
Gleðin er eins og adrenalín.“
Ævintýraferðin til Jamboree
Krakkarnir eru nú komnir á alheimsmót
skáta í Jamboree í Englandi sem í ár er sér-
lega stórt og glæsilegt í tilefni af 100 ára af-
mæli skátahreyfingarinnar. Morgunblaðið sló
á þráðinn til eins af fréttariturum skátanna á
mótinu, Ragnheiðar Ástu Valgeirsdóttur,
sem sagði stemmninguna vera æðislega. „Ég
ræddi við nokkra Ægisbúa og skáta úr
Stróki úr Hveragerði og þau voru sammála
um að hér væri geðveikt gaman að vera.
Veðrið hefur leikið við okkur og þótt það
væri spáð mikilli rigningu á sunnudaginn þá
rigndi aðeins um nóttina og svo tók við
glampandi sólskin.
Hér eru 42.000 manns og alveg ótrúlegt
hvað allt gengur vel. Það er ótrúlegt hvað
margir mismunandi menningarheimar geta
búið hérna í sátt og samlyndi. Það eru allir
svo vingjarnlegir hér og hjálpfúsir. Þegar við
komum á svæðið í rútunni tók á móti okkur
fullt af skátum sem við höfðum aldrei séð og
hjálpuðu okkur að afferma rútuna,“ segir
Ragnheiður Ásta.
„Íslensku skátarnir eru sammála um að
dagskráin sé búin að vera rosalega skemmti-
leg og vel skipulögð. En mótið er aðeins rétt
að byrja og margir dagar eftir til þess að
kynnast frábæru fólki og styrkja vinabönd.
Eitt er víst, að allir sem eru á mótinu eru
sammála um að þetta mót mun búa með
manni alla ævi og gera mann að betri og
þroskaðri einstaklingi.“
Gleðin er eins og adrenalín
Morgunblaðið/ÞÖK
Skátar Laufey, Egill, Heiða og Óli Björn eru sjálfstætt samvinnufólk.
420 íslenskir skátar eru nú
staddir á alþjóðamóti skáta í
Jamboree í Englandi. Unnur H.
Jóhannsdóttir fræddist um það
hjá nokkrum ferðalöngum hvað
er að vera í skáti í dag og heyrði
í fréttaritara skáta á mótinu.
Ljósmynd/Birgir Örn Björnsson
Skemmtilegt Íslensku skátarnir skemmta
sér vel á alheimsmótinu enda dagskráin fjöl-
breytt og skemmtileg og mörgum að kynnast.
daglegtlíf
Umhyggja dýraeigenda fyrir dýrum sín-
um fer sívaxandi og gera þeir sitt besta
til að tryggja lífsgæði þeirra. Hundurinn
Stormur fékk m.a. gerviloppu. » 21
gæludýr
Ólafur Áki Ragnarsson er kappsfullur
maður, sem lætur sér ekki nægja stjórn-
sýsluvafstrið, heldur fær líka útrás með
því að ganga á hæstu fjöll. » 20
tómstundir
KÓNGULÓARMAÐURINN, Bratz-dúkkur og Harry
Potter – í stað þessara hetjumynda bernskunnar geta
bandarískir krakkar brátt gripið með sér talandi Jes-
úsdúkku, skeggjaðan Móses eða kraftalegan Golíat.
Frá miðjum ágústmánuði mun Wal-Mart-verslana-
keðjan bjóða upp á línu kristinna leikfanga, að því er
greint var frá á vefmiðli BBC.
Um er að ræða leikfangakarla í hasarhetjuanda. Lín-
an nefnist Tales of Glory og er dúkkunum að sögn fram-
leiðanda ætlað að taka slaginn við vinsælustu leik-
fangadúkkur samtímans. Verulega erfitt þykir að
komast inn á leikfangamarkaðinn þar sem krakkar vilja
helst það sama og vinir og skólafélagar þeirra eiga nú
þegar. Það er því spurning hvort Jesús, sem vitnar í
biblíutexta, eða Daníel meðal ljónanna eiga eftir að
vekja tilætlaða hrifningu.
David Socha, stofnandi fyrirtækisins One2believe sem
framleiðir dúkkurnar, er sannfærður um að markaður
sé til fyrir þær. „Ef þú ferð inn í leikfangadeild hvaða
stórverslunar sem er þá sérðu leikföng og dúkkur sem
lofa illsku, eyðileggingu, lygar og svindl.“ Kristnu dúkk-
unum er ætlað að senda annan boðskap. „Þær eru
byggðar á trúnni og það er ekki bara gaman að leika
með þær heldur gefa þær líka góðan andlegan grunn.“
Kristnir kappar í Wal-Mart
Hetjur Þeir takast hraustlega á þessir kappar.