Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 1
mánudagur 3. 9. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Aston Villa lagði Chelsea og Liverpool er á toppnum í Englandi >> 9
VALSMENN Á FLUGI
BURSTUÐU VÍKINGA 5:1 Á ÚTIVELLI OG
SÆKJA HART AÐ FH-INGUM Á TOPPNUM >> 4
Morgunblaðið/Sverrir
Í úrslit Tryggvi Guðmundsson lék stórt hlutverk í gær þegar FH sigraði Breiðablik, 3:1, í undanúrslitum bik-
arkeppninnar í knattspyrnu, í framlengdum leik á Laugardalsvellinum. FH-ingar mæta Fylki eða Fjölni í úrslita-
leik 6. október en Reykjavíkurliðin mætast í kvöld. » 5
SVEINN Elías Elíasson úr Fjölni
varð í gær Norðurlandameistari
unglinga í 400 metra hlaupi. Sveinn
sigraði í greininni á síðari degi
Norðurlandamótsins sem fram fór í
Esbjerg í Danmörku og hljóp vega-
lengdina á 48,03 sekúndum, sem er
nýtt drengjamet. Hann bætti eigið
met sem var 48,49 sekúndur.
Sveinn Elías fékk jafnframt silf-
urverðlaun á mótinu en hann varð
annar í 200 metra hlaupi á 21,94
sekúndum.
Þorsteinn Ingvarsson úr HSÞ
hlaut tvenn bronsverðlaun í Esb-
jerg. Hann varð þriðji í 110 m
grindahlaupi á nýju unglingameti,
14,54 sekúndum og þriðji í lang-
stökki, stökk 7,11 metra.
Sveinn varð
Norður-
landa-
meistari
NÝTT aðsóknarmet í efstu deild
karla í knattspyrnu var slegið í
gærkvöld. Þá sáu 1.010 áhorfendur
Valsmenn sigra Víkinga sannfær-
andi, 5:1, í Víkinni og þar með hafa
98.404 áhorfendur mætt á 75 leiki í
deildinni en áður hafa mest 98.026
séð alla 90 leikina í deildinni – árið
2006. Það er líka ljóst að langþráð
takmark knattspyrnuforystunnar
um að ná samtals 100 þúsund áhorf-
endum á völlinn næst í 16. umferð-
inni sem er leikin hinn 16. sept-
ember.
Metið féll
í Víkinni
HELGI Sigurðsson framherji Vals,
markahæsti leikmaður Lands-
bankadeildar karla í knattspyrnu,
þurfti að fara af leikvelli eftir 18
mínútna leik gegn Víkingum í gær.
Helgi tognaði aftan í læri og gat af
þeim sökum ekki haldið leik áfram
en þetta voru sams konar meiðsli og
hann varð fyrir í leiknum á móti
Keflvíkingum í síðustu viku en þá
þurfti hann að fara af velli í hálfleik.
Helgi var valinn í landsliðshópinn
fyrir leikina gegn Spánverjum og N-
Írum í undankeppni EM sem fram
fara á laugardag og miðvikudag í
næstu viku. Í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn í Víkinni í gær
taldi Helgi nær öruggt að hann gæti
ekki verið með í þessum leikjum
vegna meiðslanna.
Helgi ekki
í lands-
leikjunum
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„STUÐNINGSMENN Brann eru
vissulega farnir að horfa fram á veg-
inn og vonast eftir því að við vinnum
deildarkeppnina en leikmenn liðsins
eru með báða fætur á jörðinni – það
eru sjö umferðir eftir og margt sem
getur gerst á þeim tíma,“ sagði
Kristján Örn Sigurðsson, varnar-
maður Brann, en hann tryggði lið-
inu 1:0-sigur í Bergen í gær gegn
botnliði Sandefjord. Brann er með
þriggja stiga forskot á Lilleström
þegar liðin hafa leikið 19 leiki,
Brann er með 39 stig en Lillström
er með 35. Stabæk er í þriðja sæti
með 33 stig en liðið á leik til góða – í
kvöld gegn Fredrikstad.
Þetta er fjórða markið hjá lands-
liðsmanninum í deildinni og eitt
þeirra hefur Kristján skorað með
hægri fæti – hin með höfðinu. „Ég
var eitthvað að þvælast í vítateign-
um – að mig minnir eftir horn-
spyrnu. Boltinn fór frá markinu
þeirra en við náðum honum aftur.
Boltinn var sendur fyrir markið og
ég skallaði af stuttu færi í markið.
Ekki fallegasta markið sem hefur
sést en alveg jafnmikilvægt og öll
önnur mörk sem við skorum,“ sagði
Kristján. Það er greinilegt að leik-
menn Brann ætla ekki að fara fram
úr sjálfum sér í væntingunum á
lokaspretti deildarinnar en liðið
„henti“ frá sér titlinum í fyrra á
lokasprettinum. „Það getur allt
gerst í næstu leikjum. Við munum
vel eftir vonbrigðunum í fyrra og
ætlum ekki að endurtaka það.
Stuðningsmenn liðsins eru vissulega
gríðarlega ánægðir og búast við því
að titillinn komi til Bergen í fyrsta
sinn frá árinu 1963. Við ætlum að
taka einn leik fyrir í einu og miðað
við hve deildin er jöfn þá getur allt
gerst á lokasprettinum. Næsti leik-
ur er gegn Fredrikstad á útivelli og
sá leikur verður mjög erfiður – eins
og allir aðrir leikir.“ Kristján sagði
að aðstæður í Bergen hefðu verið
„eðlilegar“. „Það var rigning, að
sjálfsögðu, en við kunnum vel við
okkur í þeim aðstæðum.“
Var að þvælast í teignum
Kristján Örn tryggði Brann 1:0 sigur og liðið nálgast sinn fyrsta titil í 44 ár
ÚRVALSDEILDARLIÐ Skalla-
gríms í körfuknattleik hefur samið
við franska leikmanninn Allan Fall
og mun hann leika með liðinu í vet-
ur. Fall er 25 ára gamall leikstjórn-
andi en hann lék með BS Colfon-
taine í Belgíu á síðustu leiktíð.
Bandaríski leikmaðurinn Darrell
Flake verður áfram í herbúðum
liðsins og Milojica Zekovic sem leik-
ið hefur með Hetti og Tindastól
verður í Borgarnesi í vetur. Banda-
ríkjamaðurinn Kenneth Webb er
þjálfari Skallagríms en hann hefur
áður þjálfað í Noregi og víðar.
Þá hafa forráðamenn bikarmeist-
araliðs ÍR komist að samkomulagi
við Marko Palada frá Króatíu um
að hann leiki með liðinu en hann er
rétt rúmlega 2 m á hæð og leikur
sem miðherji. Áður hafði ÍR samið
við Nedzad Spahic en sá leikmaður
stóð ekki við samkomulagið og fór í
annað lið. Frá þessu er greint á
karfan.is.
Fall í Nesið
SIGURÐUR Ingimundarson, þjálf-
ari íslenska landsliðsins í körfu-
knattleik, segir að leikmenn liðsins
séu spenntir fyrir síðasta leik liðs-
ins í B-deild Evrópumótsins sem
fram fer á miðvikudag í Laug-
ardalshöll. Ísland hefur unnið tvo
leiki í röð í riðlinum en leikið er
gegn Austurríki í lokaleiknum. „Að
okkar mati eigum við harma að
hefna gegn Austurríki. Við töp-
uðum með allt of miklum mun á úti-
velli þar sem tveir leikmenn þeirra
gerðu út um leikinn á lokakafl-
anum. Það er hugur í strákunum að
sýna að þeir séu betri en þeir,“
sagði Sigurður eftir 89:73-sigur
liðsins gegn Lúxemborg. »7
Hugur í
strákunum