Morgunblaðið - 31.07.2007, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Auknar skatttekjur
Tekjur ríkisins af fjármagns-
tekjuskatti einstaklinga hafa fjór-
faldast á síðustu fjórum árum. Þá
voru tekjur ríkisins vegna fjár-
magnstekna einstaklinga 34% hærri
árið 2006 en árið 2005. Að sögn
skattrannsóknastjóra var ekki
reiknað með því að fjármagns-
tekjuskattur yrði jafn öflugur skatt-
stofn og hann er nú. »Forsíða og 8
Útlendir aka of hratt
Lögreglan á
Blönduósi hefur
stöðvað marga
erlenda öku-
menn vegna
hraðaksturs.
Þeim er yfir-
leitt ókunnugt
um há viðurlög
við hraðakstri
og verður jafn-
vel svo mikið
um sektina að
þeir bresta í
grát. » 2
Íranir heimila eftirlit SÞ
Íranir leyfðu í gær eftirlits-
mönnum á vegum Sameinuðu þjóð-
anna að heimsækja kjarnakljúf á
nýjan leik þar sem þungt vatn er
framleitt. Eftirlitsmönnunum hefur
verið meinaður aðgangur frá því í
apríl sl.
Hversdagsgleymska
vekur athygli
María Kristín Jónsdóttir, tauga-
sálfræðingur, hefur skrifað grein um
hversdagsgleymsku sem hefur hlot-
ið mikla athygli í Bretlandi, þó að
greinin hafi enn hvergi birst á
prenti. »8
SKOÐANIR»
Ljósv: RÚV: How do you like Icel.
Staksteinar: Dýrari peningar
Forystugreinar: Miklir möguleikar
| Bush og Brown
UMRÆÐAN»
Hver lokaði dyrunum, Ingibjörg?
Álver á Vestfjörðum?
Rýmka þarf fjárfestingarheimildir
lífeyrissjóða
.
$):!
- (
)
;
/
/
/ /
/
/
/ /
/ / /
/ /
/
/ / / +< &9 !
/ / / / /
6=>>4?@
!AB?>@3;!CD36
<434646=>>4?@
6E3!<<?F34
3=?!<<?F34
!G3!<<?F34
!5@!!31?43<@
H4C43!<AHB3
!6?
B5?4
;B3;@!5(!@A4>4
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
Norðaustan og
norðan 8–15 m/s og
talsverð rigning aust-
antil. Dregur úr úr-
komu vestantil. 10 »
Rock Star-stjörn-
urnar Toby og
Magni koma saman
fram á Húkkaraballi
á Gauknum annað
kvöld. » 36
TÓNLIST»
Endurfundir
á Gauknum
TÓNLIST»
Rapparar taka við
Dylan-söngvum. » 39
Áhorfendum á
Simpsons-myndinni
er ráðlagt að sitja
sem fastast út
kreditlistann til að fá
allan pakkann. » 39
KVIKMYNDIR»
Sitjið sem
fastast
KVIKMYNDIR»
Spike Lee gerir mynd
um svarta herdeild. » 41
TÓNLIST»
Steypa er tónlist fyrir
forvitna. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Yfirlýsing frá Reyni Traustasyni
2. Fyrsta Bachelorette-barnið fætt
3. Andlát Kristins Hallssonar
4. Steingr. Ólafsson frstj. á Stöð 2
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SÆNSKI kvik-
myndagerð-
armaðurinn Ing-
mar Bergman
hafði mikinn
áhuga á Íslandi
og Íslendinga-
sögunum og
sagði, að sög-
urnar hefðu haft
mikil áhrif á sig
og sínar kvikmyndir. Þetta segir
Hrafn Gunnlaugsson, sem kynntist
Bergman persónulega. „Hann sagði
mér líka frá því að hann hefði skrif-
að kvikmyndahandrit upp úr Sjálf-
stæðu fólki á sínum tíma, hann
hreifst mjög af þeirri bók. En það
varð ekkert af kvikmyndun, hann
sagði að það hefði dottið upp fyrir
því mönnum hefði þótt þetta of
stórt, mikið og dýrt á þeim tíma,“
segir Hrafn. „Ég spurði hann ein-
hvern tímann hvort hann ætti þetta
til og hann sagði að það væri ein-
hvers staðar ofan í skúffu. Ég
spurði hann ekkert nánar út í það
því mér hefur aldrei dottið í hug að
kvikmynda þá bók.“ | 40
Bergman vildi
kvikmynda
Sjálfstætt fólk
Ingmar Bergman
LOGI Ólafsson,
fyrrum landsliðs-
þjálfari í knatt-
spyrnu, var í
gær ráðinn þjálf-
ari knatt-
spyrnuliðs KR
eftir að stjórn
KR-Sports hafði
sagt Teiti Þórð-
arsyni upp störf-
um síðdegis.
Logi er 16. þjálfarinn sem ráðinn
er til KR á undanförnum tveimur
áratugum og er honum ætlað að
stjórna KR út leiktíðina. Vest-
urbæjarliðið situr á botni Lands-
bankadeildarinnar eftir 11 umferð-
ir en liðið er aðeins með 7 stig og
hefur einungis náð að landa sigri í
einum leik fram til þessa. „Þetta
var mjög erfið ákvörðun,“ sagði
Jónas Kristinsson, formaður KR-
Sports, í gær.
Teitur Þórðarson sagði að hann
hefði ekki átt von á þessari ákvörð-
un á þessum tímapunkti. „Ég átti
von á því í vor þegar gengið var af-
leitt. Ég hélt að menn myndu
kannski láta líða örlítinn tíma áður
en svona staða kæmi upp. Ég vona
bara að félagið bjargi sér,“ sagði
Teitur m.a. í gær. | Íþróttir
Logi ráðinn
í stað Teits
Logi Ólafsson
ÞRÁTT fyrir að sumarblíðan hafi verið með eindæmum
í ár og Íslendingar löngu orðnir sólbakaðir skyldi eng-
inn gleyma því að veðráttan á Íslandi er óútreiknanleg
og hin kalda undiralda er sjaldnast langt undan. Þetta
mátti Jónas Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fjölva
útgáfu, reyna þar sem hann var á ferð um Fjallabak
Syðra síðastliðinn laugardag ásamt fríðu föruneyti í
hlýju veðri þegar skyndilega byrjaði að snjóa, öllum að
óvörum.
„Við vorum þarna inni við Strút og vorum að þvæl-
ast, það voru búnir að vera smá skúrir en samt sól
þannig að maður var bara á stuttbuxum. Ég hugsa að
það hafi verið á bilinu 12-15° hiti,“ segir Jónas. „Svo
gerist það um miðjan dag að það byrjar allt í einu að
snjóa alveg eins og ég veit ekki hvað, þétt og mikil snjó-
koma.“ Að sögn Jónasar var snjókoman algjörlega stað-
bundin við Mælifellssand og varð til að mynda engin úr-
koma, hvorki snjór né rigning, við skálann Strút sem þó
er aðeins í um 6 kílómetra fjarlægð. „Ég fór á flakk um
svæðið yfir helgina og það varð enginn var við snjó
nema þeir sem voru staddir nákvæmlega þarna á mjög
litlu svæði,“ segir Jónas, sem varð mjög undrandi yfir
þessum veðrasviptingum í sumarfríinu.
Ferðamönnum til nokkurs léttis hvarf vetrarham-
urinn fljótt þegar júlísólin tók að skína á ný. „Jörðin
varð alhvít á tæpum hálftíma, þetta hafa verið svona 3
til 5 millimetrar,“ áætlar Jónas, „en eftir rúman hálf-
tíma í viðbót var allt bráðnað og jörðin orðin svört aft-
ur. Þetta var asskoti magnað.“
Að sögn Björns Sævars Einarssonar veðurfræðings
snjóar reglulega á hálendinu þótt hásumar sé, en þó
megi teljast óvenjulegt að það sé með þessum hætti,
þ.e. svo snögglega og staðbundið á svæði þar sem ann-
ars er töluverður lofthiti. Hann telur líklegast að þarna
hafi orðið mikið niðurstreymi úr skúraskýi svo frost-
markshæð hafi lækkað og snjórinn ekki náð að bráðna
áður en hann náði niður og því hafi orðið nokkurs konar
haglél.
Kom öllum mjög á óvart
Jónas hefur sjálfur farið mikið til fjalla undanfarin 30
ár enda var hann áður björgunarsveitarmaður auk þess
sem hann hefur starfað sem leiðsögumaður, landvörður
og skálavörður. Hann segist aldrei hafa séð ofankomu
með þessum hætti áður á ferðum sínum. „Ég varð eig-
inlega bara hálfhissa og það sama má segja um aðra.
Þetta kom öllum jafnmikið á óvart sem upplifðu þetta
og allt var þetta nú vant ferðafólk sem var þarna.“
Morguninn eftir var aftur orðið vel heitt að sögn Jón-
asar og ferðalangar klæddir stuttbuxum og stutt-
ermabolum þegar óvænta sjón bar fyrir augu þeirra.
„Þá flýgur yfir einkaflugvél sem lendir þarna á sand-
inum í blíðu og sólskini,“ segir Jónas, og var þar kom-
inn pabbi skálastýrunnar í sunnudagsheimsókn.
Snjóaði í 15° hita svo
jörðin varð alhvít
Skiptast á skin og skúrir að Fjallabaki
Ferðafólk á leið um Fjallabak rak upp stór augu þegar fór
að snjóa og sumarið vék fyrir vetrarríki í klukkustund
Ljósmynd/Ingibjörg Eiríksdóttir
Veðrabrigði Svartur sandurinn við Mælifell var hulinn hvítu teppi um stund eftir snjókomuna á laugardaginn.
♦♦♦