Morgunblaðið - 31.07.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 27
✝ Hannes Óli Jó-hannsson fædd-
ist á Borgarfirði
eystra 3. mars 1927.
Hann lést á sjúkra-
húsinu á Egils-
stöðum 26. júlí. For-
eldrar hans voru
hjónin Jóhann
Helgason, f. 30.12.
1891, d. 10.2. 1972,
og Bergrún Árna-
dóttir, f. 3.10. 1896,
d. 25.6. 1972. Systk-
ini Hannesar Óla
eru Árni Björgvin, f.
4.7. 1918, d. 1921, Helga Sesselja,
f. 29.12. 1919, d. 1982, Árný Ingi-
björg, f. 2.1. 1921, Ólöf Þórarna, f.
26.9. 1922, Sigursteinn, f. 3.9.
1924, d. 11.10. 2000, Magnús, f. 6.3.
1926, d. 31.5. 1997, Anna Guðný, f.
31.7. 1928, Jón Þór, f. 11.8. 1930,
Þorgeir Stefán, f. 25.3. 1932, d.
13.5. 1992, Ída Borgfjörð, f. 1.6.
1933, d. 7.6. 1966, Gunnar Sigmar,
f. 11.6. 1934, d. 1935, Sveinn, f.
20.9. 1935, og Guðmundur, f. 20.9.
1935.
Ólason, f. 3.11. 1956. 6) Erling Óli,
f. 11.3. 1958, maki Sveinborg Jó-
hanna Ingvadóttir, börn þeirra
eru Karen Erla og Embla Ýr.
Börn Erlings eru Hrafnhildur, Ár-
mann Snær og Þorgils Óttar. 7)
Sveinbjörg, f. 19.7. 1959, maki
Pétur Örn Hjaltason, synir þeirra
eru Arnar og Olgeir. 8) Sigríður
Þórhalla, f. 7.10. 1960, maki Fridt-
jof Johannessen. Dætur hennar
eru Þórhildur og Ragnhildur. 9)
Árni, f. 23.10. 1962, maki Val-
gerður Hreinsdóttir, synir þeirra
eru Bjartur Óli, Ýmir Steinn, Ást-
vin Aldar og Hreimur Hreinn. 10)
Ólöf Björg, f. 10.12. 1964, maki
Ingólfur Þórhallsson. Börn henn-
ar eru Dagur Skírnir og Dagrún
Sóla. 11) Sigurjón Guðni, f. 11.3.
1969, maki Andrea Guðnadóttir,
synir þeirra eru Óli Þór og Nói
Hrafn.
Hannes Óli lauk sínu barna-
skólaprófi á Borgarfirði, fór síðan
til Akureyrar og varð gagnfræð-
ingur þar. Fyrri hluta starfsald-
urs síns starfaði Óli sem verk-
stjóri og fiskmatsmaður á Borgar-
firði. Hann varð síðan stöðvar-
stjóri Pósts og síma í 30 ár. Auk
þess var hann hreppstjóri til
fjölda ára.
Útför Hannesar Óla verður
gerð frá Bakkagerðiskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 11.
Hannes Óli hóf
sambúð árið 1951
með Erlu Sigurðar-
dóttur, f. á Borgar-
firði eystra 7.7. 1932.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Steins-
dóttir, f. 14.9. 1914,
d. 9.2. 2007, og Sig-
urður Guðnason, f.
15.11. 1909, d. 28.12.
1961.
Börn Óla og Erlu
eru: 1) Þórhildur, f.
8.7. 1952, maki Ágúst
Már Grétarsson,
börn þeirra eru Sólrún og Hannes
Óli, barnabörnin eru tvö. 2) Bergr-
ún Gyða, f. 13.8. 1953, maki Jón
Hermannsson, dóttir þeirra er
Erla Guðfinna, þau eiga eitt barna-
barn. 3) Hafsteinn, f. 9.8. 1954,
maki Harpa Vilbergsdóttir, börn
þeirra eru Kormákur Máni og
Bergrún, og þau eiga eitt barna-
barn. 4) Jóhanna, f. 26.8. 1955,
maki Ólafur Aðalsteinsson, börn
þeirra eru Aðalsteinn og Erla, þau
eiga eitt barnabarn. 5) Kjartan
Elsku pabbi minn. Nú ertu farinn
frá okkur, laus úr viðjum veikinda og
erfiðleika sem voru þeim samfara.
Við systkinin, börnin þín 11, erum
þakklát og sátt, en jafnframt sorg-
mædd að missa þig frá okkur. En
svona er lífið og enginn ræður sínum
næturstað. Þess í stað getum við ylj-
að okkur við dásamlegar minningar
og brosað í laumi að öllu brasinu okk-
ar saman.
Hver dagur með þér var hvatning
um að standa okkur og njóta þess
besta sem lífið gaf. Dugnaður, kraft-
ur og eldmóður einkenndi þig. Alltaf
var líf og fjör og áfram skyldi haldið,
sama á hverju gekk. Þú vafðir okkur
ást og umhyggju og lést þér ekkert
óviðkomandi þegar við vorum annars
vegar. Þú fylgdist með hverju skrefi
og gladdist óendanlega þegar barna-
börnin fæddust hvert af öðru og síð-
an barnabarnabörnin.
Mamma saknar þín sárt en gleðst
jafnframt yfir því að þú hefur fengið
hvíldina. Fallegt samband ykkar og
ást mun fylgja okkur áfram. Við
munum gæta hennar og sjá til þess
að líf hennar og líðan verði eins bæri-
legt og hægt er.
Hafðu þakkir fyrir allt, elsku eng-
illinn minn og guð geymi þig. Þín
Bergrún Gyða.
Elsku pabbi.
Hvað síðustu 7 mánuðir eru búnir
að vera erfiðir fyrir þig. Þú gast ekki
sætt þig við heilsuleysi þitt og að
þurfa að eyða dögunum á Sjúkra-
húsi á Egilsstöðum. Þú varst alltaf á
leiðinni heim á Borgarfjörð til
mömmu sem beið eftir þér. Þeir voru
ekki margir dagarnir sem þú gast
dvalist heima í Melgerði eftir að þú
veiktist, fórst nokkra dagparta þang-
að á rúntinn. Síðan sýndum við djörf-
ung og dug, skelltum okkur í helgar-
og páskafrí sem var alveg frábært.
Ég fór í hjúkkuleik og allt gekk vel,
mikið varstu glaður að geta verið
heima hjá mömmu og mömmu og sof-
ið í rúminu ykkar. Eftir páskafrí fór
heilsa þín hratt niður á við og gátum
við ekki eytt sumrinu saman heima á
Borgarfirði eins og við vorum búin að
stefna að. Við erum nú búin að bralla
margt saman um ævina, pabbi minn,
og á ég ótal skemmtilegar og fallegar
minningar um þig. Ég vann hjá þér í
sjoppunni þinni og var farin að hjálpa
þér á símstöðinni mjög ung.
Ég á þér svo margt að þakka, sér-
staklega umhyggju og nánast upp-
eldi á börnunum mínum, þeim Degi
Skírni og Dagrúnu Sólu. Þú varst al-
veg frábær afi, kenndir þeim
að spila og tefla, fórst í gönguferðir
og rúntinn og spjallaðir endalaust við
þau.
Takk fyrir allt og allt, elsku pabbi.
Þín,
Ólöf Björg.
Ég og afi minn áttum margt sam-
eiginlegt.
Fyrst má telja nafnið, ég var
skírður Hannes Óli í höfuðið á honum
og olli það oft skemmtilegum mis-
skilningi í Melgerðinu þar sem ég
dvaldi oft á sumrin. Þegar amma
kallaði úr eldhúsinu, þar sem hún
stumraði yfir kleinupottinum, svör-
uðum við oft báðir innan úr stofu þar
sem við sátum og ræddum hin ýmsu
málefni.
Yfirleitt þegar ég gisti hjá ömmu
og afa átti ég samastað inni í hinu
svokallaða langömmuherbergi og
þar svaf ég á næturnar. En það var
einn tími dagsins sem ég þurfti að
sitja úti en afi lagði sig alltaf þar í há-
deginu með blaðið yfir augun (yfir-
leitt Tímann þar til hann hætti að
koma út). Ég leyfði honum þá að vera
í friði með glöðu geði enda nóg annað
hægt að stússast.
Við eyddum oft heilu og hálfu dög-
unum saman á símstöðinni þar sem
afi sinnti vinnu sinni en ég sniglaðist í
kringum hann, honum eflaust til mik-
illar truflunar. En ekki lét hann það
uppi og umbar litla símstjórann þar
sem hann lék sér að póststimplunum
og hékk í tölvunni í fleiri klukkutíma
í senn.
Ég og afi minn áttum margt sam-
eiginlegt, og margar fleiri minningar
koma upp í hugann. Ég er þó fyrst og
fremst stoltur af því að hafa þekkt
hann afa minn og fengið að kynnast
þessum mikla öðlingi, snillingi og
ljúfmenni. Þín verður sárt saknað og
minnst með hlýju, enda var hlýja það
sem þú varst gerður úr.
Hannes Óli Ágústsson.
Þegar mamma sagði mér fyrst frá
því að þú hefðir orðið skyndilega
veikur í desember þá hélt ég ein-
hvern veginn að þú myndir bara
hrista þetta af þér, eins og þú gerðir
alltaf, en því miður var þetta alvar-
legra en það. Þú varst svo ótrúlega
sterkur og um leið og ég kom inn í
herbergi til þín sagðirðu hjúkrunar-
konunni að ná í eitthvað nammi til
þess að gefa mér. Alltaf sá sami afi
sem vildi og gerði allt til þess að
gleðja mann.
Ég man að ég og Dagur skiptum
ykkur ömmu á milli okkar, hann var
meiri ömmustrákur og ég meiri afa-
stelpa, og mun ég aldrei gleyma þeim
stundum sem ég átti með þér. Efst í
huga mér er þegar við lögðumst allt-
af saman inn í rúm inni í langömmu-
herbergi eftir mat, með Rás 1 í út-
varpinu í bakgrunni, og sváfum vært
saman lítinn blund. Og ég man að það
þýddi ekkert að leggja mig við hlið-
ina á þér, ég vildi bara liggja á bumb-
unni á afa. Þegar ég kom heim til
ykkar ömmu í Melgerði fékk ég alltaf
góða tilfinningu í hjartað, ég vissi að
það biðu mín knús, sögur og góður
matur. Og þegar ég heyrði þig raula
eitthvað lag vissi ég virkilega að ég
var komin heim.
Ég mun stanslaust sakna þín afi
minn en ég veit að þú situr örugglega
sæll og glaður uppi á himnum, raul-
andi eitthvað lítið lag og að gleðja
alla í kringum þig með nærveru
þinni.
Ég hef verið og verð alltaf litla afa-
stelpan þín.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Dagrún Sóla Óðinsdóttir.
Ég hef verið svo lánsamur að hafa
þekkt hann afa minn í 30 ár. Hann
var alltaf svo góður við okkur krakk-
ana og hafði alltaf tíma fyrir okkur,
þegar við komum í heimsókn. Hann
fór með okkur út um allt og kenndi
okkur hitt og þetta. Ég minnist sér-
staklega þess þegar ég fékk að hjálpa
honum á pósthúsinu, flokka póstinn
og þess háttar. Að launum fékk ég að
fara með tómar flöskur í kaupfélagið
og kaupa kók og Prins póló. Og ef
maður var þreyttur þá sagði hann
manni að fara og leggjast í bælið
hans bósa, eins og hann kallaði það,
en það voru gamlir póstpokar sem
hann var búinn að leggja undir hillur
í pósthúsinu. Svo sofnaði maður út
frá pikkinu í ritvélinni og raulinu í
honum. Þetta voru ómetanlegir
tímar, tímar sem ég gleymi aldrei.
Ég vildi óska þess að hún Hrafn-
katla mín hefði haft tækifæri til að
kynnast þér betur. En ég kem til með
að segja henni sögur af því hvað þú
varst góður maður.
Elsku afi, takk fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman. Takk
fyrir að kenna mér að keyra, takk
fyrir veiðiferðirnar út í höfn.
Takk fyrir að vera afi minn.
Kormákur Máni Hafsteinsson.
Það hefur verið tómlegt að koma
til ömmu og afa í Mel síðastliðna
mánuði. Ég man þegar ég fékk frétt-
ir af því að afi hefði veikst og farið á
spítala. Þegar hann kom suður fór ég
í heimsókn til hans, hann var mikið
veikur en eins og alltaf var hann
ákveðinn í að koma heim aftur. Hann
hresstist þannig að hann komst í
stuttar ferðir í Melgerði. En svo
veiktist hann aftur og núna varð ekki
aftur snúið, líkaminn gat ekki meira.
Síðustu daga hafa minningarnar um
afa í Mel reikað um huga minn. Ég
gæti setið endalaust og rifjað upp allt
sem við höfum brasað saman og það
sem hann kenndi mér.
Elsku afi, ég mun aldrei gleyma
því þegar þú kenndir mér að keyra.
Við stálumst niður á „Gummatún“ og
þú leyfðir mér að keyra, fyrst var ég
svo lítil að ég náði ekki niður en þá
fékk ég bara að stýra. Ég man eftir
því að í eitthvert skiptið sem við fór-
um þá var ég næstum búin að keyra í
skurðinn, en þú varst ekkert að
stressa þig á því. Allir dagarnir sem
ég var með þér á pósthúsinu. Þar
lærði ég fyrst á tölvu, ég var orðin
svo flink að skrá inn bunkana fyrir
þig (ég og þú vitum um hvað ég er að
tala). Þegar þetta var ekki alveg rétt
hjá mér þá komst þú og hjálpaðir
mér að leiðrétta svo þetta færi nú
ekki vitlaust þegar við sendum þetta.
Þú hafðir alltaf áhuga á bílum, varst
alltaf ægilega ánægður með bílana
þína og bauðst manni að fá „besta bíl-
inn í bænum“ lánaðan ef maður
þurfti að fara eitthvað og ef maður
vildi það ekki þá varstu bara
hneykslaður á því. Ég man eftir því
þegar ég kom suður eftir jólafríið, ég
kom beint til þín á sjúkrahúsið og það
fyrsta sem þú spurðir um var græni
kagginn þinn.
Núna ertu kominn á góðan stað
þar sem þér á eftir að líða vel. Ég
mun ylja mér við minningarnar um
þig, elsku afi. Takk fyrir allt sem þú
hefur kennt mér og gert fyrir mig.
Elsku amma og allir hinir, við höf-
um misst mikið en eigum nú góðar
minningar um afa sem við munum
kveðja í hinsta sinn í dag.
Erla.
Hannes Óli
Jóhannsson
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN Þ. HALLSSON
óperusöngvari,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, laugardaginn 28. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Kristinsdóttir, Brynjar V. Dagbjartsson,
Sigurður Kristinsson,
Anna Bryndís Kristinsdóttir, Vernharður Linnet,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín og amma okkar,
STELLA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést föstudaginn 27. júlí á Landspítalanum í
Fossvogi.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju, miðviku-
daginn 1. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Hjartavernd.
Linda Karlsdóttir,
Haukur Ármann Róbertsson,
Matthías Róbertsson.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HÖRÐUR HARALDSSON
húsasmíðameistari,
lést á Landspítalanum í Fossvogi, sunnudags-
kvöldið 29. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVI BENEDIKTSSON,
lést á elliheimilinu Grund, föstudaginn 27. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtu-
daginn 2. ágúst kl. 13.00.
Þórunn Björk Tryggvadóttir, Reynir Þór Ragnarsson,
Kjartan Tryggvason, Þórunn Tómasdóttir,
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, Ástvaldur Traustason,
barnabörn og barnabarnabörn.